Morgunblaðið - 17.05.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.1997, Blaðsíða 2
o 2 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997_______________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ . FRÉTTIR FÁRVIÐRI skall á búðum þrjú á Everest í gær þar sem ís- lensku Everestfararnir hafa dvalið siðustu daga. Þeir náðu að koma í veg fyrir tjón á bún- aði sínum, en tjöld og búnaður frá ððrum leiðöngrum fauk og skemmdist. Talið er að tjónið skipti milljónum króna. Is- lensku fjallgöngumennirnir hafa neyðst til að fresta ferð á tind fjallsins vegna slæms veð- urs. „Það gerði fárviðri í þriðju búðum í nótt og okkar menn stóðu í ströngu við að bjarga tjöldum og búnaði frá þvi að fjúka. Okkar leiðangur er sá eini sem er með eitthvað af fólki þarna uppi þannig að hann stóð í því að reyna að bjarga tjöldum frá öðrum leiðöngrum. Þeir voru að giska á að þarna hefðu fokið eða eyðilagst á milli 20-30 tjöld. Um er að ræða tjón sem skiptir milljón- um króna. Það var það hvasst að það var varla stætt í verstu hryðjunum," sagði Hörður Magnússon, aðstoðarmaður ís- lensku Everestfaranna, sem er I grunnbúðum. Það var ekki síður mikið að gera þjá Herði en Everestför- Tjöld fuku í f* / • X • * farviðn 1 þriðju búðum unum Birni Einari K. Stef- ánssyni og Hall- grími Magnús- syni. Þegar fréttist í grunn- búðum af því sem var að gerast í þriðju búð- um fylltist tjaldið hjá Herði af áhyggjufullum fjallgöngu- mönnum úr öðrum leiðöngrum sem vildu koma skilaboðum til leiðangursmanna um að þeir huguðu einnig að sínum tjöld- um og búnaði. Hörður sagði að aðrir leið- angrar hefðu orðið fyrir miklu tjóni. Til dæmis hefði malasíska matartjaldið eyðilagst og allt það sem í þvi var. Það væri stórmál að koma matarbirgðum og búnaði upp í fjallið á ný. Hann sagði að ekki hefði mátt miklu muna að stóra matartjald Tinkerleiðangursins, sem ís- lendingamir taka þátt í, hefði fokið. 7-8 átta menn hefðu barist við að bjarga því. Ferð á tindinn frestað Hörður sagði að engar skemmdir hefðu orðið á búnaði íslensku fjallgöngumannanna og þeir gætu þess vegna haldið áfram ferð sinni upp fjallið. Hins vegar hamlaði veðrið för eins og áður og það væri ljóst að þeir myndu ekki leggja af stað upp í fjórðu búðir í dag eins og þeir hefðu ráðgert. „Nýjasta veðurspáin gerir ráð fyrir meiri vindi en áður var reiknað með. Nú er talað um 40-50 hnúta vind á mánudag. Það er of mikill vindur til að það sé hægt að ganga á fjallið. Það er þvi ekki um annað að ræða en fresta uppgöngu." Reiknað er með að veður í þriðju búðum, sem eru í 6.400 metra hæð, verði einnig vont í dag. Hörður sagði óvist með framhaldið. Sá möguleiki væri fyrir hendi að leiðangursmenn færu aftur niður í grunnbúðir. Sumir í leiðangri Tinkers væru þeirrar skoðunar að best væri að snúa tíl baka. Hörður sagði að veðrið hefði ekki verið nærri eins slæmt uppi í fjórðu búðum í 7.400 metra hæð. Þar væru tveir Rússar og hann sagði að þeir hefðu ekki látið illa af sér. Öll tjöld þar væru meira grafin niður og ekkert tjón hefði orð- ið á búnaði eða tjölduin. ■ Everestsíða Morgunblaðs- ins: http://www.mbl.is/everest/ Fáskrúðsfjörður Trygging sett fyrir bryggju- skemmdum DANSKA flutningaskipið Dan Star fór frá Fáskrúðsfirði í gær fulllestað mjöli, eftir að tryggingafélag skips- ins hafði sett tiyggingu fyrir skemmdum, sem skipið olli á bryggj- unni á Fáskrúðsfirði. Skipið sigldi á bryggjuna um há- degisbil á miðvikudag og við sjópróf á fímmtudag kom fram að skipveij- ar hefðu ekki ráðið við skipið vegna vinds. Samkvæmt frummati starfs- manns Siglingastofnunar gæti tjónið á bryggjunni numið 18 miHjónum króna og fór Búðarhreppur fram á að skipið yrði kyrrsett þar til trygg- ing hefði verið sett fyrir tjóninu. Skemmdir á bryggjunni verða kannaðar endanlega næst þegar verður stórstreymt, en það verður eftir tæpar 2 vikur. 35 óleyst mál hjá ríkis- sáttasemjara MIKILL §öldi stéttarfélaga á enn ósamið við viðsemjendur sína og voru á skrá 35 óleyst mál í gær sem eru til meðferðar hjá ríkis- sáttasemjara. Póstatkvæðagreiðsla stendur nú yfír meðal félagsmanna í Starfs- mannafélagi ríkisstofnana um BLAÐAUKINN Brúðkaup - í blíðu og strfðu - fylgir Morgunblaðinu um hvíta- sunnuhelgina. Blaðaukinn er 32 bls. og er borinn út til áskrifenda með blaðinu f dag, laugardag. Meðal efnis eru viðtöl við brúðþjón fyrr og nú, rætt er við prest og leitað álits barna á því hvað sé gott hjóna- band. Þá er fylgst með undir- búningi og birtar eru fjöl- breyttar uppskriftir að veisluréttum. Sagt er frá tísku, hárgreiðslu, brúðar- vöndum og ýmsum siðum, gömlum og nýjum, sem tengjast brúðkaupi og fjallað um brúðkaup i ýmsum lönd- um. kjarasamning við ríkið sem gerður var í síðasta mánuði, en félags- menn SFR eru talsvert á fimmta þúsund talsins. Á talning í at- kvæðagreiðslunni að fara fram 20. maí. Hægt miðar í flugfreyjudeilu Sáttatilraunir í kjaradeilu Flug- freyjufélagsins og Flugleiða héldu áfram hjá sáttasemjara í fyrradag, en viðræðum milli þessara aðila hefur miðað mjög hægt á undan- fömum vikum. Haldnir hafa verið 19 fundir að sögn Erlu Hatlemark formanns Flugfreyjuféiagsins og er næst ráðgert að hittast eftir helgina. Einnig var haldinn fyrir helgi sáttafundur í kjaradeilu Félags flugmálastarfsmanna og ríkisins og í gærkvöld sátu fulltrúar ríkis- ins og Framtíðarinnar í Hafnarfirði enn á fundi. Þá eru kjaraviðræður hafnar á milli Félags hjúkrunarfræðinga og viðsemjenda, en þeirri deilu hefur ekki verið vísað til sáttasemjara. -----♦ > ♦ Framboð Guðrún- ar Pétursdóttur Útgjöld námu 12,7 milljónum ÚTGJÖLD vegna forsetaframboðs Guðrúnar Pétursdóttur námu 12,7 milljónum króna samkvæmt fulln- aðaruppgjöri sem birt var í gær. Samkvæmt ársreikningi fram- boðsins skuldaði framboðið 258 þúsund krónur um síðustu áramót en í tilkynningu frá stuðningsmönn- um Guðrúnar segir að þessi skuld sé að fullu greidd. Þar kemur einnig fram að út- gjöld vegna framboðsins hafi verið greidd með framlögum frá fjöl- mörgum einstaklingum og fyrir- tækjum og að auki hafi fjöldi manns lagt fram sjálfboðavinnu eða styrkt framboðið. Morgunblaðið/Þorkell Á ANNAÐ hundrað hundaeigendur í Reykjavík söfnuðust saman fyrir utan hús Kristínar Olsen í gærkvöldi til að votta mæðgunum stuðning og samúð. Læsti sig inni og drap hund nágrannans LÖGREGLAN í Reykjavík hand- tók í gær sjötugan mann eftir að hann hafði drepið hund í eigu konu sem býr í sama flölbýlishúsi og hann. Maðurinn hafði ráðist á fertuga dóttur konunnar þar sem hún var að koma með hundinn inn í húsið, læst sig með dýrið inni í íbúð sinni og drap það þar. í rúm tvö ár hafa staðið deilur í húsinu um hundinn, sem var 7 ára gömul terrier-tík og var mað- urinn, sem talinn er hafa drepið dýrið í gær, fremstur í flokki þeirra sem vildu hundinn út. Kristín Olsen er eigandi hunds- ins og móðir Dagbjartar Ingu Olsen sem var að koma með hann inn í húsið þegar á hana var ráð- ist um klukkan 11 í gærmorgun. Kristín sagði við Morgunblaðið í gær að þótt búið hafí verið að banna henni að halda dýrið í hús- inu hafí hún haft leyfí Heilbrigðis- eftirlits Reykjavíkur til þess að fá hundinn í heimsókn til sín eina viku í senn enda segir Kristín að bannið hafi ekki byggst á því að um væri að ræða asma eða önnur óþægindi sem hundahaldið ylli fólki. Að því er fram kemur í skýrslu lögreglu um atburðinn var Dag- björt Inga að koma með hundinn inn í húsið þegar maðurinn réðst að henni á sameigninni og er sagður hafa slegið hana í kviðinn og tekið af henni hundinn. Konan reyndi að fylgja manninum eftir og ná af honum hundinum en árangurslaust því hann læsti að sér og í skýrslu lögreglu segir að konan hafi heyrt í gegnum dymar hvemig hljóðin í hundinum dóu smám saman út inni í íbúðinni. Þegar lögregla kom að var hund- urinn dauður en blóðblettir og hár úr feldi dýrsins á gólfi og veggjum íbúðar mannsins. Dagþjört Inga var fiutt á slysa- TERRIER-tíkín Lady Queen sem var drepin í gær. deild og segir Kristín Olsen s hún sé marin um allan líkaman eftir barsmíðar og spörk mannsir og vafin umbúðum á báðum han< leggjum. Lögregla handtók manninn sei drap hundinn og færði hann fangaklefa og síðan til yfi heyrðslu. Maðurinn á yfir höf sér kærur fyrir líkamsárás o brot á dýravemdarlögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.