Morgunblaðið - 27.10.1994, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Af hverju stafar
atvinnuleysið?
Frá Hafsteini Ólafssyni:
ATVINNULEYSIÐ hellist nú yfir í
hinum vestræna heimi eins og hol-
skefla og vex með árunum á meðan
ekki fínnast leiðir til úrbóta. Röng
stefna er nú viðhöfð í landbúnaðar-
og sjávarútvegsmálum og iðnaðurinn
er kominn á vonarvöl. Orsakimar
fyrir fískileysinu eru öllum ijósar og
við erum komin í stríð við aðrar þjóð-
ir við að ná í síðustu tittina úr sjónum
og hvað svo? Nú er enn hótað hörku
með verkfallsbaráttu til að reyna að
nálgast auðæfi þessa lands. Mál er
að linni.
Hús eru nú einfaldlega hætt að
seljast vegna þess hve þau eru dýr í
byggingu og komin langt fram úr því
verðlagi sem ráða mun verði húsa í
framtíðinni. Við eram komin í sjálf-
heldu með húsbyggingar af þessum
sökum. Ég hef lagst í að kanna hvort
ekki væri hægt að framleiða stór og
lítil hús eða húshluta úr íslenskum
efnum og þetta segi ég nú að hafi
teksit. Það var auðvitað ljóst í upp-
hafí að hús af þessu tagi yrðu að
vera veralega ódýrari — og varan-
legri — en þau hús sem við byggjum
nú eftir hinum hefðbundu leiðum. Hús
mega aldrei verða svo dýr að menn
geti ekki byggt yfir sig og sína án
þess að reisa sér hurðarás um öxl.
Þetta eru sjálfagðir hlutir. Af hvetju
stafar svo atvinnuleysið? Könnum
málið.
Mannanna verk
Tæknin hefur nú gripið inn í flest-
ar okkar atvinnugreinar — eins og
raunar ætlast er til af henni. Horfum
á allar tækniframfarimar sem nú era
að koma upp á borðið. Öll vinna þau
beinlínis að sjálfvirkni til lækkunar á
helstu framleiðslueiningum okkar að
sjálfsögðu. En hvað erum við að gera?
Flytja inn í landið fullkomnasta skip
heimsins og nú þvert ofan í alit fiski-
leysið. Nú er hafín stórframleiðsla á
vélmennum sem unnið geta launa-
laust 24 tíma á sólarhring og tekið
við allri þeirri vinnu sem við höfum
lifað af til þessa og svo er rekinn
áróður um að við hljótum nú að vera
komin í botn í atvinnumálum þjóðar-
innar. Þvílíkt og annað eins. Þetta
er kaldhæðni samfélagsins. Fram hjá
þessu verður ekki gengið mikið leng-
ur. Öll atvinna minnkar að sama
skapi. Afkastagetan eykst veralega
með aukinni tækni. Eftirspumin
minnkar svo að sjálfsögðu eftir hand-
afli til þeirrar vinnu sem eftir verður
og hvar stöndum við svo. Það er þann-
ig sem atvinnuleysið verður til í raun
og veru. Ef við geram ekkert í málun-
um nú er hrein vá fyrir dyram. Það
er ljóst. Atvinnuleysið er komið og
hverfur ekki fyrr en við tökum á
málum þessum alvarlega í orðsins
fyllstu merkingu. Þetta era allt mann-
anna verk og leysast ekki án aðgerða
þeirra. Það er sorglegt að þurfa að
hlusta á margt stórmennið vera að
tala um væntanlegan hagvöxt og
vera að rífast um nýsköpun í atvinnu-
lífinu um stórkostlegan pening til at-
vinnuleysisstyrkja hvers konar ár eft-
ir ár. Það er auglýst út um allan
heim eftir nýjum atvinnugreinum og
enn án teljandi árangurs. Algert skiln-
ingsleysi ríkir enn um þessi mál.
Bylting í húsagerð
Þessar hugmjmdir era hrein bylting
í húsgerð hér á landi og þó víða verði
leitað. Ég rek mig þó harkalega á
vegg þar sem þessi mál era borin upp
í landinu. í dag era lítt seljanleg hús
til sölu svo að hundruð eða þúsundum
skiptir í landinu. Ég mæti nefnilega
andstöðu húseigenda og margra
stórra ábyrgðareigenda í þessum
málum, en ég segi þetta komið til að
vera. Fram hjá því verður ekki geng-
ið miklu lengur hvort sem mönnum
líkar betur eða verr. Mál þessi verða
athuguð allt í kring um okkur í fram-
tíðinni. Eina sjáanlega lausnin er
veruleg stytting vinnutímans í takt
við þá vinnu sem til er á hverjum tíma.
Við verðum nú að setjast niður og
reikna upp á nýtt allar launaþarfir
manna og okkur mun reka í roga-
stans við að sjá útkomuna. Ef við
geram ekkert í þessum málum nú
erum við illa stödd í lífinu.
Ég verð að láta þess getið að það
mun horfa illa með friðin í heiminum
með hálfan heiminn atvinnulausan.
Þetta verður að stöðva sem fyrst ef
ekki á illa að fara fýrir okkur og öll-
um öðram á þessum sviðum. Við höf-
um fengið forsmekk af því hvað
mundi gerast hjá hinum ýmsu þjóðum
í þessum málum
Við höfum gert okkur sek um að
reyna að koma í veg fyrir ódýran
vöruflutning landa á milli beinlínis til
að reyna að tryggja að við fengjum
meira fyrir vörar okkar. Þetta er einn
stór misskilningur og stenst ekki til
eilífðar. Við ráðum ekki við andstöðu
stærstu þjóða heims í þessum málum.
Þær era baki brotnu að leita leiða til
að lækka verð á framleiðslugreinum
vítt um heiminn og þeim mun takast
það fyrir rest. Hagvöxtur þeirra er
sagður vera um 10-12% á meðan við
eram að glíma við að halda okkur
réttu megin við núllið ár eftir ár.
Það hljómar svo einkennilega að
verið sé að bjóða upp á um helmings
lækkun á þeim framleiðslugreinum
sem við verðum að vinna hvað sem
hver segir. Al-íslenskar hugmyndir,
það ég enn veit. Það er mikið í húfi
og erfitt að verða að beygja sig fyrir
þessum mönnum. Við verðum nú að
fara að afla okkur gjaldeyris til fram-
búðar og við munum brátt sjá hvað
hér er um að ræða. Svo stóran gjald-
eyrisforða að leita verður eftir saman-
burði í þessum málum.
HAFSTEINN ÓLAFSSON
byggingameistari, Kópavogi.
POTTURINN
OG
mN
Hverfjall en ekki Hverfell
Frá Frá Kristjáni Þórhallssyni
FYRIR nokkru sýndi sjónvarpið
myndina Dimmuborgir, kynjaheim við
Mývatn. Handrit sömdu Ari Trausti
Guðmundsson og Friðrik Dagur Am-
arson. í myndinni er farið ranglega
með nafn á íjalli við Mývatn, þar er
ætíð talað um Hverfell en sem kunn-
ugt er heitir íjallið Hverfjall. Eftir
sýningu myndarinnar var haft sam-
band við Sjónvarpið og óskað eftir
leiðréttingu en hún hefur ekki komið.
í bókinni Náttúra íslands, sem kom
út á vegum Almenna bókafélagins
1961, segir dr. Sigurður Þórarinsson
m.a. um Hverfjall við Mývatn á blaðs-
íðu 79-80: Frægasti og mest umskrif-
aði sprengigígur á íslandi er Hver-
íjall við Mývatn og er mynd eða teikn-
ing af honum í flestum handbókun í
eldijallafræði og hann tekinn sem
dæmi um þá gerð eldfjalla. Besta ís-
lenska heitið á slíku eldfjalli er ein-
mitt Hverfjall, hver er hér í norð-
lensku merkingunni gígur og Hver-
fjall því fjall sem raunverulega er allt
einn gígur en svo er um Hverfjall
þetta formhreina fjall sem svo mjög
setur svip sinn á Mývatnssveit. Hver-
fjallsgígurinn er að meðalþvermáli
1.015 metrar. Frægasta erlenda eld-
íjall af þessari gerð er Diamond Hood
hjá Honolulu. Hverfjöllin myndast af
mörgum sprengingum í einu sprengi-
gosi og er Hverfjall við Mývatn miklu
yngra en þykkasta ljósa Heklulagið
sem er um 2.700 ára. Er því aldur
Hveríjalls um 2.500 ár.
KRISTJÁN ÞÓRHALLSSON
Björk, Mývatnssveit.
Blandaðir sjavarrcttir
að haztti hussins
bornir fram i ponno, kr. 980
Orlysteiktir humarhalar
i sursœtri sósu, kr. 1.090
Piparbuffsteik mcö rjómapiparsósu
og bakaðri kartöflu, kr. 980
LambakBri Bearnes, kr. 1.190
Ath.:
Ollum réttum fylgir
t rjómabætt súpa dagsins,
nýbakað brauð og eftirréttur
Ath.:
Oll börn fó íspinna fró Kjöris.
Hvað viltu losna
við mörg kfló ?
Átak gegn umframþyngd, A-tími.
Átak gegn umframþyngd framh. B-tími.
verð 9.990,-
- Átak gegn umframþynd, A - tími
7 vikna námskeið fyrir þá sem vilja
losna við aukakílóin. Tilvalið fyrir
byrjendur. Lokaður hópur.
- Námskeiðið hefst 31. okt. og er
skráning þegar hafin. Takmarkaður
fjöldi.
- Átak gegn umframþyngd framhaid,
B - tími, nýtt 7 vikna námskeið fyrir þá
sem þegar hafa lokið námskeiði A, og
aðra sem komnir eru í einhverja
æfingu en vilja gott aðhald.
Lokaður hópur.
- Námskeiðið hefst 31. okt. og skrán-
ing þegar hafin. Takmarkaður fjöldi.
Þeir sem missa 8 kíló eða meira
fá frítt mánaðarkort
Ný tæki í tækjasal
Heitir pottar
Vatnsgufa LJÓS
FROSTASKJÓU 6 <
♦
SlMI: 12815 OG 12355
Próíkjör sjálístæðismanna
Rödd Reykjavíkur á Alþingi
MARKÚS ÖRN ANTONSSON í 4. SÆTIÐ