Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÚR leiksýningunni Gulltáraþöll.
Heimsókn í
leikhúsið
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ASTA Arnardóttir leikari býður börn úr 5G og 5S í Grandaskóla velkomin í Borgarleikhúsið.
TÍU ára deildir Grunnskóla Reykjavíkur
hafa að undanförnu sótt Borgarleikhúsið
heim í boði Leikfélags Reykjavíkur. Um
1.400 börn eru í þessum aldursflokki.
A liðnu leikári bauð Leikfélagið sömu
börnum í heimsókn í því augnamiði að
kynna þeim leyndardóma og töfra leikhúss-
ins, samkvæmt kynningu. Var reynslan af
þeim heimsóknum góð og var því ákveðið
að taka þráðinn upp að nýju í haust.
Að þessu sinni fá börnin að sjá tvær stutt-
ar sýningar, ævintýrasýninguna Gulltára-
þöll og sýningu íslenska dansflokksins,
Kaldur sviti. Að sýningum loknum vinna
leikarar og dansarar áfram með börnun-
um, sem er skipt í minni hópa og gefin
ýmis spunaverkefni. Er þeim meðal annars
kennt að segja sögu á máli leiklistarinnar
og dansins og sýnt hvernig unnt er að
skapa sviðsverk úr sögu hvort heldur er
með orðum, látbragði, dansi, Ijósum,
tæknibrellum, grimum eða leikmunum.
Leiðbeinendur barnanna í Borgarleik-
húsinu eru Asta Arnardóttir leikari og
Birgitte Heide listdansari, auk leikara og
dansara í báðum sýningum.
Eftir áramót er fyrirhugað að bjóða
þeim börnum sem í vetur eru í níu ára
deildum Grunnskóla Reykjavíkur í leikhús-
ið og munu þau fá, likt og hópurinn nú,
að kynnast sviðslistinni, innviðum leikhúss-
ins og þannig koll af kolli.
£
5
i
afslátt
á 500 g jólasmjörstyk
Áður JTb kr. Nú 132 kr,
Notaðu tækifærið ocj
njóttu smjörbragðsms l
Þú sparar
88 kr. á kfló
LÁRA Stefánsdóttir listdansari í Köldum svita.
Glæsilegt Vichy úr fylgir kaupum á Vichy vörum
ef keypt er fyrir kr. 2500 eða meira *
KYNNING í HÁALEITISAPÓTEKI í DAG KL. 14-18
VICHYÍ
LABORATOIRES
HEILSULIND HÚÐARINNAR
Fæst eíngöngu f apötekum