Morgunblaðið - 16.04.1997, Page 1
80 SÍÐUR B/C/D/E
86. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Herlið geng-
ur á land
í Albaníu
Tirana. Reuter.
UM 1.200 hermenn frá Ítalíu,
Frakklandi og Spáni komu í
gær til Albaníu til að hafa
eftirlit með hjálparstarfi þar
í landi. Gengu fyrstu her-
mennirnir á land í dögun í
hafnarborginni Durres og
höfuðborginni Tirana. Hófu
hermennirnir þegar að und-
irbúa komu tæplega 5.000
hermanna til viðbótar en þeir
koma frá átta þjóðlöndum,
þar á meðal Danmörku.
Bashkim Fino, forsætisráð-
herra Albaníu, fagnaði komu
hermannanna og sagði að
vera þeirra í Albaníu myndi
auðvelda stjórnvöldum að
koma á lögum og reglu í land-
inu að nýju. Uppreisnarmenn
eru vel vopnum búnir, fullyrt
er að um ein milljón riffla
hafi horfið úr vopnabúrum
hersins.
Til minniháttar átaka hefur
komið víða í landinu undan-
farna daga en verið er að
opna skóla og fyrirtæki að
nýju, víða undir vernd vopn-
aðra varða.
Helmingur þjóðartekna í
píramítasjóði
Arben Malaj, fjármála-
ráðherra Albaníu, sagði í gær
að fjármagnið, sem lagt hefði
Reuter
FRANSKIR hermenn í hafnarborginni Durres í Albaníu. Um
1.200 hermenn frá þremur löndum komu í gær til landsins
og er hlutverk þeirra m.a. að tryggja komu tæplega 5.000
hermanna til viðbótar, sem koma til Durres og Tirana.
verið í hina svokölluðu
píramíta-sjóði, næmi um
helmingi þjóðartekna. Þær
námu á síðasta ári um 160
milljörðum ísl. kr. en um
70-80 milljarðar hafi verið
lagðar í sjóðina. Gjaldþrot
þeirra hratt af stað
mótmælum og uppreisn í
suðurhluta landsins.
Tillaga Dana hjá mannréttindanefnd felld
Pólitískur
sigur Kínveija
Genf. Reuter.
KINVERJUM tókst í gær að koma
í veg fyrir að Mannréttindanefnd
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sam-
þykkti tillögu Dana og fleiri þjóða
um að gagnrýna ástand mannrétt-
indamála í Kína. Er þetta sjöunda
árið í röð sem Kínveijum tekst að
koma í veg fyrir að tillagan nái fram
að ganga, en sendinefnd þeirra tókst
að tryggja sér stuðning nógu margra
Asíuríkja og óháðra ríkja til þess.
Þetta þykir pólitískur sigur fyrir
Kínveija, en á það hefur verið bent
að Danir hafi unnið áfangasigur, þar
sem tillagan hafi aldrei vakið jafnm-
ikla athygli og umtal og í ár.
Bandarískir fulltrúar á ársfundi
mannréttindanefndarinnar segja að
Kínveijar hafi beitt efnahagslegum
og pólitískum hótunum til að afla
sér stuðnings. Danir fluttu tillöguna
gegn Kína ásamt fjórtán öðrum ríkj-
um, en þeir urðu flutningsaðilar að
tillögunni fyrir hönd Evrópusam-
bandsins (ESB) eftir að Frakkar og
Þjóðveijar báðust undan því.
Kanadamenn tilkynntu Dönum að
þeir myndu ekki styðja tillöguna eins
og undanfarin ár og báru því við
að Frakkar, Þjóðveijar, ítalir, Spán-
veijar og Grikkir ætluðu ekki að
styðja hana. Þá sátu Ástralir og
Japanir einnig hjá.
Wu Jianmen, formaður kinversku
sendinefndarinnar, fagnaði í gær
hversu mörg vestræn ríki studdu
ekki tillöguna, og sagði það til marks
um að þau vildu „viðræður og sam-
vinnu en ekki átök“.
Kínveijar hefna sín
Kínveijar hefndu sín á Dönum og
Hollendingum, en þeir síðamefndu
eru meðflutningsmenn að tillögunni.
í tilkynningu utanríkisráðuneytisins
í Peking sagði, að Kínveijar hefðu
ákveðið að fresta öllum gagnkvæm-
um samskiptum og heimsóknum
sendinefnda milli landanna. Með
þessari ákvörðun Kínveija er talið
að hugsanlega verði ekkert af ferð
Jóakims prins og konu hans, Alex-
öndm, til Kína í júlí í tilefni þess að
þá taka Kínveijar við yfirráðum í
Hong Kong.
Noregsdeild mannréttindasam-
takanna Amnesty International hef-
ur farið þess á leit við Harald kon--
ung og Sonju drottningu að þau
fresti ráðgerðri opinberri heimsókn
til Kína í haust. Með henni er ætlun-
in að endurgjalda heimsókn Kínafor-
seta til Noregs í fyrra.
Engin mótmæli
Að sögn Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra hafa Kínveijar
með engum hætti mótmælt stuðn-
ingi íslendinga við tillögu Dana hjá
Mannréttindanefnd SÞ.
Eldsvoði í tjaldbúðum nálægt Mekka,
helgri borg múslima
>
A þriðja hundr-
að pílagrímar
farast í eldi
Dubai. Reuter.
AÐ minnsta kosti 217 pílagrímar
fórust í eldi sem kviknaði í gær í
tjaldbúðum nálægt Mekka, helgri
borg múslima, að því er fullyrt var
í saudi-arabíska útvarpinu. Rúm-
lega 1.290 manns slösuðust í elds-
voðanum sem skemmdi eða eyði-
lagði 70.000 tjöld. Talið er að rúm-
Iega 100 hinna látnu séu Indveijar
og að hinir séu flestir frá Pakistan
og Bangladesh.
Fregnir hermdu að einnig hefði
kviknað í tjaldbúðum íranskra píla-
gríma en ekki var vitað hvort
manntjón hefði orðið þar.
Opinber fréttastofa Saudi-Arab-
íu sagði að kviknað hefði í brú
milli Mekka og tjaldbúða á Mena-
sléttunni, sem er um ellefu km frá
borginni, og eldurinn hefði breiðst
mjög hratt út til tjaldbúðanna
vegna roks. Ekki var vitað með
vissu hvað olli eldinum en haft var
eftir erlendum sendiherrum að
gashylki hefðu sprungið. Skelf-
ingarástand skapaðist í tjaldbúð-
unum og tróðst að minnsta kosti
einn maður undir er fólk flýði eld-
inn.
Um tvær milljónir pílagríma frá
rúmlega 100 löndum eru í Saudi-
Arabíu og flestir þeirra fóru í gær
frá Mekka til Mena og gista þar
í tjaldbúðum þar til þeir halda á
Arafat-fjall í dag, þegar pílagríms-
ferðin nær hámarki.
Mannskæð slys eru algeng í píla-
grímsferðunum, t.a.m. fórust
1.426 pílagrímar í miklum troðn-
ingi í göngum nálægt Mekka árið
1990.1 fyrra létust þrír pílagrímar
í eldsvoða í Mena. Hafa saudi-arab-
ísk yfirvöld veitt ríflega einum
milljarði ísl. kr. á síðasta áratug
til að bæta aðstöðu fyrir pílagríma
í Mekka.
Áfellisdómur
yfir belgísku
réttarkerfi
Brussel. Reuter.
SKÝRSLA belgískrar þingnefndar,
sem birt var í gær, er áfellisdómur
yfir beigísku réttarkerfi. Þingnefnd-
in tók til starfa í kjölfar gagnrýni á
rannsókn yfirvalda á afbrotum barn-
aníðinga.
Þingnefndin leggur til að þijár
lögreglusveitir Belga verði samein-
aðar í eina, þar sem samkeppni og
óeining hafi ríkt á milli þeirra. Þá
eru lagðar til umfangsmiklar um-
bætur á réttarkerfínu, til að bæta
stöðu þolenda og auka eftirlit með
þeim sem rannsaka mál.
Þingnefndin hyggst nú kanna
ásakanir um að afbrotamenn hafi
notið verndar háttsettra manna.
Enn ber mikið í milli
hjá Rússum og NATO
Moskvu.Reuter.
EKKI varð nein niðurstaða af fundi
Jevgení Prímakovs, utanríkisráð-
herra Rússlands, og Javiers Solana,
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), í Moskvu í
gær, en þeir reyna að bæta sam-
skipti NÁTO og Rússa sem hafa
versnað mjög vegna fyrirhugaðrar
stækkunar NATO. Sagði rússneska
utanríkisráðuneytið að aðeins hefði
þó þokast í samkomulagsátt.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti sem
mun eiga fund í dag með Helmut
Kohl, kanslara Þýskalands, um
stækkun NATO, sagði NATO verða
að koma til móts við kröfur Rússa.
Þá sakaði Sergei Jastrsjembskí, tals-
maður Jeltsíns, nokkur aðildarlönd
NATO um að hafa ekki nægan vilja
til að semja við Rússa.