Morgunblaðið - 17.05.1997, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Verðkönnun Samkeppnisstofnunar á veitingahúsum höfuðborgarinnar
Allt að 135% munur á drykkj-
arföngum milli veitingahúsa
MIKILL verðmunur er á drykkjar-
föngum milli veitingahúsa. í verð-
könnun sem Samkeppnisstofnun
gerði fyrir nokkru á 127 veitinga-
húsum á höfuðborgarsvæðinu kom
í ljós að allt að 135% munur reynd-
ist á hæsta og lægsta verði þegar
írski líkjörinn Baiiey’s var annars-
vegar. Þá var verðmunurinn 111%
þegar um írskt kaffi var að ræða
og 110% munur var á hæsta og
lægsta verði gosdrykkjar.
Minnstur var verðmunur á
hæsta og lægsta verði Heineken
bjórflösku eða 43%. Enginn einn
veitingastaður var
áberandi dýrastur í
könnuninni og að
sama skapi var eng-
inn heldur langódý-
rastur. Þeir sem í
þessari könnun voru
með lægsta verðið á
einstaka drykkjum
voru Grandrokk,
Café Jensen, Kína-
hofíð, Hrói Höttur,
Safarí, Vitabar, Askur,
Rauða ljónið, Pítan og 01
ver.
Að sögn Kristínar Færseth
deildarstjóra hjá Samkeppnis-
stofnun hafa svipaðar kannanir
verið gerðar áður, en síðast birti
Samkeppnisstofnun niðurstöðu
úr könnun sem gerð var í maí
árið 1995. „Almennt má segja
að verðbreytingar á þessum
markaði séu litlar á þessu /
tveggja ára tímabili og fylgja
nokkum veginn verð-
breytingum ÁTVR.“
Kristín segir að Samkeppnis-
stofnun hafí á síðasta ári gefíð út
breyttar reglur um verðupplýs-
ingar veitingashúsa og komu þær
í stað fyrri reglna stofnunarinnar
frá 1994. Aðalbreytingin er að nú
ber þeim sem stunda veitingarekst-
ur að gefa upp magn á drykkjar-
föngum auk verðs til að viðskipta-
vinir geti borið saman verð. „Mörg
veitingahús bjóða glas af „víni
hússins" til sölu og það getur ver-
ið erfítt að átta sig á verði og
hvað er í boði ef magns er ekki
getið. í þessari könnun var magnið
á bilinu 12-25 cl.
Einungis fjórðungur
tilgreindi magn
drykkjarfanga."
Kristín bendir á að
verð á „víni húss-
ins“ sé mismun-
andi þó um sama
magn sé að ræða.
Hún segir að á einu
veitingahúsi kosti
glasið 290 krónur en á
öðru 750 krónur. „Auð-
vitað er eðlilegt að verðið
á veitingshúsum sé mismun-
andi. Neytendur þurfa hinsveg-
ar að gera sér grein fyrir verð-
lagi því það leiðir til virkrar
samkeppni.
Kristín undirstrikar að ekki
hafí verið tekið tillit til þjónustu
eða umhverfis en þessi atriði
. kunna að hafa áhrif á verðlagn-
’ ingu veitingahúsanna.
Könnunina i heild er
hægt að nálgast hjá
Samkeppnisstofnun.
Verðkönnun á drykkjum veitingahúsa ■^SÉI m
Vörutegund Fj. veit.- húsa Lægsta verð Hæsta verð Mis- munur Meðalv. í maí ‘97
Gosdrykkur, eitt glas 127 100 210 110% 154
Tvöfaldur vodki í gosi 112 500 830 66% 730
Tvöfaldur gin í gosi 112 500 850 70% 733
Bristol Cream sérrý, 6 cl 100 240 500 108% 324
Martini Bianco, 6 cl 108 220 400 82% 302
Bailey's Irish Cream, einf. 114 170 400 135% 279
Grand Marnier, einfaldur 116 230 450 96% 361
Remi Martin VSOP, einf. 99 350 600 71% 488
Irish Coffee, einf. 111 380 800 111% 605
Beck's, 33 cl flaska 66 350 550 57% 451
Tuborg, 33 cl flaska 47 350 510 46% 451
Egils gull, 33 cl flaska 43 350 510 46% 451
Heineken, 33 cl flaska 43 350 500 43% 452
Viking, 33 cl flaska 40 350 510 46% 456
Tuborg, kranabjór 0,31 24 250 500 100% 360
Tuborg, kranabjór 0,51 24 350 550 57% 468
Egils gull, kranabjór 0,31 19 300 450 50% 367
Egils gull, kranabjór 0,51 20 400 600 50% 497
-jftalchu'ork
íslenska
bútasaums-
blaðið komið
út á ensku
FYRSTA tölublað þessa árs af ís-
lenska bútasaumsblaðinu er komið
út á ensku, The Icelandic Patchwork
magazine. Blaðið sem kemur út í
_______________ 3.000 eintökum
á íslensku er til
að byrja með
prentað í 5.000
eintökum á
ensku. Að sögn
ritstjórans, Vig-
dísar Stefáns-
dóttur, hefur
hún fengið fyr-
irspurnir frá
dreifmgarfyrir-
tæki í Ástralíu
varðandi blaðið og viðtökumar hafa
þegar verið það góðar að hún býst
við að upplagið á ensku verði jafn-
vel stærra næst.
Vigdís segir að blaðið hennar selj-
ist yfírleitt upp hér heima, enda
mikil gróska í bútasaumi. Um 50
bútasaumsklúbbar eru starfandi á
landinu, margir eru auk þess komn-
ir í samband við stóra alþjóðlega
bútasaumsklúbba á alnetinu og von
er á íslenskri heimasíðu um búta-
saum innan tíðar.
íslenska bútasaumsblaðið kostar
698 krónur og í Bandaríkjunum
kostar það sex dollara og fímmtíu
sent.
Verðkönnun Neytendasamtakanna og verkalýðsfélaganna
Vöruverð á landsbyggð-
inni fer lækkandi
Hárburstar
og greiður
SKIPHOLTS apótek hefur hafið
sölu á vörum frá G.B.Kent & Sons
PLC á Bretlandi. Kent hefur m.a.
framleitt hárbursta og greiður frá
stofnun fyrirtækisins árið 1777.
Meðal þess sem selt verður í
apótekinu frá þessu fyrirtæki eru
hár- og baðburstar með náttúruleg-
um hárum, hárburstar sem eiga að
afrafmagna hárið og fleira. Inn-
flutning og dreifíng annast Berg-
fell ehf.
Augnháralitur
frá Kanebo
KOMINN er á markað
augnháralitur frá jap-
anska fyrirtækinu
Kanebo. Um er að
ræða hitanæman
maskara sem heitir
Kanebo Mascara
38°C Silk Perform-
ance. Hann þolir vatn, svita, tár
og alla veðráttu en flettist af án
þess að renna til þegar hann er
bleyttur með 38 stiga heitu vatni.
Hann inniheldur silki sem vemdar
augnhárin, brettir upp á þau og
gefur þeim gljáa.
BILIÐ milli vöruverðs þeirra stóru
verslana sem eru með lágt vöru-
verð og verslana á landsbyggðinni
fer minnkandi. Neytendasamtökin
og verkalýsfélögin gerðu í byijun
mánaðar könnun á verði algengrar
neysluvöru í 54 matvöruverslunum
víða um land. Bónus var með
lægsta vöruverðið en fast á eftir
fylgdu Kea/Nettó og Kaskó.
Vilhjálmur Ingi Árnason hjá
Neytendasamtökunum á Akureyri
segir að svipuð könnun hafí verið
gerð í nóvember á síðasta ári.
Við samanburð kemur í ljós að á
fimm mánaða tímabili hefur
lægsta verð hverrar vöru sem
yfírleitt er að fínna hjá stórmörk-
Gróðurvinin
er í Mörkinni
Ráðleggjum um plöntuval.
Sendum plöntur hvert á land sem er.
Gerum ræktunarsamninga til lengri tíma.
Auðvelt að semja um hagstæð kjör
ef um stærri kaup er að ræða.
Góð lausn fyrir fyrirtæki, félagasamtök,
húsfélög og bæjarfélög.
Tré og runnar
Lauftré • Skrautmnnar • Barrtré
• Harðgerðar, stórar og fallegar plöntur
eru aðalsmerki okkar. Þið fáið vel
ræktuð lauftré skrautrunna og barrtré
í miklu úrvali.
• Til eru þrjú veggspjöld með myndum
og upplýsingum um skrautrunna,
lauftré og barrtré
Opnunartímar:
• Virkadagakl. 9-21
• Um helgar kl. 9-18
GRÓÐRARSTÖÐIN
STJÖRNUGRÓF18, SÚV 581 4288, FAX5812228
Sækið sumarið til okkar
.'jMork
^30
uðum eða í lágvöruverðsverslun-
um hækkað að jafnaði um 5,2%
en lækkað að meðaltali um 2,5%
úti á landi. Bilið minnkar því milli
verslana úti á landi og á höfuð-
borgarsvæðinu."
Skráð var verð á 128 vöruteg-
undum, þ.ám. landbúnaðar-, ný-
lendu-, drykkjar-, og hreinlætis-
vörum. Vægi hvers vöruflokks í
könnuninni er í samræmi við nýj-
ustu neyslukönnun Hagstofu Is-
lands, nema þegar kjöt er annars-
vegar. Er það einkum vegna þess
að erfítt er að fínna sambærilegar
kjötvörur þ.s. enginn samræmdur
gæðastaðall er til.
Fjarðarkaup og
Kaskó hafa lækkað verðið
Vilhjálmur segir að á ísafírði
hafí orðið bylting í vöruverði með
tilkomu Samkaupa þar í bæ. „Nú
geta ísfírðingar keypt inn á stór-
markaðsverði höfuðborgarinnar
en það sama er ekki að segja um
litlu búðimar annarsstaðar á vest-
fjörðum. Þær voru með hæsta
verðið í könnuninni.
Hann segir athyglisvert að
verslunin Fjarðarkaup sem var um
21% dýrari en Bónus í síðustu
könnun sé einungis 15% dýrari
núna. í Kaskó hefur verðið líka
lækkað síðan í fyrra. Þeir eru
núna 9% dýrari en Bónus sé miðað
við allar búðir í könnuninni.
4% verðmunur á
Bónus og Nettó
„Engum blöðum er að fletta um
að ódýrast er að kaupa inn í Bón-
us, en síðan kemur Nettó á Akur-
eyri sem er 6% dýrari og Kaskó í
Reykjanesbæ með 9% hærra verð.
í þessu tilfelli er miðað við allar
búðimar í könnunni. Séu þessar
verslanir þijár einar og sér bornar
saman munar einungis 4% á
Kea/Nettó og Bónus og 7% á
Kaskó og Bónus.“
- Dýmstu búðimar í könnun-
inni?
„Það er óbreytt, búðimar á vest-
fjörðum, annarsstaðar en á ísafírði
em dýrastar svo og verslanir á
austfjörðum. Þessar búðir hafa
ekki möguleika á að keppa við
stærri verslanir, þær ná ekki að
gera eins hagstæð innkaup. Það
má þó taka fram að í nóvember
sl. vom þær 50-60% dýrari en
Bónus en nú munar „einungis”
45-50%.“
Lækkun vegna
verðkönnunar
Sem dæmi um þau áhrif sem
verðkannanir hafa á kaupmenn
segir Vilhjálmur að í einni búðinni
á höfuðborgarsvæðinu hafí verið
svo illa verðmerkt að ógjömingur
reyndist að hafa hana með í könn-
uninni þann dag sem hún fór fram.
„Farið var 2 dögum seinna í versl-
unina og þá hafði verðið lækkað
um 15-20% á þeim vömliðum sem
starfsmenn okkar höfðu náð verði
á tveimur dögum áður. Kaupmað-
urinn vissi að verðkönnun var í
gangi og var búinn að lækka verð-
ið ef við skyidum koma aftur.
Þetta sýnir hvaða áhrif verðkann-
anir hafa og hversu mikilvægt er
að þær séu gerðar óvænt og eng-
inn viti um þær fyrirfram."
- Hvaða niðurstöðu dragið þið
hjá Neytendasamtökunum af þess-
ari verðkönnun?
„Hún er sú að litlu búðimar
hafa náð að lagfæra verðið hjá sér
og að svokallaðar lágvömverðs-
verslanir hafa ekki getað haldið
verðinu jafnlágu og áður því að
maðaltali hefur verð hjá þeim
hækkað um 5,2%.“