Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 60
30 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Hvernig er skatt-
geiðslum erótískra
dansara háttað?
Frá Hildi Svavarsdóttur:
í TILEFNI af Kastljóssþætti sjón-
varpsins 13. nóvember sl. langar
mig til að velta fyrir mér nokkrum
tölum. Nefnt var að hver „erótísk-
ur dansari og listamaður" sem
hingað til lands kemur mánaðar-
lega án atvinnuleyfis vinni sér inn
um 400.000 krónur á þeim mán-
uði sem hann dvelur hér. Nefnt
var einnig að þeir staðir sem hafa
slíka „listamenn" á sínum snærum
væru þrír og að hver þeirra hefði
um átta slíka í senn. Samkvæmt
framansögðu eru því hér á landi
mánaðarlega 24 slíkir „listamenn"
sem hver um sig vinnur sér inn
um 400.000 krónur á mánuði og
fer síðan úr landi, væntanlega með
peningana sína með sér. Alls eru
þetta um 9.600.000 kr. (tæpar tíu
milljónir) á mánuði. Þetta verða
því 115.200.000, eitthundrað og
fimmtán milljónir og tvöhundruð,
þúsund á einu ári sem fyrrnefndir
„Iistamenn" taka með sér úr landi,
þ.e.a.s. eitt stórt Skeiðarárhlaup á
10 ára fresti ef svo heldur fram
sem horfir. Ofannefndir „menn-
ingarviðburðir" virðast alltjent
hafa fest sig allvel í sessi í ís-
lensku samfélagi og fer stöðunum
fjölgandi svo ofannefndar tölur eru
varlega áætlaðar. Ég hef áhuga á
að vita hvort ráðamönnum og ís-
lensku þjóðinni og þá sérstaklega
þeim hluta hennar sem lætur þetta
fé af hendi rakna, að því er virð-
ist með afar glöðu _ geði, finnst
þessu fé vel varið. Ég man ekki
betur en að Skeiðarárhlaupið hafi
verið þó nokkurt áfall fyrir þjóðina
þótt betur hafi farið en á horfðist
í fyrstu og voru þó brýrnar búnar
að standa í 20 ár. Ég hef líka áhuga
á að vita hvernig skattgreiðslum
af þessum upphæðum er háttað.
Flestir aðrir sem þiggja laun fyrir
sína frammistöðu í lífinu þurfa að
borga skatt hér á landi og það
nokkuð ríflegan að mér finnst fyrir
okkur sem þurfum að standa
straum af húsnæðiskostnaði og
framfærslu ungra bama. Maður
ætti kannski að gerast „listamað-
ur“, svona til að drýgja tekjurnar.
HILDUR SVAVARSDÓTTIR,
Grænukinn 23, Hafnarfirði.
Flokkur með
ekkert fylgi
Frá Þorleifi Kr. Guðlaugssyni:
VEGNA skoðanakönnunar DV
mánudaginn 7. október sl. um fylgi
stjórnmálaflokka hér á landi vildi
ég segja eftirfarandi.
Þjóðvaki var flokkur sem mikið
ætlaði að gera, tældi til sín fylgi
í síðustu kosningum og sveik kjós-
endur því ekkert hafa þessir menn
gefið í arf eftir sig, standa ekki
undir nafni nú, eru sem sagt nær
aldauða flokkur. Líkt er með þess-
um flokki og manninum sem reif
niður hlöðu sína og byggði aðra
stærri. Nýbyggingin nær nú yfir
fjóra þingmenn með nær ekkert
fylgi. Þetta er frægt til eftir-
breytni nú á tímum í öngþveiti
óheiðarleika og sundrungar í sam-
félagi manna, sem virðist hafa
verið löngu ákveðið af forsprakka
þessa flokks. Atti ég síst von á
þvýfrá Jóhönnu Sigurðardóttur.
Ég segi bara það, hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn hagað sér svona
og unnið sér inn nokkra þingmenn
með þessum hætti hefðu vinstri-
menn rekið upp sárt ramakvein
um að nú ætti að vera nóg komið
í flokksklíkunni.
Hvernig er hægt að halda úti á
þingi fjórum þingmönnum og hafa
ekkert fylgi á landsvísu? Alveg
sama þó þeir væru kosnir fyrir
rúmu ári, á ákveðnum kosninga-
degi, til þings.
Ymislegt hefur verið brallað af
vinstriflokkunum hér áður fyrr en
aldrei jafn slæmt til að rugla fólk
og nú.
Virðist hér komið fram á víð-
tæku sviði eðli vinstriflokkanna.
ÞORLEIFUR KR. GUÐLAUGSSON,
Nökkvavogi 33, Reykjavík.
Hvað skal segja? 74
Væri rétt að segja: Jón og ég vorum þar?
Svar: Þetta mun þykja útlenskulegt í meira lagi. Oftast færi
best að segja: Við Jón vorum þar.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Þá byrjum við!
Skella, smella!
Heilmikið af skellum
en engir smellir . . .