Morgunblaðið - 27.10.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 19
FÉLAGAR I Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands.
Sinfóníutón-
leikar á
Norðurlandi
Húsavík. Morgunblaðið.
HAU STTÓNLEIKAR Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands, fyrstu
tónleikar á öðru starfsári, voru
haldnir á Húsavík laugardaginn 22.
október í hljómleikasal Tónlistar-
skólans.
Hljómsveitarstjóri var Guðmund-
ur Óli Gunnarsson og einsöngvari
með sveitinni var Anna Sigríður
Helgadóttir. Á efnisskránni voru
þrjú verk eftir tónlistarmenn líðandi
aldar, Sköpun heimsins eftir Darius
Milhaut, Þjóðlög útsett eða frum-
samin af Luciano Berio og Divert-
issement eftir Jacoues Ibert.
------» ♦ ♦----- ,
Ásgeir Lárus-
son með tvær
sýningar
ÁSGEIR Lárusson myndlistarmað-
ur opnar tvær sýningar á verkum
sínum laugardaginn 29. október,
aðra hjá Listmunahúsi Ófeigs,
Skólavörðustígs 5, og hina í Gallerí
einn einn. Ásgeir hefur haldið á
annan tug einkasýninga og tekið
þátt í mörgum samsýningum. Jafn-
hliða sýningunum sendir Ásgeir frá
sér ljóðahefti og annast hann dreif-
ingu þess sjálfur.
------» --------
Ný tímarit
• ÚT er komið 2. tbl. (1994)
XLVII. árgangs Úlfljóts, tímarits
laganema. í blaðinu birtist fyrsta
lögfræðilega umfjöllun á íslensku
um lögfestingu Mannréttindasátt-
mála Evrópu síðan Alþingi sam-
þykkti frumvarp hinn 6. maí sl. um
að sáttmálinn skyldi hafa lagagildi
á íslandi. Höfundur er Páll Þór-
hallsson laganemi. í ritgerðinni
víkur höfundur m.a. að mismunandi
viðhorfum sem uppi eru annars
vegar á íslandi og hins vegar í
Danmörku og í Noregi um réttar-
áhrif lögfestingar Mannréttinda-
sáttmála Evrópu varðandi verka-
skiptingu dómstóla og löggjafa; ís-
lenskum dómstólum sé ætlað stórt
hlutverk við að framfylgja sáttmál-
anum.
í blaðinu birtist einnig ritgerð
eftir Eirík Tómasson hæstaréttar-
lögmann. í ritgerðinni, sem höfund-
ur nefnir Hugleiðingar um réttar-
stöðu ráðherra, bendir hann á að
virða beri tilgreind ákvæði þing-
skaparlaga að vettugi.
í ritgerðinni Félagafrelsi og
skylduaðild að lífeyrissjóðum er
einnig vikið að ákvæðum Mannrétt-
indasáttmála Evrópu og stjórnar-
skrárinnar. Höfundur er Jónas Fr.
Jónsson héraðsdómslögmaður.
Prófessor Ármann Snævarr
fjallar um þátt norræns lagasam-
starfs og samnorrænnar löggjafar
í norrænni samvinnu og samkennd.
Ritstjóri Úlfljóts, tímarits laga-
nema, er Gísli Tryggvason.
LISTIR
Klæðskerar
keisarans
TONLIST
Popp
KLÆÐSKERI KEISARANS
MEÐ KOLUM
Klæðskeri keisarans, frumraun
hljómsveitarimiar Koia sem skipuð
er Arnari Halldórssyni bassaleikara,
Benedikt Sigurðssyni og Hlyn Guð-
jónssyni gítarleikurum og Sváfni Sig-
urðarsyni söngvara. Að auki komu
að gerð plötunnar Guðmundur Gunn-
laugsson trommuleikari og Hallgrím-
ur Guðsteinsson bassaleikari. Hljóm-
sveitin gefur sjálf út, Japis dreifir.
54,04 min., 1.999 kr.
ÞAÐ er lítið varið í að vera í
hljómsveit, ef hún gefur aldrei
neitt út, en það hljóta
þó eðlilega að verða
örlög flestra. Með tím-
anum hefur þó orðið
ódýrara og auðveldara
að gefa út og sífellt
algengara að hljóm-
sveit leggi í eigin út-
gáfu; til að svara eftir-
spurn, setja punkt aft-
an við langa æfinga-
lotu eða bara að eiga
eitthvað varanleg til
minningar um sveitina. Ekki skal
hér spáð í hvað liggur að baki út-
gáfu hljómsveitarinnar Kola, sem
sendi frá sér skífuna Klæðskera
keisarans fyrir skemmstu. Ekki á
það þó við að verið sé að svara
eftirspurn, því sveitin hefur nánast
ekkert gert af því að spila fram
til þess að hún sendi frá sér breið-
skífuna, og tónleikalota fór af stað
til að kynna hana. Það stendur og
sveitinni nokkuð fyrir þrifum, því
á plötunni er sitthvað sem betur
mætti fara og hefði líklega slípast
af henni í tónleikahaldi.
Fyrsta lag plötunnar, Drekkt í
blíðu, byijar með ágætri en ófrum-
legri sveiflu, en lagið líður fyrir
afleitan söng, aukinheldur sem
textinn er klénn samsetningur.
Annað lag plötunnar, Örlagadans,
er.lítt skárra og textinn ekki söng-
legur, til að mynda annað erindi
hans: í torfkofa af
lægri gerðinni / var
stiginn dans undir ljós-
hjálmi / og inn kom
Vancouver með kolluna
prúða / í dansinn.
Skiptir engu þó ort sé
um sögulega skop-
mynd. Þriðja lag plöt-
unnar, Kraftaverkasal-
inn, hífir hana þó upp,
því það er prýðilegt og
öllu viðkunnanlegra en
þau sem á undan voru komin. Þar
er söngur allur á lægri nótunum,
sem hæfír vel rödd Sváfnis og
Benedikt skreytir smekklega með
teygðum gítartónum. Þannig
skiptast á lög sem eru beinlínis
misheppnuð á þessari frumraun
Kola, og önnur sem eru vel yfír
meðallagi að allri gerð, til að
mynda falla í fyrri flokk upphafs-
lögin tvö, Raunveruleikinn, Töfrum
líkast, AÍlt litróf lífsins og Fáeinar
línur, en í þann síðari áðurnefndur
Kraftaverkasali, Stingurinn, þó
textinn þar sé ekki um neitt ef vel
er að gáð, og Enginn að hlusta,
þó einnig megi finna góða spretti
í Gegnum eldinn. Þegar upp er
staðið skilur plata Kola þó lítið
eftir sig þó ekki sé hún alvond.
Árni Matthíasson
-------» ♦ ♦-------
■ KVIKMYNDIN Rauða torgið
verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg
10, sunnudaginn 30. október kl. 16.
Þessi mynd var gerð á árinu 1970 og
fjallar um stofnun Rauða hersins í
Rússlandi í febrúarmánuði 1918. Er
efni kvikmyndarinnar skipt í tvær frá-
sagnir. Leikstjóri er V. Ordynskíj.
Skýringartextar eru á ensku. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill.
Ljóð og jazz
Ljóð og jazz á Hótel Borg í kvöld kl. 21.00
Skáld og tónlistarmenn:
Ari Gísli Bragason, Carl Möller, Didda, Guðmundur
Steingrímsson, Jóhann Hjálmarsson, Jón Óskar, Matthías
Johannessen, Nína Björk Árnadóttir, Róbert Þórhallsson,
Steingrímur Guðmundsson og Þorri Jóhannsson.
Aðgangseyrir kr. 500.
Veljum traustan mann til forystu!
Við styðjum Geir H. Haarde í 3. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins dagana 28. og 29. október nk.
og hvetjum sjálfstæðismenn í Reykjavík til að gera það líka.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi
Thomas Möller, framkvæmdastjóri
Kristján Guðmundsson,
formaður verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins
Lilja Hilmarsdóttir, leiðsögumaður
Lárus Jónsson, framkv.stjóri og fv. alþingism.
Þórður Þórarinsson, formaður Heimdallar
Edda Hjaltested, forstöðumaður
Ólafur Öm Klemensson,
formaður Landsmálafélagsins Varðar
Halldór Guðmundsson,
formaður fél. sjálfstæðismanna í Laugameshverfi
Þuríður Pálsdóttir, ópemsöngkona
og yfirkennari
Sigurður M. Magnússon,
formaður fél. sjálfstæðismanna i Langholtshverfi
Unnurjónasdóttir
Þórarinn Sveinsson,
formaður fél. sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi
Arnfinnur Jónsson, skólastjóri
Guðmundur Jónsson, form. fél. sjálfst.m.
í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi
Ellert B. Schram
Jón Öm Jakobsson, formaður fél. sjálfst.m.
í Árbæjar-, Selás- og Ártúnshverfi
Bjöm G. Bjömsson, leikmyndateiknari
Ólafur R. Jónsson, formaður fél. sjálfst.m.
í Hóla- og Fellahverfi
Linda Rós Michaelsdóttir, kennari
Jóhann Hjartarson, skákmeistari
Gísli Júlíusson, formaður fél. sjálfst.m.
í Skóga- og Seljahverfi.
Sigurlaug Sveinbjömsdóttir, fulltrúi
Magnús Jónasson, formaður fél. sjálfst.m.
í Grafarvogshverft
Ársæll Harðarson, framkvæmdastjóri
Margrét Rikharðsdóttir, dagmóðir
Gísli Halldórsson, arkitekt
Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Daði Guðbjömsson, listmálari
Jón G. Zoega, hæstaréttarlögmaður
Helgi Eiríksson, formaður Óðins
Sigríður Þórðardóttir, leikskólastjóri
Guðjón Þórðarson, þjálfari
Guðmundur Þorbjömsson, verkfræðingur
Brynjólfur Ólason, nemi
Guðmundur Ingvarsson, framkvæmdastjóri
Gunnar Felixson, forstjóri
Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari
Ragnar Bjamason
Theódór S. Halldórsson, framkvæmdastjóri SÁA
Óskar Finnsson, veitingamaður
Sigurður Bjömsson, læknir
Gyðajóhannsdóttir, húsmóðir
Geir H. Haarde í