Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 33
32 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 33
JKIregiitstMjKltóifr
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FORSETI
í VANDA
CLINTON Bandaríkjaforseti á í vök að verjast og enn er
óljóst hvernig honum reiðir af vegna ásakana um náið
samband við Monicu Lewinsky, lærling í Hvíta húsinu, og að
hafa hvatt hana til meinsæris. Á blaðamannafundi í gær
neitaði forsetinn þessum ásökunum harðlega og
afdráttarlaust.
Clinton er fyrsti forseti Bandaríkjanna sem á valdastóli
þarf að sæta svo nákvæmri skoðun og frásögnum fjölmiðla
um einkalíf sitt. Það var viðtekin venja bandarískra fjölmiðla,
allt þar til seint á síðasta áratug, að fjalla ekki um einkalíf
valda- og áhrifamanna bandarísks þjóðfélags, með þeim hætti
sem gert hefur verið um einkalíf Clintons, allar götur frá
árinu 1992. Upplýsingar, sem fram hafa komið á síðari árum
sýna að einkalíf fárra bandarískra forseta á þessari öld a.m.k.
hefði þolað návígi fjölmiðlanna. Því er ekki úr vegi að spyrja
hvað valdi þessari breytingu. Hefur siðferðisvitund
Bandaríkjamanna tekið slíkum stakkaskiptum?
Það skal dregið í efa. Hins vegar er ljóst, að fjölmiðlar þar
eins og annars staðar telja sér heimilt að ganga lengra en
nokkru sinni fyrr í umfjöllun um einkalíf fólks. Það er
rökstutt með því, að þeir, sem bjóði sig fram til starfa í þágu
hins almenna borgara verði að sæta því, að einkalíf þeirra
verði fréttaefni fjölmiðla. Á þau rök er hægt að fallast að
hluta til en ekki öllu leyti. Einhvers staðar eru takmörk fyrir
því, hvað á heima í fjölmiðlum og hvað ekki. Eina aðhaldið,
sem dugar gagnvart fjölmiðlum í þeim efnum, er það aðhald,
sem almenningm', þ.e. lesendur blaða og áhorfendur
sjónvarpsstöðva veita þeim. Gangi fjölmiðlarnir fram af fólki
geta þeir búizt við að missa viðskiptavini.
En jafnframt er sú hætta fvrir hendi, að hið hæfasta fólk
fáist ekki til opinberra starfa vegna þess, að það vill ekki
kalla yfir sig og sína nánustu athygli fjölmiðlanna. Þess
vegna er hægt að gera þá kröfu til ábyrgra fjölmiðla, að þeir
kunni sér hóf.
Það er jafnframt ljóst, að pólitískir andstæðingar leggja sig
fram um að notfæra sér mál sem þetta til þess að koma
forsetanum á kné eða hvaða öðrum stjórnmálamanni, sem
kæmist í álíka aðstöðu. Það er hyggilegt að fella enga dóma
fyrirfram í máli, sem þessu. Varla fer hjá því, að smátt og
smátt komi sannleikurinn í ljós. Þegar svo gífurlegri orku er
beitt til þess að upplýsa allt um samskipti tveggja
einstaklinga hljóta menn að komast a.m.k. nálægt hinu rétta.
ATLANTA
UM HELGINA birtist frétt hér í Morgunblaðinu þess
efnis að líklega hafí hagnaður flugfélagsins Atlanta á
liðnu ári orðið nálægt 290 milljónum króna. Þetta eru
ánægjuleg tíðindi af þessu unga flugfélagi, sem hjónin og
aðaleigendur félagsins, Arngrímur Jóhannsson og Þóra
Guðmundsdóttir, hafa byggt upp á aðeins örfáum árum.
Undanfarin ár, hefur félagið verið í örum vexti og tekist
hefur að ná góðum hagnaði af rekstrinum. Árið 1995 nam
hagnaðurinn 192 milljónum króna og árið 1996 reyndist
hagnaðurinn vera 213 milljónir króna.
Atlanta rekur nú 17 þotur. Þar af á félagið fimm þotur, er
með aðrar fimm á kaupleigu og leigir hinar sjö. Stórhugur og
útsjónasemi hafa ráðið ríkjum í uppbyggingu félagsins.
Atlanta er skemmtilegt og lýsandi dæmi um framtak
einstaklinga í atvinnulífi.
FOSTURBARN
í FJARLÆGÐ
HÁTT á þriðja þúsund munaðarlausra, yfirgefinna bama
víða um heim nýtur húsaskjóls, menntunar og
umönnunar á vegum ABC-hjálparsamtakanna, sem em
alíslenzk, þótt þau vinni í samstarfi við hliðstæð erlend
samtök. Nálægt 1.700 íslenzkir stuðningsaðilar greiða
mánaðarlega fimm til fimmtán hundruð króna framlag til
„fósturbarns í fjarlægð“ til framfærslu og menntunar þess.
Þúsundum barna, sem bjuggu við neyð án vonar um betri tíð,
er nú búin leið til sjálfshjálpar.
Þessi þróunarhjálp - í þágu barna í neyð - nær nú til fleiri
aldurshópa. Hún er réttur vettvangur fyrir þá sem vilja láta
gott af sér leiða. Á afmælishátíð ABC-hjálparstarfsins á
Hótel íslandi á morgun, miðvikudag, er kjörið tækifæri til að
ganga til liðs við góðan málstað.
Sögulegri heimsókn Jóhannesar Páls páfa II til Kúbu lokið
.
Reuters
JOHANNES Páll páfi gengur að altarinu við messu sem hann hélt á sunnudag á Byltingartorginu í Havana að viðstöddum tugþúsundum manns. I bak-
sýn gnæfir járnskúlptúr af byltingarhetjunni Ernesto „Che“ Guevara.
„Sál Kúbu
er kristin“
Fimm daga heimsókn Jóhannesar Páls páfa
II til Kúbu lauk á sunnudag. Ásgeir Sverris-
son segir frá málflutningi páfa og veltir fyrir
sér áhrifum heimsóknarinnar.
FIMM DAGA heimsókn Jó-
hannesar Páls páfa II til
Kúbu lauk á sunnudag.
Þessi heimsókn hans heil-
agleika reyndist sá sögu-
legi viðburður sem fyrirfram hafði
verið búist við en þetta er í fyrsta
skipti í 500 ára sögu Kúbu sem trú-
arleiðtogi katólskra sækir eyjar-
skeggja heim. Páfi var venju fremur
ómyrkur í máli, flutti boðskap sátta
og einingar og hvatti Kúbumenn til
að leita huggunar og blessunar í náð-
arfaðmi kirkjunnar. Hann gagnrýndi
með beinskeyttum hætti hið komm-
úníska stjómkerfi á Kúbu en hvatti
jafnframt til þess að endi yrði bund-
inn á einangrun stjórnar Fidels
Castro Kúbuleiðtoga á alþjóðavett-
vangi. Þessi heimsókn páfa markar
þáttaskil í sögu Kúbu og vonir hafa
vaknað um að stjórnvöld verði við
kröfum um að andlegt frelsi verði
aukið.
Hápunktur heimsóknar páfa til
Kúbu var messa hans á Byltingar-
torginu í höfuðborginni, Havana, á
sunnudag. Á fremsta bekk í dökkum
jakkafötum sat sjálfur Fidel Castro
og höfðu viðstaddir á orði að tími
kraftaverkanna væri hvergi nærri
liðinn.
„Frelsi, frelsi“
Jóhannes Páll páfi varð 38 sinnum
að gera hlé á máli sínu vegna við-
bragða viðstaddra og sá ótrúlegi at-
burður gerðist að menn tóku að
hrópa í kór „libertad, libertad"
(frelsi, frelsi) en um 500.000 manns
sóttu messuna. I eitt skiptið stóð
Castro á fætur og virtist
brosa til þegna sinna er
fólkið söng í kór: „Lifi hin
frjálsa Kúba“ og „Fólkið
stendur með þér Jóhannes
Páll“.
Páfi hvatti Castro til þess að
sleppa úr haldi pólitískum fóngum á
eyjunni en talið er að 600 til 1.000
manns sitji í fangelsum þar vegna
skoðana sinna. Páfi sagði öll þau
stjórnkerfi óréttlætanleg með öllu
sem heftu frelsi manna og sagði að
„náðarandi Krists“ hefði sent hann
til Kúbu til að „frelsa þá sem sættu
kúgun“. Engum viðstaddra gat
blandast hugur um að orðum þessum
var beint til stjórnvalda.
Þessi orð páfa voru mjög í sam-
ræmi við málflutning hans í öðrum
þeim ræðum er hann flutti á meðan
hann dvaldist á Kúbu. Gagnrýnin á
stjórn Castros fór þó stigvaxandi eft-
ir því sem á heimsóknina leið en tón-
inn hafði hans heilagleiki gefið í
ávarpi sem hann flutti við komu sína.
Messunnar á Byltingartorginu höfðu
menn hins vegar beðið með mestri
eftirvæntingu því þar slær sjálft
hjarta stjórnar Castros og þeirrar
heimspeki sem hann hefur fylgt á
þeim tæplega 40 árum sem hann hef-
ur verið einráður á Kúbu.
Ríkið tryggi trúfrelsi
Páfi fór einnig hörðum orðum um
sjálfselsku mannsins og þrotlausa
viðleitni hans til að upphefja sjálfan
sig. Hann lýsti yfir því að hlutverk
ríkisvaldsins væri að skapa andrúms-
loft samstöðu og sátta og tryggja
löggjöf sem kvæði á um skýlausan
rétt hvers og eins til að iðka trú sína.
Var þessi lítt dulda gagn-
rýni á þá guðleysisstefnu
sem Castro hefur lengst-
um boðað til þess fallin að
taka undir málfiutning
kirkjunnar manna á eyj-
unni sem leitað hafa leiða til að auka
starfsemi sína en eiga allt sitt undir
duttlungum stjórnvalda.
„Overjandi" viðskiptabann
í samræmi við boðskap sinn um
sættir og mannréttindi gagnrýndi
páfi hins vegar viðskiptaþvinganir
þær og einangrun sem Kúba sætir á
alþjóðavettvangi undir forustu
Bandaríkjamanna. Páfi vék að þessu
bæði í ávarpi sínu við komuna til
Kúbu og í messunni í Havana. Hörð-
ustu orðin lét hann hins vegar falla
er hann var á leið um borð í þotuna
sem flutti hann heim til Italíu. Sagði
hann viðskiptabann Bandaríkja-
manna „óréttlátt og siðferðislega
óverjandi" um leið og hann hvatti til
þess að það yrði endurskoðað. Við
komu sína hafði páfi sagt að Kúbu
bæri að opna sig gagnvart umheim-
inum og umheiminum bæri að opna
sig gagnvart Kúbu. Endurtók hann
þessi orð í Havana á sunnudag.
Sérstaka athygli vakti að páfi vék
að kúbönskum útlögum í Bandaríkj-
unum sem haldið hafa uppi linnu-
lausri baráttu gegn Castro. Hvatti
hann menn til að forðast „tilgangs-
laus átök“ en leita þess í stað leiða til
að stuðla að andrúmi ,jákvæðrar
umræðu og gagnkvæms skilnings".
Höft „ný-frjálshyggjunnar“
Þótt gagnrýni á hina kommúnísku
stjórnarhætti og mannréttindabrot
Kúbustjórnar bæri hæst
tók páfi hins vegar undir
ýmislegt í málflutningi Ca-
stros. Lét hann afdráttar-
laus ummæli falla um mis-
skiptingu auðsins, „ný-
frjálshyggjuna" (á spænsku er þessi
stefna markaðsvæðingar og óheftra
viðskipta jafnan nefnd „neo-liberal-
ismo“) og þær kvaðir sem alþjóðleg-
ar fjármálastofnanir legðu á lönd og
þjóðir. I messunni í Havana á sunnu-
dag sagði hans heilagleiki: „Á hinn
bóginn verður þess víða vart að sér-
stök tegund kapítalisma ný-frjáls-
hyggjunnar er á ný í sókn sem setur
manninn undir blind lögmál markað-
arins og bindur framþróun þjóða við
þessi sömu lögmál.“ Páfi beindi
einnig orðum sínum að stofnunum á
borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og
sagði að afdráttarlausar kröfur
slíkra stofnana um breytingar á
efnahagssviðinu leiddu til þess að
hinir ríku yrðu ríkari en hinir fátæku
enn fátækari.
Þessi orð páfa voru í samhljómi við
þau sem Castro lét falla er hann
bauð páfa velkominn til Kúbu. í
magnaðri ræðu, sem seint gleymist
þeim er á hlýddu, gerði Castro grein
fyrir sögu Kúbu og glímu þjóðarinn-
ar við erlent nýlenduvald og fátækt.
Kvaðst hann vera þeirrar skoðunar
að löngum hefði verið samhljómur
með boðskap kirkjunnar og þeirri
hugmyndafræði sem stjórn hans
hefði fylgt. Um margt minnti inntak-
ið í ræðu Castros á málflutning
þein-a kirkjunnar manna í Ró-
mönsku Ameríku sem boðað hafa
svonefnda „frelsunarguðfræði".
Kröftug framganga páfa
Þessi sögulega heimsókn Jóhann-
esar Páls páfa II til Kúbu þótti
takast vonum framar. Margir höfðu
látið í ljós áhyggjur vegna þess að
dagskráin yrði páfa um megn en
hann er orðinn 77 ára gamall og
heilsuveill. Páfi sýndi hins vegar eng-
in teljandi merki þreytu og undruð-
ust margir vafalaust þann mikla
styrk er hann sýndi t.a.m. við mót-
tökuathöfnina sem var löng og fór
fram í miklum hita. Ræður sínar
flutti páfi af meiri þrótti en menn
hafa lengi átt að venjast og á lýta-
lausri spænsku.
Af sjónvarpsmyndum að dæma fór
vel á með þeim páfa og Castro.
Kúbuleiðtoginn sýndi gesti sínum
mikla virðingu og einkenndist fram-
ganga hans við hans heilagleika öll
af mikilli vinsemd og kærleika.
Líkt og vitað var hugð-
ist Castro nýta þessa
heimsókn til að freista
þess að afla stuðnings við
afnám viðskiptabanns
Bandaríkjanna og til að
styrkja stjórn sína í sessi. Hafi hörð
og óvægin gagnrýni páfa komið hon-
um á óvart sýndi hann þess engin
merki.
„Sigur" kirkjunnar
„Siguivegari" þessarar heimsóknar
er hins vegar án nokkurs vafa kat-
ólska kirkjan á Kúbu. Sú staðreynd
að þjóðinni gafst í fimm daga tæki-
færi til að drekka í sig boðskap kirkj-
unnar er nokkuð sem menn hefðu fyr-
irfram talið óhugsandi að gerst gæti á
Kúbu. „Sál Kúbu er kristin,“ sagði
páfi í messunni í Havana. Tíminn einn
mun leiða í ljós hvort þær sálarhrær-
ingar ná að hafa mótandi áhrif á fram-
tíð kúbönsku þjóðarinnar.
+
Gagnrýndi
einangrun
Kúbu
Páfi flutti
ræður af
miklum þrótti
Líflegur umræðufundur um stöðu Yestmannaeyja i nútíð og framtíð
Landvinnslan þróuð í
átt til markaðarins
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
MARGVISLEG sjónarmið komu fram á fundinum í Eyjum um stöðu atvinnumála í bæjarfélaginu. Fundurinn var
haldinn á sunnudag er aldarfjórðungur var liðinn frá upphafi Eyjagoss.
Almennur fundur um
stöðu Vestmannaeyja
í nútíð og framtíð var
haldinn í Eyjum á
sunnuda^ að frum-
kvæði bæjarstjórnar.
Meðal fiölmar^ra
fundargesta var
Grímur Gíslason
fréttaritari.
SJÖ frummælendur voru á
fundi um stöðu Vestmanna-
eyja og var víða komið við.
Að loknum framsöguerind-
um urðu líflegar umræður.
Fram kom að verulegar breytingar
eru fyrirhugaðar í vinnslu bolfisks í
Eyjum og á vinnutíma starfsfólks. Þá
kom fram að brestur á sfldveiðum í
haust hefði skilað 80 milljónum kr.
minna í launaumslög Eyjamanna en
vonast var til.
Örn D. Jónsson, verkefnisstjóri
Ritts verkefnis á Islandi, var fyrsti
frummælandinn og hann ræddi um
byggðaþróun á landinu. Örn sagði að
fjölbreytni í atvinnulífi væri mjög
mikilvæg til að halda fólki í byggðum
og einnig væri mikilvægt að krefjandi
verkefni væru fyrir hendi fyrir fólk
sem væri búið að mennta sig. Hann
taldi að það hefði verið mjög heilla-
vænlegt fyrir Vestmannaeyjar að
koma á fót Þróunarsetri Háskólans.
Uppbygging þekkingar
Bjai'ki Brynjarsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarfélags Vestmannaeyja,
sagði frá starfi Þróunarfélags Vest-
mannaeyja sem stofnað var fyrir einu
og hálfu ári. Hann sagði að sú leið hefði
verið farin að byggja upp nýsköpunar-
umhverfi í Vestmannaeyjum og verið
væri að vinna að stofnun fjáifestingafé-
lags. Þá væri verið að koma á fót
svokölluðu athafnaveri ungs fólks.
Hann sagði að eitt af verkefnum fé-
lagsins væri að stuðla að uppbygg-
ingu þekkingarfyrirtækja og koma á
fót smæri'i framleiðslufyrirtækjum.
Þá væri unnið að því að koma á fót
fyrirtækjaneti og ýmiskonar fjar-
vinnsla væri í skoðun. Varðandi fisk-
vinnsluna og útgerðina sagði Bjarki
að verið væri að skoða hvernig bregð-
ast mætti við fækkun í bátaflotanum
og því hversu mikið af óunnum fiski
færi burtu frá Eyjum.
Davið Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri tölvufyrirtækisins
Tölvunar, fjallaði um möguleikana
sem tölvutæknin byði upp á og hvað
það þýddi fyrir staði eins og Vest-
mannaeyjar. Hann sagði frá því að nú
stjórnaði Tölvun tveimur
alþjóðlegum verkefnum
sem væru samstarfsverk-
efni jaðarbyggða í Evrópu.
Þá væri verið að vinna í
Evrópusamstarfi að upp-
lýsingatækniverkefni sem frystihúsin
í Eyjum væru þátttakendur í.
Frekari fullvinnsla
Sighvatur Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar,
fjallaði um rekstur fyrirtækisins sem
hann sagði ekki hafa gengið sem
skyldi á síðasta ári. í Eyjum væri lögð
gífurleg áhersla á vinnslu uppsjávar-
fisks og framleiðslan hefði verið að
aukast ár frá ári og vinnslutíminn að
lengjast. Hann sagði að ekki væri til
vinnuafl í Eyjum til að sinna toppum í
framleiðslunni og nú væri svo komið
að leitað væri logandi ljósi í sveitum
Suðurlands að karlmönnum til vinnu á
loðnuvertíð.
Sighvatur sagði að helstu sóknar-
færi fyrirtækisins lægju í bolfisk-
vinnslu en tapið af vinnslunni væri
áhyggjuefni og ekki hægt að réttlæta
það endalaust. Þvi hefðu stjómendur
fyrirtækisins á undanförnum mánuð-
um leitað allra leiða til að leysa þenn-
an vanda. Meginniðurstaða stjóm-
enda Vinnslustöðvarinnar væri að þeir
teldu framtíð landvinnslunnar bjarta
en taka þyrfti hana taki og þróa í átt
til markaðarins. Auka þyrfti vöruþró-
un og framleiða frekar unnar afurðir.
Breyttur vinnutími
Sighvatur sagði að eitt af þeim
vandamálum sem stjórnendur
Vinnslustöðvarinnar hefðu glímt við
væri hversu lítil framleiðnin í bolfisk-
vinnslunni væri. Til að bregðast við
því hafi þeir átt í viðræðum við verka-
lýðsfélögin í Eyjum og Þorlákshöfn
um breyttan vinnutíma starfsfólks.
Pásum yrði hætt og tekin upp ein-
staklingspremía á nýjan leik sem
myndi að þeirra mati auka framleiðni
og bæta afkomu fyrirtækisins. Jafn-
framt væri hugmyndin að hækka laun
starfsfólksins. I flestum vestrænum
löndum hefði orðið sú þróun að fólk
byrjaði fyrr á morgnana og hætti fyrr
á daginn eða að unnið væri á vöktum.
Samkvæmt viðhorfskönnum sem
gerð hafi verið meðal starfsfólksins
væri meirihluti þess hlynntur breyt-
ingu. Hann sagði að hugmyndin hefði
strax hlotið góðan hljómgrunn í Þor-
lákshöfn þar sem þeir teldu sig hafa
komist að samkomulagi við verkalýðs-
félagið á staðnum um þriggja mánaða
tilraun. Skilningur virtist vera minni í
Eyjum á því að þjóðfélagið
og þarfír atvinnulífsins
væru að breytast.
Hann fjallaði um yfírvof-
andi verkfall sjómanna og
taldi afleiðingar þess geta
orðið geigvænlegar fyrir Vestmanna-
eyjar sem byggðu afkomu sína að svo
stórum hluta á loðnuvertíðinni.
Vilja frekar í skúringar
Jón Kjartansson, formaður Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja, sagðist
uggandi vegna fólksfækkunar í Eyj-
um. 7.539 heilir atvinnuleysisdagar
hefðu verið skráðir á síðasta ári. Þá
hafi 4.993 dagar verið endurgreiddir
vegna kauptryggingarsamninga. í
raun hafi atvinnuleysisdagar í Eyjum
því verið 12.532. Þetta samsvaraði 60
til 70 ársstörfum.
Jón sagði að stór hluti af afla báta
frá Vestmannaeyjum væri ekki unn-
inn í Eyjum þar sem hærra verð feng-
ist greitt fyrir hann annars staðar og
lýsti hann yfir áhyggjum vegna þessa.
Með því að vinna aflann í Eyjum yrði
ekki bara atvinna næg heldur myndi
fjölga í bænum.
Jón gerði síðustu samninga að um-
talsefni og sagði að bónusgreiðslur til
fiskvinnslufólks hefðu lækkað. Þá
sagði hann að það vekti athygli að ef
auglýst væri laust starf við skúringar
þá sæktu 20 til 30 fiskverkakonur um
starfið þrátt fyrir lægri laun en í fisk-
vinnslunni.
Kvótabraskið
Ragnar Óskarsson bæjarfulltrúi
sagði að margir Vestmannaeyingar
væru óvissir um framtíðina. Hann
taldi að röng atvinnustefna stjórn-
valda sem birtist í kolröngu fiskveiði-
stjórnunarkerfi væri aðalástæða
fólksflutnings frá landsbyggðinni.
Bátum fækkaði og kvóti færðist á
færri hendur þannig að almenningur
ætti allt sitt undir valdi kvótaeigenda
og hann sagði að kvótabraskið lyti
ekki lögmálinu um réttlátt samfélag.
Því væri nauðsynlegt að breyta rang-
látu fiskveiðistjórnunarkerfi.
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
sagði að á síðasta ári hefði íbúum í
Eyjum fækkað um rúm 2% og velti
hann fyrir sér hvaða ástæður lægju
að baki þessari fækkun. Hann sagði
að auðvitað spilaði staða útgerðar og
fiskvinnslu inn í það. Frá 1990 hefði
bátum yfir 10 rúmlestir fækkað um 17
í Eyjum.
Guðjón sagði að bæjaryfirvöld
hefðu lagt sitt af mörkum til að gera
búsetuskilyrði í Eyjum sem best.
Álögur á íbúana væra í lág-
-marki, útsvarsprósenta
væri sú lægsta sem leyfð
væri og bæjaryfirvöld
hefðu lækkað heitt vatn til
kyndingar um 30% á síð-
asta ári og lagt sitt af mörkum til
lækkunar gjaldskrár Herjólfs.
Samskipti ekki nógu góð
Sigurður Einarsson framkvæmda-
stjóri hóf almennar umræður með því
að ræða fiskveiðistjórnarkerfið og orð
Ragnars um það. Hann sagði að sífellt
væri alið á óánægju með þetta kerfi
en hann sagði þá sem það gerðu ekki
hafa neinar tillögur um hvað ætti að
taka við af því. Þá sagði hann að mið-
að við orð Jóns Kjartanssonar mætti
halda að stórfellt atvinnuleysi væri í
Eyjum en staðreyndin væri sú að
ekki væru nema 10-20 fiskverkamenn
atvinnulausir.
Hann sagði að verkafólk og at-
vinnurekendur þyrftu að snúa bökum
saman til að finna lausnir á þeim
vandamálum sem steðjuðu að en því
miður hefðu samskipti verkalýðsfé-
laganna og atvinnurekenda ekki verið
nógu góð hingað til. ■“'
Sigurður sagði að vegna orða sem
hefðu fallið um sameiningu fi-ystihús-
anna væri það sitt mat að ef ekki
hefði komið til sameiningarinnar hefði
störfum fækkað mun meira en raun
varð á við sameininguna. Hann benti
á að á síðustu tveimur árum hefðu Is-
félagið og Vinnslustöðin fjárfest fyrir
einn milljarð í breytingum og tækjum
í fyrirtækjunum. Það væri gert af því
að þeir hefðu trú á því sem þeir væru
að gera og það mætti ekki alltaf bara
velta sér upp úr því sem miður færi
og hafa svartsýni að leiðarljósi.
Árni Johnsen alþingismaður sagði
að jafnvægi í þjóðfélaginu og lítil
verðbólga væru mikils virði og gerði
okkur samkeppnisfær við önnur lönd -
en ljóst væri að laun á Islandi væru of
lág. Hann sagði að staða Vestmanna-
eyja væri sterk í víðum skilningi og
sóknarfæri mörg. Hann nefndi að
23% íbúa Suðurlandskjördæmis
byggju í Eyjum en 46% af sköttum
sem greiddir væru í kjördæminu
kæmu frá Eyjum.
Halldóra Magnúsdóttir skólastjóri
varpaði fram spurningu um það hver
ástæða væri fyrir þvi að menntað fólk
fengist vart til starfa á landsbyggð-
inni. Öm D. svaraði því til að mennta-
fólk vildi vinna að krefjandi verkefn-
um og fylgjast með þróun og það væri
auðveldara í Reykjavík en úti á landi
eins og staðan væri í dag. Hann sagði
þó að Vestmannaeyingar -
væru einna fremstir í flokki
með að vinna að því að
skapa starfsskilyrði fyrir
menntafólk hjá sér.
Ótrúleg svartsýni
Öm D. Jónsson sagði í lok fundar-
ins að sér fyndist ótrúlega mikil
svartsýni ríkjandi í Eyjum þegar mið
væri tekið af því hversu mikið Eyja-
menn hefðu miðað við aðra staði á
landinu og hver staða mála væri í
Eyjum. Verið sé að vinna að mörgum
spennandi verkefnum. Hann hvatti
Eyjamenn til að horfa ekki til þess'
sem var heldur líta fram á veginn og
reyna að auka fjölbreytni atvinnulífs-
ins. Hann sagði að lokum að hann
vonaði að svartsýnin sem honum hefði
fundist svo ríkjandi væri bara aðferð
Eyjamann til að koma sér í gír og
blása til sóknar á öllum sviðum at-
vinnu- og mannlífs.
Góð starfs-
skilyrði fyrir
menntafólk
Hægt að
fjölga störfum
á sjúkrahúsinu