Morgunblaðið - 27.10.1994, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KR. 800 F. FULLORÐNA
KR. 500 F. BÖRN
★★★ S.V. Mbl.
★★★ Eintak ★★★ Ó.T. Rás2
Sýnd kl. 6.50 og 11.
Simi
FROH THl PR0DUCER 0F ^ENS flNÐ IHE TERHINflTOR Frá framleiðendum ALIENS og
THE TERMINATOR
FLÓTTINN FRÁ
/ ABSOLOM
'■*" *%■ - ENGIR MÚRAR - ENGIR VERÐIR -
ENGINN FLÓTTI
rrp RAY LIOTTA (Goodfellas), KEVIN
_ DILLON (The Doors, Platoon).
E S C A P E F R 0 M
ABSOLOM
THE PRISON OF THE FUTURE. *.
Sýnd kl. 5, 9 og 11. B.i. 16 ára.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
SÍMI991065
Taktu þátt í spennandi
kvikmyndagetraun. Verðlaun:
Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói.
Verö kr. 39,90 minútan.
Nú hafa 25.000 manns
séð Bíódaga.
Ert þú einn þeirra?
Sýnd í örfáa daga í
A-sal kl. 5, 7 og 9.
Amandaverðlaunin
1994.
Besta mynd
Norðurlanda.
Stórmyndin
ÚLFUR
DÝRIÐ GENGUR LAUST.
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni rnálvinv!
Nýjar hijómplötur
Öll tónlist er
danstónlist
Gítarleikari Bubbleflies, Davíð Magnússon, segir
að öll tónlist sé danstónlist, en á plötu sveitarinn-
ar, sem kemur út í dag, kemur hún víða við.
SAMm
SAMBm
— Njíjiw'fAliiitly tírarcia og M’tyl^iú^-vyiia’st
Z í eiiíiii héstii niyiitf arsiiis!
Z %,V\ licii a inan Iovcís a wtmieii
= Frumsýnd í Bíóborginni á morgun! =
IIIII llll IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Morgunblaðið/Þorkell
DAVIÐ Magnússon gítarleikari Bubbleflies.
ffJÓMSVEITIN góðkunna
Bubbleflies vakti mikla at-
hygli á síðasta ári fyrir
frumlega blöndu af svonefndri reif-
tónlist, sem sveitarmenn vildu helst
kalla sveim, og rokki og naut fyrsta
plata hennar, The World is still
Alive, og kom út fyrir síðustu jól,
hylli dansfíkinna ungmenna. Síðan
hefur hljómsveitin verið iðin við
spilamennsku á tónleikum og böll-
um, m.a. leikið erlendis, en tók sér
hlé síðsumars til að hljóðrita breið-
skífuna Pinocchio, sem kemur út
í dag.
Dansað við fuglahljóð
Davíð Magnússon gítarleikari
er einn stofnmeðlima Bubbleflies,
en ekki vill hann gera of mikið úr
dansstimplinum sem er á sveitinni.
Hann segir að það séu allar gerðir
tónlistar til í íslenskum dansheimi,
með þeim fyrirvara þó að hugtakið
danstónlist sé mjög breitt. „Það
má dansa við alla tónlist og ég
veit um fólk sem dansar við fugla-
hljóð. Það er öll tónlist danstónlist
í eðli sínu. Það sem margir eiga
þó við þegar þeir tala um danstón-
list er techno-tónlist eða reif og
af því er nóg. Vandamálið sem þær
sveitir glíma við er þó það að þær
fá hvergi að spila, það er enginn
staður fyrir þær. Það er örugglega
á þriðja tug hljómsveita sem hang-
ir yfir tölvunum heima og fær
hvergi inni. Við blöndum þessu
öllu saman, spilum techno, fönk,
rokk, ambient og hvað sem er,
eftir því hvernig liggur á okkur.“
Hver úr sinni áttinni
Davíð segir að þeir félagar leiti
víða fanga í hugmyndaleit, hlusti
á allar gerðir tónlistar, en hver
vinni úr því á sinn hátt. „Við erum
fímm í hljómsveitinni og komum
hver úr sinni áttinni; trommarinn
er fyrrverandi pönkari, ég er gef-
inn fyrir gítarrokk frá gamalli tíð,
hljómborðsleikarinn er mikill tölvu-
haus, og við reynum að blanda
öllum þessu áhrifum saman.“
Hvernig myndir þú lýsa tónlist-
inni?
„Það er ekki gott að segja, það
er svo margt sem okkur finnst
gaman að spila,“ segir Davíð og
hugsar sig um smá tíma, „fönk,
popp, rokk, techno, nei, það er
ómögulegt að vera að setja á þetta
einhverja merkimiða, þeir eiga líka
sjaldnast rétt á sér.“
Hann segir að fyrsta plata þeirra
félaga hafi selst framar vonum og
þeir séu því hæfilega bjartsýnir á
framtíðina. Þróunin sé vitanlega
hröð í tónlistarheiminum, „en við
stóðum ekkert í stað; við urðum
líka ári eldri eins og allt annað í
heiminum og við erum í örri þró-
un.“
Danstónlistin lifir
Danstónlist hefur notið mikillar
hylli meðal ungmenna um heim
allan og ekkert lát á, enda segist
Davíð sannfærður um að sú gerð
tónlistar sé ekkert á útleið, þó
hann hafi sínar efasemdir um þró-
un hennar. „Danstónlistin var eins-
konar pönk fyrir þremur árum og
það voru ekki svo ýkja margir sem
hlustuðu á hana, nú er búið að
þynna hana mikið út og búa til
allskyns söluafbrigði; þetta er orð-
inn gríðarlegur iðnaður. Síðan er
mikið af þessu óháða rokki í dag
orðið mjög danshæft.
Það hefur allt sem er að gerast
í kringum okkur áhrif á okkur.
Við vottum til að mynda nýróman-
tíkinni virðingu okkar, gerum
rappinu smá skil, rokkið fær sitt,
hörðu techno bregður fyrir, smá
trans og fönkið er á sínum stað.
Við sópum að okkur hugmyndum
og það er örugglega skemmtilegra
fyrir alla að hlusta á okkur fyrir
vikið.“