Morgunblaðið - 17.05.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 17.05.1997, Síða 1
88 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 109. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Mobutu Sese Seko lætur af landsstjórninni eftir 32 ára valdatíma í Zaire Uppreisnarmenn segja valdaframsalið markleysu Kinshasa, Lubumbashi, Washington. SAMTÖK uppreisnarmanna í Zaire sögðust í gær líta á valdaskiptin í höfuðborginni Kinshasa sem mark- leysu og hvöttu stjómarhermenn að Mobutu Sese Seko forseta burtflún- um til að leggja niður vopn. Upplýs- ingaráðherra stjórnar Mobutu, Bizima Karaha, sagði forsetann hafa framselt völd sín í hendur stjómar Likulia Bolongos forsætisráðherra og þings og farið til kastala í fæðing- arbæ sínum, Gbadolite. Vestrænir stjómarerindrekar sögðu Mobutu hins vegar á leið úr landi, ýmist til Evrópu eða Marokkó. Með brotthvarfi Mobutu lýkur 32 ára valdatíma hans í Zaire. Hermt er að hemaðarráðgjafar forsetans hafi skýrt honum frá því í fýrradag að útilokað væri að verja höfuðborgina og ráðlagt honum að flýja. í gær- morgun flýði svo yfírmaður lífvarða- sveita forsetans, Nzimbi Nzale, með fjölskyldu sína á hraðbát til Brazza- ville í Kongó. Háttsettir embættis- menn, nánir samverkamenn forset- ans og skyldmenni flýðu til allra átta með áætlunarflugvélum frá Zaire og Brazzaville. Karaha sagði völdin í Zaire nú í höndum stjómar Bolongos og þings- ins, samkvæmt stjórnarskrá, sem uppreisnarmenn segja að sé ekki tO. Kin-Kiey Mulumba, talsmaður stjómarinnar, sagði að Laurent Mulumba erkibiskup í Kisangangi hefði fengið það hlutverk að semja um myndun bráðabirgðastjómar og nýjar þingkosningar við Laurent Kabila leiðtoga uppreisnarmanna. Ekkert heyrðist frá Kabila í gær. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði brottför Mobutu auka vonir um að sjö mánaða borgarastyrjöld ljúki með friðsamlegum hætti. Hvatti hann þjóðir heims til að styðja við tilraunir Nelsons Mand- elas, forseta Suður-Afríku, til að stöðva stríðið í Zaire. Mandela kom yfirlýsingin um valdaframsal Mobutus á óvart. Joe Modise, varnarmálaráðherra Suður-AMku, sagði mikla hættu á því að borgarastríð héldi áfram í Zaire freistaði Kabila þess að ná öll- um völdum í hendur samtaka sinna. ■ Mobutu talinn fara/20 Reuter STUÐNINGSMENN uppreisnarmanna mála borða með stuðningsyflr- lýsingum við baráttu hersveita Laurent Kabila í leynilegri áróðursmiðstöð í Kinshasa í gær. Kasparov vill nýtt einvígi New York. Reuter. GAKRÍ Kasparov skákmeist- ari skoraði í gær á skáktölvuna Dimmblá til nýs einvígis í haust. Vill hann að það fari fram á öðmm forsendum en nýafstaðið sex skáka einvígi þar sem hann laut í lægra haldi íyrir tölvunni. Lagði hann til að sigurvegari í nýju einvígi fengi allt verðlaunaféð. Kasparov vill að nýtt einvígi verði lengra, eða 10 skákir og fleiri hvfldardagar verði milli þeirra. Pá vill hann fá að kynna sér gagnagrunn tölvunnar, skákirnar sem hún æfði sig á í tilraunastofu. Jafnframt vill hann að tölvan tefli samtímis við annan stór- meistara í viðurvist fulltrúa síns og að óháður aðili fylgist með skjá Dimblárrar í nýju einvígi og skipuleggjendur þess verði sömuleiðis óháðir framleiðendum tölvunnar. Talsmenn IBM sögðust myndu taka sér umhugsunar- frest til að svara áskomn Ka- sparovs. Þeir sögðu ýmsa aðra stórmeistara hafa leitað eftir að fá að glíma við Dimmblá, m.a. Anatoly Karpov og kvenna- meistarinn Susan Polgar. Reuter Heimila viðræð- ur við Sinn Fein Belfast. Reuter. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, bauð Sinn Fein, stjóm- málaarmi Irska lýðveldishersins (IRA), til viðræðna um framtíð Norður-írlands án þess að krefjast þess að IRA lýsi áður yfir vopnahléi í hryðjuverkahernaði sínum gegn bi'esku stjórninni. Blair skýrði frá þessari ákvörðun sinni í heimsókn til Norður-írlands í gær, en það er fyrsta ferð hans út fyrir London sem forsætisráðherra. Með þessu vill Blair freista þess að koma umleitunum um frið í Norður-írlandi af stað á ný. „Ég er reiðubúinn að leyfa embættismönn- um að funda með fulltrúum Sinn Fein svo fremi að atburðir, bæði hér og annars staðar, geri það ekki ómögulegt," sagði Blair í ræðu á landbúnaðarsýningu í Belfast. Með ákvörðuninni rýfur hann ein- angrun Sinn Fein, sem bresku og írsku stjómirnar settu samtökin í eftir að IRA rauf 17 mánaða vopna- hlé sitt í hernaðinum gegn bresku stjórninni í febrúar 1996. Hann ítrekaði þó að Sinn Fein fengi ekki aðild að samningaviðræð- um um framtíð Norður-írlands, sem hefjast 3. júní, nema IRA lýsti áður yfir nýju allsherjar vopnahléi. Einungis væri um það að ræða að útskýra afstöðu stjórnar Blair fyrir stjórnmálaarmi IRA og kanna hvort norður-írskir lýðveldissinnar væru raunverulega reiðubúnir að snúa baki við ofbeldi og láta pólitík ráða ferðinni. Fyrstu viðbrögð Sinn Fein ein- kenndust af fálæti en búist er við að Gerry Adams, leiðtogi samtakanna, lýsi afstöðu sinni á morgun, sunnu- dag. Borís Jeltsín herðir baráttu gegn spillingu í embættismannakerfinu Kannar auðævi embættismanna Mótmæla á Maracai- bovatni SJÓMENN, sem stunda fiskveið- ar á Maracaibovatni í Venezu- ela, mótmæltu í gær auknum óhöppum vegna vaxandi skipa- umferðar um vatnið. Fjögur ol- íuskip hafa strandað þar á síð- ustu fjórum mánuðum og olíu- mengun hlotist af. Telja sjó- mennirnir ástandið ógna tilveru sinni. Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti herti baráttu sína gegn pólitískri spillingu er hann undirritaði til- skipun í gær sem skyldar hátt- setta embættismenn til þess að telja árlega fram tekjur sínar og eignir. „Tilgangurinn er að uppræta þá þróun að menn noti stöðu sína í auðgunarskyni. Heiðarleiki er ekki bara siðferðismælikvarði, hann hefur fengið á sig pólitískt mikil- vægi. Fólk hefur fengið sig fullsatt af slagorðum og loforðum," sagði Jeltsín í útvarpsávarpi í tilefni til- skipunarinnar. Fyrri tilraunir Jeltsíns til að koma böndum á spillingu hafa lít- inn árangur borið. I gær lagði sak- sóknari fram spillingarákæru á hendur Konstantín Kobets, fyrr- verandi aðstoðarvamarmálaráð- herra, sem á sínum tíma var náinn samverkamaður Jeltsíns. Hann er sakaður um að hafa misnotað að- stöðu sína til að maka eigin krók. Sömuleiðis sagði saksóknarinn, Júrí Dýomín, í viðtali við dagblaðið Ízvestíá að 20 hershöfðingjar og að- mírálar ásamt 100 ofurstum úr her- aflanum sættu nú rannsókn vegna meintrar spillingar. Þykja meint auðgunarbrot þeirra sýnu hneykslanlegri sakir þess að á sama tíma og þau eru framin aukast hörmungar óbreyttra hermanna sem ýmist líða hungur, hlaupast brott eða svipta sig lífi í meira mæli en nokkru sinni áður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.