Morgunblaðið - 16.04.1997, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Deilt um framboð til þings í Indónesíu
Stuðningsmenn
Megawati mótmæla
Reuter
STUÐNINGSMENN stjórnarandstöðuleiðtog'ans Megawati Suk-
arnoputri mótmæla við þinghúsið í Jakarta.
Jakarta. Reuter.
HUNDRUÐ stuðningsmanna
Megawati Sukarnoputri, stjórnar-
andstöðuleiðtoga í Indónesíu,
komu saman við þinghúsið í Ja-
karta í gær til að krefjast þess að
hún fengi að bjóða sig fram í þing-
kosningunum 29. maí.
Um 1.500-2.000 manns tóku
þátt í mótmælunum, sem stóðu í
sex klukkustundir, hrópuðu vígorð
til stuðnings Megawati og veifuðu
borðum með áletruninni: „Mega
eða ekkert". Tugir óeirðalögreglu-
manna voru á varðbergi en reyndu
ekki að stöðva mótmælin þótt
nokkrir stjórnarandstæðinganna
hefðu rifið niður girðingu, sem
reist var umhverfis þinghúsið, og
lokað aðalgötunni að byggingunni.
Takmarkað lýðræði
Herþyrla flaug yfir þinghúsið og
hersveit var í viðbragðsstöðu í ná-
grenninu en hún skipti sér ekki af
mótmælunum.
Mótmælunum lauk eftir að að-
stoðarmaður Megawati las yfirlýs-
ingu þar sem stjórnin var gagn-
rýnd fyrir að aðstoða bandamenn
sína í Indónesíska lýðræðisflokkn-
um (PDI) við að steypa henni af
stóli sem leiðtoga flokksins í júní.
Megawati, sem er dóttir Sukarno,
fyrsta forseta Indónesíu, var ekki
á lista yfir frambjóðendur flokks-
ins sem bandamenn stjórnarinnar
lögðu fram vegna kosninganna.
Aðeins þremur flokkum er heim-
ilað að taka þátt í kosningunum,
stjórnarflokknum, Golkar, Samein-
aða þróunarflokknum, sem höfðar
einkum til múslima, og Indónesíska
lýðræðisflokknum. Stjómin þarf
einnig að leggja blessun sína yfír
öll þingmannsefnin.
Kaffi-
drykkja
gegn
krabba-
meini
San Francisco. Reuter.
NÝLAGAÐ kaffi hjálpar
okkur ekki aðeins við að
vakna á morgnana, heldur
getur verið, að kaffiilmur-
inn dragi úr líkum á
krabbameini og hjarta-
sjúkdómum. Er það niður-
staða rannsókna, sem
gerðar hafa verið í Kali-
forníu.
Þegar hellt er upp á
könnuna með sjóðandi
vatni verða til efni, sem
vinna gegn oxun og eru
heilsusamleg fyrir lík-
amann. Hefur það komið í
ljós við rannsóknir Takay-
ukis Shibamotos, prófess-
ors í eiturefnafræði við
Kaliforníuháskóla.
„Þessi efni eru sambæri-
leg öflugum andoxunar-
efnum eins og E- og C-vít-
amíni og mér finnst lík-
Iegt, að það komi í ljós, að
ilmefnin í kaffinu hafi góð
áhrif á líkamann," sagði
Shibamoto.
Draga úr
ellihrörnun
Oxunarefni eru súr-
efnissameindir, sem kall-
aðar eru frjálsar stoðeind-
ir, og ýmsir vísindamenn
telja, að þær geti skemmt
DN A-kj arnasýruna og
frumuveggi og þannig
valdið krabbameini.
Andoxunarefni fækka
frjálsum stoðeindum og
sýnt hefur verið fram á
það með rannsóknum, að
þau vinna gegn krabba-
meini og ellihrörnun og
einnig hjartasjúkdómum.
Shibamoto sagði, að
þrjú gagnleg andoxunar-
efni væru í kaffi og einnig
í koffínlausu kaffi og til
að hafa not af þeim væri
ekki aðeins nauðsynlegt að
drekka kaffið, heldur
einnig að njóta ilmsins af
því fyrstu 10 mínúturnar
eftir lögun.
Þrátt fyrir þetta varaði
Shibamoto kaffifólk við að
auka drykkjuna og sagði,
að frekari rannsóknir
væru nauðsynlegar.
Rússland meng’að-
asta land í heimi
Moskvu. Reuter.
Reuter
Hvað slær
klukkan?
FRANSKI auðkýfingurinn Bern-
ard Tapie athugar hvað tímanum
líður er hann kemur út úr skipa-
smíðastöð í Marseille í lok vinnu-
dags í gær. Samkvæmt sérstöku
betrunarverkefni franskra fang-
elsisyfirvalda fær hann að fara
ferða sinna á daginn og stunda
atvinnu í skipasmíðastöðinni
gegn því að mæta síðdegis í „les
Baumettes“-fangelsið og verja
nóttinni þar.
HÆTTULEG tvísýringssambönd
hafa mengað næstum þijá fjórðu
Rússlands og landið er eitt það
mengaðasta í heimi. Kemur þetta
fram í nýrri skýrslu frá samtökum
grænfriðunga.
„Veníamín Khúdoley, forstöðu-
maður sjálfstæðra umhverfisathug-
ana á vegum rússnesku vísindaaka-
demíunnar, sagði, að hvað varðaði
mengun af völdum tvísýringssam-
banda væri Rússland líklega versti
staður í heimi, kannski að Víetnam
einu undanskildu. Átti hann þá við
mengun þar vegna efnavopnaárása
KOSNINGABANDALAG miðju-
flokka, sem eru í stjórnarandstöðu
í Króatíu, mótmælti í gær harðlega
úrslitum í borgarstjórnarkosningum
í Zagreb sem fram fóru á sunnu-
dag. Flokkur Franjo Tudjman Króa-
tíuforseta, Lýðræðisbandalagið,
hlaut fleiri sæti í borgarstjórn en
bandalag jafnaðarmanna og fijáls-
lyndra, þrátt fyrir að hann hefði
hlotið færri atkvæði.
Samkvæmt óopinberum Ioka-
tölum fékk Lýðræðisbandalagið ein-
um hundraðshluta færri atkvæði í
Zagreb en kosningabandalag jafn-
aðarmanna og fijálslyndra, 35,6%
Bandaríkjamanna í Víetnamstríð-
inu.
Tvísýringsambönd eru meðal
annars í sumu bleikingarefni og
illgresiseyði og geta valdið alls kon-
ar meinum, til dæmis krabbameini,
húð-, lifrar- og nýrnasjúkdómum
og fæðingargöllum. Löngu úrelt
tækni í rússneskum iðnaði veldur
því, að verksmiðjurnar dæla út alls
konar efnum út í loftið eða út í
vötn og jarðveg og þaðan berast
þau í menn og aðrar lifandi verur.
„Ástandið í iandinu er ekkert annað
en stórslys," sagði Khúdoley.
gegn 36,7%. Þar sem þeir flokkar
buðu fram hvor í sínu lagi, fá þeir
23 menn í borgarstjórn en Lýðræð-
isbandalagið 24. Er búist við því
að það verði áfram við völd í
Zagreb, jafnvel með stuðningi
Bændaflokksins.
Kjör enn framlengt
Opinber úrslit hafa ekki enn ver-
ið birt en í blaðinu Nacional sagði
í gær að stjórnarflokkur Tudjmans
hefði tapað í flestum stærstu borg-
um Króatíu en héldi velli í smærri
sveitarfélögum. Minnti þetta
mynstur mjög á úrslit sveitarstjórn-
Allir sjúkir
Alexei Kiseljov, annar meðhöfunda
að skýrslu grænfriðunga, „Eitruðum
borgum", sagði, að Dzerzhínsk, efna-
iðnaðarborg 330 km frá Moskvu,
væri mengaðasta borg í landinu og
hugsanlega í heiminum.
„Eitruð efni í grunnvatninu eru
50 milljón sinnum meiri en eðlilegt
er,“ sagði hann. „Enginn íbúi borg-
arinnar er heilbrigður, meðalævin
er 50 ár og þótt stjórnvöld viti og
hafí vitað af þessu, þá hefur ekkert
verið gert í því.“
arkosninganna í Serbíu á síðasta
ári.
Kosningar voru framlengdar
fram á þriðjudag á nokkrum kjör-
stöðum í Austur-Slavóníu þar sem
framkvæmd borgar- og sveita-
stjórnarkosninganna þar var áfátt.
Gagnrýni
Fyrstu tölur verða væntanlega
birtar í dag og var búist við því
að Sameinuðu þjóðirnar myndu
lýsa því yfir að þær hefðu farið
heiðarlega fram en samtökin gagn-
rýndu króatísk stjórnvöld harðlega
á mánudag fyrir framkvæmdina.
Mótmæla kosninga-
úrslitum í Zagreb
Zagreb, Vukovar. Reuter.
Kynslóðaskipti í fjölmiðlaveldi Ruperts Murdochs í Ástralíu
Murdoch skýrði fra því í gær að
sonur hans, Lachlan, sem er 25
ára, myndi taka við stjórn fyrir-
tækis hans í Ástralíu, News Ltd.
Ennfremur þykir nú líklegt að
hann taki við móðurfyrirtækinu,
News Corp. þegar Murdoch dregur
sig í hlé.
Staða News Ltd. er mjög sterk
á ástralska dagblaðamarkaðnum
og fyrirtækið gefur einnig út tíma-
rit, hefur lagt mikið undir í sjón-
varpsrekstri og á stóran hlut í flug-
félaginu Ansett Airlines, sem hefur
verið rekið með tapi.
Lachlan Murdoch varð fram-
kvæmdastjóri ástralska dóttur-
Reuter
RUPERT Murdoch (t.h.)
ásamt syni sínum, Lachlan.
fyrirtækisins í september og mán-
uði síðar fékk hann sæti í stjórn
móðurfyrirtækisins. Hann á að
taka við stjórn News Ltd. í júní
þegar Ken Cowley, gamall sam-
starfsmaður föður hans, sest í
helgan stein.
Stjórnar systirin líka?
Systir Lachlans, Elizabeth, sem
er 28 ára, hefur einnig þótt líkleg
tii að taka við stjórn News Corp.
en hún er á meðal stjórnenda syst-
urfyrirtækisins British Sky Broad-
casting í Lundúnum. Hún á ekki
sæti í stjórn News Corp. eins og
Lachlan, og líklegt þykir að honum
verði síðar falið að taka við stjórn
fjölmiðlaveldisins af föður sínum,
sem er 66 ára.
Sonurinn við
stjórnvölinn
Sydney. Reuter.
FJÖLMIÐLAJÖFURINN Rupert