Morgunblaðið - 27.10.1994, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER Í994
Stórglæsilegt úrval
gull- og silfurskartgripa
Sífeldar nýjungar fyrir
dömur og herra
á góðu verði
SILFURBU
Kringlunni 8-12 - Sími 689066
VIRKA
Tískufataefni - Bútasaumsefni
Nýkomin: Tölusending, smávörusending,
nýtt jólafóndur o.fl. Vefnaðarvara á
tveimur hœðum, 900 fm með útsölurými.
Bútasaumsefni og námskeið á staðnum.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 9—18,
á laugardögum frá 1. sept. tiíl. júnífrá kl. 10—14.
VIRKA
MÖRKINNI 3, SÍMI 687477
(við Suðurlandsbraut).
fyrir 4-6 að eigin vaii,
með a.m.k. tveimur
tegundum áleggs.
Ókeypis lítill skammtur
af brauðstöngum
og 1,5 lítri af gosi.
Gildir til 30. nóvember.
MORGUNBLAÖIÐ
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Kvengleraugu
fundust
BRÚN gleraugu í brúnu
hulstri fundust sl. laugar-
dag á bílastæði skóladag-
heimilisins við Blöndu-
bakka. Eigandinn getur
vitjað þeirra í síma 873587
eftir kl. 17.30.
Úr fannst
KARLMANNSÚR fannst
á mótum Bankastrætis og
Laugavegs á sunnudags-
kvöld. Eigandinn má vitja
þess í síma 12379.
Kuldaskór töpuðust
EINSTÆÐ móðir með tvo
litla drengi gerði sér ferð
í Kringluna til að kaupa
kuldaskó á þá.,Fimm ára
sonur hennar var svo
ánægður með skóna sína
að hann vildi endilega
halda á þeim, í plastpokan-
um merktum Skóverslun
Steinars Waage. Þau tóku
síðan strætisvagn á móts
við Kringluna v/Miklu-
braut, og þar í strætóskýl-
inu gleymdi litli drengur-
inn pokanum sínum, og er
niðurbrotinn af þeim sök-
um. Skilvís finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 72480 eftir hádegi.
Vínberfundust
SÁ SEM gleymdi vínbeij-
um í bakka sl. þriðjudag á
móts við hús nr. 21 við
Hverfisgötu getur vitjað
þeirra á lögreglustöðina
við Hlemm.
Gæludýr
Týndar læður
ÞRJÁR ársgamlar læður
sem eru systur, þær Kola,
Lísa og Lára, eru týndar.
Þær eru auðþekktar bæði
að lit og svo eru þær tölu-
vert loðnar. Kola fór frá
heimili sínu á Grettisgötu
19 í Reykjavík á hádegi
sl. mánudag. Hún var með
gula ól og merki en gæti
hafa týnt því. Lísa hvarf
úr Hafnarfirði fyrir u.þ.b.
hálfu ári, Lára hvarf frá
Höfn í Hornafirði fyrir
u.þ.b. þrem vikum. Aðallit-
urinn á þeim öllum er
brúnn og svartur, einnig
er grátt, gult og beige í
þeim. Þær eru allar eins á
litinn og kallast liturinn
skjaldbökulitur. Þeirra er
að sjálfsögðu sárt saknað
og ef einhver gæti gefið
upplýsingar um ferðir
þeirra eða hvar þær eru
níðurkomnar þá vinsam-
lega hringi hann í síma
91-13732.
Læðu vantar
heimili
HÁLFS árs gamla pers-
neska læðu vantar heimili
sem fyrst. Uppl. gefur
Ásdís í síma 612332.
Með morgunkaffinu
COSPER
BRIDS
Umsjön Guöm. Páll
Arnarson
SPILARAR sem nota
kröfugrand á móti hálita-
opnun geta leyft sér að
spila tvo-yfír-einum sem
kröfu í geim. Þeir lenda
þá ekki í vanda eins og
þessum:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ K103
V Í04
♦ Á86
♦ KG963
SÁ stutti er farinn að tala og hann taldi mig á að
fá mér koníakssnafs með kaffinu.
Vestur Austur
Suður
♦ 4
V ÁDG63
♦ KD1094
♦ Á5
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 2 grönd Pass 3 tíglar
Pass Pass Pass
Þótt ekkert geim sé
borðleggjandi, er fráleitt
að stansa í bút á svo sterk
spil. Hvor á sökina, spyr
Alan Lévy í nýjasta hefti
Evrópu bridsblaðsins
(Europæisk Bridge). Lévy
miðar að sjálfsögðu við að
svarið á tveimur laufum sá
aðeins krafa í tvö grönd.
Heyrum fyrst málsvörn
spilaranna:
Suður: „Ég gat ekki val-
ið geimið strax við tveimur
gröndum. Því var ekki um
annað að ræða en lýsa spil-
unum betur og láta makker
taka lokaákvörðun."
Norður: „Mér datt ekki
í hug annað en að félagi
væri með lágmarksopnun
og vildi frekar spila tromp-
samning með 5-5 í rauðu
litunum."
Þetta er algengur vandi
í kerfí þar sem menn fara
fíjálslega upp á annað
þrep. Lévy skellir allri
skuldinni hiklaust á suður
og teflir í leiðinni fram at-
hyglisverðri sagnvenju til
að leysa þennan vanda.
Lévy: Suður á að segja
3 spaða við 2 gröndum,
sem sýnir 5-5 í hjarta og
tígli og sterka opnun!
Góð sagnvenja, en varla
er við suður að sakast ef
hann hefur ekki tekið hana
upp.
Víkveiji skrifar...
VEIÐAR íslendinga í Barents-
hafi og þjóðaraatkvæða-
greiðslan um ESB-aðild eru fyrir-
ferðarmikil mál í norskum fjölmiðl-
um þessa dagana. í lesendabréfi frá
Gunnhild Skjefstad í Hjardarholti,
sem birtist í blöðunum Nordlys og
Vestmannen, er lögð til frumleg
lausn á þessum málum:
„I stað þess að henda fjórum til
fimm milljörðum á ári í botnlausu
hítina í Evrópu, líkt og við verðum
að gera með Evrópusambandsaðild,
ættum við að veita Islendingum
eingreiðslu upp á milljarð króna
[sem samsvarar rúmlega tíu millj-
örðum íslenskra króna].
Þá gætu þeir greitt niður nýju
fiskvinnslufyrirtækin sín og skipin
og þar með komið efnahag sínum
í lag.
Við megum ekki gleyma því að
það er ekki lengra síðan en 1988-90
að hér ríkti kreppa og allsheijar
svartnætti. Jafnvel þó að sólin skini
á heiðskírum himni var það ekki
sýnt í sjónvarpi.
Ástæða fiskveiðikreppunnar hér
[í Noregi] var einnig of mikil sókn
í þorskstofninn. Það er þjóðar-
skömm af því að norska ríkið — í
formi strandgæslunnar — skuli
skjóta á íslenskan tógara. íslend-
ingar eru þjóð sem rekur ættir sín-
ar til Noregs og þeir eru ekki mik-
ið fleiri en íbúar Nordland-fylkis.
Ég held að íslenski forsætisráð-
herrann Davíð Oddsson hafi haft
rétt fýrir sér er hann sagði okkur
hafa gert slæman fiskveiðisamning
við ESB og að Gro og félagar hafi
þörf fýrir að draga athygli fólks frá
því.“
XXX
KUNNINGI Víkveija kynnti sér
haust- og vetrartískuna á
tískusýningu Módelsamtakanna á
sunnudag. Að vanda var sýningin
hin glæsilegasta og gat að líta sýn-
ishorn af förðun, skartgripum, gler-
augnaumgjörðum og hátískufatnaði
fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Gestinum fannst hins vegar
blettur á sýningunni að síðustu
mínúturnar fyrir hlé skyldu notaðar
til að kynna svokallaðan Kahlua-
dans. Ungmenni í bolum merktum
víntegundinni komu fram á sviðið
og dilluðu sér í takt við tónlistina.
Hér er að sjálfsögðu aðeins með
dulbúna áfengisauglýsingu að
ræða. En þar fyrir utan er varla
við hæfi að láta unglinga taka þátt
í tiltækinu. Vart þarf að taka fram
að boðið var upp á Kahlua í hléinu.
xxx
REYNDAR má segja að áfengis-
framleiðendur og umboðs-
menn þeirra hafi upp á síðkastið
færst allir í aukana í kynningum
og óbeinum auglýsingum.
Skemmtistaðir eru t.d. með vín-
kynningar og auglýsa þær ófeimn-
ir. Þegar auglýst er tilboðsverð á
Egils vita allir að ekki er verið að
kynna appelsín heldur öl. Og þegar
auglýst er að Dilli og Tindur séu á
stöðunum með kynningarverð þýðir
það að Tindavodki og Dillons gin
séu á tilboðsverði. Áfengisauglýs-
ingar eru vitaskuld bannaðar en er
nokkur leið að stöðva svona auglýs-
ingar?