Morgunblaðið - 14.02.1998, Page 2
2 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Rætt á þingi
um embætt-
isfærslu
ráðherra
RANNVEIG Guðmundsdóttir, for-
maður þingflokks jafnaðarmanna,
kvaddi sér hljóðs á Alþingi í gær
um fundarstjóm forseta og sagði
að í ljósi nýrra og alvarlegra upp-
lýsinga sem fram hefðu komið,
varðandi málefni fíkniefnadeildar
lögreglunnar, hefði þingflokkur
jafnaðarmanna óskað eftir umræðu
utan dagskrár um embættisfærslu
ráðherra.
„Við höfum óskað eftir því að
umræður fari fram á mánudag, svo
tryggt sé að nauðsynlegar upplýs-
ingar liggi fyrir og að hæstvirtum
ráðherrum, Þorsteini Pálssyni og
Halldóri Asgrímssyni, gefist ráð-
rúm til að undirbúa svör sín, meðal
annars um að þinginu hafi verið
veittar villandi upplýsingar og um
meinta aðild þeirra að reynslulausn
dæmds sakamanns,“ sagði Rann-
veig.
Hefúr forseti þingsins orðið við
beiðninni og mun umræðan fara
fram á mánudaginn.
vc>u nt’iabi &
HALLDÓR
BOLJAN
LAXNESS
Ijúra nkuí i2« þíts rfii er ❖ HsL'ur ]nay
il* eft ícrr, fðbMism bcr vtó hí
Blað um ævi og
störf Halldórs
Laxness
BLAÐ um ævi og störf Hail-
dórs Laxness fylgir Morgun-
blaðinu í dag. Þar er m.a.
Ijallað um kvikmyndir gerðar
eftir sögum skáldsins, leikrit
þess, stjórnmálaskoðanir,
vinnuaðferðir og skáldskapar-
viðhorf. Myndlistarmenn
túlka skáldið, kaflar úr sam-
tölum við Halldór eru birtir,
myndir úr lífi hans og störf-
um, brot úr verkum hans og
birtar greinar eftir einstak-
linga.
BLAÐINU í dag fylgir Lesbók
Morgunblaðsins - menn-
ing/listir/þjóðfræði. Meðal
efnis er viðtal við skáldið
Tomas Tranströmer, fjallað
er um yflrlitssýningu á verk-
um Francis Bacon, miðbæ
Kópavogs, teiknibók Þorvalds
Sívertsen og í Lesbókinni birt-
ist í dag síðari hluti greinar
um Mettu Hansdóttur.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Atli Vigíiísson
Laxá í Aðaldal um allt hraun
Laxamýri - Krapastífla í Laxá varð til þess
að áin rann út í hraunið fyrir neðan bæinn
Knútsstaði í Aðaldal. Vatnið fyllti hraun-
gjótur og ísinn sem myndaðist yfir er mjög
varasamur yfirferðar. Það er nokkuð al-
gengt að Laxá flæði yfir bakka sína.
Stundum á hún það til að skaða seiðabú-
skap sinn í vatnalátum, því seiðin verða eft-
ir í hraunboUunum þegar sjatnar. Að þessu
sinni var flóðið stórt og flæddi vatnið und-
ir þjóðveginn og vestur að Sandsbæjavegi í
Aðaldal.
Endurgreiðsla ofgreidds
eldsneytisgjalds
Samkomulag
við Cargolux
Kvartað vegna
auglýsinga um
skóreimara
SAMKOMULAG hefúr tekist milli
samgönguráðuneytisins og Cargolux
um endurgreiðslu ofgreidds eldsneyt-
isgjalds. Ríkið endurgreiðir Cargolux
eldsneytisgjald á tímabilinu frá októ-
ber 1994 til ársloka 1997. Með vöxtum
er þessi upphæð rúmar 9,7 milljónir
kr. en í samkomulaginu felst að end-
urgreiðslan er án vaxta frá haustinu
1994 til 1. janúar 1996. í samkomu-
laginu felst einnig að Cargolux fellur
frá öllum frekari kröfúm vegna
greiðslu eldsneytisgjaldsins.
Þórarinn Kjartansson, forstjóri
Flugflutninga, sem er umboðsaðili
Cargolux hérlendis, sagði að með
þessu samkomulagi sé málinu lokið
milli aðila í vinsemd.
„Cargolux fellst á að gera engar
frekari kröfur aftur í tímann varð-
andi endurgreiðslur á þvi eldsneytis-
gjaldi sem þegar hefur verið greitt.
Samkomulagið lokar því máli hvað
varðar það eldsneytisgjald sem hef-
í KJÖLFAR atkvæðagreiðslu með-
al íslenskra sýnenda á sjávarút-
vegssýningunni í Laugardalshöll
hafa Sýningar ehf. ákveðið að gang-
ast ekki fyrir sjávarútvegssýning-
unni FishTech ‘99 í Laugardalshöll
1.-4. september 1999. Atkvæði voru
talin í gær og féllu þannig að 65,6%
studdu Nexus Nedia, sem nú
áformar að halda íslensku sjávar-
útvegssýninguna í Kópavogi, og
34,4% studdu Sýningar ehf. Gerð
var grein íyrir 93,8% atkvæða.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hittust forsvarsmenn
sýningarfyrirtækjanna á fundi í
gærmorgun áður en atkvæði voru
talin og undirrituðu samkomulag
sín í milli um að það fyrirtæki sem
ur verið innheimt af Cargolux til
þessa. Frá og með 1. janúar hefur
eldsneytisgjald ekki verið innheimt
af Cargolux," segir Þórarinn.
Enn innheimt
af Evrópuflugi
Hann segir að til framtíðar bíði fé-
lagið niðurstöðu ráðuneytisins hvað
varðar ábendingu samkeppnisráðs
um að almennt beri að jafna aðstöðu
samkeppnisaðila hvað varðar elds-
neytisgjald. Eldsneytisgjald sé enn
innheimt af öðru flugi en áætlunar-
flugi til Bandaríkjanna, t.a.m. af
flugi Cargolux frá Islandi til Lúxem-
borgar. A þeim leiðum greiði Flug-
leiðir ekki eldsneytisgjald þar sem
þeir kaupi ekki eldsneyti heldur eigi
það sjálfir.
Þetta mál snertir ekki síður aðra
flugrekendur, eins og t.d. íslands-
flug sem fljúgi daglega fraktflug
milli íslands, Bretlands og Belgíu.
yrði undir að talningu lokinni
myndi draga sig í hlé.
Óvíst er hvort fallið verður frá 24
milljóna króna leigusamningi, sem
borgin hafði gert við Sýningar ehf.,
vegna leigu Laugardalshallar að
gengnu útboði. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri sagðist i
samtali við Morgunblaðið í gær
ekki enn hafa fengið formlegt er-
indi þar um, en sagðist bíða eftir
viðbrögðum frá forsvarsmönnum
Sýninga ehf. „Ég tel sjálfsagt að
ræða málin við þá, en það er ekki
tímabært að segja til um það nú
hvemig þau mál koma til með að
þróast.“
■ Ekkert verður/20
S JÓN V ARPSMARKAÐURINN
ehf. hefur sent kvörtun til Sam-
keppnisstofnunar vegna auglýs-
inga Lánasýslu ríkisins þar sem
því er varpað fram, að aflokinni
langri söluræðu um svokallaða
skóreimara, megrunarteppi o.fl.,
að ef hægt sé að eyða í næstum
hvað sem er ætti ekki að vera úr
vegi að eyða líka í spamað.
Sjónvarps-
markaðurinn tel-
ur auglýsingarn-
ar ekki samræm-
ast 2. málsgrein
21. greinar sam-
keppnislaga, þar
sem segir að aug-
lýsingar og aðrar
viðskiptaaðferðir
skuli ekki vera
ósanngjarnar
gagnvart keppi-
nautum eða neytendum vegna
forms þeirra eða sökum þess að
skírskotað sé til óviðkomandi
mála.
Samanburður við neyslu
Magnús Kjartansson, innkaupa-
stjóri Sjónvarpsmarkaðarins, segir
að með kvörtuninni sé Sjónvarps-
markaðurinn að leita upplýsinga
um „hvort rétt sé að Lánasýsla rík-
isins sé að nota almannafé til að
níða niður ákveðna viðskiptagrein
og bera sparnað saman við neyslu
en ekki annan sparnað". Hann seg-
ir að í framhaldi af þessu megi
spyija að því hvenær rfldð fari t.d.
að auglýsa: „Láttu tennurnar í þér
skemmast - og eyddu í sparnað."
Magnús segir umræddar auglýs-
ingar Lánasýslu ríkisins fela í sér
beina árás á Sjónvarpsmarkaðinn.
„í söluaðferðum okkar gerum við
ekki sparnað eða opinbera aðila á
nokkurn hátt tortryggilega en
okkur fínnst að þeir séu að gera
það gagnvart okkur - og það er al-
menningur sem greiðir."
Aðspurður hvort hann óttist
ekki að erindi Sjónvarpsmarkaðar-
ins til Samkeppnisstofnunar verði
túlkað sem skortur á skopskyni
tekur Magnús fram að hann hafi
ákaflega gaman af umræddum
auglýsingum en hins vegar sé
spurning undir hvaða formerkjum
þær séu sýndar. „Þær eru vel
gerðar og myndu sóma sér ein-
staklega vel í áramótaskaupi eða
stuttum grínþáttum. En ef maður
hugsar aðeins lengra kemst maður
að því að hér er ríkið að selja vöru
og notar til þess
þá aðferð að
reyna að koma
því inn hjá al-
menningi að
þessi nýja at-
vinnugrein sé
tortryggileg og
að þeir sem að
henni standa
hafi engan ann-
an ásetning en
að hafa fólk að
fíflum. Á bak við húmorinn leynist
það að okkur er gerður upp ásetn-
ingur í viðskiptum okkar. I þessu
felst beinn áróður sem við teljum
okkur alls ekki eiga skilið,“ segir
Magnús.
Ekki beint gegn neinum
Helgi Helgason hjá auglýsinga-
stofunni Góðu fólki, sem hefur
gert auglýsingamar, kveðst nyög
undrandi yfir kvörtun Sjónvarps-
markaðarins. „Sérstaklega vegna
þess að í raun er þessum auglýs-
ingum ekki beint gegn neinum á
markaðnum. Þessir aðilar eru ekki
keppinautar og það er alls ekki
verið að hvetja fólk til þess að
draga úr viðskiptum eða neyslu af
neinu tagi.“ Hann bendir á að í
auglýsingunum sé fólk hvatt til að
eyða líka í sparnað og leggur
áherslu á orðið „líka“. „Skilaboðin
eru: „Hafðu sparnaðinn með!“ Við
erum einfaldlega að segja að
sparnaður sé eins og hver önnur
neysla,“ segir Helgi.
Að sögn Ónnu Bimu Halldórs-
dóttur, starfsmanns Samkeppnis-
stofnunar, er kvörtun Sjónvarps-
markaðarins nú til umsagnar hjá
Lánasýslu ríkisins.
Sýningin í Höll-
inni úr sögunni