Morgunblaðið - 17.05.1997, Page 24
24 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 IflKU MORGUNBLAÐIÐ
m
Vínmenn-
ing á und-
mnhnitU á
SpániP
Hingað til hefur áfengissýkin helst þótt
tilheyra norður evrópska kynstofninum.
Þorri Jóhannsson kynnti sér ný viðhorf í
Miðjarðarhafsmenninfflinni á Spáni þar
sem vínmenningin er orðin innflutt
vandamál.
SPÁNVERJI við rauðvínsdrykkju.
GETUR verið að vínmenn-
ingin sé á undanhaldi á
Spáni með nýjum norður-
evrópskum siðum? Norðurlandabú-
ar hafa oft öfundað Suður-Evrópu-
þjóðir af frjálsræði og menningar-
legum drykkjusiðum. Spánn sem
áður var talinn öðruvísi hefur nálg-
ast vesturevrópska siði æ meir við
Evrópuþróunina. Auk þess hefur
fjöldi norðurevrópskra innflytjenda
og ferðamanna við ströndina haft
einhver spillandi áhrif, en strand-
svæði Spánar eru að verða hvíldar-
og dvalarheimili eldri Evrópubúa.
Nú stefnir í að alkóhólismi verði
opinbert vandamál. Áður fyrr var
vínið enn sjálfsagðari hluti af dag-
legu lífi Spánverja. Bömum var gef-
ið rauðvínsbleytt brauð með sykri
sem sætindi og komust snemma á
bragðið. Einhver sagði að það hefði
verið stefna alræðisstjómarinnar að
hafa áfengi ódýrt til að lægja óá-
nægju. En böm og unglingar vönd-
ust því að umgangast vín daglega
og sem sjálfsagðan hlut og drakku
yfirleitt vatnsblandað vín með mat.
Stór hluti af vínmenningunni er
það að áfengi er sjálfsagður og ódýr
hluti af umhverfinu sem alltaf er
hægt að ná í. Óþarfí er að klára
flöskuna. Sumir vinnandi Spánverj-
ar byrja snemma á morgnana með
koníaki eða anísbrennivíni og kaffi,
um tíuleytið er kannski drakkinn
bjór eða vín með langlokum. Um
tólfleytið fær fólk smá pásu sem
eytt er á bamum og er oft drakk-
inn lystaukandi eins og þurrt sérrí
eða vermúth og oft bjór og vín með
tapas auðvitað.
Bjórinn eins og Coca-Cola hefur
náð gríðarlegi útbreiðslu á kostnað
víndiykkju. En kókið er þó nokkuð
dýrara en almenn borðvín og bjór.
Víndrykkja hefur minnkað með há-
degisverðinum kl. 14-16 en margir
innbyrða mikið magn af bjór eða
víni oft blandað með límonaðigosi
(Gaseosa) og er því fljótt að valda
vellíðan. Ómissandi er koníakskaffi
„carajillo" eða kaffí og koníak á eft-
ir. Um sexleytið er óhætt að fá sér
sterkan blandaðan drykk. Auðvitað
er svo drakkið með kvöldverðinum
klukkan tíu og farið fyrst á barinn
til að auka lystina og bæta melting-
una eftir á.
Hefðin hefur verið að narta oft-
ast í eitthvað með drykk enda er
þjóðin sísnæðandi ef hún hefur efni
á því. Ekki er gerður greinarmun-
ur á að fá sér í glas og stunda vinnu
enda drykkjan jöfn og regluleg, inn-
an marka. En þetta er auðvitað alls
ekki algilt. Séu Spánverjar spurðir
út í þessa ágætu siði er svarið oft-
ast, „þetta er hefð“.
Hætrtur áfengis
Nýlega þinguðu í Madrid 550
„fyrrverandi" áfengissjúklingar um
leiðir til að forða þjóðfélaginu frá
hættum áfengis. Fare, samtök
„fyrrverandi“ alka, hélt sitt fimmta
þing og þar vora fulltrúar frá öðr-
um Evrópulöndum. Eitt af mark-
miðum þingsins er að finna leiðir til
að þeir sem neyti áfengis geri það
á ábyrgan hátt án þess að ánetjast.
„Samtök okkar era ekki forræðis-
sinnuð, við vitum að áfengið er lög-
legt vímuefni sem við verðum að lifa
með,“ segir Francisco Vila, forseti
Fare.
Fyrir Vila sem er einnig forseti
Alþjóðlegu allsgáðu samtakanna
(Sobriety Internacional) er mikil-
vægt að breyta almenningsálitinu
og hafna kreddulausnum. En mikil-
vægast fyrir Fare er að mynduð
verði opinber stjómarstefna um
áfengissýki. Það er ekki nóg að
beita aðferðum heilbrigðiskerfisins
heldur verður einnig að hugsa um
opnunartíma, aldursmörk og aug-
lýsingar. Þetta er ekki dýrt fyrir
stjómina en áfengissýkin kostar
billjónir peseta. Fare vill aðeins að
lögum sé framfylgt og er fylgjandi
því að aldurstakmark sé hækkað úr
16 árum í átján.
Að smíða úr draumum
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
FLESTIR hafa hæfileika til
sköpunar, að tjá sig á huglægan
eða hlutlægan hátt í mynd eða
máli en skortir oft kunnáttu til
að kveikja á orkuveitum hugans.
Þar geta draumamir orðið dýr-
mætt afl og tengiliður til frjórra
hughrifa og skapandi verka sem
gefa af sér gull í mund. Sem
dæmi má nefna danska rithöf-
undinn Peter H0eg sem varð
heimsfrægur og moldríkur á
draumi sínum um Smillu og
næmi hennar á snjó. En það er
einmitt næmi eða innsæi sem er
eitt af lykilorðum draumsins að
bankahólfum hugmyndanna.
Hugmyndir kvikna yfirleitt ekki
af sjálfu sér en til að tendra
neista þeirra svo úr verði bál,
þarf mikinn og góðan eldivið sem
má sækja víða, svo sem í ljóðum
og öðram hvefjandi lestri, á list-
sýningum, í bíó, leikhúsi eða með
náttúraskoðun og íhugun. Þenn-
an eld opinna skynhrifa má síðan
virkja meðvitað til að efla sjötta
vit skilnings, innsæið. Þá verða
orkuver draumsins virk og milli
meðvitundar og dulvitundar opn-
ast greið leið. Sú leið er unnin
með gæðastjómun svefnsins,
skipulagningu minniseinda og
samhæfingu draumstafa.
Draumar lesenda
í eftirfarandi draumum sem
era persónulegir eru undirligg-
andi tákn einhverra áfalla í fortíð
sem með dulinni bælingu gera
nútíðina óstöðuga og framtíðina
óörugga.
Draumur „Natösju“
„Mig dreymdi að ég og ein-
hver maður voram að klífa upp
hvítt fjall úr salti. Erfitt var að
klifra en loks þegar á toppinn
var komið var hvelfing yfír hon-
um sem myndaði einskonar
kross. Einhverjir menn komu og
vora æfir yfir að við væram
þama og hentu dótinu okkar
fram af. Fyrir neðan fjallið var
malbikað plan og sá ég hvemig
hlutimir molnuðu þegar þeir
lentu. Mér fannst þetta vera fyr-
ir utan gamla skólann minn og
vora fleiri menn inni í skólanum
að henda dóti út um gluggana.
Síðan fannst mér komin aðfara-
nótt jóla og ég í algjörum mínus
þar sem ég hafði gleymt að láta
konu pabba míns hafa jólatréð
sem ég ætlaði að gefa henni (þau
era nú skilin). Hún ætlaði út á
land yfir jólin og ég hafði misst
af henni. Mér fannst líka að ég
hefði gleymt að láta pabba hafa
sína gjöf en var áhyggjuminni af
því. Síðan var ég heima hjá
ömmu og afa. Enginn var heima,
ég leit út um svefnherbergis-
gluggann og sá að sendiferðabíl
var lagt fyrir utan og blikkaði
hann ljósunum þegar hann sá
mig. Eg varð hrædd þar sem ég
hélt að innbrotsþjófar væra
komnir. Ég ætlaði að hringja á
lögguna en þá kom amma og
opnaði fyrir þeim. Ég hafði þá
tilfinningu að þau væra viðriðin
eitthvað glæpsamlegt. Næst var
ég í Kringlunni og var þriðja_
hæðin orðin að flottu hóteli. Ég
og unnusti minn gistum þar. Við
föram svo í partý hjá stelpu sem
ég þekki. Þar sé ég stelpu sem
var áður að „dúllast" með unnus-
ta mínum, þá fatta ég að stelpan
sem hélt partýið hafði verið með
honum í hléi sem við gerðum á
sambandi okkar. Ég varð mjög
sár því ég hafði ekki verið með
neinum í hléinu og krafði hann
um svör við sambandi þeirra. Ég
stransaði burt og tékkaði mig út
af hótelinu og inn á annað. Þegar
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
DRAUMUR tekur á sig mynd.
ég ligg þar hálfsofandi kemur
þjónustustúlka og rakkar mig
um 15,15 kr. skuld frá hinu hót-
elinu, ég er að tína saman pen-
ingana þegar unnusti minn kem-
ur og borgar þessar 15,15 kr.“
Ráðning
Draumi þínum má líkja við
ferð um lífsins veg og saltfjallið
sem þú klífur er hluti af ævi
þinni. Táknið er að ferðin verði
erfið framan af en erfiðleikamir
styrki trú þína (krossinn yfir
fjallinu) á sjálfa þig, sem auðgi
framhaldið. Þessir erfiðleikar
virðast vera meðferðamenn sem
þú mætir á leiðinni (einhverjir
menn) og stífni í samskiptum
(öllu er hent út allstaðar). Þarna
er einnig samviskubit (í algjöram
mínus) á ferðinni sem hamlar för
þinni, jafnvel vantraust til ná-
kominna (amma í vafasömum
viðskiptum). Þú ert einnig van-
trúuð á ástina og metur lítils
(15,15 kr.) að hún gangi þér í
vil. Þó er það ofangreind trú
þín sem breytir vatni í vín, sút
í sælu.
„Guggu“ dreymdi
„Mér fannst ég koma í hús
þar sem ég og dóttir mín (2
ára) höfumst við. Húsið var úr
tré, gamalt og hrörlegt. Hurðin
er með glugga í miðjunni.
Strax og maður kemur inn tek-
ur við stigi og er það eina leið-
in upp. í honum era lausar
fjalir hér og þar og skakkar.
Mér líður illa í stiganum og hef
áhyggjur af dóttur minni. Mér
finnst að ekki sé allt með felldu
við þetta skrýtna hús og stig-
amir séu fleiri (þeir áttu að
vera upp eina hæð en vora upp
tvær). Þegar ég uppgötva þetta
með stigana verð ég hrædd og
óttast um dóttur mína. Ég
kemst þó upp á efstu hæðina þar
sem dóttir mín bíður á stigapall-
inum. Hún er fegin að sjá mig
og er ekki bragðið þó hún sé
nakin og húðin á henni rauðari
en venjulega. Ég er undrandi á
nekt hennar og velti því fyrir
mér hver hafi klætt hana úr og
hvort hún hafi lent í einhverju.
Ég tek hana í fangið og sé þá
tvö herbergi. Inn í öðra þeirra
sé ég strák sem er stríðinn á
svipinn. Hann er líka án fata og
á líkum aldri og dóttir mín. Ég
pæli í hvort hann sé hluti af
reimleikum hússins og vilji illt,
en áræð samt að tala við hann.
Þegar ég er komin inn í her-
bergið léttir mér mjög og ég
fatta að þetta er bara söngleikur
sem við eram að leika í og nú
kemur fjörugt atriði þar sem við
eigum að dansa. Strákurinn og
fleiri strákar (stálpaðri samt)
stilla sér upp í hljómsveit og
gera sig klára að spila. Ég byrja
að dansa við dóttur mína og set
hana á háhest. Mér finnst vera
víðáttumikill garður sem hægt er
að ganga út í frá efstu hæðinni.
Hann er lengri en hann er breið-
ur og girðing í honum langsum.
Hinum megin við girðinguna á
kunningjakona mín heima og við
tölumst við yfir girðinguna. Mér
finnst ég þekkja þennan garð
mjög vel og vera öragg í honum.
Ég eyði líka mestum tíma í hon-
um. Þar er bara slétt gras, ekk-
ert annað.“
Ráðning
Þú í sjálfri þér (húsið) virðist
eiga í mestu vandræðum (húsið
er skrýtið, stiginn ekki einn held-
ur fleiri og það er reimt) að taka
skynsamlegar ákvarðanir vegna
hafta sem halda þér fanginni í
óstöðugleika tilfinninga. Þessi
þvingun í sálinni hamlar frjálsum
hugsunum og óþvinguðum sam-
skiptum (dóttirin speglar það) en
ekki vantar löngunina til að
kasta hlekkjunum (strákurinn,
hljómsveitin, söngleikurinn og
dansinn), og þú átt vin (kunn-
ingjakona) sem hefur lykilinn að
nýjum og ónumdum (bara slétt
gras) garði lífs þíns.
Þeir lesendur sem vilja fá
drauma sína birta og ráðna sendi
þá með fullu nafni, fæðingardegi
og ári ásamt heimilisfangi og
dulnefni til birtingar til:
•Þeir lesendur sem vilja fá draumn
síim birta og ráðna sendi þá með
fullu nafni, fæðingardegi og ári
ásamt heimilisfangi og dulnefni til
birtingar til:
Draumstafir
Morgunhlaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavik.