Morgunblaðið - 22.04.1997, Blaðsíða 69
\ MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997 69
MYIMDBÖND/KVIKMYIMDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
l-----------------------------------------------------
■ Kvikmynda-
verðlaun MTV
„INDEPENDENCE Day“ og „Will-
iam Shakespeares’s Romeo and Juli-
et“ hlutu flestar útnefningar fyrir
kvikmyndaverðlaun MTV sem verða
veitt 7. júní í Santa Monica í Kalifor-
Í* níu. Það eru áhorfendur sjónvarps-
stöðvarinnar sem velja hveijir kom-
ast í úrslit. Þetta er sjötta árið í röð
sem MTV heldur slíka verðlaunahá-
tíð.
Mynd Baz Luhrmans hlaut sex
útnefningar: besta mynd, besti karl-
leikari (Leonardo DiCaprio), besti
kvenleikari (Claire Danes), besti
kvikmyndakoss, besti samleikur, og
(J besta lagið (1 Crush með Garbage).
gt ID4 var útnefnd til fímm verðlauna:
besta mynd, besti karlleikari (Will
0 Smith), besti nýliði (Vivica A. Smith),
besti koss, og besta hasaratriði.
„Jerry Maguire", „Scream" og
„The Rock“ hlutu einnig útnefningu
í flokknum besta mynd. Tom Cruise
yar einnig útnefndur fyrir leik sinn
í „Jerry Maguire“ og Renee Zellweg-
er var útnefnd sem besti nýliði. Sean
Connery og Nicholas Cage fengu
Jútnefningu fyrir bestan samleik, og
„The Rock“ náði einnig í útnefningu
fyrir hasaratriði.
MTV-kvikmyndaverðlaunin hafa
auk flokkanna besta mynd, besti
karlleikari, besti kvenleikari, besti
nýliði, besta lag, besti samleikur,
besti koss og besta hasaratriði tvo
flokka í viðbót sem bera yfirskriftina
besta frammistaða í gamanmynd og
CLAIRE Danes er útnefnd til
MT V-kvikmyndaver ðlaun-
anna fyrir leik sinn í „William
Shakespeare’s Romeo and
Juliet".
besta bardagaatriði. í síðarnefnda
flokknum er m.a. Jackie Chan út-
nefndur fyrir frammistöðu sína gegn
stiga í „First Strike", Jim Brown
fyrir bardaga gegn geimveru í „Mars
Attacks!" og Pamela Lee fyrir slags-
mál í „Barb Wire.“
I
;
4
4
é
4
I
Stór nöfn á Cannes
wai er að ljúka klippingu á nýj-
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Cannes
á fimmtugsafmæli í ár. Undirbún-
ingur er á fullu fyrir hátíðina og
beðið með mikilli eftirvæntingu
hvaða myndir verði valdar til sýn-
ingar. Kvikmy ndaleikstj órar eins
°g Oliver Stone, Zhang Yimou,
Ang Lee, Wong Kar-wai og Abbas
Kiarostami eru allir með nýjar
niyndir í farteskinu sem eru lík-
legar til að vera frumsýndar á
Cannes.
Mynd Stones er spennumynd
sem kallast „U-Turn“. Með aðal-
hlutverkin í henni fara Nick Nolte,
Jennifer Lopez og Sean Penn.
„Keep CooI“ er titill myndar Zang
Yimou, en óvíst er hvort hann fær
leyfi kínverskra stjórnvalda til
t>ess að sýna myndina. Mynd Ang
Lee heitir „The Ice Storm“. Það
eru Sigourney Weaver, Kevin
KUne og Joan Allen sem fara með
uðalhlutverkin í henni. Wong Kar-
ustu mynd sinm sem nefnist
„Happy Together" en hún fjallar
um samband homma. Kiarostami
er einnig að reyna að Ijúka mynd
sinni „The Taste of Cherry“ í íran.
Aðrir kvikmyndaleikstjórar
sem eru taldir líklegir til að eiga
verk í keppninni um gullpálmann
eru Wim Wenders („The End of
Violence"), Mathieu Kassovitz
(„Assassins"), Johnny Depp („The
Brave“), Atom Egoyan („The
Sweet Hereafter"), Michael Wint-
erbottom („Welcome to
Sarajevo"), Shohei Imsmura
(,,Unagi“), Manoel de Oliveira
(„Voyage to the Beginning of the
World“), Marco Bellocchio („The
Prince of Homburg“), Francesco
Rosi („The Truce“), Idrissa Oudra-
ogo („Kini and Adams“), og Micha-
el Haneke („Funny Games“).
Safari sunnan Sahara
í
t
i
i
i
i
J
Ferðakynning í kvöld
kl. 20.30 á Hótel Sögu
Landnáma kynnir einstaka ævintýraferð til Tanzaníu og
Zansibar undir stjórn Afríkufarans og líffræðingsins Tómasar
Gíslasonar. Ferðast er um sléttur Tanzaníu
í opnum jeppum til að virða fyrir sér Ijón,
hlébarða, gasellur, flóðhesta, gíraffa, fíla og
fleiri dýr. Boðið er upp á vikudvöl á
kryddeyjunni Zansibar þar sem gefst kostur
á að synda í heitum sjó með höfrungum en
Zansibar er m.a. þekkt fyrir fagrar strendur
og heillandi sögu.
Ferðin verður kynnt í máli og myndum á Hótel Sögu
í sal A, í kvöld, þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30.
Þeir sem skrá sig í ferðina fyrir 1. maí fá frían aðgang að
námskeiði í grunnatriðum Ijósmyndunar, sem Tómas
Gíslason fararstjóri ferðarinnar heldur.
LANDNÁMA
Vesturgötu 5, Sími 511 3050.
MYNPBONP
Hrói höttur og
gereyðandinn
Einleikur
(Solo) _____________________
Vísindatryllir
★ '/2
Framleiðandi: Triumph Films.
Leiksljóri: Norberto Barba.
Handritshöfundur: David Cor-
ley. Kvikmyndataka: Chris Wall-
ing. Tónlist: Christopher
Franke. Aðalhlutverk: Mario
Van Peebles, William Sadler,
Adrien Brody og Barry Corbin.
91 mín. Bandarikin. Colombia
Tristar Home Video. Útgáfu-
dagur: 16. apríl. Myndin er
bönnuð börnum yngri en 16 ára.
VÉLMENNIÐ Solo er mesta ógn-
un sem þekkst hefur síðan kjamorku-
sprengjan var fundin upp, ósigrandi,
tæknibúin drápsvél
sem lært hefur að
hugsa sjálfstætt.
Þegar saklausir
borgarar bíða
hörmulegan dauð-
daga af hans völd-
um, áttar Solo sig á
því að hann er ekki
í réttu liði og snýst
ótrauður gegn yfir-
boðurum sínum.
Þessi saga er hvorki ný né frum-
leg, og ætti að vera flestum vestræn-
um bíómyndafara frekar fyrirsján-
leg. Ameríska bíómyndaformúlan er
þegar orðin innprentuð í heila hans,
og hann getur enn haft gaman af
sömu sögunni í milljónasta skiptið.
En jæja, svona er þetta nú og það
þýðir ekki að fást um það. Núna eru
mennimir komnir svo langt í tækn-
inni að þeir hafa skapað vélmenni
sem ályktar, og hefur tilfinningar.
En ekki húmor. Myndin hefði sjálf-
sagt orðið skemmtilegri hefði það
verið öfugt. Það er í lagi, en því
miður er tæknin ekki meiri en svo
að þetta vélmenni er mjög órökrétt.
Það sér mun á egypskum fornleifum
og mexíkönskum, og dregur álykt-
anir út frá því varðandi sögu samfé-
laga. Hins vegar veit það ekki mun-
inn á orðinum plata og ljúga. Ég get
ekki verið með ef þetta er ekki pott-
þétt. Ég trúði aldrei á þetta vél-
menni. Kannski er ég bara smá-
munaseggur að hengja mig í smáatr-
iðum, en þá það.
Solo kennir íbúum lítils þorps að
búast til varnar, og það er augljóst
að vélmennið er svo mannlegt að það
hefur skellt sér í bíó og séð Hróa
hött með Kevin Costner, því hann
stelur öllum brögðunum hans. Skap-
arar hans hafa hins vegar séð Ger-
eyðandann með Schwarzenegger, og
orðið fyrir áhrifum af henni. Kæru
myndbandaunnendur, nú getið þið
sjálf dregið ályktanir af því hvert
þetta myndabandagláp fer með menn
og vélmenni nútímans. Allt hug-
myndaflug fyrir bí.
Ég verð nú samt að segja að
myndin er ágætlega gerð að mörgu
leyti, og er t.d. kvikmyndatakan bara
fín. Hún er öll þannig í pottinn búin
að aðdáendur hasarmynda sem ekki
vilja láta koma sér á óvart, ættu að
geta haft gaman af, og trúið mér,
þeir eru ekki fáir.
Hildur Loftsdóttir
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
íbúö Joe
(Joe’s Apartment) ★'A
Alaska
(Alaska) k ★
Tryggingasvindl
(Escape Clause) ★ ★ Vi
Drápskrukkan
(The KilIingJar)-k Vi
Stóra blöffið
(The Great White Hype)-k k
Hin fullkomna dóttlr
(The Perfect daughter)kVi
Englabarn
(Angel Baby)k k Vi
Fatafellan
(Striptease) k k
Háskólakennari á ystu
nöf
(Twilight Man)k k k
Jack Reed IV: Löggumorð
(Jack Reed TV: OneofOurOwn)
k k
Dauðsmannseyjan
(Dead Man ’s Island)k
Fallegar stúlkur
(Beautiful Girls) kkkVi
Galdrafár
(Rough Magic) k k
Ást og slagsmál í Minne-
sota
(Feeling Minnesota) kk
FLóttinn frá L.A.
(John Carpenters: „Escape From
L.A.“)kkV2
Skylmingalöggan
(Gladiator Cop) k
Staðgengillinn
(The Substitute)k 'h
Lækjargata
(River Street)k k Vi
Svarti sauðurinn
(Black Sheep)k k
Snert af hinu illa
(Touch byEvil)k Vi
Undur og stórmerki
(Phenomenon)k k V2
HAGKAUP
-ptrirflölsktfldma-