Morgunblaðið - 16.04.1997, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Salat og fuglalíf
Nokkrir dagar eru síðan ég fór að strá söxuðum
graslauk á salatið mitt og í dag klippti ég nokk-
ur hundasúru- og fíflablöð yfir það. Namm -
namm segir Kristín Gestsdóttir.
FARFUGLARNIR streyma til
landsins og tylla sér oft fyrst á
leirurnar í Skógtjörn hér fyrir
neðan. í vikunni sáum vi_ð hjónin
40-50 lóur á flugi yfir Álftanesi
og síðar um daginn heyrði ég í
henni þegar ég gekk yfir Garða-
holtið þó að ég kæmi ekki auga
á hana, en nú á sunnudegi má
heyra dirrindí úr öllum áttum hér
á holtinu. í gærkvöldi sofnaði ég
við hið hvella hljóð stelksins, sem
er þó ekki eins og vöggusöngur
en ljúft að heyra það samt. Garg
sílamávanna hljómar hér allan
daginn og er í mínum eyrum hinn
fegursti söngur og þegar ég loka
augunum finnst mér ég vera kom-
in í fjöruna og jafnvel á Leiruna
á Seyðisfirði, en þó að vaðfuglar
væru á Leirunni, heyrðist bara
mávagarg þar sem ég átti heima.
Mófuglum var lítið af á þeim slóð-
um. Ánamaðkar sjást núna víða
á gangstéttum þegar þeir leita
upp úr kaldri og blautri jörðinni
og hér í Grænagarði má sjá þá
draga laufblöð ofan í göng sín.
Þegar ég fór að kaupa í matinn
fyrir helgina sá ég mér til mikillar
ánægju að þeir í Lambhaga eru
farnir að rækta tvær tegundir af
salati til viðbótar við þá tegund
sem hefur fengist í nokkur ár.
Önnur hin nýja tegund heitir eik-
arlauf og lýsir salatinu vel en hin
heitir lollo rosso og er rauðleit og
hrokkin. Við ræktun salatsins er
fræinu sáð í litla moldarpotta þar
sem það spírar og vex í 5-6 vikur
á færibandi, áburðarvatn er í
rennum sem ræturnar ná í. Þetta
er íslensk framleiðsla og því alltaf
fersk. Segja má að ferskt salat
henti með öllu, t.d. fiski, kjöti,
öðru grænmeti og með áleggi á
brauð. Svo er það gott sem sjálf-
stæður réttur með öðru grænmeti
og ávöxtum og ristuðu brauði.
Betra er að hafa ekki nema eina
tegund af öðru grænmeti með
salatinu, t.d. bara gúrku, bara
tómata, bara papriku o.s.frv. Alls
konar sósur má búa til á salatið
en við skulum alveg sleppa mæ-
jonsósunni, sem er alltof algeng
hér á landi.
Vinaigrette I.
(edikslögur)
sinnep
_________nýmalaður pipar ________
salt milli fingurgómanna
Setjið allt í hristiglas og hristið
vel saman. Þessi lögur geymist mjög
vel í kæliskáp.
Vinaigrette II.
(sítrónulögur)
1 hvítlauksgeiri
8 msk. matarolía
2-3 msk. nýkreistur sítrónusafi
'h tsk. þunnfljótandi hunang
Ve tsk. salt
1 skvetta úr tabaskósósuflösku
nýmalaður pipar
1. Nuddið salatskálina að innan
með hvítlauksgeiranum. Fleygið
honum síðan eða notið í annað.
2. Setjið allt hitt í hristiglas og
hristið vel saman. Sósan á að
þykkna. Ef hunangið er þykkt, þarf
að hita það örlítið t.d. í örbylgju-
ofni. Þessi lögur geymist ekki vel.
Salatsósa úr sýrðum
rjóma
1 dós sýrður ijómi
safí úr '!i appelsínu + aldinkjötið
úr hinum helmingnum
1. Skerið appelsínuna í tvennt
þversum, kreistið safann úr helm-
ingnum og setjið saman við sýrða
rjómann.
2. Skafið aldinkjötið upp úr lauf-
unum á hinum helmingnum með lít-
illi teskeið og setjið saman við. At-
húgið að nota má meiri safa og aldin-
kjöt saman við.
Salatsósa úr jógúrt
eða súrmjólk
1 dós hrein jógúrt eða 2 dl súrmjólk
___________‘A dl eplasafi________
örlítið fljótandi hunang ef vill
_________1 lttið grænt epli______
1. Síið jógúrtina eða súrmjólkina
í kaffípappírspoka, setjið síðan í skál.
Þeytið eplasafa og hunang út í.
2. Afhýðið eplið, rífið fínt og setj-
ið saman við.
8 msk. matarolía
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Netfang: elly@mbl.is
Glerskálinn
á Iðnó
ÞOTT Reykvíkingar séu
almennt ánægðir með það
að nú hefur verið ákveðið
að flarlægja glerskýlið
umdeilda á Iðnó þá hafa
komið fram athugasemdir
um að betur mætti veija
fé skattborgara en að rífa
byggingu sem þegar sé ris-
in. Sannleikurinn er hins
vegar sá að dýrara er að
fullklára glerhýsið en að
fjarlægja það.
Samkvæmt áætlun sem
byggingardeild borgar-
verkfræðings hefur gert
kostar 1,1 milljón króna
að taka skálann niður og
koma honum í geymslu.
Það mun hins vegar kalla
á lagfæringu á veggjum
hússins og annan frágang
sem áætlað er að muni
kosta rúmar 3 milljónir
króna. Alls nemur því þessi
kostnaður 4.250 þús. kr.
Ef skálinn stæði áfram
yrði kostnaður við frágang
hans nokkru hærri eða 4,5
milljónir króna. Þar vega
þyngst lagnir og loftræst-
ing sem áætlað er að kosti
tæpa 1,9 milljónir króna.
Annar kostnaður felst í
innréttingum, rafbúnaði,
lýsingum, pípulögnum og
sérbúnaði sem samtals
myndi kosta 2.650 þús. kr.
Sem sagt, það er dýrara
að ljúka byggingu glerskál-
ans á Iðnó en að fjarlægja
hann og ganga frá húsinu
með öðrum hætti. Þá er
ekki útséð um að hægt
verði að fá eitthvað fyrir
glerskálann með því að
selja hann eða nýta annars
staðar. Þótt flestir séu
sammála um að mistök
hafi átt sér stað þegar þessi
viðbygging var byggð á
Iðnó gæti hún sómt sér vel
annars staðar.
Kristín A. Árnadóttir.
Ristað brauð
með marmelaði
og osti
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
„Enskur rithöfundur
minntist nýlega á að ís-
lendingar borðuðu ristað
brauð, marmelaði og ost
saman. Á sjöunda áratugn-
um minntist bandarískur
rithöfundur á að íbúar
Vestmannaeyja borðuðu
það sama.
Gæti einhver lesenda
varpað ljósi á hvar og hve-
nær þessi siður komst á?
Michael Malher,
16 Parkview Ave,
Toronto MYX 1V9,
Canada.
Meira um
bréfasíma
LESANDI Mbl.íÞýska-
landi skrifar:
„í Velvakanda þann 25.
mars var til umfjöllunar
vandamál við notkun
bréfasíma.
Við sendum símbréf
mjög oft til íslands og einn-
ig til annarra landa og
fáum alltaf ahugasemd frá
bréfsímanum um að sím-
bréfið hafi ekki komist til
viðtakanda með eðlilegum
hætti þegar við sendum
símbréf til Islands, en eng-
ar athugasemdir fáum við,
þegar við sendum til ann-
arra landa. Við verðum
alltaf að hringja á eftir til
að athuga hvort símbréfið
hafi komist til skila með
eðlilegum hætti eða ekki.
Póstur og sími hefur sjálf-
sagt ekkert á móti þessari
þjónustu ef tekið er tillit
til þeirra svara sem bréfrit-
ari þann 25. mars fékk en
þetta er óþolandi ástand
og óþarfa kostnaður fyrir
alla aðila.
Lesandi í Þýskalandi.
Umræður í
heitu pottunum
ÉG ER ekki ánægður með
þessar neikvæðu umræður
um heitu pottana sem verið
hafa undanfarið. Ég hef
ekki heyrt gáfulegri um-
ræður um landsmál en í
heitu pottunum. Mér finnst
þessar neikvæðu umræður
ástæðulausar og pottamir
eru ekki verri vettvangur
en hver annar til að menn
geti ráðið ráðum sínum.
Það er komið of mikið af
neikvæðum umræðum um
umræðurnar í heitu pott-
unum.
G.Þ.
Dýrahald
2ja ára högna
vantar heimili
2JA ÁRA högna vantar
nýtt heimili vegna ofnæmis
fjölskyldumeðlims. Hann
er mjúkur, svartur,
hálf-persneskur,
mannelskur og blíður.
Uppl. í síma 566-7270
eftir kl. 17.
COSPER
EN yndislegt að sjá hvað hann er glaður að
fá þig heim.
HOGNIHREKKVISI
.Tálbtítan- þin' wrffist eJcbi gesrx
mikið gagn*."
Víkveiji skrifar...
MORGUNÚTVARP Rásar 2 er
oft líflegt og Víkveiji hlýðir
iðulega á brot úr þeirri dagskrá,
einkum snemma morguns, þegar
hann er á leið til vinnu. I síðustu
viku heyrði Víkveiji símaspjall við
konu frá Orði lífsins, sem stjórnend-
ur hringdu í, vegna þess að hún
hafði verið viðstödd samkundu hjá
Fíladelfíu kvöldinu áður, þar sem
Svíinn Ulf Ekman var predikari.
Stjórnandinn spurði konuna hvernig
hefði verið á samkundunni og hún
svaraði orðrétt: „Alveg rosalega
gaman“. Þetta svar konunnar leiddi
huga Víkveija að þvi, að sennilega
eru ástæður þess að fólk sækir trú-
arlegar samkundur sem þessar
margvíslegar. Sumir fara væntan-
lega af trúarlegri þörf, aðrir fyrir
forvitni sakir og enn aðrir til þess
að sækja sér skemmtun. Það hlýtur
að hafa verið ástæða þess að áður-
nefnd kona sótti samkunduna, því
varla hefði hún lýst henni með ofan-
greindum hætti annars.
xxx
REGLULEGUR gestur morgun-
útvarpsins er Þuríður Sigurð-
ardóttir hjá Umferðarráði, sem
kemur fram laust fyrir kl. 8 á
morgnana og upplýsir hlustendur
um færð, umferð, umferðaróhöpp,
hvað varast beri og hvað megi fara
betur. Víkveija finnst Þuríður vera
einkar skemmtilegur gestur morg-
unútvarpsins, með elskulegar
ábendingar, skondnar athugasemd-
ir og uppbyggilega gagnrýni fyrir
umferðarmenninguna. Hún á það
til að hrósa fólki í umferðinni á
þann hátt, að eftir því er tekið, eins
og þegar hún sagði í síðustu viku
að hún óskaði þremur hjólreiðar-
mönnum sem á vegi hennar urðu
til hamingju með útbúnaðinn, sem
hefði verið hárréttur, hjálmar og
annað sem tilheyrir. Hlutfallslega
hefði útkoman hjá þeim verið frá-
bær, þrír af þremur með hárréttan
útbúnað. Síðan klykkti hún út með
því að biðja nú ökumenn að stíga
létt á bensíngjöfina og láta ekki
vorfiðringinn hlaupa með sig í gön-
ur. Að mati Víkveija fer Þuríður
rétt að í uppbyggilegum umvöndun-
um sínum við landsmenn.
xxx
UM þessar mundir senda grunn-
skólar landsins eldribekkinga
sína í flokkum inn í fyrirtæki lands-
ins í starfskynningu, þ.e.a.s. í þau
fyrirtæki sem vilja taka á móti
unglingunum og upplýsa^ þá og
fræða um starfsemi sína. Ár hvert
kemur verulegur fjöldi unglinga í
heimsókn á Morgunblaðið og fræð-
ist á dagstund um þá starfsemi sem
þar fer fram. Mjög misjafnlega virð-
ist vera staðið að undirbúningi nem-
endanna fyrir þessar fyrirtækja-
heimsóknir, samkvæmt því sem
Víkveiji hefur kynnst. Reyndar sýn-
ist honum sem nemendur utan af
landi komi betur undirbúnir, því
þeir virðast vera með skipulagða
dagskrá undir höndum, spurninga-
lista sem þeir þurfa að fylla út jafn-
óðum og jafnvel dagbók sem þeir
þurfa að halda þá daga sem þeir
eru í starfskynningu, sem verður
svo grunnurinn að skýrslu eða
greinargerð sem þeir skila kennara
sínum, þegar starfsfræðslu er lokið.
Með svona skipulögðum vinnu-
brögðum og fyrirfram ákveðnum
markmiðum, telur Víkveiji að
starfskynningin komi nemandanum
að meiri notum, en þegar skipulag-
slítið er vaðið úr einu fyrirtækinu
í annað.