Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
PRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 4^
GYÐA
VALDIMARSDÓTTIR
Gyða Valdi-
marsdóttir
fæddist í Reykjavík
31. október 1922.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 15.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Elísabet Jóns-
dóttir og Valdimar
Þorvaldsson. Systk-
ini Gyðu eru Karl
Kristinn, f. 1918,
Engilbert Ragnar, f.
1919, Junius Hall-
dór, f. 1920, látinn
1987, Valdís María,
f. 1924, og Sólveig Steina, f.
1925. Gyða giftíst Jóni Vilberg
Guðjónssyni 1. apríl 1944, þau
skildu 1977. Börn þeirra: 1)
Elísabet, framkvæmdastjóri,
ekkja Theodórs A Jónssonar,
böm: óskírð dóttír, f. 5.9. 1958,
d. 6.9. 1958; Bjarni, sambýlis-
kona Ingibjörg Gunnlaugsdóttir,
bara: Arna; Kristín,
sambýlismaður Da-
víð Bergmann Da-
víðsson, bara: Darri
Bergmann. 2) Guð-
jón. framkvæmda-
stjóri, kvæntur Sig-
rúnu Ástu Bjarna-
dóttur, börn: Jón
Vilberg, kvæntur
Margrétí Sigurðar-
dóttur; Sigrún;
Gyða. 3) Hafdís,
deildarsljóri, gift
Björgúlfi Andrés-
syni, barn: Gyða
Margrét Péturs-
dóttir, sambýlismaður Gísli Þrá-
insson.
Gyða starfaði lengst af við
fatahreinsun. Hún var félagi í
Sinawik og Sam-frímúrararegl-
unni.
Gyða verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
Með þessum sálmi vil ég kveðja
kæra systur sem reyndist mér og
bömum mínum svo vel alla tíð.
Góði Jesús, læknir lýða,
líkna mér, sem flý tfl þín,
þjáning ber ég þunga’ og stríða,
þreytt er líf og sálin mín.
Sjá, mitt tekur þol að þverra,
þú mér hjálpa, góði Herra,
mín svo dvíni meinin vönd,
milda þína rétt mér hönd.
Sjá, hve langvinn þraut mig þjakar
þymavegi bröttum á,
heyr, mín örmædd öndin kvakar
upp til þín, sér hjálp að fá.
Syndabönd af sekum leystu,
sjúkan lækna, fallinn reistu,
leið mig heilan lífs á stig,
Ijúfi Jesús, bænheyr mig.
Sendu mínu særðu hjarta
sannan frið í lifi’ og deyð,
lát þitt náðarljósið bjarta
lýsa mér á hættri leið
Lát þitt ok mér indæit vera,
auk mér krafta það að bera,
unz ég fæ þitt auglit sjá
og þér sjálfúm vera hjá.
(Brandur Ögmundsson.)
Guð blessi minningu þína.
Valdís Valdimarsdóttír.
Fallin er frá kær frænka okkar eftir
erfið veikindi undanfarna mánuði.
Okkur þótti Gyða ávallt glæsileg
og myndarleg kona.
Það var alltaf gott að vera í návist
hennar því hún var svo róleg og yfir-
veguð. Við minnumst ferðanna þegar
hún og maður hennar buðu okkur
systkinunum og mömmu með sér
næturlangt í hjólhýsið á Laugar-
vatni. Þessar ferðii’ voru hið mesta
ævintýri og í minningunni var alltaf
sól og blíða í þá daga.
Ekki voru síður höfðinglegar mót-
tökur á heimili þeirra á Blómvöllum
við Nesveg og síðar á Unnarbraut-
inni.
Á Blómvöllum var svo skemmti-
legt að vera, þá var byggðin ekki eins
þétt og í dag. Þar var hægt að leika
sér tímunum saman úti við í viðátt-
unni. Innandyra voru ýmis skúma-
skot sem okkur krökkunum þótti
gaman að láta okkur hverfa í.
Á Unnarbrautina vai’ líka gott að
koma og þau voru ófá matar- og
kaffiboðin sem við þáðum og alltaf
átti Gyða eitthvað spennandi í búr-
inu.
Gyða vai’ snillingur í matargerð og
ávallt var borið á borð eins og um
höfðingja væri að ræða.
Á tímamótum í lífi okkar var Gyða
ávallt nálæg og gott var að finna
hlýtt faðmlag hennar.
Við og fjölskyldur okkar munum
minnast hennai- með hlýju og sökn-
uði. Guð geymi elsku frænku okkar.
Jónfna og María.
Elsku amma, núna hefur þú fengið
frið frá veikindum þínum sem staðið
hafa í rúma þrjá mánuði og um koll-
inn á mér fljúga skemmtilegar
minningar. Sérstaklega tímabilið
frá því ég var átta til fimmtán ára,
en þá voru þær ófáar helgarnar sem
ég, systir mín og Gyða Margrét
frænka og vinkona gistum hjá þér.
Þetta voru mjög sérstakar helgar,
við áttum þig alla og vorum án efa
litlu prinsessurnar þínar.
Þessar helgar voru vel nýttar,
það var farið í dagsferðir upp í
Heiðmörk, til Hveragerðis að kaupa
ís, rúntað um og falleg hús skoðuð,
svo eitthvað sé nefnt.
Þú áttir glæsilegt safn af kjólum
með öllu tilheyrandi og við
frænkurnar höfðum einstaklega
gaman af því að klæða okkur upp
eins og kvikmyndastjörnur. Við
máttum róta í öllu og gera allt, og
ég er viss um að þú hefur varla ver-
ið búin að taka til eftir okkur þegar
við komum aftur í helgargistingu til
að máta kjólana á ný.
Þú fylgdist vel með því sem var
að gerast í þjóðfélaginu, og fórst
með okkur á allar nýjustu og bestu
myndirnar eins og Blue Lagoon,
Grease og Footloose. Og að sjálf-
sögðu keyptirðu líka plötumar úr
myndunum til að við gætum verið
gellur eins og Sandy í Grease og
sungið öll lögin með svakalegri inn-
lifun.
Þú varst alveg einstaklega snyrti-
leg og allt í kringum þig var í röð og
reglu. Það var sama hvaða skúffu
maður opnaði, meira að segja
hanskahólfið í bílnum þínum var í
röð og reglu þó svo að það væri svo
fullt að ekki var hægt að bæta neinu
íþað.
Elsku ammma, ég kveð þig núna
en um leið finn ég mjög sérstakan
stað í hjarta mínu fyrir þig þar sem
minning þín verður geymd.
Gyða Guðjónsdóttir.
Á fógrum vordegi fyrir hartnær 8
árum opna ég fyrir ungum manni
sem segist heita Bjami Sigurðsson
og vera boðinn í stúdentsveislu
dóttur minnar. Ég hef ekki hitt
C\av*3s k'
om
v/ T“ossvo0sl<i»*kjM9a»*ð
Sími: 554 0500
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson, útfararstjóri
Svenir Oisen, útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.
hann áður, en veit að hann er dótt-
ursonur Gyðu á Blómvöllum, en
þannig var ég vön að hugsa til henn-
ar þótt ekki ætti hún lengur heima
þar. Gyðu hafði ég kannast við lengi
og hitt nokkmm sinnum, enda fjöl-
skyldm- okkar tengdar. Síðan hefur
líf okkar verið samofið og kynni
okkar verið góð og vaxandi því unga
fólkið okkar hóf fljótlega búskap og
enn frekar eftir að hún stofnaði
heimili með þeim íyrir rúmlega
tveimur ámm.
Gyða var glæsileg kona og höfð-
ingleg, stórmyndarleg í höndunum
og vann allt vel sem hún tók að sér.
Við gátum talað um margt og leið
vel saman. Ekki gekk ég þess dulin
að margt hafði hún reynt á langri
ævi og heilsan farin að bila, en ekki
kvartaði hún eða barmaði sér. Ég
held við höfum oft skilið hvor aðra
án orða. Það var mikil tilhlökkun og
gleði þegar Ingibjörg dóttir min og
Bjarni eignuðust dóttur 13. ágúst sl.
Hún var lítil og falleg og allt snerist
um hana og amma og langamma
vom ósköp hrifnar af henni. En í líf-
inu skiptast á skin og skúrir, sorg
og gleði og enginn veit hvað morg-
undagurinn ber í skauti sér. Hinn 1.
október sl. varð Gyða fyrir miklu
áfalli, fékk blóðtappa í höfuðið og
lamaðist hægra megin og missti
málið. Um tíma stóðu vonir til að úr
rættist en hjartað var veikt og fleira
farið að gefa sig í líkama og sál.
Með ótrúlegum viljastyrk tókst
Gyðu að dvelja í nokkra klukkutíma
á aðfangadagskvöld heima. En ekki
leyfði heilsa né þrek að hún kæmist
í skírn Önnu litlu þann 28. des. sl.
þótt lengi stæðu vonir til. Gyða var
rúmliggjandi á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur þar sem henni var hjúkrað
eftir megni þar til yfir lauk 15. janú-
ar. Gyða varð 75 ára 31. okt. sl.
Kæra Gyða, ég þakka fyrir samver-
una sem ég hafði vænst að yrði
miklu lengri. Ég þakka allt sem þú
gerðir fyrir dóttur mína og Bjarna.
Hvíl þú í friði.
Öllum aðstandendum votta ég
innilega samhug minn.
Gunnlaug.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur
L A N
u Simi 562 0200
nrixxTiTilxiJ
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
+
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
sem andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans
föstudaginn 23. janúar, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 30. janúar.
Erna Jóhannsdóttir, Jón Sævin Pétursson,
Þorsteinn Smári Þorsteinsson,
Gunnar Laxfoss Þorsteinsson, Guðrún B. Árnadóttir,
Dalrós Jónsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir,
Gústaf Pétur Jónsson,
Hallgrfmur Agnar Jónsson,
Snorri Sturluson,
Svanhvít H. Sigurðardóttir.
4-
T
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓN ÓLAFSSON,
Hvassaleiti 22,
lést á heimili sínu sunnudaginn 25. janúar sl. ,, |.
Sigrún Þorleifsdóttir,
Edda Hansen Jónsdóttir,
Dagný Jónsdóttir.
T*
Ástkær eiginkona, móðir, stjúpmóðir, systir og dóttir,
NANNA GUÐRÚN HENRIKSDÓTTIR,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Halldór Magnússon,
Jóhanna V. Gísladóttir, Þórður V. Gíslason,
Sigríður Halldórsdóttir, Magnús Halldórsson,
Þórður Ág. Henriksson, Ragnar J. Henriksson,
Gyða Þórðardóttir. G*"
+
Móðir mín, amma og systir,
SÍMONÍA SIGURBERGSDÓTTIR,
Hrafnistu f Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 25. janúar.
Halldór Ásgeirsson,
Jón Einar Halldórsson,
Ásgeir Símon Halldórsson,
Jónfna S. Sigurbergsdóttir.
10-30% afsláttur
ef pantað er
í febrúar.
15% afsláttur
af skrauti.
Graníl
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707
A TILBOÐI
RAÐGREIÐSLUR