Morgunblaðið - 16.04.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.04.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINIUINGAR MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997 41 ÞORBJÖRG LÝÐSDÓTTIR + Þorbjörg Lýðs- dóttir fæddist í Reykjavík 4. júlí 1904. Hún lést á Landakoti 5. apríl siðastliðinn. For- eldrar hennar voru Lýður Bjarnason og Guðrún Nikulás- dóttir. Systkini Þor- bjargar eru Mar- grét, f. 1904, og Kristján, f. 1912. Þorbjörg giftist Kristjáni Jóni Ben- ónýssyni, f. 25.8. 1885, d. 2.10 1969. Utför Þorbjargar fór fram í kyrrþey. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Okkur langar að minnast með nokkrum orðum Bjöggu vinkanu okkar sem nú er sofnuð svefninum langa. Konu, sem ekki var hugað líf þegar hún fæddist en gaf sig ekki fyrr en hún var 92 ára þrátt fyrir áföll og erfiða tíma. Þannig var Bjagga. Við kynntumst Bjöggu sumarið 1980 þegar við vorum svo lánsöm að fá á leigu litiu íbúðina á fyrstu hæð á Holtsgötu 14. Húsið áttu Bjagga og Kristján Óskar bróðir hennar og bjuggu þau fyrir ofan okkur. Strax myndaðist góður vin- skapur á milli okkar sem síðan blómstraði eftir að bömin okkar fæddust og hefur aldrei fallið skuggi á. Afar og ömmur bjuggu úti á landi svo við mátum það mikils hvemig þau tóku afa- og ömmuhlutverkið að sér og sinntu því af miklum sóma. Eftir að Kristján Friðrik fæddist komst sú regla á að eftir morgun- störf var farið í heimsókn til Nafna og Bjöggu. Þau spurðu hvort það væri ekki eitthvað sem ég þyrfti að gera og notaði ég þá tækifærið og fór upp í þvottahús. Á meðan var Kristján Friðrik í góðu yfirlæti hjá þeim. Það var leikið og talað við hann og fleiri morgna en ekki, fékk hann íspinna eða klaka. Hálftíma síðar kom ég svo til baka og þáði þá kaffisopa og Kristján Friðrik fékk epli. Þessir morguntímar áttu örugglega sinn þátt í því hversu snemma hann varð altalandi. Stráksi var því ekki gamall þegar hann fór að fara fram að dyrum og gefa merki um að nú væri kominn tími til að fara upp. Þegar Ásgeir fæddist svo tveimur árum síðar kynnti stóri bróðir hann fyrir þessari gleðistund og var Ásgeir settur í fangið á Bjöggu og myndaðist strax sérstakt samband á milli þeirra og mörg björt brosin tókst Bjöggu að laða fram frá þessari litlu veru. Þegar svo lítil systir, Auður, var á leið í heiminn báðum við Bjöggu að sitja hjá strákunum þó komið væri fram undir mið- nætti og Bjagga 82 ára. Þetta hljómar ótrúlega en svona var Bjagga og við treystum henni fullkomlega. Við annað tækifæri tók hún stjómina úr hönd- unt Iæknanemans og skipaði honum að hringja á sjúkrabíl, þetta gengi ekki svona! Og hann hlustaði á hana og gerði eins og hún sagði. Hún var ákveðin og fyigin sér og ekki að víla smá- muni .fyrir sér. Bjagga fór á þessum tíma í fönd- ur með öldruðum í hverri viku og þó lappimar væm að angra hana skyldu þær ekki stoppa hana. Þarna bjó hún til marga fallega muni sem hún gaf svo vinum og vandamönn- um við ýmis tækifæri. Veggir á Holtsgötunni skarta mörgum falleg- um útsaumuðum myndum eftir hana. Handsaumuð bútateppi fengu bömin er þau fæddust. Leðurseðla- veski og buddur með stöfum þeirra og fæðingarári. Púða litla og stóra bjó hún til úr gærubútum og var það mikil og erfið vinna. Allt eru þetta fallegir munir sem munu minna okkur á Bjöggu um ókomin ár. En svo fór að lokum að heilsu Bjöggu hrakaði og naut hún þá ein- stakrar umönnunar Kristjáns bróður síns. Síðustu árin var hún á Landa- koti enda vildi hún hvergi annars staðar vera ef hún gat ekki verið heima. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Elsku Bjagga, takk fyrir allt. Rósa, Alexander, Kristján Friðrik, Ásgeir, Auður og Ásdís Rós, Englandi. Mig langar í fáum orðum að minnast Þorbjargar Lýðsdóttur. Mín fyrstu kynni af henni voru í barnaaf- mæli hjá mágkonu minni sem þá var níu ára, ég var kynnt fyrir henni sem eins konar langömmmu. Þor- björg var seinni kona Kristjáns J. Benónýssonar langafa Þórðar eigin- manns míns og var því eins konar langamma hans og langalangamma dætra okkar. Kynnin urðu meiri þegar við unga fólkið byijuðum búskap og bjuggum í íbúð sem Kristján bróðir Þorbjarg- ar leigði okkur, en þau systkinin bjuggu á efri hæðinni. Fjölskyidan stækkaði og alloft sóttu dætur okk- ar upp á efri hæðina til þeirra systk- EIRIKUR ÓLAFSSON ■4- Eiríkur Ólafsson fæddist á ' Siglufirði 4. janúar 1936. Hann lést á heimili sínu 30. apríl 1996. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigurlaug Straumland og eignuðust þau tvo syni, Ólaf Friðrik og Andrés. Eiríkur lauk námi í bifreiða- smíði 12.7.1960 og varð meist- ari í iðninni 23.11. 1968. Hinn 4.3. 1975 hóf Eiríkur störf hjá Almennum Tryggingum hf. Þegar Tjónaskoðunarstöðin sf. í Kópavogi var opnuð 12.8. 1987 á vegum Almennra Trygginga hf. og Brunabótafé- lags Islands hóf hann að starfa þar og síðan þegar Ijónaskoð- unarstöðin fluttist að Drag- hálsi vegna sameiningar Sjóvár og Almennra trygginga í apríl 1989 hóf Eiríkur störf þar og starfaði þar allt til dauðadags. Eiríkur var góður félagi og lík- aði öllum vel við hann sem kynnt- ust honum. Hann var hægur og sérlega ljúfmannlegur í framkomu jafnt við viðskiptavini sem við starfsfélaga sína. Eiríkur var mjög nákvæmur í sinni vinnu, mikill fag- maður og gerði ekki upp á milli manna en reyndi þess í stað að leysa málin á sem sanngjarnastan hátt fyrir viðskiptavini félagsins. Eiríkur átti við mikil veikindi að stríða síðasta árið sem hann lifði þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna hjartakvilla. Hann hóf störf ANNA BERGÞÓRSDÓTTIR ina. Silja var ekki byijuð að ganga en reyndi að skríða upp. stigann og seinna voru sporin tekin og þá var auðveldara að komast upp í heim- sókn. í fótspor hennar fylgdi Sól- rún, yngri dóttir okkar. Spennandi heimur fyrir þær að kanna, dóta- skúffan hafði sterkt aðdráttarafl og alltaf var tekið eftir þvi sem lítið fólk aðhafðist. Athygli fengu börnin og bæði Þorbjörg og Kristján tóku þátt í leik og gleði. Það var því ekki erfitt að skilja ásóknina upp á efri hæðina. Þorbjörg var mikil hannyrðakona og sat löngum stundum uppi á háa- lofti þar sem hún var með sauma- herbergi. Langaði lítið fólk með litla fingur að sjá hvað Bjögga var að gera. Ófáir voru líka pakkarnir sem fylgdu jólum og afmælum sem báru handbragð Þorbjargar. Margar stundir leit hún eftir dætrum mínum þegar ég þurfti að skreppa í búð eðá hengja upp þvottinn, Samskipt- in voru alltaf á besta máta og kaffi- sopinn vel þeginn að loknu verki. Margt var spjallað því mörgu höíðu þau systkinin að segja frá og oftar en ekki urðu kaffíbollamir margir. Þorbjörg tók okkur sem sínum langömmu- og langalangömmu- bömum og er þess ljúft að minn- ast. Dalíurnar í garðinum era eitt af því sem Þorbjörg hlúði að meðan heilsan leyfði. Það var svo okkar á neðri hæðinni að hlúa að þeirn þeg- ar heilsa hennar gaf sig. Ég veit að guð hefur látið útbúa stórt, fal- legt beð fullt af dalíum handa þér, Þorbjörg, svo þú megir njóta þess að sjá þær dafna, eins og börnin sem nú era fullorðin og eiga sjálf böm, og þú tókst sem þinum. Áslaug, Þórður og dætur. Elsku Þorbjörg amma og lang- amma. Með nokkrum fátæklegum orðum viijum við þakka þér fyrir allt. Öll eigum við góðar minningar frá liðnum áram með þér. Við minn- umst allra afmælanna okkar þar sem þú komst svo brosandi og hlý. Öll eigum við mikið af útsaumuðum myndum og púðum, sem þú af svo mikilli vandvirkni og list gerðir handa okkur. Nú ertu komin til pabba, afa og langafa, og þeir hafa öraggiega tekið vel á móti þér. Guð geymi þig, elsku amma. Við viljum senda Kristjáni bróður þínum og Margréti systur þinni inni- legar samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir ailt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Margrét Erla, Benoný Hilmar, Guðlaug Iris og Sigurbjörn Guðni. að nýju eftir sjúkralegu í lok sept- ember ’95. Þó var hann ekki alveg laus við sjúkrahúsvist þar sem hann þurfti að fara í nokkrar minni að- gerðir. Eirikur hafði gengist undir síð- ustu aðgerðina fyrir nokkru og sú aðgerð heppnaðist vonum framar þar sem honum virtist aukast styrkur frá degi til dags. Við vinnu- félagar hans höfðum hlakkað til að fá hann aftur í vinnu hraustan og spaugsaman eins og hann átti að sér að vera en þá kom reiðar- slagið. Hinn 30. apríl 1996 andað- ist hann á heimili sínu. Eiríks verður sárt saknað á vinnustað og erfitt verður að fylla það skarð sem hann skildi eftir. Við sendum Sigurlaugu og öðr- um vandamönnum, okkar dýpstu samúðarkveðjur um leið og við kveðjum kæran vin. Sigurður K. Sigurkarlsson. + Anna Bergþórsdóttir fædd- ist á Akureyri 14. júní 1925. Hún lést á heimili sínu, Lindar- síðu 4, Akureyri, 4. mars síðast- liðinn og fór útförin fram frá Akureyrarkirkju 17. mars. Af eilífðar ljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót ðllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Anna var miklum mannkostum búin, hið góða hjartalag, fómfýsi, og alltaf tilbúin að aðstoða og hjálpa öðram. Gestrisni hennar og glað- værð og jákvæð viðhorf voru alltaf í fyrirrúmi. Hún var mikil félagsvera og hafði gaman af að ferðast, þau hjónin bragðu sér oft til útlanda að fá innsýn í önnur lönd og höfðu gaman af þegar ég var krakki, kom ég oft með móður minni í heimsókn í Lundargötuna, þar var alltaf gam- an að koma, nóg líf og fjör og lék ég mér við Olgu og Agnesi. Mig langar að þakka Önnu fyrir allar fer-ðirnar, er hún kom og heimsótti mig á Kristnesspítala. Hún stappaði stálinu í mig, og sagði að tíminn myndi líða hratt og mér batnaði fljótt. Með sínu góða skapi hlógum við og allt varð bjart og jákvætt. Eisku Anna mín, hafðu þakkir fyrir allt og allt. Hún bjó yfír ein- lægri trú á annað tilverustig handan landamæranna. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst henni á lífsleiðinni. Minningar eru dýrgripir sem eng- inn tekur frá okkur. Hér áttu blómsveig bundinn af elsku blíðri þökk og blikandi tárum. Hahn fölnar ei en fagur geymist í hjörtum allra áStvina þinna. (H.L.) Elsku Guðni, Olga, Agnes og Steina og fjölskyldur. Guð blessi ykkur og gefí ykkur styrk í sorg- um ykkar. Maria Guðmundsdóttir. + Hjartans þakklæti til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug, vegna andláts og útfarar, eiginkonu minnar, móður okkar, teng- damóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR, Dalvik. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dalbæjar, heimilis aldraðra, fyrir einstaka umönnun og hlýju. Þorgils Sigurðsson, Þórunn Þorgilsdóttir, Sævar Jónatansson, Rósa Þorgilsdóttir, Valdimar Bragason, Kristín Þorgilsdóttir, Sveinn Bjarman, ömmuböm og langömmubörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elsku litlu dóttur minnar og barnabarns okkar, HILDAR HÖRPU HILMARSDÓTTUR. Sérstakar til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness og Björgunarsveitarinnar í Borgarnesi. Þórhildur Gísladóttir, Vilborg Víglundsdóttir, Gísli Albertsson, Bóthildur Halldórsdóttir, Davíð Sigurðsson. t Einlægar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför BRYNJÓLFS KETILSSONAR, Njörvasundi 33, Reykjavík. Umönnun starfsfólks á Hrafnistu í Reykjavik og annarra, sem veittu honum stuðning í veikindum hans, er einnig þakkað af alhug. Fyrir hönd aðstandenda, Ingi K. Jóhannesson t Alúðarþakkir færum við öllum, er auðsýndu hlýhug og samúð viö andlát og útför f v HALLDÓRS 1. ANDRÉSSONAR, v Wá Engjavegi 73, |f Selfossi. - - Guð blessi ykkur öll. Aðstandendur. \ -\
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.