Morgunblaðið - 27.10.1994, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
IMEYTEIMDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Þing Neytendasamtakanna
Vill meira af
opinberu fé
FRAMLAG stjómvalda til neytendastarfs í öðrum ríkjum Norðurland-
anna er þrefalt til fjórfalt meira en framlag íslenskra stjómvalda þrátt
fyrir þá stefnumótun stjórnvalda hérlendis að ýta verði undir þróun
Neytendasamtakanna til þess að auka möguleika neytenda á að hagn-
ast á fjölmörgum möguleikum sameiginlegs markaðar EES.
TILBOÐ
wmm
Framlag stjórnvalda til neyt-
endastarfs annars staðar á Norður-
löndum miðað við framlag á íbúa
er 132 kr. í Danmörku, 142 kr. í
Noregi, 95 kr. í Svíþjóð og 135 kr.
í Finnlandi. Framlag ríkisins til
Neytendasamtakanna og áætlaður
kostnaður vegna neytendamála-
deildar Samkeppnisstofnunar er
tæpar 40 kr. á íbúa, þar af fá
Neytendasamtökin 13,50 kr. Sam-
tökin sóttu um fjárveitingu að upp-
hæð 17,1 millj. kr. vegna þessa
árs til þess að geta haldið uppi
„sjálfsagðri þjónusta við almenn-
ing“. Samtökin fengu aftur á móti
4,5 milljónir kr. framlag frá ríkinu,
þar af er aukaijárveiting 1,5 milij.
kr.
Þing Neytendasamtakanna
krefst þess að íslensk stjórnvöld
styrki neytendastarf í sama mæli
og gert er meðal nágrannaþjóða
okkar og standi við skuldbinding-
ar, sem þau hafa tekið á sig með
EES-samningnum. Vegna fá-
mennis í landinu sé útilokað að
byggja neytendastarf að öllu leyti
á framlögum neytenda sjálfra.
Þingið beinir því jafnframt til sveit-
arfélaga að þau kosti með öllu
rekstur kvörtunar- og leiðbein-
ingaþjónustu, eins og algengt er
erlendis.
Gæða- og verðkannanir
Þingið beinir því til stjórnvalda
að þau styrki samtökin þannig að
þau geti sinnt því mikilvæga verk-
efni að annast um verð- og gæða-
kannanir og hvetur sömuleiðis
Samkeppnisstofnun til að fjölga
verðkönnunum frá því sem nú er.
Minnt er á að grundvöllur frjálsrar
samkeppni er að neytendur hafi
yfirlit yfir markaðinn og gegna
verðkannanir þar lykilhlutverki.
Slíkar kannanir draga úr fram-
leiðslu og sölu á lélegum vörum
og knýja á um aukna vöruvöndun
á innlendri framleiðslu sem aftur
eykur möguleika á útflutningi.
Morgunblaði/Emilía
Indverskir dagar
í Hagkaup
Á MORGUN, föstudag, hefjast
indverskir dagar í Hagkaup.
Seldir verða þar ýmsir ind-
verskir munir svo sem handunn-
ar gólfmottur, handofnir dúkar,
borðmottur, púðar, silkislæður
og leðurtöskur. Þá verður mikið
um silfur-, og brassvörur t.d.
kertastjaka, skálar, krúsir,
könnur, tesíur og allt sem nöfn-
um tjáir að nefna.
Margrét Kjartansdóttir, inn-
kaupamaður hjá Hagkaup, seg-
ist sjálf hafa farið til Indlands
og ferðast vítt og breitt um
landið til að kaupa inn þessar
vörur.
Indverskir dagar verða bæði
í Hagkaup Skeifunni og Kringl-
unni og standa yfir svo lengi
sem birgðir endast eða í viku
til tíu daga.
íslenskir kjötiðnaðarmenn í norrænni fagkeppni
Hlutu
flest
verðlaun
HALLDÓR Blöndal, landbúnað-
arráðherra, afhenti íslenskum
kjötiðnaðarmeisturum, sem þátt
tóku í norrænni fagkeppni, verð-
laun nýlega.
Keppnin var haldin í Danmörku
og fengu íslenskir kjötiðnaðar-
meistarar átta gullverðlaun, sautj-
án silfurverðlaun og tíu bronsverð-
laun, eða samtals 35 verðlauna-
gripi.
Islenska liðið hlaut hlutfallslega
flest verðlaun af þátttökulöndun-
um. AIls var send til keppninnar
41 íslensk vörutegund og voru því
aðeins sex tegundir sem engin
verðlaun hlutu.
Slys kosta þjóðarbúið 10 milljarða
Forvarnarstarf
Morgunblaðið/Þorkell
ÓSKAR Erlendsson hjá KEA hlaut titilinn Landsmeistari íslands
1994, en hann varð efstur að stigum meðal íslensku keppendanna.
Keppt í fjórum flokkum
Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins hafði milligöngu um að koma
íslensku vörutegundunum í keppn-
ina og verðlaunagripunum til
landsins.
Keppt var eftir alþjóðlegu fyrir-
komulagi í fjórum flokkum: villi-
bráð, fiski, spægipylsu og sérvör-
um þátttökulanda. íslensku kepp-
endurnir stóðu sig best villibráða-
og sérvöruflokkunum, en lakar í
spægipylsu- og fiskiflokkunum.
EDESA'S ÞVOTTAVÉLAR
Á FRÁBÆRU VERÐI.
- 850 snúningap á m(n.
- Tekur 5 kg. al þvotti.
■M
Aðeins
47.750 kr.
StaOgreltt.
(SJ i
RðFiemZLIM ISLflNDS IF
Skútuvogi 1,104 Reykjavík,
Sími: 688660 - FAX 680776.
í þágu öryggis
NEYTENDASAMTOKIN hafa beint
því til stjórnvalda að gerðar verði
áætlanir um markvisst forvarnar-
starf í þágu öryggis neytenda og
að nauðsynlegt fé verði til reiðu til
starfsins. í þeirri áætlun verði stefnt
að fækkun slysa á vissu árabili, svip-
að og gert hefur verið í nágranna-
löndum okkar. Áætlunin nái til slysa
á fólki í umferð, tómstundastarfs
og heimila. Jafnframt verði slysa-
rannsóknir á vegum slysavarnaráðs
efldar svo að auðveldara verði að
huga að forgangsverkefnum í slysa-
vörnum og heilsuvernd.
í ályktun frá samtökunum segir
að nauðsynlegt sé að meta þann fjár-
hagslega ávinning sem hægt er að
ná fram með fækkun á alvarlegum
slysum, en talið er að slys kosti ís-
lenska þjóðfélagið um 10 milljarða
króna árlega.
Markaðseftirlit
Því er jafnframt beint til stjórn-
valda að þau samræmi og efli mark-
aðseftirlit með rafmagnsvörum, leik-
föngum, barnavörum og öllum vör-
um, sem neytendur afla sér í örygg-
isskyni og til heilsubótar og lögð er
áhersla á að allar varúðarmerkingar
verði á íslensku. Neytendasamtökin
gera sér vonir um að frumvarp um
öryggi vöru og opinbera markaðs-
gæslu nái loksins fram að ganga á
Alþingi í vetur. Þá verði að auka
kynningu um breytingar á eftirliti
hins opinbera með hættulegum vör-
um, en næstu mánuði verða breyt-
ingarnar lögfestar.
Námskeið hjá Hress
Vöðvaupp-
bygging
og matar-
raðgjof
VETRARSTARF líkamsrækt-
arstöðvarinnar Hress í Hafn-
arfirði er nú að fara í gang að
nýju með sjö vikna námskeiðum,
sem hefjast í næstu viku. Lögð
verður meiri áhersla á uppbygg-
ingu vöðva líkamans en áður,
en mikilvægur þáttur í því er
að líkaminn brenni meiri fitu.
Eftir því sem vöðvamassinn er
meiri því meiri er brennslan,
bæði í hvíld og í hreyfingu.
KENNARAR og Ieiðbein-
endur hjá Hress.
Notaðar eru mismunandi þyngd-
ir af lóðum og kynntar verða
nýjar teygjuæfingar með þar til
gerðum handföngum, sem festa
má við úlnlið eða fætur.
Á nýju námskeiðunum verður
farið ýtarlegar í matarráðgjöf
en gert hefur verið til þessa og
boðið verður upp á viðtalstíma
fyrir hvern og einn. Einnig verð-
ur sálræni þáttur offituvanda-
málsins tekin fyrir og reynt að
opna umræðuna um þennan
mikilvæga þátt.
Þá fá karlarnir að sjálfsögðu
áframhaldandi námskeið, en
vegna ítrekaðra óska hefur verið
ákveðið að bæta við einum tíma
í viku hverri þar sem farið verð-
ur út að hlaupa undir leiðsögn.