Morgunblaðið - 17.05.1997, Side 16
16 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
___________________LANPIÐ
Hættir hafbeitarstöðin
í Hraunsfirði í sumar?
Búðardal - Áhrif hafbeitar-
stöðvarinnar í Hraunsfirði (áður
Silfurlax hf.) á laxveiði í laxveið-
iám við Breiðafjörð, eru landeig-
endum og veiðirétthöfum mikið
áhyggjuefni. Þetta kom fram á
fundi sem samtök veiðirétthafa við
innanverðan Breiðafjörð og
Hvammsfjörð héldu nýlega í fé-
lagsheimilinu Árbliki í Dalasýslu.
Þetta er mikið hagsmunamál
fyrir landeigendur og veiðirétt-
hafa. Gestir fundarins voru Sigurð-
ur Már Einarsson, fiskifræðingur
og Ásgeir Þór Árnason lögfræðing-
ur veiðiréttarhafa. Sigurður kynnti
niðurstöður úr umfangsmiklu
rannsóknarverkefni sem staðið
hefur yfir í þrjú ár.
Ein af niðurstöðum þessarar
rannsóknar er að árið 1994 veidd-
ust 0,9% af náttúrulegum laxi í
stöðinni við Hraunsfjörð, þessi tala
var 1,1% árið 1995 og loks 3,6%
sl. sumar sem er uggvænleg stærð
ef þetta er reiknað niður á áætlað
heildarmagn. Rannsóknin sýndi
einnig fram á að lax úr fleiri ám
á Vesturlandi og jafnvel af Norður-
landi veiðist í hafbeitarstöðinni við
Hraunsfjörð. Niðurstöður þessar
þykja taka af allan vafa um að
hagsmunum bænda við Breiðafjörð
er ógnað ef veiðiaðferðum hafbeit-
arstöðvarinnar verður ekki breytt.
Bændur í Dölum hafa allt frá árinu
1990 haft efasemdir um lögmæti
veiðiaðferða hafbeitarstöðvarinn-
ar. Að mati lögfræðings þeirra
skortir mjög á skýra lagasetningu
varðandi þetta mál. Ákvæði land-
búnaðarráðherra eru of rúm til
reglugerðar varðandi úrskurð á
slíkum ágreiningsefnum sem þess-
um. Fram kom allhörð gagnrýni á
vinnubrögð veiðimálastjóraemb-
ættisins og landbúnaðarráðuneyt-
isins í meðhöndlun þessa máls frá
upphafi. Á fundinum komu einnig
fram skoðanir annarra veiðirétt-
hafa utar á Snæfellsnesi sem lýstu
yfir sannfæringu sinni á skaðsemi
veiðiaðferða hafbeitarstöðvarinnar
þar sem veitt væri á flóði og í sjó
sem er bannað með lögum.
Samkvæmt heimildum fréttarit-
ara hefur stjórn samtakanna bréf
frá landbúnaðarráðuneytinu um að
starfsemi hafbeitarstöðvarinnar
verði hætt í síðasta lagi 7. júlí
1998 og þá geti veiðirétthafar far-
ið að koma laxveiðiám í Breiðafirði
í samt lag.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
FÉLAGAR í Flugbjörgunarsveitinni, fulltrúar Landsbjargar, Radiómiðunar og Einars J. Skúlasonar.
Tölvukennsla
á Heklutindi
Hellu - hópur á vegum Flugbjörgunarsveitarinn-
ar á Hellu fór á Heklu, þar sem nýr töivubúnað-
ur sveitarinnar var reyndur og meðlimir hennar
fengu kennslu í notkun hans.
Sljórn Landsbjargar gaf 27 aðildarsveitum
sínum fullkomnar fartölvur ásamt öllum kortum
af Islandi á geisladisk. Áður hafði Radíómiðun
gefið sveitunum afnotarétt af Maxland forritinu,
en það ásamt GPS staðsetningartækjum gerir
mögulegt að nota slíkan tölvubúnað í bílum og
bátum. Búnaðurinn var afhentur í lok vetrar og
haldin þijú námskeið í Reykjavík og á Akureyri
með um 100 þátttakendum. Fartölvurnar eru af
tegundinni AST frá Einari J. Skúlasyni og hafa
reynst vel. Sveitirnar eru þær fyrstu sem eru
tölvuvæddar hérlendis og jafnvel þær fyrstu í
heiminum sem eru tölvuvæddar á þennan hátt.
Markvissari björgunaraðgerðir
Að sögn Ólafs Proppe formanns Landsbjarg-
ar sem var með í för á Heklu byggja nú allar
FÉLAGAR í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu
um borð í snjóbíl sveitarinnar.
björgunarsveitir Landsbjargar tölvukerfi sitt á
sama grunni sem gerir gagnasöfnun og gagna-
skipti möguleg og markvissari. Búnaðurinn
verður í bílum, snjóbílum eða bátum en með
þessu kerfi má m.a. sjá staðsetningu á landa-
korti, spara tíma og fyrirhöfn í leiðarreikning-
um eða sjá fyrir aðstæður á varhugaverðum
svæðum. Það er hægt að geyma og skoða öll
kort af íslandi, sem gefin hafa verið út í mælik-
vörðunum 1:250 000 og 1:50 000, geyma upplýs-
ingar um leiðir, leitarskipulag eða staðsetningu
tækja og tóla og senda gögn á milli staða á
auðveldan hátt í gegnum símkerfið.
Ný félagsaðstaða UMF Selfoss
Selfossi - Á dögunum var fyrsta
skóflustungan tekin að nýrri bún-
inga- og félagsaðstöðu UMF Sel-
foss. Húsið mun rísa á íþróttasvæði
félagsins, við norðurenda aðalvall-
arins. Kostnaður við byggingu húss-
ins, sem er 315 fm, er áætiaður í
kringum 30 milljónir.
Framkvæmdir eru nú þegar hafnar
og er áætlað að húsið verði fokhelt
og lóð þess verði tilbúin í haust og
framkvæmdum verði að fullu lokið
um áramót.
UMF Selfoss, sem varð 60 ára á
seinasta ári, hefur búið við frekar
slæman húsakost miðað við fjölda
félagsmanna, en þeir um þúsund
talsins. Það verður mikil lyftistöng
fyrir félagið að fá húsnæðið, en
byggingin er samstarfsverkefni
UMF Selfoss og Selfossbæjar.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
RAKEL Dögg Guðmundsdóttir, fulltrúi ungu kynslóðar UMF
Selfoss, tók fyrstu skóflustunguna að nýju búninga- og félagshúsi.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Kvenfélagið afhendir hjálma
Hvammstanga - Kvenfélagið
Björk á Hvammstanga hefur
tekið upp þann árlega sið að
afhenda sex ára börnum reið-
hjólahjálrna. Formaður kvenfé-
lagsins Árndís Jónsdóttir af-
henti hjálmana á heimili sínu
og Hermann ívarsson, lögreglu-
maður, sýndi hvernig ætti að
stilla þá og hvatti börnin til að
geyma þá ekki inni í skápum
heídur nota þá sem mest.
100 ára verslunaraf-
mæli Grundarfjarðar
Grundarfirði - Það var glatt á
hjalla þegar Kristján IX var opnað-
ur fyrir skemmstu, en svo heitir
veitingahús í Grundarfirði sem nýir
rekstraraðilar og eigendur tóku við.
Um er að ræða gamla Ásakaffí sem
búið er að vera á staðnum í 18 ár
og því dugði ekki minni nafngift
en Kristján IX til að taka við af
Ása eins og Björg Ágústsdóttir
sveitarstjóri orðaði það.
Aðaleigendur eru systumar Ey-
rún og Anna María Guðnadætur
og þeirra makar Sigurður Sigurðar-
son og Guðlaugur Gunnarsson.
Við opnunina söng litli lionskór-
inn og þær stöllur Hjördís Hlíð-
kvist Bjarnadóttir og Guðný Lóa
Oddsdóttir nokkur lög.
Aðalástæða fyrir nafngiftinni
Kristjáni IX er sú að í ár er 100
ára verslunarafmæli Grundarfjarð-
ar, en fyrir 100 ámm veitti Krist-
ján IX þetta verslunarleyfi á Grafa-
nesi við Grundarfjörð. Þótti við
hæfi að skíra staðinn í höfuðið á
konungi. Hugmynda og listasmið-
urinn Ingi Hans Jónsson átti veg
og vanda að nafngift og útliti veit-
ingahússins, útlit og hönnun merk-
is o. fl. var unnið af Vikublaðinu
ÞEY, og lögðu iðnaðarmenn nótt
við dag til að takast mætti að opna
aftur á réttum tíma.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
ALLIR fyrrverandi formenn Hamars mættu á afmælishátíðina
en þeir eru Gísli Páll Pálsson, Ingibjörg Sverrisdóttir, Ingibjörg
Guðjónsdóttir og Þorvaldur Snorrason.
Iþróttafélagið
Hamar 5 ára
Hveragerði - íþróttafélagið Ham-
ar, Hveragerði, hélt 5 ára afmæli
sitt hátíðlegt sumardaginn fyrsta.
Hátíðarsamkoma var í íþróttahúsi
bæjarins og bauð íþróttafélagið
öllum bæjarbúum upp á risarjóma-
tertu, ís og aðrar veitingar í tilefni
dagsins.
Fjölmargir tóku til máls og félag-
inu vom færðar góðar gjafír í til-
efni tímamótanna. Fjögur fyrirtæki
í Hveragerði, HNLFI, Ás, Kjörís
og Búnaðarbankinn, færðu íþrótt-
afélaginu glæsilegan hátíðarfána
að gjöf. Formaður HSK, Árni Þorg-
ilsson, færði félaginu veglega bóka-
gjöf og Þórður Ólafsson, Verkalýðs-
félaginu Boðanum, færði íþróttafé-
laginu 100.000 krónur í þágu
íþróttastarfs í Hveragerði.
Að ávörpum loknum lék íþrótta-
fólk Hamars á öllum aldri listir
sfnar bæði í fimleikum, fótbolta
sem og í körfuknattleik. í körfu-
knattleiknum öttu Hamarsmenn
kappi við bæjarstjórnarmenn sem
urðu að lúta í lægra haldi fyrir
íþróttafólkinu eftir „æsispennandi"
leik.
íþróttafélagið Hamar var stofn-
að 28. mars 1992. Félagar eru nú
um 600 talsins en innan félagsins
starfa níu deildir. Formaður Ham-
ars er Þorvaldur Snorrason.