Morgunblaðið - 26.11.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 33
LISTIR
Allt í botn
Leiðarljós vill stuðla að mannrækt
og andlegum þroska
Englaorka og andar-
takið fyrir getnað
TÓNLIST
Norræna hösið
PÍANÓTÓNLEIKAR
Verk eftir Bartók, Hjálmar Ragnare-
son og Liszt. Miklós Dalmay, píanó.
Norræna húsinu, laugardaginn 23.
nóvember kl. 17.
TILEFNI píanótónleikanna í
Norræna húsinu sl. laugardag var
ákvörðun Félagsins Ísland-Ung-
vetjaland að fagna 11 alda búsetu
Ungveija á Dónárbökkum með
þessum hætti. Líkt og Norður-
landaþjóðir hófu Ungveijar innreið
sína í sögu Vesturlanda með því
að gera nágrönnum sínum lífið
leitt, en það stóð ekki lengi. Ólíkt
öðrum fyrir- og eftirrennurum
meðal hirðingjaþjóða úr víðáttum
Asíu undu Ungveijar sér fljótt við
frið og spekt á púsztunni í krika
Harfaðarfjalla. Þar sem Gunnar
Gjúkason forðum sló fyrstu fetil-
hörpu hljóðfærasögunnar í orma-
garði Atla Húnakonungs, byggðu
Ungveijar 20. aldar upp eitt merk-
asta tónmenntakerfi í heimi. Og
nú var sum sé mættur til leiks
ungur landi Sandórs, Anda og
Jandós sem settist hér að fyrir
fimm árum og hreppti nýverið
Tónvakaverðlaun Ríkisútvarpsins.
Verðmætustu framlög Ungvetja
til heimstónmennta eru vafalaust
verk Liszts og Bartóks, enda báðir
á tónleikaskrá umrætt laugar-
dagssíðdegi. Bartók samdi Svítu
sína Op. 14 1916, skv. mínurn
heimildum upphaflega í 5 þáttum,
en fleygði seinna þeim fimmta.
Hins vegar fékk undirr. aðeins
Frændkórinn
og Rúdólf í
Gunnars-
hólma
FRÆNDKÓRINN og söngvara-
kvartettinn Rúdólf halda tónleika í
Gunnarshólma í Austur-Landeyjum
miðvikudaginn 27. nóvember kl. 21
og í húsi Kvennakórs Reykjavíkur,
Ægisgötu 7 í Reykjavík, fimmtudag-
inn 28. nóvember kl. 21.
Frændkórinn skipa annar og þriðji
ættliður afkomenda hjónanna Jóns
Gíslasonar og Þórunnar Pálsdóttur
frá Norðurhjáleigu í Álftaveri. Kór-
inn hefur starfað frá 1991, fyrst
undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur en
nú undir stjórn Sigrúnar Þorgeirs-
dóttur. Auk ættartengsia hafa kórfé-
lagar þá sérstöðu að eiga búsetu
dreift um Suðurland, allt frá Mos-
fellsbæ til Austur-Landeyja. Frænd-
kórinn verður með blandaða efnis-
skrá, bæði innlend og erlend þjóðlög.
Kvartettinn Rúdólf var stofnaður
í desember 1992. Hann hefur einkum
flutt íslensk og erlend jólalög, mörg
hver með nýjum útsetningum og
raddsetningum. Kvartettinn skipa
Sigrún Þorgeirsdóttir sópran, Jóhann
Halldórsdóttir alt, Þór Heiðar Ás-
geirsson bassi og Skarphéðinn Þór
Hjartarson tenór.
Frá stofnun hefur Rúdólf komið
víða fram, m.a. í útvarpi og sjón-
varpi auk þess sem hann gaf út
geisladisk með jólalögum á síðast-
liðnu ári.
Draumur um
draum á kvik-
myndahátíð
KVIKMYND Ásthildar Kjartansdótt-
ur, Draumur um draum, hefur verið
valin til sýninga á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðina i Amsterdam, sem
fram fer 28. nóvember til 5. desem-
ber. Myndin verður sýnd í flokki
norrænna heimildarmynda.
heyrða 3 þætti úr leik Dalmays,
hvernig sem á því stendur. Leið
sá síðasti hægt og syngjandi hjá
undir fallega mjúkum slætti píanó-
leikarans.
Seinna Bartókverkið, hið fræga
Allegro Barbaro (1911), lék
Dalmay með hraða sem gaf til
kynna, að þrátt fyrir ungan aldur
væru flestir tækniþröskuldar löngu
yfirstignir, og það með, að píanist-
inn hefði snemma tileinkað sér
bæði kraft og mýkt, eða eins og
segir í afmorsvísunni kunnu, hefði
bæði lært að stijúka og lært að
slá. Dalmay fór einmitt með hljóm-
borðið eins og skapmikill róman-
tískur elskhugi með ofdekraða
greifadóttur, og minnti að því leyti
á landa sinn Liszt.
Hinar fimm prelúdíur Hjálmars
H. Ragnarssonar hafa ekki verið
nema 10-12 ár í umferð, en virð-
ast þegar orðnir hálfgerðir fasta-
gestir á tónleikaskrám. Sjálfsagt
ekki sízt vegna þess að kröfur til
flytjandans eru þar í samræmi við
inntak og gæði, en það virðist
ekki alltaf gilda um framsækin
nútímaverk. Þó virðist manni vera
á mörkunum að hugsunin að baki
nr. 3 standi undir ríflegri tíma-
lengd. Hin víðkunna „naívíska“
prelúdía nr. 4 mætti með góðum
vilja e.t.v. túlka sem freudíska
launfórn tónskáldsins til popp-
skurðgoðsins, og „vandarhöggin“
í upphafi nr. 5 sömuleiðis sem n.k.
dulda skírslu í yfirbótaskyni.
Dalmay lék verkið af snilid, og
bólaði lítt á kannski eina veikleika
hans í Svítunni þar á undan, þ.e.
full snaggaralegum styrkbreyting-
um.
Stórvirtúósinn fékk að glampa
hvað af tók í Tilbrigðum Liszts við
kórþátt úr Weimar-kantötu Bachs,
„Weinen, Klagen, Sorgen, Zagen“.
Liszt bjó lengi í sömu borg, og
þátturinn er undir rithætti
passacaglíu með hnígandi króman-
tískum harmsöngsþrábassa, sem
gefur tilbrigðagerðinni mikið svig-
rúm. Stig af stigi magnast fingra-
flugið upp og niður hljómborðið,
og lyklar og strengir verða að þola
sífellt meira áreiti (sem og hlust-
endur, sé píanistinn ekki því hittn-
ari), en Miklós Dalmay stóð af sér
allar þrengingar með nærri fyrir-
hafnarlausum glæsibrag og lauk
fimaestissimo-kóralniðurlagi þessa
kreíjandi verks með sannkallaðri
konunglegri viðhöfn.
Hin epísk-ljóðræna 13. Ung-
verska rapsódía Liszts, þess er inn-
leiddi eða a.m.k. festi í sessi hugtök
eins og sinfónísk ljóð og stefræna
ummótun, var síðust á dagskrá.
Opinberaði Dalmay þar svo ekki
varð um villzt gegnheilt næmi sitt
fyrir mótun hendinga í vaggandi
sígauna-rúbatóum „lassú“-kennda
hlutans, og þegar æsast tók leikur-
inn, gjömmuðu strengir litla
Steinway-flygilsins óðar eins og gló-
andi vélbyssukjaftar undan eldspú-
andi en samt hnífnákvæmum slætti
á hraða sem ólíklegt er að margur
mörlandinn fengist til að reyna við.
Hér var gefið allt í botn. Að vísu
mátti enn sem fyrr vel hugsa sér
styi'kbreytingar ívið breiðari - þær
voru sumar full snöggar upp á lag-
ið - en að því undanskildu duldist
engum, að Miklós Dalmay er efni í
meiriháttar píanósnilling.
Ríkarður Ó. Pálsson
LEIÐARLJÓS gefur út nokkrar
bækur á árinu. Meðal þeirra eru
nýjar bækur eftir Guðrúnu G. Berg-
mann og metsöluhöfundinn James
Redfield.
Engladagar eftir Guðrúnu G.
Bergmann er dagbók sem sögð er
gefa lesanda tækifæri til að lifa í
nánum tengslum við englana alla
daga. Henni er skipt í fimmtíu og
tvo kafla, einn fyrir hveija viku
ársins. í upphafi Engladaga er fjall-
að um englaorkuna, verndarengla
og erkiengla, mátt bænarinnar og
kraft hugsunarinnar. Guðrún sendir
einnig frá sér verndarengla í formi
blárra korta með jákvæðum hvatn-
ingarorðum. Bókin kostar 1.990 kr.
og kortin 790 krónur.
Uppgjör við aldahvörf er eftir
Karyn Martin-Kuri, en markmið
hennar er að öðlast innra frelsi sem
tengist meðvitund um andlegar
víddir. Helga Ágústsdóttir þýddi.
Verð 2.490 kr. í kilju.
Boðskapur Maríu um von er eftir
Annie og Byron Kirkwood, höfund
Boðskapar Maríu til mannkynsins,
sem kom út 1994. í bókinni eru
skilaboð til mannkyns frá Mariu,
móður Jesú. Þýðandi er Ingunn
Stefánsdóttir. Verð í kilju 1.590 kr.
James Redfield er metsöluhöf-
undur sem hefur skrifað bókina
Tíunda innsýnin, en hann er einnig
höfundur Celestine-handritsins. I
Tíundu innsýninni býður Redfield
lesandanum í ferðalag inn í aðrar
James
Redfield
víddir, að lifa andartakið fyrir getn-
að og sjá fyrir sér lífssýn sína og
stíga yfír mörk lífs og dauða, eins
og segir í kynningu Leiðarljóss.
Anna María Hilmarsdóttir þýddi
Tíundu innsýnina. Verð í bandi
2.990 kr.
í Hámarksárangri lýsir Brian
Tracy aðferðum og lögmálum sem
beita má til að bæta á skömmum
tíma allt í lífi manna. Hann styðst
við frumspeki, heimspeki og sál-
fræði í þessum tilgangi. Þýðingin
er gerð af Þorgerði Jörundsdóttur
og Guðrúnu Sóleyju Guðjónsdóttur.
Verð 3.490 kr. innbundin.
Leiðarljós er bókaútgáfa hjón-
anna Guðrúnar og Guðlaugs Berg-
manns og hefur það að markmiði
að gefa út bækur sem stuðla að
mannrækt og andlegum þroska.
Meðal þessara bóka eru svokallaðar
sjálfsstjórnarbækur sem náð hafa
útbreiðslu víða, einkum í Bandaríkj-
unum.
t
mnimin
oi i alliiijaiili ptir
íii tikn Yel í raiti lér
Andrés herrafataverslun • Antik-húsið • Barnafataverslunin Dimmalimm • Barnastígur • Bílastæðasjóður
Blómaverkstæði Binna • Bogner • Bókaverslun Lárusar Blöndal • Bókaverslun Steinars • Cortina Sport
Djásn og grænir skógar • Eggert feldskeri • Fatabúðin • Frímerkjamiðstöðin • Gallerí Smíðar & Skart
Gler og grjót • Grænn kostur heilsubitastaður • Gullsmiðjan Pyrit G15 • Handprjónasamband íslands
Hárgreiðslustofan Valhöll • Hárhönnun • Hársmiðjan • Rakarastofa Péturs • Heilsuhúsið
Helgi Sigurðsson úrsmiður • Inga Elín gallerí • Jens gullsmiður • Jói og félagar hárgreiðslustofa
Kúnígúnd sérverslun með gjafavörur • Litir og föndur • Misty • Nectar náttúrulegar snyrtivörur
Ostabúðin • Ófeigur gullsmiðja og listmunahús • Snyrtistofan Guerlain • Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis • Stíll tískuverslun • Tösku og hanskabúðin • Úr og skartgripir Kornelíus Jónsson • Vefur
-ALLTAF i DPPLEIÐ-