Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
ívÁ, þAE> tók ekk/\
( LANGAN TÍMA j
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Þetta er erfitt próf... Þetta er ekki próf, herra . . . þau Of seint . . . ég er þegar búin að
vilja bara vita hvenær þú ert fædd skrifa 1492!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Súni 569 1100 • Símbréf 569 1329
Blöndalsbaga
Frá Halldóri Ó. Egilssyni og
Kolbeini Stefánssyni:
HEFÐ er fyrir því ómunalöng hér-
lendis að varpað sé fram vísum eða
bögum við hin margvislegustu tæki-
færi. Það hefur viljað loða við, að
þeir, sem gáfa sú hlotnast að geta
skikkanlega skammlaust klambrað
saman orðum í kviðling, geti á hveij-
um tíma gert tilkall til einhverrar
andlegrar upphefðar í krafti orðfimi
sinnar, aukinheldur sem vísnamenn
þessir hafa oft þótt skemmtimenn
hinir bestu. Hæstvirtur samgöngu-
ráðherra, Halldór Blöndal hefur um
sína tíð haft lag á að skjóta fram
stöku vísum eða bögum og myndi í
krafti þeirrar viðleitni sinnar prýði-
lega falla í flokk skemmtimanna svo-
kallaðra. Okkur vitanlega hefur
hæstvirtur samgönguráðherra aldrei
plástrað nokkur þau orð saman í
bundið mál að markverður kveðskap-
ur geti talist. Hins vegar hefur þjóðin
mátt sannreyna það undanfarið miss-
eri, að Halldór Blöndal er skemmti-
maður hinn ágætasti, þótt jafnframt
geri hann lýðum átakanlega ljóst að
öllu gamni fylgir nokkur alvara.
Embættisfærslur ráðherra sam-
göngu- og fjarskiptamála hafa í
sannleika sagt verið nokkuð tvíbent-
ar, svo að ekki sé nú fastar að orði
kveðið. A einn veg hafa menn gant-
ast með embættisleg axarsköft og
opinberan bögubósahátt ráðherrans,
hent gaman að eigi endasleppum
klaufahætti hans. Á annan veg hefur
fólki orðið ljós sú grafalvarlega stað-
reynd, að hafi Halldór Blöndal ein-
hvem tímann átt erindi I ríkisstjórn,
þá hlýtur þeim erindrekstri nú að
teljast lokið og mál til þess komið að
smala saman pjönkum sínum og
tygja sig. Tygja sig hvert fáum við
þó ekki gjörla séð. I fljótu bragði er
erfitt að koma auga á fýsilegan hýsil
ráðherranum til handa.
Það er stundum á orði haft að verk
manna tali sínu máli og ætti hæst-
virtur ráðherra samgöngu- og fjar-
skiptamála að vera þar undir sömu
sök seldur og aðrir dauðlegir menn.
Klúðrið í kringum gjaldskrárhækk-
un Pósts og síma fyrrverandi, Flug-
ráðsmálið, samhengisleysið við alla
málaafgreiðslu þingmannafararinnar
frægu, afglöp ráðherra í sainbandi
við útboð, eða ekki útboð á flugi til
Raufarhafnar, orðhengilsháttur og
misminni, allt þetta stuðlar að því, að
kippa fótum heldur hastarlega und-
an trúverðugleika ráðherrans og
þeirri fullvissu, sem flestir vilja þó
hafa, að hann valdi nú starfi sínu.
En, hæstvirtur ráðherra sam-
göngu- og fjarskiptamála spyrnir
fótum fast við stokkinn og myndast
við að tjasla upp á innihaldsrýra
bögu sína. Og víst er kveðskapur sá
forvitnilegur í boðskapsburði sínum.
í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins eigi
alls fyrir löngu lét þessi ráðherra
Sjálfstæðisflokksins, flokks einka-
framtaks og markaðshyggju (sú til-
vísan er orðin ambaga) þau orð falla,
að hann teldi ástæðulaust að láta
bjóða út flug til Raufai'haf'nar, þrátt
fyrir pappírspjáturstilskipun EES-
samningsins um gagnstæða tilhögun.
Væri það kalt, og eflaust ígrundað
mat ráðherra, að slík ráðstöfun yrði
einungis til þess að „etja saman“
flugfélögunum tveimur, Islandsflugi
og Flugfélagi Islands.
Nú hlýtur það að teljast til nokk-
urra tíðinda að ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, þessa flokks einkafram-
taks og markaðshyggju, geri sig ber-
an að því að opna gáttir skilnings-
leysis síns á heilbrigðri virkni mark-
aðsbúskapar og lögmála þeirra, sem
að baki liggja. Ef til vill er þetta þó
ekkert fréttnæmt, ráðherrann sver
sig einungis tryggilega í ætt við
klafapólitík Sjálfstæðisflokksins,
sem þó of mörgum virðist hulin.
Okkur þykir sem tími sé til þess
kominn að Halldór Blöndal láti af því
að klastra saman bögum sínum í
myndhverfðum pólitískum skilningi,
því frá honum kemur nú hrákasmíð
ein. Ráðherra ætti að hafa það hug-
fast, að það eru jafnan bögubósar,
sem rjátla saman pólitískum kvið-
lingum á þann hátt sem hann hefur
viðhaft í seinustu tíð.
HALLDÓR Ö. EGILSSON,
KOLBEINN STEFÁNSSON,
félagar í FUJ, Reylqavík.
Ruglið í DV-
ritstjóranum
Frá Sveini Bjömssyni:
í LAUGARDAGSBLAÐI DV 17.
jan. spinnur Jónas Kristjánsson rit-
stjóri leiðara í kjaftasögustíl af því
tilefni, að Guðrún Pétursdóttir hef-
ur ákveðið að setjast í 9. sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
við sveitarstjórnarkosningarnar í
vor. Vangaveltur ritstjórans um, að
einhver í átta efstu sætum listans
verði fenginn til að „veikjast" svo að
Guðrún komist í það áttunda, lýsa
vel ruglinu í ritstjóranum.
Leiðarinn, sem ber yfirskriftina
„Innsetning í hversdagslegt sæti“,
ber þess vissulega merki. Fyrir þá,
sem starfað hafa í borgarstjómar-
flokki Sjálfstæðisflokksins, fer ekki
á milli mála, að ritstjóri þessa
„frjálsa, óháða dagblaðs" hefur ekki
hugmynd um, hvemig þessi flokkur
starfar að borgarmálum. Engu að
síður talar hann eins og sá, sem allt
veit.
Sem fyrrverandi varaborgarfull-
trúi get ég upplýst ritstjórann um,
að áhrif fulltrúanna á störf og
stefnu flokksins era þau sömu,
hvort heldur menn teljast aðal- eða
varafulltrúar. Til dæmis um þetta
gegndi ég formennsku bæði í stjórn
veitustofnana og stjóm SVR
1974- 78, þrátt fyrir, að ég væri í
„hversdagslegu sæti“.
í ítarlegu viðtali við Guðrúnu
Pétursdóttur í DV eftir að fyrir lá,
að hún ákvað að velja þann kost að
skipa 9. sæti D-listans, svarar hún
skorinort og af hreinskilni eins og
hún á vanda til spurningum blaða-
mannsins um aðdraganda þess. Rit-
stjórinn hefði þurft að lesa þetta
viðtal, áður en hann tók sér penna í
hönd að þessu sinni. Sennilega er til
of mikils mælzt af honum, að hann
biðji Guðrúnu afsökunar á ruglinu.
SVEINN BJÖRNSSON,
verkfræðingur.
Alit efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.