Morgunblaðið - 27.10.1994, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Thorarensensætt
BOKIVIENNTIH
Ættf ræði
Niðjatal Þórarins Jónssonar sýslu-
manns á Stóru-Grund í Ejjafírði og
konu hans Sigríðar Stefánsdóttur.
1. og 2. bindi: Niðjar Stefáns Þórar-
inssonar. Ættfræðistofa Þorsteins
Jónssonar hf. tók saman. Ritíð er
byggt á handriti Lárusar Jóhannes-
sonar. Þjóðsaga hf., 1994,857 bls.
Á EFRI árum sínum varði Lárus
Jóhannesson hæstaréttardómari
tómstundum sínum til ættfræði-
rannsókna. Viðfangsefni hans
voru tvö: afkomendur Bjöms Blön-
dals sýslumanns Húnvetninga og
konu hans Guðrúnar Þórðardóttur
- og Þórarins Jónssonar sýslu-
manns og konu hans Sigríðar Stef-
ánsdóttur. Þetta eru löng niðjatöl
og hafði Lárus safnað til þeirra
geysimiklu efni er hann lést árið
1977 tæplega áttræður að aldri.
Ekki auðnaðist honum að sjá þessi
miklu verk komast á prent. Blön-
dalsættin kom út í einu stóru bindi
árið 1981 og sá Jón Gíslason póst-
fulltrúi um frágang ritsins. Það
rit var gefið út af Skuggsjá í
Hafnarfirði og er skráð Niðjatal
I. Sjálfsagt hefur því verið ætlunin
að Thorarensensætt fylgdi á eftir.
En það hefur breyst og eru vafa-
laust margar ástæður þar að baki.
Ein er sú að efnisöflun til Thorar-
ensensættar var skemmra á veg
komin og þurfti langan tíma til
undirbúnings fyrir prentun. Hafa
þar nokkrir menn komið við sögu.
Nú síðast tók Bókaútgáfan Þjóð-
saga að sér útgáfu verksins og fól
Ættfræðistofu Þorsteins Jónsson-
ar að ljúka því. Er það í þessari
útgáfu tíunda niðjatalið í ritsafn-
inu Ættir íslendinga.
Thorarensensætt verður geysi-
mikið verk þegar allt er út komið.
Þórarinn sýslumaður á Grund (f.
1719) og kona hans Sigríður (f.
árs ekki getið) eignuðust fimm
syni. Afkomendur þeirra tóku upp
ættamafnið Thorarensen. Allir
synirnir komust til fullorðinsára
og eignuðust afkomendur. Elstur
sonanna var Stefán amtmaður á
Möðruvöllum. Hann var einnig
barnflestur, átti átján böm. Af-
komendur hans fylla þessi fyrstu
Hver skammtur er heill bringubiti eða
læri með væng eða legg. Þannig færð þú
alltaf 1/4 úr kjúkling. A A
Mikið fyrir lítið. Hver
skammtur á aðeins kr. 249,-!
iMcDonald's
VEITINGASTOFA FJÖLSKYLDUNNAR - SUDURLANDSBRAUT 56
Lárus Jóhannesson
tvö bindi. Alls er
gert ráð fyrir að
Thorarensensættin
verði sex bindi.
Þetta rit er með
sama sniði og önnur
rit í Ættum íslend-
inga. Brotið er hið
sama, uppsetning
texta eins (tvídálka)
og myndum fyrir-
komið með sama
hætti. Mikill fjöldi
mynda er af niðjum
og mökum þeirra,
svo og margar
gamlar myndir af
stöðum sem við-
koma ættinni. Að einu leyti víkur
þó textinn frá því sem venjan er
í þessari ritröð. Lárus hafði þann
hátt á að rita meira um elstu ætt-
liðina en venjan hefur verið í þessu
ritsafni. Hann rekur talsvert ævi-
feril manna og ættir þeirra og
stundum er að finna mannlýsing-
ar. Fyrir kemur að hann segir frá
í fyrstu persónu. Þessu kann ég
vel, því að það gerir frásögnina
litríkari og læsilegri. Stöku sinnum
gætir þó missmíða í að fella saman
frásögn Lárusar og umsjónar-
manna útgáfunnar, t.a.m. í um-
sögn um Stefán Þórarinsson í upp-
hafi bókar.
Býsna fróðlegt er að blaða í
þessu niðjatali eins og raunar öll-
um öðrum. Hér er margt manna
sem komist hefur til vegs í samfé-
laginu, embættismenn og kaup-
menn, svo að eitthvað sé nefnt.
Tiltölulega fáir af niðjunum bera
Thorarensensnafnið, en áberandi
er hversu mikið er um önnur ætt-
arnöfn: Stephensen, Blöndal,
Scheving, Melsted, Jóhannessen
o.fl. o.fl. Allmikið er um að niðjar
hafí flust til annarra
landa svo sem Vestur-
heims og Danmerkur.
Vantar þá því miður
stundum upplýsingar.
Eins og ég hef stund-
um ninnst á þegar ég
hef ijallað um rit í þessu
safni, hef ég engin tök
á að ganga úr skugga
um hvort ættfærslur eru
réttar, öll börn talin eða
ártöl rétt o.s.frv. Slíka
könnun gerir enginn
umsegjandi bókar. Þess-
um atriðum verður að
taka eins og þau koma
fyrir. Maður tekur eftir
augljósum prentvillum, texta-
brenglun eða skekkjum í umbroti.
Prentvillur virðast mér fáar. Á
milli bls. 113 og 114 virðist mér
að eitthvað hljóti að hafa fallið
niður. Einni endurbót frá fyrri rit-
um tók ég eftir. Börn eru nú færð
til ættar eftir aldri, án tillits til
hjúskaparstöðu foreldra. Þetta er
tvímælalaust réttara.
Þess má geta að enda þótt þessi
tvö bindi séu hluti af mun stærra
verki eru þau engu að síður sjálf-
stætt ritverk. Um það vitnar t.a.m.
nafnskrá i lok síðara bindis. Af-
komendur Stefáns amtmanns sem
ekki hirða um frændsemi við bræð-
ur hans geta því keypt þessar tvær
bækur án þess að hugsa um fram-
haldið.
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur nú
tekið að sér útgáfu þessa ritsafns
og raunar fleiri rita ættfræðilegs
eðlis. Ber að fagna því þar sem
vænta má að með því sé útgáfa
þessara rita komin í góða höfn,
en á það hefur nokkuð vantað fram
undir þetta.
Sigurjón Björnsson
Nýjar bækur
Ævinlega
Skáldsaga eftir
Guðberg Bergsson
ÚT ER komin ný skáldsaga eftir
Guðberg Bergsson, Ævinlega. í
kynningu útgefanda segir meðal
annars:
„Vífíll gullsmiður er ókvæntur
maður á miðjum aldri, sem hefur
ekki gengið í hjónaband af því hann
þráir að elska manneskju aðeins
einu sinni, ævilangt á meðan lífíð
endist, en ekki fundið hana, eins
v I K 9 \
Næstu vikuna* býður IKEA þetta Edserum leðursófasett
á einstöku verði
sæta sófinn 59.000 kr.
fyrir fólkið í landinu
*27. október - 3. nóvember 1994
Holtagörðum við Holtaveg / Slmi 68 66 50 / Grænt númer 99 68 50
og segir í sögunni. Dag einn þegar
Vífíll er á gangi á Laugaveginum
birtist ljóslifandi konan sem hann
hafði geymt í hjarta sínu í fjörutíu
ár. Það virðist deginum ljósara að
fundur þeirra tveggja er upphaf að
hamingjuríkri sambúð og ævilöngu
hjónabandi.
Guðbergur Bergsson fer á kost-
um í lýsingu sinni
á samskiptum og
sambúð kynjanna.
En ekki er allt sem
sýnist og á bak við
grínið og háðið
leynist saga af leit
manneskjunnar að
ást og hamingju."
Guðbergur
Bergsson er meðal
kunnustu og af-
kastamestu rit-
höfunda okkar. Skáldsaga hans,
Svanurirtn, hlaut íslensku bók-
menntaverðlaunin og var tilnefnd
til Bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs 1992. Hún hefur fengið
góðar viðtökur erlendis, meðal ann-
ars í Danmörku, Svíþjóð og Tékk-
landi og nýlega hefur verið gengið
frá útgáfusamningi um franska
þýðingu Svansins hjá franska út-
gáfufyrirtækinu Gallimard.
Útgefandi er Foriagið. Ævinlega
er 153 bls. að stærð, prentuð í
Prentsmiðjunni Odda hf. Eriingur
Ingvarsson gerði kápu. Bókin kost-
ar 2.980 krónur.
Guðbergur
Bergsson.
-kjarni málsins!