Morgunblaðið - 27.10.1994, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
Árnað heilla
ÁRA afmæli. í dag,
27. október, er sex- -
tug Kristjami Jónsdóttir,
fyrrum húsfreyja í Guf-
udal, A.-Barð., nú búsett á
Smiðjustíg 4, Stykkis-
hólmi. Hún verður að heim-
an á afmælisdaginn.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á
Skákþingi íslands í Vest-
mannaeyjum síðsumars.
Helgi Ólafsson (2.520) stór-
meistari var með hvítt en
Þröstur Þórhallsson
(2.460) alþjóðlegur meistari
var með svart og átti leik.
Helgi er tveimur peðum
yfir í drottningarendatafli
, sem hefði átt að tryggja sig-
ur en honum fórst úrvinnslan
illa úr hendi og Þröstur fann
i laglega jafnteflisleið:
101. — Dxe6! (Vinnur annað
peðið því eftir 102 Dxe6?
væri svartur patt. Nú er
skákin jafntefli, því svarti
kóngurinn er svo nálægt
hvíta c-peðinu) 102. Kb7 —
Df7+ 103. Kb6 - De6! 104.
Kb7 - Df7+ 105. Kb8 -
Df4+ 106. Ka8 - Dc7,107.
Db6 - Kd7, 108. Db7 -
Kd8, 109. c6 - Da5+, 110.
Kb8 - De5+, 111. c7+ -
Kd7, 112. Dc8+ - Kc6,
113. Da6+ - Kd7, 114.
Da4+ - Ke7, 115. Kb7 -
Db2+, 116. Ka7 - Df2+
og skömmu síðar kom þessi
staða upp í þriðja skipti og
skákin varð jafntefli.
Þrír stórmeistarar tefldu á
íslandsmótinu. Þeir urðu
efstir og jafnir og auka-
keppni þeirra Helga Ólafs-
sonar, Jóhanns Hjartarsonar
og Hannesar Hlífars Stef-
ánssonar stendur yfír þessa
viku í Vestmannaeyjum.
Teflt er daglega frá kl. 17 í
hátíðarsal Sparisjóðs Vest-
mannaeyja.
LEIÐRÉTT
í FRÉTTASKÝRINGU
um loðnuverksmiðjur í
Verinu þann 19. október
síðastliðinn var ranglega
hérmt að Andri hf. stæði
straum af 45% kostnaðar
við byggingu verksmiðju
á Fáskrúðsfirði. Hið rétta
er að allir eigendur verk-
smiðjunnar greiða í sam-
einingu 45% kostnaðar
við bygginguna af eigin
fé. Beðist er velvirðingar
á þessu.
Pennavinir
ÞRJÁTÍU og fimm ára
einhleyp kona frá Hawaii
með áhuga á tónlist, garð-
yrkju, ferðalögum, og
hundum:
Lucy Lee,
P.O. Box 8593,
Honolulu,
HI 96830-0593,
U.S.A.
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka sem hefur mikinn
áhuga á íslandi og því
sem það hefur að geyma:
Yoko Ohharna,
2-16-3 Daiyaland,
Nagasaki-slii,
Nagasaki-ken,
850 Japan.
rr ÁRA afmæli. í dag,
| 027. október, er sjötíu
og fimm ára Bjarni Helga-
son, Eyjaholti 8, Garði.
Eiginkona hans er Elísabet
Þórhallsdóttir. Þau taka á
móti gestum á heimili dótt-
ur sinnar og tengdasonar í
Hraunholti 8, Garði, föstu-
daginn 28. október eftir kl.
19.
Ljósm. Myndsmiðjan, Akranesi
BRÚÐKAUP. Gefm voru
saman 30. júlí sl. í Reyk-
holtskirkju af sr. Geir Wa-
age Margrét Eygló Karls-
dóttir og Karl Ómar
Karlsson, til heimilis á
Dalbarði 6, Eskifirði.
GULLBRÚÐKAUP eiga í dag, 27. október hjónin Sigríð-
ur Gísladóttir og Sveinbjörn Jóhannesson, Hofsstöðum,
Garðabæ. Þau verða að heiman.
Farsi
<Xttu má,ab þab sí ofsaLb? f>a&
kosta&L heilmik)nn,$i>/ta Optárah e/daþetfa.!
HÖGNIHREKKVÍSI
„ htAK/N VAR SEHPUR i STUETU."
STJÖRNUSPÁ
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins: Þú
hefurgott viðskiptavit og
getur náð góðum árangri
ílífinu.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl)
Þú færð góðar fréttir fjár-
hagslegs eðlis, en einhver
misskilningur getur komið
upp í vinnunni. Sinntu fjöl-
skyldunni í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver kemur ekki hrein-
skilnislega fram við þig, en
sambandið við ástvin gæti
ekki verið betra. Njótið
kvöldsins saman.
Tvíburar
(21.maf-20.júní)
Vegna villandi upplýsinga
þarftu að vera vel á verði í
viðskiptum dagsins. Þróunin
í fjármálum verður þér hag-
stæð.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí)
Leyfðu ástvini að hafa eigin
skoðanir og gerðu ekki of
miklar kröfur. Þá verða sam-
verustundimar enn ánægju-
legri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Eitthvað fer öðruvísi en ætl-
að var í vinnunni, og erfítt
getur verið að afla upplýs-
inga. En heima gengur allt
að óskum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú átt góðar viðræður við
ráðamenn og samningar um
fjármál ganga vel í dag. Þú
ættir að sækja vinafund í
kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Ættingi getur þurft á aðstoð
þinni að halda í dag. Hafðu
augun opin fýrir nýjum tæki-
færum sem þér bjóðast í
vinnunni.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Einhver sem þú átt sam-
skipti við fer undan í flæm-
ingi. Mál sem lengi hefur
vafist fyrir þér skýrist að
fullu í dag.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Það er margt að gerast, og
þér berast góðar fréttir varð-
andi peninga. Varastu þá
sem vilja misnota sér vel-
gengni þína.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar) m
Þú átt ef til vill erfitt með
að taka ákvörðun í dag, en
gættu þess að enginn mis-
skilji þig. Þér verður boðið
út í kvöld.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar) ðh
Eitthvað liggur ekki ljóst
fyrir í vinnunni, en þér tekst
engu að síður að styrkja
stöðu þína. Hafðu augun
opin.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þér finnst þú ekki geta fylli-
lega treyst einhveijum sem
þú átt samskipti við í dag,
en ástvinir eiga saman gott
kvöld.
Stjörnusþdna á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staó-
reynda.
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 43
Ókeypis lögfræðiaðstoð
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORATOR, félag laganema.
Pl a
1 1 1 1 1 1 1 B Ritsafniö RÆTUR ÍSLENZKRAR MENNINGAR eftir Einar Pálsson er nú orðið mesta verk, sem ritað hefur verið um fornmenningu íslendinga. Ritsafnið er jafnframt gjörólíkt öðrum bókum, sem ritaöar hafa veriö um þau efni. Lesandinn kynnist nýjum við- horfum og nýjum möguleikum í hverjum kafla ritsafnsins. Þetta ritsafn er ómissandi öllum, sem láta sig varða sögu vora og uppruna. Bókaútgáfan Mímir, Sólvallagötu 28, Reykjavík, sími 25149. 1 1 1 : á 1 8 ’£ 1 a
OLYMPUS
Þegar hvert orð
skiptir máli!
OLYMPUS
DIKTAFÓNAR
Notaðir af læknum, lögreglu,
blaðamönnum, skólafólki og fl.
Margar gerðir fáanlegar, verð frá kr. 8.795,-
Borgartúni 22
® 61 04 50
Fiskihlaðborð í Óðinsvéum
Veitingahúsið Óðinsvé við Óðinstorg býður nú upp á fiskihlaðborð í
hádeginu á fimmtudögum og föstudögum næstu vikurnar.
Á hlaðborðinu er úrvai heitra og kaldra rétta og má þar m.a. finna:
Sjávarréttaljúfmeti, fiskigratín, ýsubuff, fiskibollur, plokkfisk, graflax,
sjávarréttasalat, rauðsprettuflök í raspi, fiskipate, smálúðurúllur fylltar
rækjufarsi, blandaða síldarrétti, allskonar salöt, sósur og meðlæti
ásamt glóðvolgum, nýbökuðum brauðum. Og þá er bara að drífa sig.
P.s. Smámál, verðið er aðeins 1.190,-