Morgunblaðið - 27.10.1994, Side 50
50 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTVARP/SJÓIMVARP
Sjónvarpið
17.00 ►Leiðarljós (Guiding Light) Banda-
rískur myndaflokkur. Þýðandi: Haf-
steinn Þór Hilmarsson. (9)
17.50 ►Táknmálsfréttir
18.00 ►Stundin okkar Endursýndur þátt-
ur frá sunnudegi.
18.30 ►Úlfhundurinn (White Fang) Kan-
adískur myndaflokkur byggður á
sögu eftir Jack London sem gerist
við óbyggðir Klettafjalla. Ungling-
spiltur bjargar úlfhundi úr klípu og
hlýtur að launum tryggð dýrsms og
hjálp í hverri raun. Þýðandi: Ólafur
Bjarni Guðnason. (19:25)
18.55 ►Fréttaskeyti
19.00 Tflill IQT ►Él í þættinum eru
■ UHLIo I sýn(j tónlistarmynd-
bönd í léttari kantinum. Dagskrár-
gerð: Steingrímur Dúi Másson.CO
19.15 ►Dagsljós
20.00 ►Fréttir
20.30 ►Veður
20.40
ÍÞKÖTTIR
►Syrpan í þættinum
verða sýndar svip-
myndir frá ýmsum íþróttaviðburðum
hér heima og erlendis. Umsjón: Ing-
ólfur Hannesson. Dagskrárgerð:
Gunnlaugur Þór Pálsson.
21.10
►í atinu (In the
Soup) Bandarísk
bíómynd frá 1992 um kvikmynda-
framleiðanda sem sem lendir í vand-
ræðum. Leikstjóri: Alexander
Rockwell. Aðalhlutverk: Steve Busc-
emi, Seymour Cassel, Jennifer Beals
og Pat Moya. Þýðandi: Veturliði
Guðnason.
22.45 ►Af sporinu (Deraillement)
Norsk/frönsk stuttmynd eftir Unni
Straume sem gerist í neðanjarðar-
lestunum í París. Myndin var sýnd á
kvikmjmdahátíðinni í Reykjavík í
fyrra.
23.00 ►Ellefufréttir
23.15 ►Þingsjá Helgi Már Arthursson
fréttamaður segir tfðindi af Alþingi.
23.35 Dagskrárlok
Stöð tvö
17.05 ►Nágrannar
,7MB»RHREFHI’-MeSAteW
18.45 ►Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 ►19:19 Fréttir og veður.
20-15 hJFTTIB ►Sjónarmið Viðtals-
rlCI llll þáttur með Stefáni Jóni
Hafstein.
20.45 ►Dr. Quinn (Medicine Womarí)
21.45 ►Brestir (Cracker) Þriðji og síðasti
hluti sakamálasögu mánaðarins með
Robbie Coltrane í hlutverki hins
snjalla sálfræðings Fitz.
22.40 ifuiiriiviiniD ^Undir grun
n ■ lllnl IIIUIII (Under In-
vestigation) Spennumynd um rann-
sóknarlögreglumennina Keaton og
Chandler sem eiga fátt sameiginlegt
en eru þó býsna góðir saman. Þeir
eru á hælunum á miskunnarlausum
morðingja sem kemur fallegum
stúlkum til við sig, málar nakinn lík-
ama þeirra og kyrkir þær í hita leiks-
ins. í fyrstu beinist grunur félaganna
að kennara við listaskóla í borginni
en hér er ekki allt sem sýnist. í aðal-
hlutverkum eru Harry Hamlin, Jo-
anna Pacula og John Mese. Leik-
stjóri er Kevin Meyer. 1993. Bönnuð
börnum.
0.15 ►Ógnir í eyðilöndum (Into the
Badlands) Hér eru sagðar þrjár stutt-
ar sögur úr Villta vestrinu. Aðalsögu-
hetjan er Barston sem leitar linnu-
laust að alræmdum morðingja, enda
er heitið veglegum verðlaunum fyrir
handtöku hans eða dauða. Aðalhlut-
- verk: Bruce Dem, Helen Hunt og
Maríel Hemingway. Leikstjóri: Sam
Pillsbury. 1991. Stranglega bönnuð
börnum.
1.40 ►Hamslaus heift (Blind Fury) Þeg-
ar Nick Parker kemur loks aftur
heim til Bandaríkjanna ákveður hann
að heilsa upp á efnafræðinginn Frank
Devereaux en þeir börðust saman í
Víetnamstríðinu. í ljós kemur að
mafían hefur Frank í haldi og neyðir
hann til að framleiða eiturlyf með
því að hóta að vinna syni hans mein.
Aðalhlutverk: Rutger Hauer, Terr-
ance O’Quinn og Brandon Call. Leik-
stjóri: Phillip Noyce. 1990. Lokasýn-
ing. Stranglega bönnuð börnum.
Myndbandahandbókin gefur ★ ★
3.05 ►Dagskrárlok
Blankur - Leikstjórinn hugmyndaríki gengur bófum á hönd.
Kvikmyndaleik-
stjóri í súpunni
Hann kemst í
kynni við
roskinn bófa
og sá þykist
hæglega geta
látið drauma
hans rætast
SJÓNVARPIÐ kl. 21.10 Bandaríska
bíómyndin í atinu eða In the Soup
hlaut frábærar viðtökur á kvik-
myndahátíðinni í New York árið 1992
og var valin besta leikna myndin á
Sundance-kvikmyndahátíðinni sama
ár. Þar segir frá ungum og upprenn-
andi kvikmjmdaleikstjóra, sem er
með höfuðið fullt af hugmyndum, en
gengur illa að útvega nægilegt fjár-
magn til að gera mynd. Hann kemst
í kjmni við roskinn bófa og sá þykist
hæglega geta látið drauma hans
rætast. Leikstjóri mjmdarinnar er
Alexander Rockwell og helstu hlut-
verk leika Steve Buscemi, Seymour
Cassel, Jennifer Beals og Pat Moya
en leikstjórinn Jim Jarmusch fer einn-
ig með hlutverk í myndinni.
Fitz loks á hæl
um morðingja
En hann berst á
tveimur
vígstöðvum því
persónuleg
vandamál taka
sinn toll af
sálfræðingnum
STÖÐ 2 kl. 21.45 í kvöld er komið
að síðasta hluta sakamálasögu mán-
aðarins um Bresti, eða Cracker, og
nú virðist Fitz vera kominn út á
hálan ís. Skötuhjúin Tina og Sean
hafa myrt tvo menn með köldu blóði
og er til alls trúandi í örvæntingu
sinni. Fitz er kominn á sporið en í
lok síðasta þáttar sáum við hann
fylgja Tinu heim og stinga þar með
höfðinu í gin ljónsins. Sálfræðingur-
inn verður að beijast á tveimur víg-
stöðvum því persónuleg vandamál
taka vissulega toll af einbeitingu
hans og starfsgetu. Skýringin á mis-
kunnarlausu morðæði Seans og Tinu
hlýtur að liggja í fortíð þeirra og
spurningin er hvort Fitz tekst að
bijóta málið til mergjar og hafa
hendur í hári morðingjanna áður en
fleiri liggja í valnum. I aðalhlutverk-
um eru Robbie Coltrane, Geraldine
Somerville, Susan Lynch og Andrew
Tiernan.
Föstudaqur 28. okt.
Holtanesti, Hafnarfirði 17:00
íslandsmeistara-
keppnin í Jó-Jó
verðurhaldin
í Kringlunni
Laugardaginn
29. okt. kl. 11:00
Leikreglur
Mætiðkl. 10:30
Allir keppendur sem unnið hafa
skjöldinn (winner expert champion)
komast í fyrstu umferð.
í fyrstu umferð verður keppt í gervi-
hnöttum (loops).
Allir keppendur fá Coca-Cola verðlaun
og viðurkenningarskjal.
Seinni umferð byrjar kl. 14:00
Þeir keppendur sem komust áfram úr
fyrstu umferð fá sérstök númer. Hver
keppandi fær tvo möguleika á að fram-
kvæma hverja þraut og getur fengið
hæst 10 stig (heppnast í 1. tilraun), næst
5 stig ( heppnast í 2. tilraun) eða ekkert
stig (heppnast ekki).
Sá keppandi sem hlýtur flest stig vinnur.
Ef um jafntefli er að ræða verður bráða-
bani og sá vinnur sem gerir flesta
gervihnetti.
Munið eftir söfnunarleiknum
á 2ja lítra og 0,5 lítra Jó-jó
umbúðunum frá Vífilfelli
Komið með miðana að Stuðlahálsi 1
eða til umboðsmanna á landsbyggðinni
Skilafrestur til 29. október 1994
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn: Séra Hreinn Hákonar-
son flytur.
7.00 Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og
Trausti Þór Sverrisson. 7.30
Fréttayfirlit og veðurfregnir.
7.45 Daglegt mál. Margrét Páls-
' dóttir flytur þáttinn. 8.10 Póli-
tíska hornið. Að utan. 8.31 Tíð-
indi úr menningarlífinu. 8.40
Myndlistarrýni.
9.03 Laufskálinn. Umsjón: Sig-
rún Björnsdóttir.
9.45 Segðu mér sögu, „Sagan af
Þrastarskeggja konungi“ Gunn-
ar Stefánsson ies f þýðingu
Steingrims Thorsteinssonar.
10.03 Morgunleikfimi með Hall-
dóru Björnsdóttur.
10.10 Árdegistónar.
Þrír valsar eftir Johann Strauss.
Johann Strauss-hljómsveitin í
Vfn leikur; Wilii Boskovsky
stjórnar.
Parla-valsinn eftir Luigi Arditi.
Eva Lind syngur með hljómsveit
Þjóðaróperunnar f Vfn; Franz
Bauer-Theussl stjórnar.
10.45 Veðurfregnir.
11.03 Samfélagið í nærmynd.
Umsjón: Jón B. Guðlaugsson og
Þórdís Amljótsdóttir.
12.01 Að utan. (Endurtekið frá
morgni.)
12.45 Veðurfregnir.
12.50 Auðlindin.
12.57 Dánarfregnir og auglýsing-
ar.
13.05 Hádegisleikrit Útvarpsleik-
hússins, Refurinn eftir D. H.
Lawrence. Leikstjóri og þýð-
andi: Ævar R. Kvaran. (4:5.)
(Áður á dagskrá 1978.)
13.20 Stefnumót með Halldóru
Friðjónsdóttur.
14.03 Útvarpssagan, Stjörnuhröp
og hálfmáni eftir Charlotte Blay.
Saga Jónsdóttir les þýðingu Sól-
veigar Jónsdóttur (3).
14.30 Á ferðalagi um tilveruna.
Umsjón: Kristin Hafsteinsdóttir.
15.03 Tónstiginn. Úmsjón: Leifur
Þórarinsson.
15.53 Dagbók.
16.05 Skfma. Umsjón: Ásgeír
Eggertsson og Steinunn Harð-
ardóttir.
16.30 Veðurfregnir.
16.40 Púlsinn. Umsjón: Jóhanna
Harðardóttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. Tóniist
eftir Franz Schubert
Sónata í A-dúr ópus 162 fyrir
fiðlu og píanó, Jaime Laredo og
Stephanie Brown leika.
Sónata fyrir selló og pianó, Arp-
eggione sónatan. Mstislav
Rostropovitsj og Benjamin
Britten leika.
18.03 Þjóðarþel. Úr Sturlungu
Gisli Sigurðsson les (39). Ragn-
heiður Gyða Jónsdóttir rýnir í
textann.
18.25 Daglegt mál. Margrét Páls-
dóttir flytur þáttinn.
18.30 Kvika. Tíðindi úr menning-
arlífinu. Umsjón: Jón Ásgeir
Sigurðsson.
18.48 Dánarfregnir og auglýsing-
ar.
19.30 Auglýsingar og veðurfregn-
ir.
19.35 Rúllettan. Unglingar og
málefni þeirra. Umsjón: Jóhann-
eB Bjarni Guðmundsson.
19.57 Tónlistarkvöld Útvarpsins.
Bein útsending frá tónleikum
Sinfóniuhljómsveitar íslands I
Háskólabfói. Á efnisskránni:
Sinfónía nr. 35 eftir Wolfgang
Amadeus Mozárt.
Formgerð II eftir Herbert H.
Ágústsson og
Sinfónía nr. 1 eftir Gustav Ma-
hler. Einleikari er Guðný Guð-
mundsdóttir; Richard Bernas
stjórnar. Kynnir: Bergljót Anna
Haraldsdóttir.
22.07 Pólitfska hornið. Hér og nú.
Myndlistarrýni.
22.27 Orð kvöldsins: Ólöf Jóns-
dóttir flytur.
22.30 Veðurfregnir
22.35 Aldarlok: Með hár á bring-
unni Fjallað um smásagnasafnið
„Veik fyrir kúrekum" (Cowboys
are my weakness) eftir Pam
Houston. Umsjón: Jón Hallur
Stefánsson. (Áður á dagskrá á
mánudag)
23.10 Andrarfmur. Umsjón: Guð-
mundur Andri Thorsson
0.10 Tónstiginn. Umsjón: Leifur
Þórarinsson. (Endurtekinn þátt-
ur frá miðdegi.)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
Fréttir ó Rós 1 og Rós 2 kl. 7, 7.30,
8, 8.30, 9, 10, II, 12, 12.20, 14,
15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
7.03 Morgunútvarpið. Leifur
Hauksson og Kristín Ólafsdóttir.
Erla Sigurðardóttir talar frá Kaup-
mannahöfn. 9.03 Halló ísland.
Magnús R. Einarsson. 10.00 Halló
Island. Margrét Blöndal. 12.45
Hvítir máfar. Gestur Einar Jónas-
son. 14.03 Snorralaug. Snorri
Sturluson. 16.03 Dægurmálaút-
varp. Bíópistill Ólafs H. Torfason-
ar. 18.03 Þjóðarsálin. 19.32 Milli
steins og sleggju. Magnús R. Ein-
arsson. 20.30 Úr ýmsum áttum.
Andrea Jónsdóttir. 22.10 Allt í
góðu. Guðjón Bergmann. 24.10 í
háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadótt-
ir. 1.00 Næturútvarp til morguns.
NÆTURÚTVARPID
1.30 Veðurfregnir. 1.35 Glefsur.
2.05 Á hljómleikum. 3.30 Nætur-
lög. 4.00 Þjóðarþel. 4.30 Veður-
fregnir. Næturlög. 5.00 Fréttir.
5.05 Blágresið blfða. Guðjón Berg-
mann. 6.00 Fréttir, veður, færð og
flugsamgöngur. 6.05 Morguntón-
ar. 6.45 Veðurfregnir. Morguntón-
ar. 6.45 Veðurfregnir. Morguntón-
ar.
LANDSHLUTAÚTVARPÁRÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00 Útvarp
Norðurlands. 18.35-19.00 Útvarp
Austurland. 18.35-19.00 Svæðis-
útvarp Vestfjarða.
ADALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Tónlist. Útvarp umferðarráðs.
9.00 Drög að degi. 12.00 islensk
óskalög. 16.00 Sigmar Guðmunds-
son. 19.00 Draumur f dós. 22.00
Ágúst Magnússon. 1.00 Albert
Ágústsson.4.00 Sigmar Guð-
mundsson.
BYLGJAN
FM 98,9
6.30 Þorgeir Ástvaldsson og Eirík-
ur Hjálmarsson. 9.05 Ágúst Héð-
insson. 12.15 Anna Björk Birgis-
dóttir. 15.55 Bjarni Dagur. 18.00
Hallgrímur Thorsteinsson. 20.00
íslenski listinn. Jón Axel Ólafsson.
23.00 Næturvaktin.
Fréttir ó hiila límonum fró kl. 7-18
og kl. 19.19, fréttayfirlit kl. 7.30
og 8.30, iþróttafréttir kl. 13.00
BROSIÐ
FM 96,7
7.00 Jóhannes Högnason 9.00
Rúnar Róbertsson. 12.00 íþrótta-
fréttir. 12.10 Vftt og breitt. Fréttir
kl. 13. 14.00 Kristján Jóhannsson.
17.00 Sveifla og galsi með Jóni
Gröndal. 19.00 Okynnt tónlist.
24.00 Næturtónlist.
FM 957
FM 95,7
6.00 í bftið. 9.00 Þetta létta. 12.00
Sigvaldi Kaidalóns. 15.30 Á heim-
leið með Pétri Árna. 19.00 Betri
blanda. 23.00 Rólegt og róman-
tfskt.
Fréttir kl. 8.57, 11.53, 14.57,
17.53.
HLJÓDBYLGJAN
Akureyri FM 101,8
17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson.
Fréttir frá Bylgjunni/Stöð 2 kl. 17
og 18.
TOP-BYLGJAN
FM 100,9
6.30 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 12.15 Svæöisfréttir TOP-
Bylgjan. 12.30 Samtengt Bylgj-
qnni FM 98,9. 15.30 Svæðisútvarp
TOP-Bylgjan. 16.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98,9. 21.00 Svæðis-
útvarp TOP-Bylgjan. 22.00 Sam-
tengt Bylgjunni FM 98,9.
X-ID
FM 97,7
8.00 Sinimi. 11.00 Þossi. 15.00
Birgir Örn. 16.00 X-Dómínóslist-
inn. 21.00 Henní Árnadóttir. 1.00
Næturdagskrá.
Útvarp Hafnarfjörður
FM 91,7
17.00 Markaðshornið. 17.25 Tón-
list og tilkynningar. 18.30 Fréttir.
18.40 íþróttir. 19.00 Dagskrárlok.