Morgunblaðið - 27.10.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 17
Díana til
New
York?
DÍANA prinsessa af Wales er
að semja um kaup á íbúð í
- New York og er verðið um 230
milljónir króna, að sögn dag-
blaðsins New York Post í gær.
íbúðin er við Fimmtutröð á
Manhattan, í skýjakljúf í eigu
auðkýfíngsins Donalds
Trumps og herbergin eru 12.
í húsinu á fleira þekkt fólk
íbúðir, meðal þeirra eru Lása
Marie Presley og eiginmaður
hennar, Michael Jackson.
Aðhald á und-
an þjóðar-
atkvæði
TALSMAÐUR sænska fjár-
málaráðherrans sagði í gær
að tillögur um niðurskurð á
fjárlögum er nema um 500
milljörðum íslenskra króna
yrðu lagðar fram 2. nóvember.
Hann visaði þar með á bug
ummælum þingflokksfor-
manns jafnaðarmanna sem
sagði í dagblaðsviðtali að ríkis-
stjómin myndi ef til vill fresta
því að leggja tillögurnar fram
þar til eftir þjóðaratkvæðið um
aðild að Evrópusambandinu
13. nóvember.
Útflutningur
aukinn
BÚIST er við því að hagvöxtur
verði um 4% í Póllandi á ár-
inu, um hálfu prósenti minni
en ríkisstjómin hafði gert ráð
fyrir. í skýrslu sem óháð rann-
sóknastofnun sendi frá sér í
gær kemur einnig fram að
útflutningur hafi aukist til
Vesturlanda á þessu ári.
Staðfesta að-
ildarsamning
STARFANDI ríkisstjóm í
Austurríki hefur staðfest
samninginn um aðild að Evr-
ópusambandinu. Nýtt þing,
sem kjörið var 9. október,
kemur saman 7. nóvember og
hvatti stjórn Franz Vranitzk-
ys, starfandi kanslara, þingið
til að staðfesta samninginn.
Aukinn meirihluta, tvo þriðju,
þarf til að hann verði sam-
þykktur.
ERLEIMT
Kannað hvort Fayed hafi reynt að kúga bresku stjórnina
Siðgæði embætt-
ismanna kannað
London. The Daily Telegraph.
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að láta sérstaka nefnd
undir forystu dómara rannsaka hvort embættismenn og þingmenn hafi
gerst brotlegir við siðgæðisreglur í störfum sínum. Major skýrði frá því
á þingi á þriðjudag að hann hefði beðið ríkissaksóknara að kanna hvort
kaupsýslumaðurinn Mohamed Fayed hefði gerst sekur um tilraun til
að kúga ríkisstjómina til hlýðni með því að að hóta að ljóstra upp um
spillingu ráðherra. Fayed vísaði ásökunum um kúgun harkalega á bug
og hótaði meiðyrðamáli ef þær yrðu endurteknar utan þingsala.
Þingsalurinn var þéttsetinn og
mikil spenna í loftinu er Major sagð-
ist hafa sent saksóknara skýrslu
um fund sinn með milligöngumanni
29. september er hefði tjáð sér að
Fayed vildi eiga fund með forsætis-
ráðherranum.
Milligöngumaðurinn sagði kaup-
sýslumanninn vilja að skýrsla sem
viðskiptaráðuneytið gerði um kaup
Fayeds á Harrods-stórversluninni,
þar sem hegðun hans var harkalega
gagnrýnd, yrði „endurskoðuð eða
stungið undir stól“.
Milligöngumaðurinn gaf einnig í
skyn að Fayed íhugaði að ljóstra
upp um ýmislegt í framferði ráð-
herra stjórnarinnar er ekki þyldi
dagsins ljós.
Major hafnaði fundarboðinu og
skömmu síðar birti Guardian frétt
um spillingu tveggja ráðherra er
þegið hefðu greiðslur fyrir að bera
upp fyrirspurnir er hentuðu Fayed.
Gisting á Ritz
Fyrir viku varð Tim Smith að-
stoðarráðherra að segja af sér
vegna þessara ásakana. Major rak
í reynd annan aðstoðarráðherra,
Neil Hamilton, í fyrradag en sagði
að „óskyldar ásakanir" hefðu valdið
þeirri ákvörðun.
Sir Robin Butler, ritari ríkis-
stjórnarinnar, hefur kannað mál
Fayeds. Sir Robin mun ekki hafa
fundið neitt sem staðfest gæti
ásakanir Fayeds á hendur Hamil-
Reuter
MOHAMED Fayed, eigandi Harrods-stórverslunarinnar, þver-
tekur fyrir að hann hafi greitt tveimur ráðherrum fyrir að
bera upp fyrirspurn í þinginu.
ton um greiðslur fyrir að bera upp
fyrirspurnir. Jafnframt hefur hann
sætt sig við þá skýringu aðstoðar-
ráðherrans fyrrverandi að hann
hafi litið ókeypis dvöl á Ritz-hótel-
inu í París, það er í eigu Fayeds,
sém greiða við sig sem einstakling
en ekki ráðherra. Gistingin kostaði
nær hálfa milljón króna.
Siðgæðisnefnd til starfa
Major sagði að rannsóknamefnd-
in, sem Nolan lávarður mun stýra,
myndi starfa til frambúðar, það
væri nauðsynlegt til að bregðast
við almennri óánægju með siðgæði
í stjórnsýslu. Nefndin mun kanna
vinnusiðgæði allra sem gegna opin-
berum stöðum, þ. á m. þingmanna
Major skýrði þingmönnum frá
því að kannað hefði verið hvort
Mark Thatcher, sonur Margaret
Thatcher, hefði misnotað aðstöðu
sína með einhveijum hætti til að
fá þóknun fyrir milligöngu við sölu
á hergögnum til Saudi-Arabíu. Ekk-
ert hefði komið í ljós sem staðfesti
ásakanir af því tagi.
Cargolux vísar
ásökunum á bug
FLUGFÉLAGIÐ Cargolux neitar
ásökunum um að það þverbijóti flug-
reglur en hins vegar vildu yfirmenn
félagsins ekki greina frá því í gær
hvemig starfs- og hvíldartíma
áhafna væri háttað er eftir því var
leitað. í nýjasta hefti þýska tímarits-
ins Der Spiegel er því haldið frám,
að alþjóðlegar flugregl-
ur um vinnutíma áhafna
séu iðulega brotnar af
Cargolux.
Þegar gengið var eft-
ir því hveijar reglur fé-
lagsins um vinnutíma
væru, var því svarað
til, að þar væri í aðalat-
riðum farið eftir nýjum
evrópskum reglum sem kæmu að
fulju til framkvæmda á næsta ári.
í yfirlýsingunni er vitnað til þess
að nýleg könnun óháðra aðila hafí
leitt í ljós að árlegur flugtími flug-
manna Cargolux sé um 430 stundir
eða rúmlega 100 stundum undir
meðaltali flugfélaga innan samtaka
evrópskra áætlunarfélaga (EAA).
Þá hafi komið í ljós að laun flug-
manna Cargolux séu miklu hærri
en meðaltalslaun flugmanna innan
EAA.
Viðræður við stjórnvöld
í Spiegel kemur fram að þriðj-
ungur flugmanna Cargolux sé
leigður til félagsins af
áhafnaleigu, Sam-Sita,
í Mónakó og njóti þeir
lægri launa en fastráðn-
ir flugmenn. Að sögn
stærsta blaðs Lúxem-
borgar, Luxemburger
Wort, sl. þriðjudag,
stangast þessi ráðstöf-
un félagsins á við lög
þar í landi.
í yfirlýsingu Cargolux segir að
viðræður um heildarkjarasamning
við flugmenn félagsins hafi staðið
yfir frá í mars sl. I þeim viðræðum
leggi flugmenn áherslu á ýmsa ör-
yggisþætti í starfí. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins, gegnur
hvorki né rekur í viðræðunum.
Stjómtækniskóli Islands
Sölustíórnun
Mjög ítarlegt námskeið um helstu þætti sölu-
stjórnunar, svo sem stefnumótun sölumála,
tengingu markaðs- og sölumála, þjálfun
sölufulltrúa, hvatakerfi, deilingu ábyrgðar,
árangursmat, markmibaeftirlit, skipulag sölu-
svæða, söluáætlanir o.fl. Námskeiðib nýtist
þeim vel er vilja taka upp í starfi sínu faglega
sölustjórnun. Tími: 25 stundir.
Leiðbeinandi: Jón Björnsson,
markabs- og sölustjóri Nóa-Síríus.
Jón útskrifabist meó B.S.
próf í markabsfræðum
og stjórnun frá Rider
University í New Jersey
1992.
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Opib til kl. 22. Sími 671466.
Prófkjör sjálfstæðisfólks í Reykjavík 28. - 29. október
Lára Margrét, alþingismaður
Tökum þátt í mótun
morgundagsins
Kosningaskrifstofa Láru Margrétar er opin
á Lækjartorgi, Hafnarstræti 20, 2. hæð,
alla virka daga kl. 16 - 22, laugardaga og sunnudaga kl. 13 -19.
Símar: 2 49 08, 2 49 12 og 2 49 14.
Stuðningsmenn.
Lára
Margrét
í @ sætið