Morgunblaðið - 01.05.1997, Side 14
Gi veeriAM rjjtjoaci
14 FIMMTUDAGUR 1.
(rTMMN
MAI 1997
TQT/ttTíQAM
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Forseti Islands
Opinber heimsókn til
Suður-Þingeyjarsýslu
OPINBER heimsókn Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta
Islands, og frú Guðrúnar Katrín-
ar Þorbergsdóttur til Suður-
Þingeyjarsýslu hefst á morgun.
Fyrsti viðkomustaður verður
Safnahúsið á Húsavík, en þaðan
fara forsetahjónin í skóla í bæn-
um og ræða við nemendur og
kennara. Einnig verða heimsótt
ýmis fyrirtæki, heimili aldraðra
í Hvammi og Húsavíkurkirkja
o g forsetinn mun setja KÞ-mótið
í handknattleik. Um kvöldið
verður móttaka fyrir Húsvíkinga
í félagsheimilinu.
Á laugardaginn verða fyrir-
tæki og skólar í Reykjahreppi,
Aðaldælahreppi og Skútustaða-
hreppi heimsótt. Síðdegis verður
héraðssamkoma í íþróttahúsinu
á Laugum og um kvöldið heim-
sækja forsetahjónin Stjóru-
tjarnaskóla og Ljósavatnshrepp.
Á sunnudaginn, síðasta dag
heimsóknarinnar, verður farið
frá Sótrutjömum í Hálsahrepp,
komið við í skógræktinni á Vögl-
um, Svartárkoti í Bárðdæla-
hreppi, á Stómvöllum og við
Goðafoss. Heimsókninni lýkur
eftir hádegi á sunnudaginn.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Nefhjól gaf sig
Hnappavöllum - Það óhapp varð á Flugfélaginu Jórvík gaf sig í lend-
flugvellinum nálægt Skaftafelli ingu. Ekki urðu stórvægilegar
nýlega að nefhjól flugvélar frá skemmdir á vélinni við óhappið.
Vígslu-
dagurinn
nálgast
Hvolsvelli - Hann Hörður Gunn-
laugsson var í óða önn að vinna
við að leggja gólf á nýtt íþrótta-
hús Hvolsvellinga. Gólfið verður
úr dúk sem lagður er ofan á
plötur og trégrind. Sagði Hörð-
ur að u.þ.b. 5.000 kubbar færu
undir grindina til að rétta hana
af. Gólfið er frá Ágústi Óskars-
syni í Mosfellsbæ og er þetta 4.
gólfið sem hann vinnur við að
leggja. Vígsludagur íþróttahúss-
ins nálgast nú óðfluga en stefnt
er að því að hann verði 17. júní
nk.
Morgunblaðið/Silli
BÖRNIN skemmtu sér vel á sunnudagaskólahátíðinni í Húsavíkurkirkju.
Öflugt starf
sunnudagaskóla
Húsavík - Bamastarfið á vegum
kirknanna í Þingeyjarprófasts-
dæmi hefur í vetur verið mikið og
gott í flestum sóknum prófasts-
dæmisins. Það hefur skapast sú
venja að ljúka vetrarstarfi kirkn-
anna með sameiginlegri hátíð
barnanna í einhverri kirkju próf-
astsdæmisins.
Þetta árið var hátíðin haldin á
Húsavík og til hennar mættu á
þriðja hundrað börn og foreldrar.
Hátíðin hófst í Húsavíkurkirkju
með helgistund og miklum söng
hinna ungu og áhugasömu kirkju-
gesta. Að kirkjuhátíðinni lokinni
var haldið í íþróttahöllina og börn-
in nutu þar fyrst góðra veitinga
en síðan sáu félagar í Iþróttafélag-
inu Völsungi bömunum fyrir fjöl-
breyttum leikjum og skemmtiatrið-
um.
Fórnfóst starf
leikmanna
Með prestunum starfa að sunnu-
dagaskólunum nokkrir leikmenn
sem láta af hendi mikið og fórn-
fúst starf.
Samningarn-
ir samþykktir
KJARASAMNINGUR VMSÍ
fyrir hönd Verkalýðsfélags
Húsavíkur við vinnuveitendur
var samþykktur í vikunni með
64,1% greiddra atkvæða.
Verkalýðsfélag Húsavíkur
felldi fyrri kjarasamning en
hefur nú samþykkt hann með
viðbótarsamkomulagi sem
gert var við vinnuveitendur 22.
apn'l sl.
Á kjörskrá voru 383 og
greiddu 128 atkvæði eða
33,4%. Já sögðu 82 eða 64,1%,
nei sögðu 42 eða 32,8%. Auðir
og ógildir seðlar voru 4 eða
3,1%.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
STARFSFÓLK Búnaðarbankans í Stykkishólmi bauð
í opinn banka 26. apríl sl.
Opið hús í Bún-
aðarbankanum
Stykkishólmi - Það er óvenjulegt
að hægt sé að heimsækja banka á
laugardegi. Það gerðist þó í Stykk-
ishólmi laugardaginn 26. apríl sl.
Þá var opið hús hjá starfsfólki Bún-
aðarbankans í Stykkishólmi.
Kl. 11 var bankinn opnaður og
gestum boðið að skoða húsakynni
bankans og kynna sér starfsemi
hans. Kynntar voru ýmsar sparnað-
ar- og ijárfestingaleiðir og eins fjöl-
breytt þjónusta sem bankinn býður
sínum viðskiptavinum. Nýlega var
hraðbanki tekinn í noktun í húsa-
kynnum Búnaðarbankans og var
farið yfir hvaða möguleika hann
býður upp á.
Kór Stykkishómlskirkju kom í
heimsókn og söng nokkur lög og
boðið var upp á rjómapönnukökur.
Margir Hólmarar litu við og kunnu
því vel að geta farið inn fyrir af-
greiðsluborðin og alla leið inn á
skrifstofu bankastjóra án þess að
banka. Svona tilbreyting sýnir að
starfsfólk Búnaðarbankans vill
stuðla að jákvæðum tengslum á
milli bankans og bæjarbúa.
Morgunblaðið/Albert Kemp
FORSVARSKONUR slysavarnadeildarinnar Hafdísar og kvenfé-
lagsins Keðjunnar færðu slökkviliðinu á Fáskrúðsfirði búning.
gefinn búningrir
Fáskrúðsfirði - Undanfarna daga
hefur staðið yfir námskeið slökkvi-
liðsmanna frá Fáskrúðsfirði, Stöðv-
arfirði og Breiðdalsvík. Námskeiðið
er á vegum Brunamálastofnunar
og er það vel sótt.
Við þetta tækifæri notuðu félag-
ar í Slysavarnadeildinni Hafdísi og
Kvenfélaginu Keðjunni tækifærið
og afhentu slökkviliðinu á Fá-
skrúðsfirði búning til notkunar þeg-
ar slökkva þarf eld þar sem hætta
er á eiturefnum. Fyrir átti slökkvi-
liðið einn slíkan búning og er því
betur í stakk búið nú til að mæta
slíkum eldum.