Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 19
MORGUNB LAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 19 UR VERINU Árni Friðriksson er hættur sfldarleit fyrir austah „Erum búnir að gefa síldina upp á bátinn“ HAFRANNSOKNASKIPIÐ Arni Friðriksson hætti sfldarleit úti fyrir Austfjörðum á sunnudag og hélt þá áleiðis vestur að Eldey, þangað sem það var komið í gærkvöld. Par er ráðgert að skipið verði við leit næstu einn til tvo daga, en að sögn Páls Reynissonar leiðangursstjóra hefur sú sfld, sem þar hefur fundist, verið of smá til að vera veiðanleg. Páll sagði í samtali við Verið að mun minna væri af sfld fyrir austan en vonir stóðu til miðað við stofn- mælingar undangenginna ára. „Það hefur í raun ekkert breyst frá því fyrir áramót og hefur sú litla sfld, sem þó hefur fundist, verið bæði dreifð og staðið djúpt. Þetta er samt þokkaleg sfld ef hún væri bara veið- anleg. Menn ná henni ekkert í nót, en þeir hafa verið að kroppa eitt- hvað í flottrollið." Ýmsar skýringar á lofti Aðeins er búið að veiða um helm- ing sfldarkvótans, sem á yfirstand- andi fiskveiðiári er 113 þúsund tonn. Um ástæður þessa sagði Páll ómögulegt að segja. „Það er ekkert sem hægt er að negla niður, en menn hafa verið að gæla við ýmsar skýringar. Sjórinn er til dæmis mun heitari fyrir austan land en yfirleitt er á þessum árstíma sem gæti ef til vill haft áhrif á það að sfldin sé dreifðari og að það beri minna á henni en endranær. Hins vegar hef- ur maður heyrt það að sjómenn séu uggandi um að það sé einfaldlega svona h'tið af henni, en þá hefur hreinlega eitthvað komið fyrir stofninn sem enginn veit um.“ Slattar í troll Að sögn Páls má fastlega búast við því að síldarkvótinn verði skor- inn niður fyrir næsta fiskveiðiár ef fram heldur sem horfir. Ekki væri þó tímabært að fara að tala um það fyrr en að búið væri að skoða mæl- ingamar og aflasamsetninguna ofan í kjölinn. Um það bil tíu sfldveiði- skip hafa verið að fá „slatta“ í troll við og við það sem af er janúarmán- uði og þá helst í Héraðsflóadýpinu og í Hvalbakshallanum, sem er á milli Berufjarðaráls og Litladýpis. Ekkert hefur fengist í nót. „Við erum búnir að gefa sfldina upp á bátinn, eins og málin líta út núna. Ef hins vegar eitthvað kemur upp skyndilega, að vart verði t.d. meiri sfldar en hingað til á vertíð- inni, þá yrðu menn væntanlega allir af vilja gerðir til að skoða það.“ Að sögn Páls ættu skipin að geta verið við sfldveiðar eitthvað fram í febrú- ----------------------- armánuð, en þegar svo langt væri á vertíðina liðið, væri sfldin venjulega ekki alveg jafngóð. Loðnuleit heldur áfram Engrar loðnu hefur orðið vart á miðunum það sem af er árinu og hefur hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni, sem í gær var statt út af Norðfjarðarhorninu, lítið sem ekkert orðið ágengt við leitina. Von- ir standa til að loðnugöngumar fari að láta sjá sig á allra næstu dögum eða í byrjun febrúar. Bjami Sæ- mundsson verður áfram við leit út af suðausturhorninu næstu daga. Bæði rannsóknaskipin héldu í sfld- ar- og loðnuleiðangra upp úr ára- mótunum, en framan af hamlaði veður leitinni. SÍLDIN fryst á Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið/Muggur '. * V pppp,, Nýjar reglur um möskvastærð RÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út nýja reglugerð um botn- og flot- vörpur. I reglugerð þessari er kveðið á um möskvastærðir í helstu tegundum varpna og frá- gang þeirra. Era nokkrar breyt- ingar gerðar á gildandi reglum en flestar þeirrar eru aðeins til ein- földunar og samræmingar. Veigamesta breytingin felst í því að lágmarksmöskvastærð í botn- og flotvörpum verður 135 mm allt umhverfis landið. Hins vegar verð- ur óheimilt að nota svonefnda „pólska klæðningu" á poka norðan ákveðinnar línu, ef 135 mm riðill er notaður í poka. Sú lína, sem hér er miðað við, kemur í stað þeirrar línu, sem kölluð hefur verið „poka- línan“ og markað hefur þau svæði þar sem skylt hefur verið að nota 155 mm riðil í poka. Línan hefur hins vegar verið færð lítillega til svo hún falli betur að togveiðiheim- ildum skipa. Lækkaðu ferðakostnað í viðskiptaferðum til Evrópu Samvinna Flugleiða og SAS sparar viðskiptafarþegum á leið milli íslands og annarra Evrópulanda umtalsverðar fjárhæðir. Með því að fljúga á viðskiptafargjaldi SAS og Flugleiða lækka menn ferðakostnað með því að nýta sér tíðar áætíunarferðir og sveigjanleika í tengslum við bókanir og breytingar á þeim. Jafnframt hlýst af því umtalsverður óbeinn spamaður að stytta dvalartíma erlendis og þar með fjarvistir frá vinnustað hér heima. Nýttu þér ótvíræða kosti þess fyrir þig og fyrirtæki þitt að fljúga á viðskiptafargjaldi í Evrópu með SAS og Flugleiðum. Bókanir og nánari upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða og SAS og hjá ferðaskrifstofunum. FLUGLEIDIR J4S M/S4S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.