Morgunblaðið - 27.10.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 25
Tónlist fyrir alla
Tónleikar í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni
NÚ Á laugardaginn 29. októ-
ber kl. 16.00 flytja þau Bergþór
Pálsson söngvari og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari fjöl-
breytta efnisskrá í Gerðarsafni,
Listasafni Kópavogs.
Þessir tónleikar marka upphaf
að reglubundnu tónleikahaldi í
þessu glæsilega menningarmust-
eri Kópavogsbæjar. Bergþór og
Anna Guðný hafa nú í vikunni
heimsótt Kópavog og fengið til
sín í Listasafnið skólaæsku bæjar-
ins. Þetta er fyrsta heimsókn tón-
listarfólks í skóla Kópavogs nú í
vetur og er þá fram haldið tónlist-
arkynningum í formi tónleika sem
Kópavogsbær stóð fyrir síðastlið-
inn vetur. I september síðastliðn-
um heimsóttu þeir Kristinn Sig-
mundsson og Jónas Ingimundar-
son Selfoss og þau Camilla Söder-
berg, Snorri Orn Snorrason og
Sverrir Guðjónsson Akranes, en
Þessir tónleikar á laug-
ardaginn kemur marka,
að mati Jónasar Ingi-
mundarsonar, upphaf
að reglubundnu tón-
leikahaldi í glæsilegu
menningarmusteri
Kópavogsbæjar.
um er að ræða einskonar sam-
starfsverkefni bæjanna undir
samheitinu „Tónlist fyrir alla“.
„Ég sagði bara, þú syngur svo
fallega að ég var næstum farinn
að gráta,“ sagði níu ára snáði,
sem sat hið næsta kennaranum,
að loknum skólatónleikum okkar
Kristins Sigmundssonar í Kópa-
vogi á haustdögum í fyrra. Kenn-
arinn hvíslaði „Segðu manninum
það, sem þú sagðir mér,“ og
söngvarinn beygði sig niður til
að heyra orð drengsins.
Þau eru mörg dýrmæt augna-
blikin, af nægu er að taka og
margt mætti segja. Drengurinn
var einn af eitthvað á fjórða þús-
und einstaklinga, sem Kristinn
söng fyrir í Kópavogi þá vikuna
og hóf þar með tónlistarkynning-
arátakið þar í bæ.
Ævintýrið „Tónlist fyrir alla“
hófst raunar á Selfossi haustið
1992. Fimm heimsóknir tónlistar-
fólks komu í skóla bæjarins vetur-
inn 1992-93 og fór hver heim-
sókn fram með þeim hætti að
nemendum var skipt í hópa eftir
aldri og flutti tónlistarfólkið efnis-
skrá sína með kynningum. Skóla-
tónleikarnir fóru fram á skólatíma
og hverri heimsókn lauk með op-
- kjarni málsins!
inberum tónleikum. Sú tilraun
sem þarna fór af stað reyndist
með þeim hætti að ákveðið var
að halda áfram veturinn eftir,
þ.e. 1993-94.
Akranes og Kópavogur komu
til liðs, og kynningarnar fóru fram
með sama hætti. Fimm efnisskrár
á hveijum stað, alls 15 heimsókn-
ir, og lauk með ferð Sinfóníuhljóm-
sveit íslands í mars 1994.
Aðeins nánar um þátt Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í þessu sam-
hengi. Hljómsveitin hélt skólatón-
leika með sérstakri efnisskrá á
hveijum stað auk opinberra tón-
leika með glæsilegri efnisskrá,
Wagnerforleik, Fiðlukonsert eftir
Tsjajkovskíj, íslensk lög sungin af
viðstöddum og dansaður var ball-
ett við Bolero eftir Ravel, enda
tónleikarnir í íþróttahúsum bæj-
anna. Þessa einu viku marsmánað-
ar lék SI fyrir 8-9 þúsund ein-
staklinga á þessum þrem stöðum.
Lítum aðeins á Selfossheimsókn-
ina sérstaklega. Eins og ljóst má
vera af framanrituðu var heim-
sókn SÍ til Selfoss tf-
unda heimsóknin sem
skólaæska staðarins
hafði fengið þessa tvo
vetur undir nafninu
„Tónlist fyrir alla“. Að
sjálfsögðu fjölmenntu
nemendur Selfoss, það
þarf engan að undra,
en einnig komu næst-
um allir skólanemar úr
nánast öllum skólum
Árnessýslu til að njóta
leiks hljómsveitarinnar
og var íþróttahús stað-
arins yfirfullt tvisvar
sinnum þann daginn.
Þarna kom til frábært
starf skipuleggjenda á svæðinu og
einnig það að heimsóknir lista-
fólksins höfðu vakið athygli.
Allir luku upp lofsorði, starfs-
fólk skólanna, börnin á
öllum aldri, bæjaryfir-
völd, hljómsveitin og
tónleikagestir á Ijöl-
sóttum tónleikum
hljómsveitarinnar um
kvöldið.
Um þetta allt mætti
skrifa langt mál, en
það bíður betri tíma.
Mjög margir víða af
landinu hkfa haft sam-
band við mig út af
þessari hugsjón, sem
þessi þijú bæjarfélög
hafa með eftirtektar-
verðum hætti komið í
framkvæmd. Ég sé
fyrir mér undur gerast, sem draga
má mikinn lærdóm af.
Höfundur er pianóleiknri.
ULLARFRAKKI KR. 9.895
LAMBSULLARTREFILL KR. 1.195
SKÓR KR. 3.995
JAKKAFÖT M/VESTI KR. 14.895
BÓMULLARSKYRTA KR. 1.995
SILKIBINDI FRÁ KR. 989
SKÓR KR. 3.995
ÞYKKUR ULLARJAKKI KR. 9.895
RÚLLUKRAGAPEYSA „TWEED" KR. 2.995
FLAUELSBUXUR FRÁ KR. 2.495
SKÓR KR. 2.995
ULLARBLASER „TWEED" KR. 8.895
BUXUR ULLARBL. KR. 3.995
RÚSKINNSVESTI KR. 2.995
BÓMULLARSKYRTA KR. 1.995
SILKIBINDI FRÁKR. 989
SKÓR KR. 3.995
JAKKAFOT KR. 9.895
BÓMULLARSKYRTA KR. 1.995
SILKIBINDI FRÁ KR. 989
SKÓR KR. 2.995
ULLARBLASER KR. 6.895
BUXUR M/BELTI KR. 2.995
VESTI KR. 2.495
BÓMULLARSKYRTA KR. 1.995
SILKIBINDI FRÁ KR. 989
SKÓR KR. 2.995
HAGKAUP
KRINGLUNNI
Grænt númer póstverslunar 996680
Jónas
Ingimundarson