Morgunblaðið - 27.01.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐ JUDAGUR 27. JANÚAR 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Karl Á. Sigúrgeirsson
AFHENDING gjafabréfsins. Frá vinstri Oddur Sigurðarson, Theodóra
Hjartardóttir og frænka hennar Iljördís Hjartardóttir félagsráðgjafi.
Vegleg gjöf til
Hvammstanga - Oldruð kona,
Theodóra Hjai-tardóttir, hefur
afhent stjórn Sjúkrahúss
Hvammstanga veglega íjárhæð,
fjórar milljónir króna. Vill hún
að gjöfín gangi til kaupa á lyftu
í nýbyggingu þeirri sem reist
var við húsið á liðnum tveimur
árum en er ekki komin öll í
notkun enn.
Theodóra, sem er fædd árið
1913, bjó sína ævi á Jaðri við
Hrútafjörð, ásamt bróður sinum
Óla, sem andaðist á liðnu ári.
Um nokkurt árabil bjuggu þau í
litlu húsi á Hvammstanga og
heldur Theodóra þar enn heim-
ili. Gjöfin er gefín úr búi þeirra
beggja.
Það var því ærið tilefni fyrir
stjórn og starfsfólk Sjúkrahúss
Hvammstanga að koma saman
hinn 20. janúar sl. til að taka á
sjúkrahússins
móti þessari höfðinglegu gjöf.
Að sögn Odds Sigurðarsonar,
stjórnarformanns sjúkrahússins,
og Guðmundar Hauks Sigurðs-
sonar framkvæmdastjóra er
talið að kosta muni um sautján
milljónir króna að ljúka fram-
kvæmdum við nýbygginguna,
þar með talin lyfta í húsið, sem
kosta mun rúmar fímm milljónir
króna. Vonir standa til að um
lokaáfangann verði samið á
næstu vikum og hefur Héraðs-
nefnd Vestur-Húnavatnssýslu
gert ráð fyrir sínu framlagi, 42%
af heildarkostnaði, í fjárhagsá-
ætlunum. Á fjárlögum ríkissjóðs
þessa árs eru 3,7 milljónir kr.
ætlaðar til framkvæmda en
einnig kemur fé frá Fram-
kvæmdasjóði aldraðra til verks-
ins. Má því ætla að verklok verði
innan skamms.
DVALARHEIMILIÐ Höfði á Akranesi. Til vinstri við heimilið eru
íbúðir aldraðra sem tengjast rekstri heimilisins.
Nýtt hafnsögu- og
björgunarskip afhent
Vestmannaeyjum - Lóðsinn, nýtt
hafnsögu- og björgunarskip, sem
Skipalyftan í Eyjum smíðaði fyrir
Vestmannaeyjahöfn, var afhent á
laugardag. Skipið er fyrsta skipið
sem Skipalyftan smíðar og jafn-
framt fyrsta stálskipið sem smíð-
að er í Eyjum.
Olafur Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Skipalyftunnar,
flutti stutt ávarp við afhending-
una en afhenti síðan Sveini Rún-
ari Valgeirssyni, formanni hafnar-
stjórnar, lykla að skipinu. Sveinn
rakti smíðasögu skipsins en
samningur um smíðina var gerður
í apríl 1995. Sveinn þakkaði þeim
er að verkinu komu fyrir þeirra
þátt en afhenti síðan Agústi
Bergssyni skipstjóra lyklana að
skipinu.
Sigurgeir Olafsson, fyrrverandi
hafnarstjóri, gaf skipinu nafnið
Lóðsinn en að því loknu blessaði
séra Jóna Hrönn Bolladóttir skip-
ið og áhöfn þess.
Kiwanisklúbburinn Helgafell
afhenti síðan miðunarstöð að gjöf
um borð í Lóðsinn og Slysavarna-
deildin Eykyndill afhenti eina
milljón til kaupa á búnaði í skipið.
Að því loknu var Lóðsinum siglt
út á höfnina þar sem gamli Lóðs-
inn og hafnsögubáturinn Léttir
heilsuðu nýja skipinu með því að
þeyta flautur en áhöfn Lóðsins
svaraði með því að sprauta yfir þá
úr öflugri slökkvibyssu sem stað-
sett er á brúarþaki skipsins.
Skipið er 147,6 brúttótonn að
stærð, 24,5 metra langt og 7,3
metra breitt og djúprista þess er
3,95 metrar. I skipinu eru tvær
1.000 hestafla aðalvélar af Mitsu-
bishi-gerð og ganghraði í prufu-
keyrslu var 13 sjómílur. Þá eru í
skipinu öflug spil og dráttarbún-
aður og er togkraftur skipsins ná-
lægt 30 tonnum.
Lóðsinn, sem er öflugasta
dráttarskip landsins, er myndar-
legt skip og mjög vel tækjum bú-
ið. Skipið er smekklega innréttað
og allt handbragð við smíðina er
fagmannlegt. Skipalyftan sá um
smíðina en auk hennar komu und-
irverktakarnir Faxi ehf. og
Drangur ehf. að smíði skipsins.
SIGURGEIR Ólafsson, fyrrverandi hafnarstjóri í Eyjum, gefur nýja
hafnsögu- og dráttarskipinu nafnið Lóðsinn.
ÁHÖFN Lóðsins um borð í nýja skipinu.
LÓÐSINN, nýtt hafnsögu- og björgunarskip Vestmannaeyjahafnar.
Dvalarheim-
ilið Höfði
á Akranesi
20 ára
Akranesi - Þess verður minnst á
næstunni að 20 ár eru liðin frá því
Dvalarheimilið Höfði á Akranesi hóf
starfsemi og í tilefni þessara merku
tímamóta gera vistmenn og starfs-
fólk á heimilinu sér dagamun með
fjölbreyttu afmælishaldi.
Það var 2. febrúar 1978 sem heim-
ilið var tekið formlega í notkun og
veður hátíðarsamkoma af því tilefni
laugardaginn 31. janúar nk. Sam-
koman er ætluð boðsgestum og þar
verður m.a. sett upp sögusýning
sem lýsir lífi og starfi í 20 ára sögu
heimilisins. Þá verður kynnt útkoma
afmælisrits og starfsmenn og vel-
unnarar heiðraðir í tilefni dagsins.
Ýmislegt annað áhugavert verður þá
á dagskrá, m.a. handavinnusýning
heimilisfólks og ljósmyndasýning
feðganna Helga Daníelssonar og
Friðþjófs Helgasonar. Þá verða
sýndar á skjá ljósmyndir úr 20 ára
sögu heimilisins. Einnig mun úr-
klippusafn Höfða liggja frammi.
Sunnudaginn 1. febrúar verður
dvalarheimilið opið hús og er þess
vænst að sem flestir bæjarbúar á
Akranesi og íbúar hreppanna sunn-
ar Skarðsheiðar sjái sér fært að líta
inn og skoða heimilið og sýningam-
ar sem í boði eru.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
GÓÐ þátttaka var í skákmótinu.
GOLFARAR fjölmenntu á golfmótið í Heijólfsdal.
Góð þátttaka í
gosmótum í Eyjum
Vestmannaeyjum - Þess var
minnst í Eyjum um helgina að 25
ár eru liðin frá upphafi eldgossins
á Heimaey. Fjölmenn blysför var
farin um bæinn á fóstudagskvöld
en á laugardag efndi Golfklúbbur
Vestmannaeyja til golfmóts og
Skákfélagið sá um hraðskákmót.
Góð þátttaka var í báðum mótun-
um og þó að einhverjum hafi ef-
laust þótt það djarft að ákveða
golfmót um miðjan janúar, með
talsverðum fyrirvara, þá tókst
mótið með ágætum enda veð-
urguðirnir ekki í neinum vetrar-
ham.
Skákmótið var haldið í Spari-
sjóði Vestmannaeyja. Á mótinu var
þess minnst að fimm ár eru frá því
Andri Hrólfsson og Helgi Ólafsson
luku biðskák sinni frá Skákþingi
Vestmannaeyja 1973, en skák
þeirra fór í bið 22. janúar 1973 og
var ekki kláruð fyrr en tuttugu ár-
um seinna.
Tuttugu manns tóku þátt í skák-
mótinu. Tefldar voru ellefú um-
ferðir eftir Monrad-kerfí og sigr-
aði Helgi Ólafsson, með 11 vinn-
inga. í öðru sæti varð Össur Krist-
insson, með 9 vinninga. í þriðja tíl
Qórða sæti urðu Andri Hrólfsson
og Siguijón Þorkelsson, með 8
vinninga, og í fimmta sætí varð
Amar Sigurmundsson, með 7 vinn-
inga. Fjórir af þeim fímm kepp-
endum sem urðu í efstu sætunum
voru allir þátttakendur á Skák-
þingi Vestmannaeyja 1973 þegar
skák Helga og Andra fór í bið.
Einungis Siguijón Þorkelsson var
ekki meðal þátttakenda þá.
Síðdegis á laugardag var nýtt
hafnsögu- og björgunarskip afhent
Vestmannaeyjahöfn en síðan var
skipið almeningi til sýnis.
A sunnudag var messa í Landa-
kirlgu og var messan helguð at-
burðunum fyrir 25 ámm. Að lok-
inni messu var messukaffi í safn-
aðarheimilinu þar sem sýndar
vom litskyggnur frá eldgosinu.
Síðdegis á sunnudag var síðan al-
mennur fundur á vegum bæjar-
stjómar Vestmannaeyja þar sem
staða Vestmannaeyja í nútíð og
framtíð var rædd.
Um helgina var opnuð í Safn-
húsinu í Eyjum sýning á 25 mál-
verkum eftir Grím Marinó Stein-
dórsson, en hann hefúr gefið Lista-
safni Vestmannaeyja verkin í til-
efni þess að 25 ár era liðin frá
upphafi eldgossins. Þá var ókeypis
aðgangur að söfnum bæjarins og
íþróttamiðstöðinni og húsnæði
Bæjarveitna Vestmannaeyja var til
sýnis fyrir almenning.
I
l
1
t
i
\
t
!
i
1
r
i
i
>
i
i
i
í
i
i
i
i