Morgunblaðið - 27.10.1994, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Skilnaðír í tízku!
HÖFUNDUR Reykjavíkurbréfs
Morgunblaðsins, þann 23. október
sl., vandar þeim foreldrum ekki
kveðjurnar, sem valið hafa hjóna-
skilnað, þrátt fyrir bameign. Aug-
ljóslega er slíkt framferði höfundin-
um með öllu óskiljanlegt. í einu og
öllu get ég tekið undir þær áhyggj-
ur sem bréfshöfundur hefur, vegna
aukins ofbeldis bama og unglinga.
Ég get einnig tekið undir þau sjón-
armið að í grundvallaratriðum ber
okkur að standa vörð um gömul
gildi og góð og þar vil ég alls ekki
undanskilja hina gömlu og oft góðu
stofnun, hjónabandið. En ég get
ekki látið hjá líða að gera nokkrar
athugasemdir við þau forpokuðu og
þröngsýnu sjónarmið, sem mér
finnst koma fram í ofangreindu
bréfi, í garð þeirra þúsunda íslend-
inga sem hafa gengið í gegn um
hjónaskilnaði - þar fínnst mér
gæta mikillar vanþekkingar, for-
dóma og jafnvel hroka hjá höfundi
Reykj avikurbréfs.
Meðal þeirra kveðja úr Reykja-
víkurbréfínu, sem fóm fyrir brjóstið
á undirritaðri, var þessi: „Nú em
skilnaðir í tízku og sjálfsagt þykir,
að fólk skilji ef því sýnist svo. En
áhrif og afleiðingar skilnaðar for-
eldra fylgja bömum þeirra alla ævi
með einum eða öðmm hætti. Það
má færa sterk rök að því, að þeir
sem á annað borð taka á sig þá
ábyrgð að koma nýjum einstaklingi
í heiminn, hljóti að axla þær byrð-
ar, sem því kunna að fylgja, þar
til sá einstaklingur er fær um að
standa á eigin fótum."
Erfíð og sársauka-
full ákvörðun
Ég ætla ekkert að'-fullyrða um
hvað bréfshöfundur þekkir yfírleitt
til skilnaðarmála, aðdraganda þess
að ákvörðun er tekin um skilnað
eða áhrifanna, sem sú ákvörðun
hefur á líf og tilfínningar þeirra sem
þar koma nálægt, hvort sem um
er að ræða foreldra eða böm.
Hins vegar leyfí ég mér að stað-
hæfa, að ákvörðun um skilnað er
erfíð og sársaukafull ákvörðun, sem
tekin er, þegar sambúðaraðilar,
annaðhvort báðir eða annar, em
komnir að þeirri niðurstöðu að ekk-
ert geti bjargað hjóna-
bandinu eða sambúð-
inni. Slík ákvörðun er
ekki tekin vegna þess
að það sé „í tízku að
skilja“ né vegna þess
að „sjálfsagt þykir að
fólk skilji ef því sýnist
svo“. «*
Raunar hallast ég að
því, að höfundur
Reykj avíkurbréfsins
hafí einungis hugsað
efni bréfs síns til hálfs,
en ekki til fulls. Hann
hefði kannski mátt hug-
leiða, þó ekki væri nema
í nokkram línum, hvaða
áhrif það hefur á sálarlíf barna og
unglinga að alast upp í ástlausu
hjónabandi foreldra; að alast upp
þar sem stöðugur ófriður ríkir á
heimili, vegna þess að foreldrana
greinir á, á flestum ef ekki öllum
sviðum; að alast jafnvel upp við að
foreldramir beiti hvort annað of-
beldi, andlegu, líkamlegu eða
hvomtveggja.
Ætlar höfundurinn að halda því
fram, að öryggisleysi skilnaðar-
bams og varanlegur tilfínningaleg-
ur skaði sé meiri heldur en hjóna-
bandsbamsins, sem elst upp í úlfúð
og átökum? Varla! En líklega mun
hann halda því fram, að þeir sem
á annað borð axla ábyrgðina af því
að koma nýjum einstaklingi í heim-
inn verði þar með ábyrgir fyrir því,
að sambúðin sem til er stofnað
gangi þolanlega fyrir sig. Slíkt er
einfaldlega ekki á færi allra að
ákveða, hvort sem bréfshöfundi lík-
ar betur eða verr.
Samleið í þroska
Væntanlega skilur bréfshöfund-
ur, að ungt fólk í dag, um og upp-
úr tvítugu, sem ákveður að stofna
til hjónabands eða sambúðar, gerir
slíkt vegna þess að það er ástfang-
ið og telur sig líklega í flestum til-
vikum hafa fundið sér lífsfömnaut.
En reynslan sýnir, að svo er ekki
alltaf.
Einstaklingamir þroskast á mis-
munandi hátt; sumir eiga sér sam-
leið í þroska og finna lífi sínu sam-
eiginlegan farveg. Aðrir þroskast
í sitt hvora áttina,
hætta að eiga nokkuð
sameiginlegt, væntum-
þykjan hverfur og
sundmng, óeining,
jafnvel óvinátta getur
tekið við af því sem var
og hvað er þá til ráða?
Bréfshöfundur legg-
ur það eitt til málanna,
að þeir, sem á annað
borð eru orðnir foreldr-
ar, þreyi þorrann og
góuna og vel það, því
þeir eiga, að mati höf-
undar, að þrauka í sam-
búð, sem kann að hafa
breyst í Helvíti á jörðu,
þar til bam þeirra eða börn em fær
um að standa á eigin fótum. Nú
til dags er vart hægt að gera þá
kröfu, að slíkt gerist, fyrr en börn-
in em komin um tvítugt.
Einhvem veginn finnst mér sem
þekking höfundar Reykjavíkur-
bréfs á áhrifum og afleiðingum
skilnaðar á börn sé fremur tak-
mörkuð og hljóti að taka mið af
einhverjum öfgakenndum dæmum,
frekar en hinu almenna.
Ég er sannfærð um að skilnaðar-
böm eiga í mörgum tilvikum jafn-
góða möguleika á að alast upp í
tilfínningalegu öryggi og ástríkri
umönnun og hjónabandsbörn. Auð-
vitað er þetta ávallt undir þeim
einstaklingum komið, sem ákvörð-
un taka um að slíta samvistir. Það
hlýtur að vera flestum foreldrum,
ef ekki öllum, keppikefli, að haga
lífi sínu á þann veg, í sambúð eða
eftir sambúðarslit, að börnin líði
ekki fyrir ákvarðanir foreldranna.
Því skiptir það sköpum, þegar
niðurstaðan er sú að skilja, að slíkt
sé gert á skynsamlegan hátt, þar
sem samstarf og samhugur ræður
afstöðu foreldranna þeirra á milli
og að því er varðar uppeldi og
umgengni þess foreldris við bömin,
sem þau ekki búa hjá.
Höfundi Reykjavíkurbréfs er
óhætt að trúa því, að börnum líður
betur, sem eiga foreldra sem slitið
hafa samvistum, en em samt sem
áður vinir, heldur en börnum sem
búa hjá báðum foreldrum, sem
Hjónaband er engin
trygging fyrir góðu
uppeldi, segir Agnes
Bragadóttir, sem telur
að höfundur Reykjavík-
urbréfs sé haldinn for-
dómum í garð þúsunda
fráskilinna foreldra
og barna þeirra.
ekki þola hvort annað og talast
vart við, nema þá helst eins og
hundur og köttur.
Nú eiga foreldrar valið
Það er alveg rétt hjá bréfshöf-
undi, að skilnaðir eru mun tíðari
jiú, en þeir vom hér á árum áður.
En skýring þess er ekki sú, að
skilnaðir séu í tísku. Skýringin ligg-
ur m.a. í því, að nú eiga foreldrar
frekar það val að slíta samvistir
en þeir áttu áður, sérstaklega kon-
ur.
Konur fyrir nokkmm áratugum
voru minna menntaðar, en þær al-
mennt eru í dag. Þær voru einnig
í minna mæli úti á vinnumarkaðn-
um, en þær eru í dag. Einatt stóðu
þeim vart önnur störf til boða, en
láglaunastörf, sem þar af leiðandi
þýddi, að þær gátu ekki tekið
ákvörðun um að slíta sambúð,
hversu óhamingjusöm sem hún
var. Þær voru dæmdar til þess að
vera inni á heimilinu, annast heim-
ilisrekstur og barnauppeldi og
sætta sig við slæmt hjónaband, því
þær áttu ekki í önnur hús að venda.
Nú eru breyttir tímar. Konur
hafa menntast, þær hafa haslað sér
völl á vinnumarkaðinum, þær em
ekki lengur dænidar til þess að
sætta sig við óhamingjusamt hjóna-
band — þær geta skilið við menn
sína og hafíð nýtt, betra líf, með
börnum sínum.
Því miður er þetta enn sem kom-
ið er ekki hin almenna staða kon-
unnar, sem í mjög mörgum tilvikum
Agnes Bragadóttir
verður að sætta sig við mun lægri I
laun en karlamir þurfa að gera. }
Einstæðar mæður á íslandi em enn
einna verst setti hópurinn á vinnu-
markaðnum. En það hefur orðið
raunvemleg breyting til hins betra
— á því er ekki nokkur vafí og
staða konunnar á enn eftir að batna
— fyrir því munu konur á næstu
ámm og áratugum beijast, með
oddi og egg, jafnvel kjafti og klóm. }
Karlamir munu ekki geta snúið
við þeirri þróun, hvort sem þeim *
líkar betur eða verr. Þeir munu f
einnig fínna áþreifanlega fyrir því,
að einstæðir foreldrar, einstæðar
mæður í flestum tilvikum, en einn-
ig einstæðir feður, skila samfélag-
inu almennt ekki lakari einstakling-
um en sambúðarforeldrar.
Gott uppeldi
Gott uppeldi verður ekki tryggt 1
í stofnun eins og hjónabandi. Hætt- |
an á rofnum tengslum foreldra og g
barna er ekki síður fyrir hendi í *
hjónabandi, en hjá einstæðu for-
eldri, samkvæmt því sem ég þekki
til. I íslensku nútímaþjóðfélagi er
mikið vinnuálag og lífsgæðakapp-
hlaup allt of oft .ríkjandi þáttur,
ekki síður í fjölskylduforminu, sem
byggist á sambúð, en hinu, sem
byggist á heimili þar sem eitt for- |
eldri ræður ríkjum, með börnum
sínum.
Stofnunin hjónaband er engin |
trygging fyrir góðu og ástríku upp-
eldi. Það er hins vegar foreldri sem
elskar börn sín, ræktar, sinnir
þeim, gefur þeim tíma, virðir og
er vinur þeirra. Það er foreldri, sem
veit að á því hvílir geysileg ábyrgð,
að undirbúa þann einstakling eða
þá einstaklinga, sem því hefur ver-
ið trúað fyrir um stundarsakir, fyr- |
ir lífið á þann veg, að grunnur
hafi verið lagður að því að nýtir,
traustir og heiðarlegir þjóðfélags- |
þegnar leggi sjálfir út á lífsins
braut.
Mér sýnist sem það séu forpokuð
og þröngsýn sjónarmið höfundar
Reykjavíkurbréfs í garð þeirra, sem
hafa slitið samvistir, og barna
þeirra, sem eru kveikjan að því,
að hann telji að böm fráskilinna
foreldra hljóti að vera verr undir
lífsbaráttuna búin, en hjónabands-
börnin. Alhæfing sem höfundi *
Reykjavíkurbréfs er ekki samboðin ■
og á ekki við rök að styðjast.
Höfundur er blaðamaður og
fráskilin tveggja barna móðir.
• •
sporum
...sþarar þu
Leður
skrifborðsstóll
Quick bréfabindi 75 mm
Diskettur HD 1,4 mb 10 stk.
Ljósritunar- og laserpappír so gr. 2500 biöð
Faxpappír 30 m
179 kr.
599 kr.
1.399 kr.
189 kr.
Opiðallavirkadaga
11.30-18.30 íSkeifunni 11.
Súni: 882888.
Kirkjuvika í Reykjavíkurprófastsdæmum
Fjölbreytt öldrunarstarf
Öldrunarstarf í Reykja-
víkurprófastsdæmum er
fjölbreytt, segir Sigrún
Gísladóttir, og söfnuðir
í Reykjavík sinna heim-
sóknarþjónustu í vax-
andi mæli.
Fræðsla, uppbygging,
helgihald
ÁRIÐ 1982 var ellimálaráð
Reylrjavíkurprófastsdæmis stofnað.
Markmið þess er að vinna að kristi-
legri öldmnarþjónustu í söfnuðum.
Ráðið hefur gengið í broddi fylking-
ar og gengist fyrir ýmsum nýjungum
í öldmnarstarfí safnaðanna. Einnig
hefur ráðið gengist fyrir fræðslu-
fundum og ráðstefnum um málefni
aldraðra. Framkvæmdastjóri ráðs-
ins, Sigrún Gísladóttir hjúkrunar-
fræðingur, annast ráðgjöf, fræðslu
og stuðning við starfsfólk safnað-
anna og daglegan rekstur ráðsins.
Ellimálaráð hefur einnig gengist fyr-
ir útgáfu fræðsluefnis til notkunar
í öldranarstarfi.
SAMVERA í Langholtskirkju.
konar fræðsla, opið hús þar sem
fólk kemur saman til að spila, föndra
og fræðast, biblíulestrar og hóp-
starf. í sumum kirkjum er boðið upp
á fót- og hársnyrtingu. í vetur er
hópstarf með öldmðum í nokkmm
kirkjum. Efnið sem notað er í því
starfí em hefti sem nefnast „Vina-
fundir" og „Við saman í kirkjunni",
sem eru sérstaklega samin fyrir
hópstarf með öldruðum. í þeim er
fjallað um ýmis svið mannlegs lífs
og þau tengd Biblíunni, bæn og
helgihaldi. Umræðurnar byggjast á
reynslu og tilfínningum þátttakenda,
þannig að allir hafa mikið að gera.
Heimsóknarþjónusta
Öldmnarstarf í Reykjavíkurpró-
fastdæmum í vetur er nýhafíð og
verður fjölbreytt. í boði er ýmiss
Þjónustan er eitt af hlutverkum
kirkjunnar. Söfnuðir í Reykjavík
hafa í auknum mæli sinnt heimsókn-
arþjónustu og er brýnt að allir söfn-
uðir auki þessa þjónustu í framtíð-
inni. í nútíma borgarsamfélagi hefur
einsemd fólks aukist og getur hún
leitt til andlegra og jafnvel lík-
amlegra sjúkdóma. Markmið þjón-
ustu kirkjunnar er að ijúfa einangr-
un, skapa samfélag og glæða von.
Ellimálaráð Reykjavikurprófasts-
dæma hefur boðið upp á námskeið
til undirbúnings heimsóknarþjón-
ustu. Nokkrir söfnuðir í prófasts-
dæmunum sinna heimsóknarþjón-
ustu og tveir söfnuðir eru að und-
irbúa hana. Margir bíða eftir að njóta
þessara þjónustu kirkjunnar og þeir
sem hafa notið hennar em þakklátir
fyrir að fá heimsóknir frá kirkjunni
sinni. Þannig vill kirkjan ekki ein-
ungis sýna náungakærleikann í orði
heldur einnig í verki.
Höfundur er ellimálafulltrúi.