Morgunblaðið - 30.11.1997, Side 2

Morgunblaðið - 30.11.1997, Side 2
2 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins Umboðsmaður almennings gegn skattkerfinu kemur til álita Morgunblaðið/Kristinn DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sést hér t.h. ræða við Guð- mund H. Garðarsson, formann Samtaka eldri sjálfstæðismanna. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra telur að það hljóti að koma til álita að koma á fót einhverskonar um- boðsmanni almennings gagnvart skattkerfinu eins og gert sé víða um heim. Þetta kom fram í máli hans á flokksráðs- og formannafundi Sjálf- stæðisflokksins á Hótel Sögu í gær. Davíð sagði að Sjálfstæðisflokk- urinn hefði síðustu árin notað þá áhrifastöðu sem stuðningur almenn- ings hefði tryggt honum til að draga úr opinberum umsvifum og auka frelsi á öllu sviðum. „Möguleikar hins opinbera til að hafa afskipti af almennu efnahagslífi hafa verið skertir. Með öðrum orðum hefur flokkurinn haft forgöngu um að draga jafnt og þétt úr möguleikum hins pólitíska valds til að hafa úrslita- áhrif á þessa þætti. Og þar sem opin- bert vald er áfram nauðsynlegt hafa verið settar reglur til að hagsmunir almennings séu ekki fyrir borð born- ir við beitingu slíks valds. Þar má nefna ný stjómsýslulög og lög um upplýsingaskyldu stjómvalda. Bæði þessi lög hafa haft víðtæk áhrif. Tel ég að næst hljóti að koma til álita að koma á fót einhvers konar um- boðsmanni almennings gagnvart skattkerfinu, eins og gert er víða um heim,“ sagði Davíð. Víti til vamaðar í ræðu sinni sagði Davíð að breski íhaldsflokkurinn væri staðsettur á líkum stað á hinu pólitíska litrófí og Sjálfstæðisfiokkurinn, en væri að öðru leyti um flest ólíkur Sjálfstæðis- flokknum, enda flokkarnir af ólíkum rótum sprottnir. „Hans örlög undirstrika að fátt er fremur fallið til þess að veikja tiltrú stjórnmálaflokka en það þegar deilur innan þeirra keyra úr hófi og þær að auki sífellt bomar á torg. Góður árangur þess flokks á flestum sviðum dugði ekki til að vega upp á móti þeirri vantrú sem innbyrðis sundurþykkjan olli. Allt er það víti til vamaðar. Hér á landi eigum við mörg þess háttar dæmi af vinstri væng stjórn- málanna. Alþýðuflokkurinn naut ekki góðs af ágætum árangri síðustu ríkisstjórnar vegna innbyrðis tog- streitu og undarlegra starfshátta á þeim bæ. Nú hafa þeir hafið útflutn- ing á þeirri þekkingu sinni og klofið Kvennalistann og eru að koma illu til leiðar í Alþýðubandaiaginu. Það er þó huggun harmi gegn að Ágúst Einarsson er nú genginn í Alþýðu- flokkinn í áttunda sinn, en fræði- menn halda því fram að hann gangi oftast í flokkinn á þessum árstíma. Auðvitað má hafa töluvert gaman af þessu sameiningarbrölti þeirra alþýðuflokksmanna um stund, en kúnstugt er að í slíkum umræðum skuli aldrei vikið orði að málefnaleg- um grundvelli slíks samstarfs," sagði Davíð. Súrmetisát á þorra Hann sagði í ræðu sinni að sumir létu í veðri vaka að pólitísk skipting væri eiginlega angi af hinu liðna - einskonar súrmetisát á þorra, óþarft með öllu en ánægjuleg upprifjun á því sem einu sinni var. „Þeir sömu halda því fram að nú snúist stjórnmál nánast um embætt- islega útfærslu á stjórnarathöfnum og hafi ekkert með pólitíska hugsun eða hugsjónir að gera. Grátlegt er að það eru einkum fjölmiðlar sem ættu að vera í fararbroddi fyrir ftjálsri og djarfmannlegri þjóðmála- umræðu, sem klifa helst á slíkum klisjum," sagði Davíð. „Ef þjóðmálaumræðan er orðin óþörf vegna þess að meginákvarð- anir hafa verið teknar og aðeins hin embættislega útfærsla er eftir, væri stjórnmálastarfsemi óþörf og ekki myndi ég súta það, því þá værum við komin æði nálægt paradís á jörðu og hver væri á móti henni?“ Langar umræður voru á fundinum í gær um sjávarútvegsmál og tók fjöldi fundarmanna til máls. Sá hluti fundarins var lokaður fjölmiðlum. Töpuðu pramma austan Vest- mannaeyja NORSKUR dráttarbátur missti frá sér pramma nokkru austan við Vestmannaeyjar upp úr klukkan 8 í gærmorgun. Vest- mannaeyjaradíó sendi viðvörun til skipa og báta en um hádegi í gær hafði pramminn ekki fund- ist en leit hófst úr lofti eftir hádegi i gær. Báturinn var með prammann á leið til Færeyja og þegar hann var staddur talsvert austan við Vestmannaeyjar, suður af Vík, sáu skipveijar að pramminn var horfinn. Gerðu þeir þegar við- vart og hófu að svipast um eftir prammanum um leið og birta tók. Leituðu þeir prammans í einnar mílu radíus út frá staðn- um þar sem þeir töldu að pramminn hefði losnað frá bátn- um en fundu ekki og töldu und- ir hádegi hugsanlegt að hann hefði sokkið. Vestmannaeyja- radíó sendi áfram út viðvörun. Pramminn hafði verið notaður við dýpkunarframkvæmdir við Eyjar í haust og fluttur til Þor- lákshafnar ásamt öðrum búnaði. Eins og menn rekur minni til varð það slys á dögunum þar að krani gaf sig þegar verið var að hífa bát sem notaður hafði verið við framkvæmdirnar um borð í flutningaskip í Þorláks- höfn. Breiður bakhópur nefndar um framtíð fjarskiptamála Erlendir sérfræðingar munu veita ráðgjöf FORYSTUMENN nokkurra er- lendra stórfyrirtækja á sviði fjar- skiptamála eru væntanlegir hingað til lands til að veita ráðgjöf nefnd sem samgönguráðherra hefur skip- að til að vera honum til ráðuneytis um stefnumótun í fjarskiptamálum.- Að söpi Guðjóns Más Guðjóns- sonar, stjómarformanns OZ og for- manns nefndarinnar, kemur hingað fulltrúi sænska fjarskiptafyrirtæk- isins Ericson, en hann hefur verið f forsvari fyrir mótun framtíðar- stefnu Ericson til ársins 2005, og einnig kemur hingað aðstoðarfram- kvæmdastjóri tölvufyrirtæksins Cisco, sem talið er að verði ráðandi í framleiðslu tæknibúnaðar fyrir netþjónustu og breiðbandsþjón- ustu. Koma þessir aðilar hingað til lands fyrir og eftir næstu áramót til starfa í bakhóp nefndarinnar. Guðjón sagði að meðal þeirra innlendu aðila sem starfa í bakhóp nefndarinnar séu m.a. fulltrúi frá Pósti og síma hf. og einnig fulltrúi frá stjórn Pósts og síma, auk sér- fræðinga á fjármálasviði og tækni- sviði. Þá starfa með nefndinni að- stoðarmenn forsætisráðherra, sam- gönguráðherra og viðskiptaráð- herra. Nefndarmenn valdir vegna bakgrunns og þekkingar Guðjón sagðist telja það mikil- vægt við nefndina að hún er alls ekki á vegum neins eins fyrirtækis og nefndarmenn hefðu verið valdir vegna þekkingar sinnar og bak- grunns. Þannig kæmu þeir Eyþór Arnalds framkvæmdastjóri OZ inn í nefndarstörfin algerlega óháð störfum þeirra hjá fyrirtækinu. „Við erum mjög heppnir að fá til liðs við okkur Ólaf Jóhann Ólafs- son, sem ég efast um að hafi áður sinnt nefndarstörfum hérlendis. Hann hefur án efa mikla reynslu í að endurskipuleggja og endurhugsa aðstæður. Einnig erum við mjög heppnir að fá til liðs við okkur Þor- stein Þorsteinsson framkvæmda- stjóra hjá Búnaðarbankanum, en hann hefur mikla reynslu af alþjóð- legum fjármálum vegna vinnu hans hjá Norræna fjárfestingarbankan- um. Sömu sögu er að segja um Frosta Bergsson, forstjóra Opinna kerfa, en hann er fyrrverandi starfsmaður hjá Pósti og síma og þekkir vel til þessara mála,“ sagði Guðjón. Tveir árekstrar á einbreiðri brú ÞRÍR karlmenn voru fluttir á sjúkra- hús eftir tvo árekstra á sömu ein- breiðu brúnni við Fögrubrekku í Hrútafírði sem er rétt norðan við Brú. Varð annar áreksturinn laust fyrir kl. 21 á föstudagskvöld en sá síðari um kl. 10 í gærmorgun. Lítils- háttar frost var og launhált að sögn lögreglu á Hólmavík sem kom á stað- inn. í fyrri árekstrinum lentu saman fólksbíll á suðurleið og jeppi sem var á leið norður. Maður í fólksbílnum skarst nokkuð á höfði og var fluttur til aðhlynningar á heilsugæslustöðina á Hvammstanga. í síðari árekstrinum lentu einnig saman fólksbíll og jeppi. Voru tveir karlmenn úr fólksbílnum fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur nokkuð slasaðir. Árekstrarnir voru allharðir og eru báðir fólksbílarnir taldir ónýtir og jeppamir eru tölu- vert skemmdir. A ► 1-64 VíniA og vinnan að skilja ►Talsmenn fyrirtækja á íslandi eru yfirleitt sammála um að mis- notkun áfengis á vinnustöðum hafi minnkað á síðari árum. /10 Jörðin hitnar og Fuji bráðnar ►Mikið er rætt og ritað í Japan þessa dagana um væntanlega ráð- stefnu um loftslagsbreytingar í Kyoto. /12 Löngjeppaferð ►Freyr Jónsson og Jón Svanþórs- son leggja í dag upp til Suður- skautslandsins, þar sem þeir munu aka tveimur sérbúnum Toyota Land Cruiser. /20 Vöruþróun verið lykill- inn að velgengni ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Ólaf Sig- mundsson í Formax./30 B ► 1-20 Norðurhjarinn hjarnar við ►Stjómendum fyrirtækja og sveitarfélaga á norðausturhorni landsins hefur tekist vel að nýta góðærið í sjávarútvegi. /1-5 Flauelismjúkir tónar ►Jóhanna Þórhallsdóttir og Tóm- as R. Einarsson segja frá nýrri plötu og argentískum tangó. /6 AA taka öllu með stóískri ró ►Dagmar Koeppen hjálpar fólki sem finnst það komið úr tengingu við sjálft sig, náttúruna og Guð. /8 FERÐALÖG ► 1-4 Tékkneskir traktorar og gómsætir réttir ►Af veitinga- og skemmtistaðn- um Zetor í Helsinki. /2 Beðið eftir heimþránni ►í Svíþjóð rekur Hafliði Gíslason hestaleigu og reiðskóla með ís- lenskum hestum og vegnar vel. /4 ID BÍLAR ► 1-4 Bílgreinasambandið vill fækka fiokkum ►Tekjur ríkissjóðs af bílum 24 milljarðar króna á ári. /2 Reynsluakstur ►Frísklegur og frumlegur Lancia Y. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► 1-16 , Rösk 50% jákvæð í garð lífeyrissjóðanna ►Skoðanakönnun Hagvangs um viðhorf almennings til almennu líf- eyrissjóðanna. /1 FASTiR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 50 Leiðari 32 Stjömuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavfkurbréf 32 Fólk (fréttum 54 Skoðun 36 Útv./sjónv. 52,62 Minningar 40 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Dægurtónl. 16b Bréf til blaðsins 48 Mannlífsstr. 20b Hugvekja 50 Gárur 20b Idag 50 INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.