Morgunblaðið - 27.10.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 21
LISTIR
Hörkutól
stíga ekki dans
KVIKMYNPIR
Rcgnboginn
Reyfari „Pulp Fiction"
★ ★ ★ >/2
Leikstjóm og handrit: Quentin Tar-
antino. Aðalhlutverk: John Travolta,
Samuel L. Jackson, Uma Thurman,
Harvey Keitel, Eric Stoltz, Tim Roth,
Amanda Plummer. Miramax. 1994.
NYJASTA uppgötvunin í Holly-
wood heitir Quentin Tarantino.
Hann er einstakur bíófíkill sem kom
á óvart með fyrstu mynd sinni,
„Reservoir Dogs", er fjallaði um
málglaða gangstera sem tortímdu
sjálfum sér. Handrit hans hafa orð-
ið að góðum myndum í höndum
annarra leikstjóra eins og „True
Romance“ og „Natural Bom Kill-
ers“ og öllum að óvöram braust
hann inn á Cannes-hátíðina í vor
vopnaður afsagaðri haglabyssu af
gerðinni „Pulp Fiction“ og rændi
Gullpálmanum með félögum sínum
John Travolta, Samuel L. Jackson
og Bruce Willis. Hún er nú komin
í Regnbogann undir heitinu Reyf-
ari (kannski heppilegri þýðing en
Sorprit).
Andrenalínsprauta er tæki sem
Travolta beitir til að vekja maf-
íudúkkuna Umu Thurman aftur til
lífsins eftir að hún hefur tekið of
stóran skammt af eiturlyfjum.
Hann reisir sprautuna hátt til lofts
og dúndrar henni af öllu afli í hjart-
að á henni og hún sprettur aftur
til lífsins. Svipuð áhrif hefur Tar-
antino á áhorfendur með myndum
sínum. Hann vekur þá harkalega
til lífsins með sögum sínum af bóf-
um og bísurum. Reyfari er ekki
eins ofbeldisfull og „Reservoir
Dogs“ en í henni sýnir Tarantino
enn frekari leikni í því að spila á
yfirvofandi ofbeldi, láta það liggja
í loftinu og gefa það í skyn svo
maður svitnar í lófunum. Engin
persóna hans virðist eiga undan-
komuleið og ef sú leið er til á ann-
að borð er hún að sönnu þyrnum
og þjáningum stráð. Við vitum best
að þegar ofbeldið brýst út verður
það skefjalaust.
Tökum Travolta. Hann er sendi-
tík fyrir mafíósann á svæðinu og
á að gæta dúkkunnar hans eitt
kvöldið en áður en til þess kemur
fáum við að vita að deli sem var í
svipaðri stöðu og Travolta datt
óvart niður af fjórðu hæð af því
hann nuddaði á dúkkunni fæturn-
ar. Svo allt kvöldið sem Travolta
er að skemmta sér með mafíudúkk-
unni Thurman er maður á nálum.
Fara þau út í einhveija bölv. ...
vitleysu sem stefnir lífi þeirra í
hættu? Tökum Bruce Willis. Hann
leikur boxara sem mafíósinn hefur
fengið til að lúta í gólf í fimmtu
lotu en svíkur loforðið og heldur á
flótta. Nema hann gleymdi svolitlu
í íbúðinni og verður að snúa aftur
— afar göfugt reyndar — en maður
skilur ekki hvað hann getur verið
vitlaus. Tökum Harvey Keitel.
Hann leikur svona ruslakall fyrir
mafíufólið, sér um að líkin sjáist
aldrei. Hann hjálpar Travolta og
félaga hans, frábærlega leiknum
af Samuel L. Jackson, til að fjar-
lægja lík úr bílnum þeirra en það
er spenna í loftinu, þetta eru ekki
eðlilegar kringumstæður og maður
getur aldrei reiknað út Keitel.
Tarantino heldur manni þannig
í spennu í heilan tvo og hálfan tíma
án þess að gefa neitt eftir. Frásagn-
100
araðferð hans byggist ekki á beinni,
línulegri frásögn heldur segir Reyf-
ari þijár sögur og byijar aftur á
upphafinu í þriðja þætti, sem hnýt-
ir kaflana saman. Þær eiga, eins
og heiti myndarinnar bendir til,
rætur í sjoppubókmenntum, ódýr-
um reyfuram um líf gangsteranna
þar sem málið er að halda lífi yfir
daginn og ekki síst virðingunni.
Tarantino leggur höfuðáherslu á
snaggaraleg samtöl sem eru frá-
ATRIÐI úr Reyfara eftir
Quentin Tarantino.
bærlega eðlileg, hröð og spaugileg
og snúast um allt milli himins og
jarðar en færa um leið persónurnar
nær áhorfandanum. Þetta er fólk
sem er sífellt að tala um mat, steik-
ur, hamborgara, sjónvarpsþætti,
bíómyndir, hættulegt fótanudd,
hassbúllur í Amsterdam, krafta-
verk, tónlist, hvað sem er. Það er
meira af samræðum í þessari mynd
en samanlagt á nýlokinni franskri
viku og þær era óendanlega meira
spennandi og skemmtilegri. Tar-
antino virðist talsverður Godard-
maður, hann nefnir fyrirtæki sitt,
A Band Apart, eftir „Banda Part“,
mynd Godards frá 1964, og bland-
ar saman evrópskri og bandarískri
frásagnaraðferð í ósigrandi kokteil
um líf bófans í ofbeldisfullri stór-
borgarveröld. Stíll hans liggur ein-
hvers staðar milli Davids Lynchs
og Martins Scorseses. Ljóst er að
Tarantino á eftir að veita þeim
harða samkeppni í framtíðinni.
Travolta endurfæðist á hvíta
tjaldinu í hlutverki krimmans og
fylgdarmannsins. Hann stígur
treglega dans í myndinni, því
hörkutólin eru ekki fyrir dansinn.
Tarantino hefur tekist að gera hann
einna líkastan Leningradkúreka
eins og góður bíómaður benti á i
hléi, með sítt svart hárið og lakkrís-
bindið. Willis kemst næst því að
leika af viti á öllum ferli sínum en
Jackson er senuþjófurinn í hlut-
verki félaga Travolta og pakkar
myndinni saman í lokin. Keitel er
hryllilega röggsamur í litlu hlut-
verki. Leikaraliðið er yfírleitt
óborganlegt og á Tarantino því
mikið að þakka.
Arnaldur Indriðason
Metalbakki 35 sm kr. 199,-
Krómbakki kr. 199,-
Krómbakki ferk. kr. 199,-
Dosaopnari kr. 249,-
Öryggisljós fyrir blla
kr. 1.495,-
Vasaljós kr. 149,-
Tölvudisklingar
10 stk. kr. 989,-
Málningarúlla kr. 139,-
Málningarpenslar og
spabar kr. 199,-
Baösett kr. 689,-
Braubbretti 5 stk. kr. 499,- Brauöbretti 7 stk.
kr. 549,-
HAGKAUP
SKEIFAN, AKUREYRI, NJARÐVÍK, KRINGLAN MATVARA
Tilboðin gilda aðeins í viku,eða á meðan birgðir endast.
Grænt númer póstverslunar er 996680.