Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Kristinn
SPESSI í gegnum linsu og augu Kristins Ingvarssonar.
Úr myndaalbúmi Ijósmyndarans
„Myndlist er
eins og vísindiu
SPESSI fór til Hollands í listaskóla
og lærði ljósmyndun í eitt ár.
Hann vann sem Ijósmyndari á
Pressunni í tvö ár og var í lausa-
mennsku áður en hann kláraði
námið í AKI Enshcede í Hollandi.
„Ég tek svolítið af auglýsingum og
plötuumslögum. Svo er ég mikið
að vinna að eigin verkum. Ég er til
dæmis að vinna að sýningu núna
þar sem ég ætla að klára hetju-
myndirnar sem ég byrjaði á fyrir
nokkrum árum. f fyrra skiptið tók
ég hetjumyndir af karlmönnum en
núna er ég að taka myndir af kon-
um sem eru heljur," segir Spessi
sem er einnig að vinna verk á sam-
sýningu Nýlistasafnsins og bók
sem kemur út á næsta ári og heitir
Bensin. Samhliða bókinni verður
haldin sýning en myndefnið eru
bensínstöðvar á Islandi.
„Ég held að ég leiti svolítið að
einfaldleikanum og reyni að leysa
öll verk á mjög einfaldan hátt.
Kannski er það af því ég er svo lat-
ur og reyni að sleppa auðveldlega
frá hlutunum," segir Spessi glott-
andi eu leggur áherslu á að honum
finnist venjulegir hlutir áhuga-
verðastir. Máli sínu til stuðnings
nefnir hann bensínstöðvar sem
hann segir allar vera eins en samt
ekki. Hann segist gera mikið af því
að mynda seríur og að stakar
myndir af viðfangsefninu séu
sjaldgæfar.
„Ég held að myndlist sé eins og
vísindi. Hún þróast og mér finnst
gaman að leita að nýjum Ieiðum og
gera eitthvað sem bætir við lista-
söguna, einhverjar uppgötvanir.
Mér finnst ég alltaf vera að upp-
götva hvernig er hægt að nálgast
viðfangsefnin og geri tilraunir
með það,“ segir Spessi um ein-
kenni og hugmyndafræði sína sem
Ijósmyndara.
„YOKO Ono kom til íslands árið 1991 og
hélt sýningu á Kjarvalsstöðum en þá var
ég að vinna á Pressunni og nýlega farinn
að vinna sem ljósmyndari. Það var svolítið
mikið mál að taka mynd af svona frægri
manneskju og ég vildi gera það vel. Ég tók
með mér Ijós og annan aukabúnað en það
klikkaði allt sem gat klikkað. Snúrurnar
virkuðu ekki og það var röð af blaðamönn-
um og Ijósmyndurum sem biðu eftir því að
komast að Yoko. Þetta fór þó vel að lokum
og ég er mjög ánægður með útkomuna.
Yoko stendur uppi við verk eftir sjálfa sig
sem var á sýningunni á Kjarvalsstöðum."
„MYNDIN af Degi Sigurðarsyni var tekin á Bíóbarnum,
minnir mig, fyrir nokkrum árum vegna viðtals í Pressunni.
Mér fannst þetta lýsandi umhverfi og aðstæður fyrir hann.“
Morgunblaðið/Spessi
I MYNDIN af Ólafi Halldórssyni ísfirð-
ingi tilheyrir einnig hetjumyndum
Spessa. „Hann var svo stór, breiður og
sterkur. Ég þekki hann ekki neitt en
ég held að þetta sé góður karl. Hann er
hluti af æskuminningunum að vestan."
„ED er Hollendingur og ég kynntist hon-
um þegar ég var úti. Hann er ríkur karl
og einn daginn keyrði hann mig í skólann
á flottum „Thunderbird“ og við vöktum
mikla athygli þegar við gengum saman í
gegnum skólann. Þetta var skemmtileg
stund og hann er flottur karl.“
„ÞESSI mynd er frá því ég var í Hollandi. Ég sat
fyrir utan skólann í góðu veðri þegar ég sá mann
koma gangandi og datt allt í einu í hug að gaman
væri að mynda hann. Ég spurði hvort ég mætti
mynda hann og við fórum inn í stúdíó, ég tók
myndina og síðan hef ég aldrei séð manninn aft-
ur. Ég veit ekki hvað hann heitir eða neitt.“
„ÞESSI mynd er
tekin úr seríu sem
heitir Hetjur og var
sýning sem ég hélt
á ísafirði. Eg er
uppalinn á Isafirði
og Ásgeir Ólafsson
bjó um tíma i sama
húsi og ég. Hann
var sjómaður og
mjög duglegur
karl. Hann átti þá
ósk fyrir þessa sýn-
ingu að myndin af
honum myndi
hanga við hliðina á
mynd af skipstjóra
sem var Iíka á sýn-
ingunni."