Morgunblaðið - 27.10.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 23
Nútíð
við fortíð
MYNPLIST
Norræna húsíö
VEFJARLIST
RUTH MALINOWSKI
Opið frá kl. 14-19 alla daga til 6.
nóvember. Aðgangiu* 200 krónur.
Á LÍKUM tíma og dönsku dagarn-
ir voru í hámarki var opnuð sýning
hinnar þekktu vefjarlistakonu Ruth
Malinowski í kjallarasölum Norræna
hússins.
Dönsku dagarnir fóru að mestu
framhjá rýninum, sem ekki var kall-
aður á vettvang, en hann sá ágæta
hönnunarsýningu í Ráðhúsþrónni og
skoðaði í tvígang teiknimyndasýn-
inguna í anddyri Norræna hússins,
en ekki náði hún umtalsverðum tök-
um á honum, enda um að ræða þá
grein teiknimynda sem hann hefur
haft einna minnstan áhuga á eftir
að uppvaxtarárunum sleppti.
Það er gott að fá markverðar list-
sýningar, sem opnar eru í nokkrar
vikur með slíkum kynningardögum,
því að annað dagskrárefni stendur
of stutt til að mögulegt sé að gera
því nokkur skil nema í yfirliti eftirá,
en sem betur fer er dönsk listhönnun
vel þekkt stærð á íslenzkum menn-
ingarvettvangi.
Þrátt fyrir að við höfum kynnst
verkum nokkurra ágætra danskra
vefjarlistarkvenna var nafnið Ruth
Malinowski svo til óþekkt utan þess
að hún var gift hinu þekkta ljóð-
skáldi Ivan Malinowski, sem lést
1989, og margur vissi af, en hann
var gestur á eftirminnilegu skálda-
þingi í Norræna húsinu 1985. Það
hefur farið hljótt, að hún er höfund-
ur teppisins „Lífsins tré“ í Staðar-
staðakirkju, sem er eitt örfárra vefj-
arlistaverka í íslenzkum kirkjum.
Ruth Malinowski er fædd í Vínar-
borg, en flúði þaðan ásamt móður
sinni til Danmerkur árið 1938 undan
ofsóknum nazista. Faðir hennar, sem
var læknir, komst tii Tei Aviv í Pal-
estínu. Síðar flúðu þær mæðgur til
Svíþjóðar, en að stríði loknu settust
þær að í Kaupmannahöfn á ný og
þar var starfsvettvangur hennar.
Það er sterk og heilsteypt sýning
sem fyllir báða kjallarasalina og
skoðandinn verður fljótlega var við
að hér er um afburða vefnað að
ræða handverkslega séð. Formin eru
stór og einföld, litirnir fáir en mark-
vissir.
Það lætur að líkum að Ruth hafi
fengið sígilt listrænt uppeldi í Kaup-
mannahöfn og maður sér fljótlega
að hún á hér ýmislegt sameiginlegt
með Ásgerði Búadóttur hvað áferð
og tæknilega útfærslu verkanna
snertir, enda skarast skólun þeirra
vafalítið.
Á þroskaárum listakonunnar var
strangflatalistin í öndvegi sem fram-
úrstefna og dregur formsýn hennar
mjög dám af því og einkum leiða þau
hugann að stórstirnum Parísarskól-
ans á sjötta áratugnum og þá er
raunar stutt í algild tákn og sam-
mannleg úr hinum ýmsu trúarbrögð-
um. Ekki veit ég fullkomlega hvort
Ruth hafi strax tileinkað sér hin ein-
földu og knöppu vinnubrögð eða
smám saman nálgast þau. Hún mun
samt lengi hafa unnið í svart/hvítum
blæbrigðum, eins og strangflata-
meistararnir gerðu um árabil, svo
myndir þeirra minntu sterklega á
grafík, og má minna á þetta tímabil
hjá Þorvaldi Skúlasyni 1952.
Strangflatalistin lifði endurnýjaða
daga í hinni svonefndu naumhyggju
og vera má að það hafi haft einhver
áhrif á formsýn hennar, en satt að
segja varð manni strax hugsað til
sjötta áratugarins er inn í sýningar-
rýmið kom og teppin blöstu við.
Helst þrengdu sér í sjónhimnu mína
verk eins og „Herkúleanum" (1),
„Bak við múrana" (2), „Apríl - 92“
(7), „Nýr morgunn", „Hvít nótt og
„Blár tími“ (15-17).
Varðandi sýninguna í heild er vert
að líta enn frekar til baka og þá
kemur í ljós, að hin útskúfaða
strangflatalist hefur lifað góðu lífí
allan tímann, þótt ekki hafí hún ver-
ið mikið í sviðsljósinu. Naumhyggjan
eða „minimalisminn“ tók fljótlega við
af henni og hennar sér stað í ótal
útgáfum allt frá blómaskeiðinu á
sjötta áratugnum og fram á daginn
Nýjar bækur
I luktum heimi
•_ +
Skáldsaga eftir Fríðu A. Sigurðardóttur
ÚT ER komin ný skáldsaga
eftir Fríðu Á. Sigurðardótt-
ur, í luktum heimi. í kynn-
ingu útgefanda segir meðal
annars:
„Hann heitir Tómas, er
tæplega fimmtugur og
áleitnar spurningar sækja
að honum: Hvað er það sem
gefur lífinu gildi? Hvaða
stjórn hefur einstaklingurinn
á örlögum sínum? Ástinni?
Hamingjunni? Eða eru ást og ham-
ingja kannski bara orðin tóm.; slit-
gjarnt haldreipi hins örvæntingafulla
manns sem kominn er af léttasta
skeiði?
í luktum heimi er skáldsaga sem
ekki bregst lesendum Fríðu; hér má
glöggt þekkja höfundareinkenni
hennar um leið og hún sýnir á sér
nýjar hliðar. Sagan er í senn
átakanleg og sorgleg, en í
stílnum býr jáfnframt leiftr-
andi kímni og djúpur mann-
skilningur."
Fríða Á. Sigurðardóttir er
meðal kunnustu rithöfunda
íslendinga. Hún hefur hlotið
margvíslegar viðurkenning-
ar fyrir ritstörf og verk
hennar hafa verið þýdd á
ijölda tungumála. Síðasta
skáldsaga Fríðu, Á meðan nóttin líð-
ur, hlaut bæði íslensku bókmennta-
verðlaunin og Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs.
Útgefandi er .Forlagið. í luktum
heimi er 281 bls. að stærð, prentuð
í Prentsmiðjunni Odda hf. Erlingur
Ingvarsson gerði kápu. Bókin kostar
3.380 krónur.
Fríða Á. Sig-
urðardóttir.
Asgerður Jóna Flosadóttir
Sjálfstæðisflokkurinn
metur konur að
verðleikum
| Konur eru tilbúnar til að axla ábyrgð
Tryggjum Ásgerði Jönu
8.-10. sœtið
LISTIR
VERK eftir Ruth Malinowski.
í dag. Er einnig vert að athuga, að
vegur minimalismans varð aldrei
meiri, en er nýja málverkið hafði
runnið sitt skeið, en nú er sá kvóti
einnig fullur að því er virðist og
margur ósjálfstæður og tvílráður
svífur í lausu lofti.
En vægi listamanna á borð við
Malinowski og fleiri er jafn mikið
hvað sem efst er á baugi hveiju sinni,
því þeir eru hafnir yfír slíkan línu-
dans, sem við í norðrinu virðumst
næmari fyrir en aðrir á hnettinum.
Það er þannig margt sem ber að
athuga við skoðun sýningar Ruth
Malinowski. Sé það gert birtist hún
í nýju og mun sterkara ljósi, því að
hér er sannur og markverður lista-
maður á ferð.
Bragi Ásgeirsson.
Fyrirlestur
í Nýlista-
safninu
TORGNY Larsson heldur fyrir-
lestur í Nýlistasafninu í dag
fimmtudag, kl. 21. Fyrirlesturinn
ber heitið Sjónlistir: Arkitektúr,
umhverfislist og áhrif myndlist-
armanna á manngert umhverfi.
Torgny Larsson er sænskur
myndlistarmaður og kennari við
konunglega Listaháskólann í
Stokkhólmi. Hann er hér í boði
Myndlista- og handiðaskóla ís-
lands. í fréttatilkynningu segir:
„Viðfangsefni hans er skipulagt
umhverfi og myndlist og gerir
hann ekki upp á milli þessara
þátta, en leitar leiða til að auka
vægp myndlistar í ferli skipu-
lags.“
Á fyrirlestrinum verða sýndar
litskyggnur af útiverkum og
borgarumhverfi og fer hann
fram á ensku. Þetta er fyrsti
fyrirlestur vetrarins í Nýlista-
safninu, en stefnt er að því að
haldinn verði einn fyrirlestur í
mánuði.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Vantar þig SJÁLFSKIPTAN bíl
á hagstæbu verði?
Efsvo er, þá er SUZUKISWIFT bíllinn fyrir þig
Suzuki Swift er aflmikill og einstaklega sparneytinn bíll með þraut-
reyndum 3ja þrepa sjálfskiptingum. Bílarnir eru mjög vel búnir og
á verði sem stenst alla samkeppni - gerið verðsamanburð.
Suzuki Swift 3ja dyra GLSi sjálfskiptur
* vi v/ uv/v-uij
kr. 1.076.000
duiudiuuiiauui
• 58 hestafla vél
m/beinni innspýtingu
• Framhjóladrif
• Sjálfstæö gormafjöörun
• Heilkoppar
• Hliöarlistar
• Snúningshraöamælir
• Stokkur milli framsæta
•Tvískipt aftursæti
• Afturrúöuþurrka
• Litaöar rúöur
• Tölvuklukka
• Læst hanskahólf
• Sportstýri
• Gosdrykkjahaldari
• Afturhleri
opnanlegur innanfrá
Suzuki Swift Sedan GL 4ra dyra sjálfskiptur
Verö aöeins
kr. 1.248.000
• 71 hestafla vél
m/beinni innspýtingu
• Framhjóladrif
• Sjálfstæö gormafjöörun
• Vökvastýri
• Hliöarlistar
• Snúningshraðamælir
• Stokkur milli framsæta
• Tvískipt aftursæti
• Litaðar rúður
• Tölvuklukka
• Læst hanskahólf
• Gosdrykkjahaldari
• Farangursgeymsla
og bensínlok
opnanlegt innanfrá
Sérstakurývetrarbónus!
SIIZUKI Útvar^S^jódekk
*l^r Tökum gamla bílinn uppi og
SUZUKI BILAR HF skeifunni 17 sími 68 51 oo lánum til allt að 60 mánaða.