Morgunblaðið - 14.02.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 11
HALLDÓR KILJAN LAXNESS
Morgunblaðið/Kristján
UNGMENNI héldu kyndlum á loft við sviðið á Ráðhústorgi.
I minningu skáldsins
Akureyri. Morgunblaðið.
MINNINGARSTUND um Halldór
Kiljan Laxness var haldin á Ráð-
hústorgi á Akureyri. Leikarar hjá
félaginu og Tjarnarkvartettinn
sáu um dagskrána.
Tjarnarkvartettinn söng Vorvísu
úr Heimsljósi, Jón Júlíusson las úr
Islandsklukkunni, Þráinn Karlsson
Ias ljóðið Frændi, þegar fiðlan þeg-
ir, Hrönn Hafliðadóttir söng barna-
gælu, Aðalsteinn Bergdal las Fornt
ástarljóð, enskt, Guðbjörg
Thoroddsen las upphafið að Fegurð
himinsins úr Heimsljósi og Tjamar-
kvartettinn söng Hjá lítilli móðu,
Þórey Aðalsteinsdóttir las Bráðum
kemur betri tíð en í lokin sungu
börn Maístjörnuna.
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
SAMVERUSTUNDIN á ísafírði var haldin inni í
stjórnsýsluhúsinu vegna veðurs.
Flutt inn vegna veðurs
Isafirði. Morgunblaðið.
SAMVERUSTUND í minningu
Halldórs Laxness, sem vera átti á
Silfurtorgi á Isafirði, var flutt inn í
stjórnsýsluhúsið vegna þreifandi
byls sem var á Isafirði í gær.
Á samverustundinni var tónlist-
arflutningur og lesið úr verkum
skáldsins. I lokin var einnar mín-
útu þögn og siðan sungu viðstaddir
Maístjörnuna.
MIKIÐ fjölmenni var á sam-
verustund í niinningu Halldórs
Kiljans Laxness á Ingólfstorgi
kl. 18 í gær, sem Bandalag ís-
lenskra listamanna og Rithöf-
undasamband Islands efndu til.
Orð skáldsins hljómuðu í hálf-
tíma langri dagskrá þar sem
leikarar lásu úr verkum Hall-
dórs og sungin voru lög við ljóð
hans.
Lögreglan telur að um 2.500
manns hafi verið saman komin á
Ingólfstorgi til að heiðra minn-
ingu Halldórs Laxness.
Söngur og upplestur
Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð og Hamrahlíðarkórinn
sungu fjögur lög, sem samin hafa
Mannfjöldi
heiðraði
minningu
skáldsins
verið við ljóð Halldórs, undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur;
Haldiðún Gróa hafi skó, lag
Reynis Sveinssonar, Hjá lygnri
móðu, lag Jóns Ásgeirssonar,
Maríukvæði, lag Atla Heimis
Sveinssonar, og Islenskt vöggu-
ljóð, lag Jóns Þórarinssonar.
Einnig söng Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir leikkona Vöggu-
kvæði, lag Jóns Nordals.
Nokkrir þjóðkunnir leikarar
lásu upp úr verkum skáldsins.
Þorsteinn Gunnarsson las úr Is-
landsklukkunni, Margrét Helga
Jóhannsdóttir flutti ljóðið Pláss-
ið, Arnar Jónsson las úr Sjálf-
stæðu fólki og Kristbjörg Kjeld
las úr Heimsljósi.
Að þessu loknu var kyrrðar-
stund er hins látna var minnst
með mínútulangri þögn. Sam-
verustundinni lauk með því að
Telpnakór Reykjavíkur og
Barnakór Grensáskirkju sungu
Maístjörnuna, lag Jóns Ásgeirs-
sonar við kvæði Halldórs, undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Morgunblaðið/Halldór
MÖRG ungmenni héldu á logandi kyndlum á samverustund í minningu Halldórs Kiljans Laxness, sem fram
fór á Ingólfstorgi í gær. Áætlað er að um 2.500 manns hafi verið viðstödd minningarstundina.
Undirleikarinn þýddi
Islandsklukkuna
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
EITTHVAÐ á fjórða tug manna kom og hlýddi
á upplestur og söng úr verkum Halldórs Lax-
ness á Bókasafni Héraðsbúa á Egilsstöðum í
gær. Leikfélag Fljótsdalshéraðs annaðist dag-
skrána.
Við athöfnina sungu Bjarni Þór Sigurðsson
og Kristveig Sigurðardóttir ljóð Halldórs við
undirleik Suncana Slamning. Það hefur vakið
athygli að undirleikarinn sem er tónlistarkenn-
ari á Egilsstöðum og Hallormsstað þýddi Is-
landsklukku Halldórs Laxness á króatísku fyrir
sextán árum. Suncana Slamning er fædd í
Króatíu og hefur búið í mörg liér á landi. Við
þýðinguna naut hún aðstoðar föður síns, Ivans
Slamning, sem er mikilsmetið skáld í Króatíu.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
BJARNI Þór Sigurðsson syngur við undirleik
Suncana Slamning.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
PETER Sabiro ásamt Davíð Oddssyni forsætisráðherra sem tók við
gjöfinni. Hann sagði bijóstmyndina lýsa skáldinu vel á efri árum.
Ahugi á verkum Laxness
vaxandi utan Norðurlanda
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
EF MARKA má útgáfur verka Laxness víða um
heim þá er vaxandi áhugi á þeim í Þýskalandi,
Italíu og Bandaríkjunum, en dvínandi á
Norðurlöndum að sögn Agnesar Licht, sem
starfrækir umboðsfyrirtækið Licht & Licht, er
hefúr umboð íyrir verk Laxness. Hún segir þó of
snemmt að fullyrða um hvemig áhuginn verði á
Norðurlöndum, því það hafi sýnt sig að áhugi
geti vaknað fyrirvaralaust.
Mestur er áhuginn í Þýskalandi, þar sem
mikill áhugi hefur verið á íslenskum
bókmenntum áratugum saman. Þar er nú
unnið að því að þýða ýmis meginverk Laxness
upp á nýtt, meðan önnur hafa verið að koma út
í nýjum þýðingum undanfarin ár. Áhuginn
hefur einnig borist til Ítalíu, þar sem almennt
er vaxandi áhugi á norrænum bókmenntum.
Agnes Licht minnir einnig á endurútgáfu
Sjálfstæðs fólks í Bandaríkjunum, sem hafi
verið eftirminnilegur áfangi.
Verk Laxness hófu fljótt að koma út á
Norðurlöndum og hafa verið öfluglega gefin út
þar, ekki slst í Svíþjóð. Þar lagði hinn merki
þýðandi og prófessor í íslenskum bókmenntum
Peter Hallberg sitt af mörkum til að breiða út
verk Laxness, bæði með þýðingum og
umfjöllun um skáldið. Þar hafa nokkurn veginn
öll verk Laxness komið út og héldu áfram að
koma út allt fram á síðasta áratug, en
undanfarið hefur lítið farið fyrir áhuganum
þar.
í Danmörku komu bækurnar áður fyrr út
hjá Gyldendal, sem hefur gefið út 21 bók eftir
Laxness, þar af þrjár í stórum upplögum.
Salka Valka kom út í átján þúsund eintökum
1966 og svo í bókaklúbbi fjórum áður síðar í 42
þúsund eintökum. Atómstöðin kom út 1967 í
fimmtán þúsund eintökum og
Brekkukotsannáll 1973 í tíu þúsund eintökum.
Islandsklukkan kom út í fimm þúsund
eintökum, en aðrar bækur í minni upplögum.
Afkastamestu Laxness-þýðendurnir í
Danmörku voru Grethe og Jakob
Benediktsson, en síðar hafa fleiri komið við
sögu. Gyldendal gefur bækurnar ekki lengur
út, en undanfarin ár hefur Cicero, lítið forlag,
gefið út nokkrar bækur Laxness, þótt
útbreiðslan sé ekki mikil. Licht segir þó of
snemmt að segja til um hver áhuginn verði, því
Laxness sé sígildur höfundur og áhuginn geti
því blossað upp aftur þegar minnst varir.
Gaf þjóðinni
brjóstmynd
af Halldóri
PETER Sabiro myndhöggvari
færði íslensku þjóðinni brjóst-
mynd af Halldóri Laxness við há-
tíðlega athöfn í Stjórnarráðshús-
inu í gærmorgun.
Sabiro, sem gaf myndina í
minningu rithöfundarins, segir
hugmynd verksins vera þá að
Halldór risi út úr hrauninu.
í máli Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra, sem tók við gjöf-
inni, kom m.a. fram að Sabiro,
sem er rússnesk-bandarískur
myndhöggvari, hafi lokið mynd-
inni í viðurvist Halldórs er hann
dvaldi hér á landi árið 1991.
Menntamálaráðherra gat ekki
verið viðstaddur afhendinguna
vegna þingstarfa en bað fyrir
þakklæti og hlýjar kveðjur til
listamannsins.