Morgunblaðið - 16.04.1997, Síða 56

Morgunblaðið - 16.04.1997, Síða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND/KVIKMYIMDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP Morgunblaðið/Þorkell „Ég HRISTIST allan tímann af einhvers konar óskilgreinanlegum hlátri“. Ég mæli með Aftur og aftur Jóhanna Björk Guðjónsdóttir kennari á Laugarvatni JÓHÖNNU Björk reyndist erfítt að pikka út fjórar af sínum ótal mörgu uppáhaldsmyndum. Hún spurði sig því hvaða myndir hún gæti hugsað sér að sjá aftur og aftur, og hvaða þáttur kvikmyndarinnar hefði úr- slitavald um ágæti hennar. Fyrir regnið Before the Rain Leikstjóri: Milcho Manchaeviski. „Tónlistin. Þessi mynd á að vekja vissar tilfinningar, s.s. réttlætis- kennd, óhugnað, samkennd og þær gerðu það hjá mér, ekki síst þökk tónlistinni. Hef reynt að nálgast geisladiskinn vítt um Evrópu síðan, en hefur ekki tekist að finna hann, þó hann eigi víst að vera til.“ Mynd- in er frá árinu 1994. Lostæti Delicatessen Leikstjórar:Jean-Pierre Jeunet og Marc Caro. Marie-Laure Dougnac, Dominique Pinon og Karin Viard. „Svarti húmorinn. Eg hristist allan tímann af einhverjum óskilgreinan- legum hlátri sem breyttist reglulega í hlátursrokur. Góð hugmynd að mynd.“ Myndin er frá 1991. Óbærilegur léttleiki tilverunnar The Unbearable Lightness ofBeing Leikstjóri: Philip Kaufman. Daniel Day Lewis, Juliette Binoche, Lena Olin. „Tilfinningarnar. Ég skiptist á um að hafa samúð með persónun- um, engin er algóð, engin er al- vond, og það er akkúrat það sem er svo frábært að finna fyrir þegar horft er á kvikmynd. Svo er hún líka svo „sensúel", það eru mjög fallegar ástarsenur í henni.“ Mynd- in er frá árinu 1988. Með allt á hrelnu On the Top Leikstjóri: Agúst Guðmundsson. Stuðmenn, Grýlurnar, Eggert Þor- leifsson, Anna Björns og fleiri. „Fyndnin. Þessi mynd er auðvitað, einfaldlega alveg frábær, sennilega einna mest í hugum fólks á sama aldri og ég. Tónlistin er ennþá vin- sæl og fólk er enn að tala um skyggnilýsinguna hans Eggerts. Það þykir mér mælikvarði á góða mynd, þ.e.a.s. að muna heilu atriðin úr henni mörg ár á eftir.“ Myndin er frá 1982. Fallvölt frægð LOUISE Fletcher, Linda Biair, Justin Henry og F. Murray Abraham hafa öll staðið í sviðsljósinu. ÓSKARSVERÐLAUN gulltryggja frægð og frama, ekki satt? Louise Fletcher, Linda Blair, Justin Henry og F. Murray Abraham hafa öll feng- ið Óskar eða verið útnefnd fyrir leik en þau teljast samt sem áður ekki til stórra nafna í kvikmyndaheimin- um. Louise Fletcher hafði tekið sér meira en tíu ára hlé frá leik til þess að sinna uppeldi barna sinna þegar hún tók að sér hlutverk Ratched hjúkrunarkonu í „One Flew Over the Cuckoo’s Nest“ árið 1975 og fékk Óskar fyrir. Síðan þá hefur hún leik- ið ófáar harðbijósta ömmur og feng- ið tilboð um fleiri slík aukahlutverk. Fletcher segist þó ekki kvarta, með- an hún hafi vinnu sé hún ánægð. Linda Blair var aðeins 15 ára þegar hún var útnefnd til Óskars- verðlauna fyrir hlutverk sitt í „The Exorcist" árið 1973. í kjölfarið naut hún töluverðrar velgengni í nokkrum sjónvarpsmyndum en síðan fjaraði ferillinn út og einu hlutverkin sem buðust voru í ódýrum subbumynd- um. Blair hefur þó ekki gefið kvik- myndaleik alveg upp á bátinn. Hún er í nýjustu hryllingsmynd Wes Cra- vens „Scream", og hún hefur í hyggju að framleiða og leika í eigin sjónvarpsmynd. Justin Henry var yngsti leikarinn sem hlotið hefur Óskarsútnefningu þegar hann var útnefndur árið 1979 fyrir hlutverk sitt í „Kramer vs. Kramer". Hann var aðeins átta ára þegar hann lék son Dustin Hoffmans og Meryl Streep. Henry gerðist þó ekki barnastjarna. Hann ákvað að eigin sögn að hann vildi fá að vera bam og unglingur í friði og vera eins og allir aðrir. Hann lagði þó ekki leiklistardraumana á hilluna og hefur síðan 1994 verið að reyna fyr- ir sér í Hollywood. F. Murray Abraham var velþekkt- ur sviðleikari í New York þegar hann vann óskar fyrir leik sinn í „Amadeus" árið 1984. Síðan þá hef- ur hann getið sér gott orð sem kar- akterleikari í aukahlutverkum. Hann segir Óskarinn tryggingu fyrir því að fá vinnu í kvikmyndum það sem eftir er. Verðlauna- saga kvik- mynduð „Regeneration“ er nýjasta mynd breska leikarans Jonat- han Pryce. Kvikmyndin er byggð á skáldsögu Pat Barker sem fengið hefur mjög góða dóma og hlaut Booker-verð- launin eftirsóttu. Sagan gerist í fyrri heims- styijöldinni og segir frá her- lækni sem tekur mjög inn á sig vandamál sjúklinga sinna sem eru m.a. leiknir af Johnny Lee Miller („Trainspotting") og Ja- mes Wilby. Það er Gillies Mac- Kinnon sem leikstýrir myndinni. „REGENERATION" fjallar á áhrifamikinn hátt um hörmungar fyrri heimsstyrjaldar. Sumarsmella púsluspil Eðlurnar eru enn á lífi FRUMSÝNINGAR eru heil- mikið áhyggjuefni fyrir kvik- myndafyrirtæki í Hollywood. Ef dýr mynd nær ekki athygli frumsýningarhelgina og áhorfendur láta ekki sjá sig horfa framleiðendurnir fram á gífurlegt tap. Þess vegna er mikið lagt upp úr því að finna rétta daginn. í sumar er mikið í húfi. Til stendur að frumsýna fjórtán til fimmtán kvikmyndir sem kostuðu hver um 100 milljónir Bandaríkjadollara. Hver ein- asta helgi sumarfrístíma bandarískra unglinga er bók- uð. Frumsýning „Speed 2: Cru- ise Control" hefur tvisvar ver- ið færð til vegna þess að Fox- kvikmyndafyrirtækið óttaðist að hún félli í skuggann af öðr- um myndum. Fyrst var það mynd Colombia-kvikmynda- fyrirtækisins „Men in Black“ sem hreyfði við Fox-mönnum og síðan var það Disney-mynd- in „Con Air“ sem óttast var að tæki alla athyglina. „Men in BIack“ er talin líklegust til að setja sölumet í sumar ásamt Spielberg myndinni „Lost World: Jurassic Park“ og nýjasta Leðurblökuævin- týrinu „Batman and Robin“. Framleiðendur hafa jafnvel ákveðið að bíða með að frum- sýna nokkrar myndir í sumar og selja þær frekar á markað- inn í haust eða um jólin. Frum- sýna átti „Alien Resurrection" með Sigorney Weaver og Win- onu Ryder í sumar en henni hefur verið frestað fram á haust. Einnig hefur verið ákveðið að fresta frumsýn- ingu Jim Carrey myndarinnar „The Truman Show“ eftir að erfiðleikar komu upp við gerð hennar og lengja varð töku- tíma. Hver útkoman verður í sumar er auðvitað happ- drætti. Aðrir sem vilja skemmta bíógestum eru Harrison Ford og Glenn Close í „Air Force One“, og Mel Gibson og Julia Roberts í „Conspiracy Theory". Sú AÆTLUÐUM frumsýning- artíma „Speed 2: Cruise Control" með Söndru Bullock hefur verið breytt tvisvar. mynd sem þarf líklega mest á heppni að halda er stórslysa- myndin „Titanic“. Aætlaður kostnaður við hana er 180 milljónir Bandaríkjadollara og stefnir hún í að fara fram úr kostnaðaráætlun. KVIKMYNDIN „The Lost World“, sem er framhald myndarinnar „Jur- assic Park“ eftir leikstjórann Steven Spielberg, verður frumsýnd á ís- landi 18. júlí næstkomandi. Með- fylgjandi mynd úr „The Lost World" er nýkomin til landsins en á henni sjást aðalleikarar hennar, Jeff Goldblum og Julianne Moore, í ná- vígi við risaeðlu sem vaknað hefur úr löngum dvala. Forsaga myndarinnar Viðskiptajöfurinn John Hammond stofnaði fyrirtækið InGen sem tókst að búa til risaeðlur úr DNA brotum sem fundust í mýflugu. Draumur hans var að búa til skemmtigarð með risaeðlum á Costa Rica en bilun varð í tölvukerfi garðsins rétt fyrir opnun hans og eðlumar sluppu út. Því varð að eyðileggja garðinn og drepa allar eðlumar. Ríkisstjórn Costa Rica vildi halda stöðu sinni sem ferðamannaland og því var þag- að þunnu hljóði um hvað fór úrskeið- is. Sérfræðingurinn Dr. Ian Holm (Jeff Goldblum) uppgötvar í þessari nýju mynd að enn er eitthvað for- sögulegt líf á eyjunni og spennan eykst. Leikstjóri myndarinnar er Steven Spielberg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.