Morgunblaðið - 26.11.1996, Page 1
116 SÍÐUR B/G/D
271. TBL. 84.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
'fk CLtöfrL?
WTrfTel
Lúkashenko hrósar sigri í þjóðaratkvæðagreiðslu
Reuter
Saksóknari þjarmar að forsætisráðherra Ítalíu J25 manns
Forsetinn sakaður
um stórfelld svik
í London
KENNETH Clarke, fjármála-
ráðherra Bretlands, heldur
fjárlagaræðu sína á þinginu í
dag og margir breskir ihalds-
menn vonast til þess að ráð-
herrann boði þar skattalækkun
sem gæti aukið sigurlíkur
íhaldsflokksins í kosningunum
á næsta ári.
Til að slíkt sé hægt þarf að
spara og á myndinni er félagi
í samtökum starfsmanna
sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva í jólasveinabúningi við
þinghúsið að mótmæla áform-
um um að minnka útgjöldin til
heilbrigðismála.
Vill Prodi fyrir rétt
Róni. Reuter.
ÍTALSKUR saksóknari lagði til í
gær að Romano Prodi, forsætisráð-
herra landsins, yrði sóttur til saka
fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína
sem formaður stjórnar ríkisfyrir-
tækisins IRI.
Prodi, sem hefur gegnt embætti
forsætisráðherra frá því í maí,
kvaðst saklaus af sakargiftunum
og hafa fulla trú á ítalska réttar-
kerfinu. „Beiðnin veldur mér hvorki
áhyggjum né vandræðum," sagði
hann.
Málið snýst um meint lögbrot
vegna sölu matvælafyrirtækisins
Cirio, sem IRI seldi samsteypunni
Fis. Vi í október árið 1993.
ítalskar fréttastofur
skýrðu frá því að saksókn-
arinn vildi að Prodi og
fimm aðrir stjórnármenn í
IRI á þessum tíma yrðu
saksóttir fyrir að hafa mis-
notað aðstöðu sína. Fram-
kvæmdastjóri Fis. Vi kynni
einnig að verða ákærður.
Krefjast ekki afsagnar
Dómari tekur beiðnina fyrir og
ákveður hvort birta eigi formlega
ákæru á hendur mönnunum. Hann
gæti einnig vísað málinu frá eða
Prodi
óskað eftir frekari rann-
sókn. Verði Prodi fundinn
sekur gæti hann átt 2-5
ára fangelsisdóm yfir höfði
sér.
Stuðningsmenn og and-
stæðingar stjórnarinnar á
þinginu sögðust ekki ætla
að krefjast þess að Prodi
segði af sér vegna málsins.
Prodi'er virtur hagfræð-
ingur og haslaði sér völl í
stjórnmálunum í fyrra. Hann var
stjórnarformaður IRI mestan hluta
síðasta áratugar og aftur í u.þ.b.
ár frá maí 1993.
fórust í
flugslysi
BJÖRGUNARSTARFI var haldið
áfram á Comoro-eyjum í gær eftir
að farþegaþota af gerðinni
Boeing-767 hrapaði í Indlandshaf
þegar hún varð eldsneytislaus á
laugardag. Tókst björgunarmönn-
uin að draga hluta vélarinnar á
land og voru lík farþega enn í
sætum, spennt í öryggisbelti. 175
manns voru um borð í vélinni. 50
manns björguðust og 125 létu líf-
ið. A myndinni sjást björgunar-
menn ganga framhjá hluta þot-
unnar.
■ Síðasta höggið/21
Reuter
Spamaði
mótmælt
hafði skipað Gontsjar sem formann
kjörstjórnarinnar en Lúkashenko vék
honum frá eftir að hann hafði lýst
atkvæðagreiðsluna ógilda fyrirfram.
Vill aðild að ESB
Aðeins 7,9% kjósendanna studdu
stjórnarskrárdrög þingsins. Kjósend-
urnir höfnuðu ennfremur tillögum
þingsins um að dauðarefsingar yrðu
afnumdar og að ráðamenn í borgum
og bæjum, sem forsetinn hefur skip-
að, yrðu kjörnir í lýðræðislegum
kosningum. Hins vegar studdu þeir
þá tillögu forsetans að fijáls sala
jarðnæðis yrði bönnuð.
Hvíta-Rússland hefur einangrast
vegna stefnu Lúkashenkos en forset-
inn kvaðst í gær ætla að koma á
efnahagsumbótum. Hann sagðist
einnig stefna að því að Hvíta-Rúss-
land fengi aðild að Evrópusamband-
inu (ESB), en hingað til hefur hann
lagt áherslu á að sameina landið
Rússlandi.
Mínsk. Reuter.
ALEXANDER Lúkashenko,
forseti Hvíta-Rússlands,
kvaðst í gær hafa unnið
stórsigur í þjóðaratkvæða-
greiðslunni á sunnudag um
hvort áuka bæri völd forset-
ans. Andstæðingar Lúkas-
henkos sökuðu hann hins
vegar um stórfelld svik og
lýstu atkvæðagreiðslunni
sem „skripaleik".
„Það verður mjög erfitt
fyrir andstæðinga mína að halda því
fram að brögð hafi verið í tafli, að
þjóðaratkvæðagreiðslan hafí verið
ólögleg. Yfirgnæfandi meirihluti
studdi allar tillögur forsetans," sagði
Lúkashenko á blaðamannafundi.
Rúm 70% kjósendanna studdu
drög forsetans að nýrri stjórnarskrá,
sem heimila honum að breyta þing-
inu, lengja kjörtímabil sitt um tvö
ár og skipa helming dómaranna í
stjórnlagaréttinum. Lúkashenko
kvaðst vonast til þess að geta breytt
þinginu fyrir jól þótt hann
hefði áskilið sér rétt til að
gera það á tveimur mánuð-
um. Forsetinn hyggst
stofna nýja þingdeild, efri
deild, og fækka þingmönn-
um.
„Tölurnar út í hött“
„Þetta er skrípaleikur,“
sagði Semjon Sharetskí,
forseti þingsins. „Hvíta-
Rússland stefnir í að verða raunveru-
legt einræðisríki."
Kjörstjórnin sagði að meirihluti
kjósenda hefði stutt allar fjórar til-
lögur forsetans en hafnað þremur
tillögum þingsins. Kjörsóknin var
sögð 84% og einn af andstæðingum
Lúkashenkos, Viktor Gontsjar, sagði
það benda til kosningasvika. „Jafn-
vel í forsetakosningunum árið 1994,
þegar stjórnmálabaráttan náði há-
marki, var kjörsóknin minni. Tölurn-
ar eru einfaldlega út í hött.“ Þingið
Lúkashenko
APEC-fundur
Fríversl-
un og af-
nám tolla
Subic Bay. Reuter.
FUNDI APEC, Efnahagsráðs
Asíu- og Kyrrahafsríkja, lauk
í gær á Filippseyjum með sam-
þykkt um að aðildarríkin sam-
ræmdu efnahagsstefnu sína
og kæmu á fót einu fríverslun-
arsvæði fyrir 2020. Þá var
fallist á tillögur Bandaríkja-
stjórnar um að vinna að algeru
tollfrelsi á sviði upplýsinga-
tækni og er litið á það sem
mikinn sigur fyrir Bill Clinton,
forseta Bandaríkjanna.
í lokasamþykkt fundarins
er lýst yfir stuðningi við þá
stefnu Bandaríkjastjórnar að
afnema tolla á tölvum, minn-
iskubbum og fjarskiptabúnaði
en þó er hafður fyrirvari á
hvað varðar tímasetningar.
Lögðu Kínveijar áherslu á, að
þar sem efnahagskerfi þeirra
væri enn fremur vanþróað,
gætu þeir ekki bundið sig við
ákveðnar dagsetningar.
Clinton og Jiang Zemin, for-
seti Kína, áttu fund á sunnu-
dag um bætt samskipti ríkj-
anna og ósk Kínveija um aðild
að Alþjóðaviðskiptastofnun-
inni, WTO. Sagði Jiang, að
kínverska stjórnin ætlaði að
lækka innflutningstolla niður
í 15% að meðaltali um aldamót
en þeir eru nú komnir niður í
23%. Búast Kínvetjar við, að
viðræðum þeirra við Banda-
ríkjamenn um WTO-aðild ljúki
á fyrra misseri næsta árs.
■ Stefnt að fríverslun/22