Morgunblaðið - 16.04.1997, Blaðsíða 51
morgunblaðið
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997 51
-I
i
Í
FOLKI FRETTUM
4
I
4
t
GARFUNKEL-fjölskyldan. Augljós svipur er með þeim feðgum og ástin blómstrar hjá Kim og Art.
Syninum kippir í kynið
ART gamli Garfunkel gerði
garðinn frægan sem betri
helmingur tvíeykisins Sim-
on og Garfunkel á sjöunda
og áttunda áratugnum. Nú
eru þeir dagar að baki og
Art er orðinn hæglátur fjöl-
skyldumaður, þótt hann
grípi endrum og sinnum I
hljóðnemann. Þegar það
gerist er föst venja að sonur
ha.ns, James, komi upp á
svið og syngi nokkur lög.
James þykir söngmaður
góður þótt hann sé aðeins
sex ára, enda er móðir hans,
Kim Cermak, lika liðtæk
söngkona.
„James kaus sjálfur að feta í
fótspor mín,“ segir Art. „Hvorki
ég né Kim höfum þrýst á hann.
Við viljum að hann fái sem eðlileg-
ast uppeldi," heldur hann áfram,
en James kom fyrst fram á tónleik-
um föður síns 11 mánaða gamall.
ART, Kim og James líður best
fyrir aftan hljóðnemana.
Art og Kim giftust fyrir átta
árum. Hún segir að Art hafi löngum
verið henni fyrirmynd. „Ég féll fyr-
ir textunum hans og tónlistinni þeg-
ar ég var lítil. Draumurinn var að
fá að koma fram með honum!“ seg-
ir hún. Henni varð að ósk sinni í
kjölfar ljósmyndatöku, en
hún starfaði sem fyrirsæta
forðum. „Ljósmyndarinn
spurði mig hvers konar tón-
iist mér líkaði best. Hann
hafði hannað útlit platna
Micks Jaggers, Alice Coo-
pers og Art Garfunkels. Ég
sagðist vera aðdáandi Arts
og að mig hefði alltaf langað
til að hitta hann. Ljósmynd-
arinn sýndi Art myndirnar
sem hann tók af mér og
þremur mánuðum síðar
hringdi síminn. Það var
Art!“
Fjölskyldan býr í fallegri
íbúð á Manhattan-eyju í
New York. Kim og Art hafa marg-
oft sagst vilja eignast fleiri börn.
„Vonandi gerist það sem fyrst. Við
njótum foreldrahlutverksins til
fullnustu. Við erum líka svo stolt
af James. Hann er hreint yndislegur
drengur,“ segir Kim.
Ljósmynd/Sigurður Valgeirsson
►KEFLVÍKINGAR voru kátir
þegar þeir komu til lokahófs
Körfuknattleikssambandsins á
föstudaginn, enda full ástæða
til. Karlaliðið félagsins sigraði
I i öllum þeim mótum sem það
Stæll á Keflvíkingum
tók þátt í og kvennaliðið var
bæði bikar- og deildarmeistari.
Mikið var því um bikara og
brugðu Keflvíkingar á það ráð
að panta eðalvagn til að flytja
þá að Hótel íslandi þar sem
hófið fór fram. Damon John-
son, besti erlendi leikmaður
úrvalsdeiidar, gætti bikaranna
á leiðinni og hafði gaman af
ein sog sjá má.
Ási
1 [ioöící/n,, et/bir
Þrlggjarétta
matseðill
(SíJ'iiLiiiilDi—
Aldamótaverð
kr. 2000
rj\«
Uí2(/íZt/
Súpa eða salat
-emrnm-
Léttsteiktur lambavöðvi
eða
kjúklingabringa með
viiiisveppasósu
eða
fiskfang dagsins
eða
grænmetislasagne
-----yMTTBTO—
Ifnetumousse
eða
kaffí og sætindí
r/ram$
Öfi híilliö innilnliö
iBorðapantanir sími 551-9636
I
Þreytt(ur) á gömlu þungu bílskúrshurðinni?
Nú er rétti tíminn til
aö panta nýja, létta,
einangraða stálhurð
frá Raynor
Raynor bílskúrshurðaopnarar
j Ti
IBIKÍ'IMeXPI
VERKVER
Smiðjuvegi 4b, Kipavogi
’S 567 6620
VerSdíomi: FuiningahorS 229 x 244 cm I