Morgunblaðið - 27.10.1994, Blaðsíða 52
Afl þegar þörf krefur!
HEWLETT PACKARD
m
HPÁ ISLANOI H F Höfðabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá mögulcika til veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 KEYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓIF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 86
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Umbúðir
úr plasti
Jiækka um
20 prósent
HORFTJR eru á að verð á plastum-
búðum hækki um 20-25% hér á
landi í haust. Hluti hækkunarinnar
er þegar kominn til framkvæmda.
Ástæða hækkunarinnar er að hrá-
efnisverð hefur hækkað um 50%
frá því í júlí í sumar m.a. vegna
efnahagsuppsveiflu í Bandaríkjun-
um.
Hækkun á öllum umbúðum
Plastprent hf. hækkaði verð á
^g^ilastumbúðum um 12% um miðjan
síðasta mánuð. Nú hefur fyrirtækið
ákveðið að hækka verð umbúðanna
um næstu mánaðamót um 7%.
Eysteinn Helgason, framkvæmda-
stjóri Plastprents, segist gera ráð
fyrir að plastumbúðir eigi eftir að
hækka um 20-25%. Hann segir
að þessi verðþróun sé að ganga
yfir allan umbúðaiðnað. Eftirspurn
sé hvarvetna að aukast og þar með
hækki verðið. Verð á umbúðum
hefur verið stöðugt í nokkur ár.
■ Plastfilma hér á landi/2B
Morgunblaðið/Einar Magnús Magnússon
Veðrabrigði
Deilan um Atvinnuleysistryggingasjóð bitnar á
viðræðum um reynslusveitarfélög
Reykjavík slítur við-
ræðum við sfjórnvöld
•^^SUÐRÚN Ágústsdóttir, forseti
borgarstjómar Reykjavíkur, hefur
ritað félagsmálaráðherra bréf þar
sem því er lýst yfir að Reykjavíkur-
borg muni ekki taka þátt í frekari
viðræðum við stjómvöld um reynslu-
sveitarfélög meðan ríkisstjórnin hafi
uppi þá kröfu að sveitarfélögin greiði
í Átvinnuleysistryggingasjóð.
Viðræður stjómvalda og Reykja-
víkurborgar um að Reykjavík verði
reynslusveitarfélag em langt komn-
ar. Sveitarfélögin eiga að skila inn
umsóknum fyrir 30. nóvember um
TVÖ HROSS, fimm og sex vetra,
drápust með nokkurra klukku-
stunda millibili í hesthúsi í hest-
húsahverfínu Sörlaskjóli á Blöndu-
ósi í fyrradag án sýnilegrar ástæðu.
í hesthúsinu vom fímm önnur hross
og amar ekkert að þeim.
Hrossin vom í þremur stíum og
þau hross sem drápust vom ekki
saman í stíu. Vignir Sigurólason
dýralæknir á Blönduósi segir þenn-
an atburð óvenjulegan og illskiljan-
legan. „í gamla daga hefði þetta
verið kallað galdrar eða drauga-
gangur," sagði Vignir.
Hrossunum var gefið um hádegið
umræddan dag og þegar hirðirinn
kom aftur í hesthúsin rúmum tveim
þau verkefni sem þau óska eftir að
taka við af ríkinu. Félagsmálaráðu-
neytið hefur boðað til fundar með
formönnum allra verkefnisstjóma
reynslusveitarfélaga 4. nóvember
nk. Guðrún sagði að hún myndi að
öllu óbreyttu ekki mæta á þennan
fund.
„Reynslusveitarfélagshugmyndin
byggir á gagnkvæmu trausti og
samvinnu milli ráðuneytanna og
sveitarfélaganna. Ef trúnaður og
traust ríkir ekki þá er þetta verk-
efni, reynslusveitarfélög, dæmt til
klukkustundum síðar var annað
hrossið dautt og hitt var í andaslitr-
unum og drapst meðan hinum
hrossunum var hleypt út úr húsinu.
Engin sýnileg skýring
Vignir Sigurólason dýralæknir
segir enga sýnilega skýringu á
þessum skyndidauða en þó gæti
verið um einhverskonar eitrun að
ræða. Vignir taldi ólíklegt að um
svokallaða hræeitrun hafi verið að
ræða en hún myndast nær einvörð-
ungu í rúllubaggaheyi við Ioftfirrðar
aðstæður en þessum hrossum var
gefið þurrhey. Sýni voru tekin og
send til frekari rannsókna á til-
raunastöðina á Keldum.
að mistakast. Ef fjármálaráðuneytið
treystir sér til að brjóta undirritaða
samninga, sem gerðir hafa verið við
sveitarfélögin þá er ekki mjög trú-
legt að það standi við aðra samninga
sem gerðir verða,“ sagði Guðrún.
Guðrún sagði að Reykjavíkurborg
myndi ekki endurskoða afstöðu sína
til þessa máls fyrr en deilan um
greiðslur í Atvinnuleysistrygginga-
sjóð væri úr sögunni.
Ráðherra segir þetta
valda vonbrigðum
Guðmundur Árni Stefánsson, fé-
lagsmálaráðherra, sagði þessa af-
stöðu Reykjavíkurborgar valda sér
vonbrigðum. ',,Ég hafði haldið og
trúi því raunar enn, að það séu ekki
síst sveitarstjórnarmenn sem séu
áfram um að færa verkefni frá ríki
til sveitarfélaga og dreifa þannig
valdi. Menn úr öllum flokkum hafa
lengi talað um þetta. Nú loksins er
þetta að verða að veruleika með
þessu tilraunaverkefni. Þetta veldur
mér því vonbrigðum," sagði Guð-
mundur Ámi.
Félagsmálaráðherra sagðist vera
sannfærður um að sveitarfélögin og
ríkið ættu eftir að ná samkomulagi
um þann ágreining sem ríkir um
greiðslur sveitarfélaganna í At-
vinnuleysistryggingasjóð. Hann
sagðist hafa ritað formanni Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga bréf
þar sem óskað er eftir viðræðum um
þetta mál. Guðmundur Ámi sagðist
gera sér vonir um að þær viðræður
gætu hafist eftir helgina. Hann sagði
brýnt að ríkið og sveitarfélögin hefðu
áfram með sér samstarf sem miðaði
að því að minnka atvinnuleysi.
Dularfullur daud-
dagi tveggja hrossa
Blönduósi. Morgunbladið.
Samningar standa yfir við Rússa
um kaup á saltsíld
Vonast til að þeir
kaupi ekki minna
en á síðasta ári
„ÞAÐ er of snemmt að gefa nokkuð
upp um heildarstöðu samninga um
sölu á saltsíld til Rússa. Ákveðnir
samningar hafa þegar tekist, en
aðrir eru enn í vinnslu," sagði Gunn-
ar Jóakimsson, framkvæmdastjóri
Síldarútvegsnefndar, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Gunnar kvaðst
þó bjartsýnn á að samningar næð-
ust um að Rússar keyptu ekki
minna magn en í fyrra.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt til-
lögu sjávarútvegsráðherra um að
nýta óráðstafaðar heimildir til út-
flutningstrygginga. Þorsteinn Páls-
son, sjávarútvegsráðherra, sagði á
þingi í gær að hann vonaðist til að
þessi ráðstöfun geti greitt fyrir því
að hægt verði að viðhalda síldar-
mörkuðum í Rússlandi. Það væri
mikilvægt að hafa haldið fótfestu
á þeim mörkuðum þegar betra jafn-
vægi væri komið á innanlandsmál
þar.
Markaðurinn erfiður
Gunnar Jóakimsson sagði að
Rússar hefðu keypt 35 þúsund
tunnur í fyrra. Hann væri bjartsýnn
á að þeir keyptu ekki minni á þess-
ari haustvertíð. „Rússneski mark-
aðurinn er mjög erfiður um þessar
mundir og gengissveiflur þar hafa
gert okkur enn erfiðara um vik. Það
er erfitt að segja til um hvenær
samningum verður lokið; það gæti
tekið daga eða vikur.“
■ Reynt að viðhalda/6