Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
h
FRETTIR
I
í
I
20-40 mínútur að aka úr Grafarvogi á álagstímum
Kvartað undan
samg’önguerfíð
leikum í áratug
Mikil óánægja er meðal íbúa í Grafarvogi með samgöngur inn
og út úr hverfinu. Guðjón Guðmundsson rifjar upp hvað Grafar-
vogsbúum, borgaryfírvöldum og ríkisvaldinu hefur farið á milli á
þeim áratug sem nú er liðinn frá þvi fyrst fór að bera á kvörtun-
um 1989 um umferðarteppur í hverfínu.
AÆTLAÐ er að það kosti um
170 milljónir króna að
breikka Gullinbrú og
150-200 milljónir að gera endur-
bætur á Víkurvegi út að Vestur-
landsvegi. Kostnaðurinn greiðist af
ríkissjóði enda flokkast báðar fram-
kvæmdirnar undir þjóðveg í þétt-
býli.
Breikkun brúarinnar var á vega-
áætlun 1994-1998 og var áætlað að
hefja framkvæmdir á þessu ári. I
ársbyrjun 1997 tók ríkisstjórnin þá
ákvörðun að draga úr opinberum
framkvæmdum í ijósi stóriðju- og
virkjunarframkvæmda sem fram
undan voru og hættu á þenslu á
verktakamarkaði. Akveðið var að
ljúka við framkvæmdirnar við Ar-
túnsbrekku sem þá voru komnar á
fullan skrið en fresta öðrum vega-
framkvæmdum, þar á meðal breikk-
un Gullinbrúar.
Grafarvogsbúar hafa kvartað
undan erfíðleikum við að komast út
úr hverfínu á álagstímum í mörg ár.
Fyrir níu árum, 3. febrúar 1989,
hélt Davíð Oddsson, þáverandi
borgarstjóri, fund með íbúum Graf-
arvogs. Með honum var Ingi Ú.
Magnússon, þáverandi gatnamála-
stjóri, og svaraði hann umkvörtun-
um Grafarvogsbúa á þann veg að
fyrirhugað væri að fjölga akreinum
yfír Gullinbrú í fjórar. Hann sagði
að endanleg lausn á samgönguvand-
anum fengist þó ekki fyrr en með
tilkomu umferðarmannvirkja yfír
Elliðaárósa.
í október 1992 samþykkti borgar-
stjórn tillögu um endurskoðun á
skiptingu vegafjár sem ríkisvaldið
hugðist verja til að auka atvinnustig
í landinu. Markús Öm Antonsson,
þáverandi borgarstjóri, sagði í til-
lögu sem hann lagði fram að óviðun-
andi væri að Reykjavlkurborg legði
út fyrir kostnaðarsömum fram-
kvæmdum sem ríkið ætti að standa
straum af án þess að fyrir lægi
skjalfest samkomulag um áætlanir
og fjármögnun. Hefja skyldi við-
ræður við fulltrúa ríkisstjórnar og
Alþingis með það fyrir augum að
ganga frá áætlunum um fram-
kvæmdir og fjárveitingar ríkisins á
næstu árum vegna umferðarmann-
virkja í borginni.
Á fundi í maí 1995 upplýsti Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri að á vegaáætlun sem Alþingi
hefði staðfest 1994 væri ráðgert að
breikkun Gullinbrúar hæfíst 1998.
Fyrir einu ári, 12. febrúar 1997,
sagði borgarstjóri á hverfafundi í
Grafarvogi að ljóst væri að tvöfóld-
un Gullinbrúar væri orðin tímabær
og að horft væri til tengingar yfir til
Kleppsvíkur í náinni framtíð. Þar
væri hafin verkfræðileg undirbún-
ingsvinna. Borgarstjóri sagði að
báðar framkvæmdimar væru fjár-
magnaðar af vegaáætlun ríkisins og
hefði Reykjavíkurborg því ekki for-
ræði um tímasetningu fram-
kvæmda.
„Við á höfuðborgarsvæðinu höf-
um lengi haldið því fram að fjár-
framlög til þjóðvega á höfuðborgar-
svæðinu séu of lág,“ sagði borgar-
stjóri. Hún sagði einnig að borgar-
yfirvöldum væri ljóst að hringtorgið
á Fjallkonuvegi annaði ekki umferð
á álagstíma og að lausnir þyrfti að
finna á þeim vanda.
Reykjavíkurborg fjármagni
framkvæmdina
I
Jarðgöng eða brú yfir Klepps-
vfk vænlegri kostur
Á fundi borgarstjóra
með Grafarvogsbúum í
nóvember 1993 var enn
fundið að því að sam-
gönguleiðir inn og út úr
hverfínu væru knappar
og önnuðu ekki umferð.
R-listinn felldi
tillögu um
lánstilboð í
borgarráði
Borgarstjóri sagði að útreikningar
Vegagerðarinnar sýndu að hag-
stæðasta aðgerðin væri endurbætur
á Vesturlandsvegi með mislægum
gatnamótum við Höfðabakka og
nýrri Elliðaárbrú. Hann taldi tíma-
bært að menn færu að skoða betur
gerð brúar eða jarðganga yfir
Kleppsvík sem yrði vænlegri kostur
Óeðlilegt að taka lánstilboðum
anlega yrði tekin afstaða til fjár-
framlaga til verksins að tveimur ár-
um liðnum, þ.e. á vordögum 1999,
þegar vegaáætlun til tveggja ára
yrði endurskoðuð.
Síðastliðið vor bauðst Reykjavík-
urborg síðan til að lána 45 milljónir
kr. svo framkvæmdir gætu hafist
við fyrsta áfanga Gullinbrúar, þ.e.
breikkun frá Hallsvegi og út fyrir
hringtorgið við Fjallkonuveg.
Seinni áfanginn er smíði tveggja
apríl 1997 lögðu sjálfstæðis-
menn í skipulagsnefnd til á fundi
nefndarinnar að tryggt yrði að
framkvæmdir við breikkun Gullin-
brúar frá Stórhöfða gegnum gatna-
mót við Hallsveg hæfust á árinu
1997. Reykjavíkurborg fjármagnaði
framkvæmdirnar að öllu leyti þar til
fé fengist til þeirra samkvæmt
vegaáætlun. í tillögunni sagði að
forgangsmál væri að breikka Gull-
inbrú og tryggja eðlilega aðkomu að
Grafarvogssvæðinu. Málinu var vís-
að til borgarráðs þar sem fulltrúar
R-listans felldu tillöguna.
í maí á síðasta ári var samþykkt
ný vegaáætlun á Alþingi. Upphaf-
lega var gert ráð fyrir hefðbundinni
endurskoðun vegaáætlunar til fjög-
urra ára en nokkrum dögum fyrir
afgreiðslu var tilkynnt að vegaáætl-
unin tæki aðeins til tveggja ára, þ.e.
1997 og 1998. Um svipað leyti sam-
þykkti skipulags- og umferðarnefnd
borgarinnar áskorun til samgöngu-
ráðherra um að verða við tillögu um
framlag úr vegasjóði til breikkunar
á Gullinbrú. Borgarráð gerði tillög-
una að sinni og samþykkti ennfrem-
ur að fengist framlag af vegafé á
árunum 1997 og 1998 myndi borgar-
________ ráð flýta undirbúningi svo
framkvæmdir gætu hafist
haustið 1997. Þrátt fyrir
að ekki væri gert ráð fyr-
ir fé til að breikka Gullin-
brú á vegaáætlun ákvað
““““““ borgarráð að fela borgar-
verkfræðingi að hefja hönnun á
Morgunblaðið/ Ásdís
23 ÞÚSUND bflar aka daglega um Gullinbrú samkvæmt talningu í aprfl 1997. I áætlun sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir að á þessu ári fari 36 þúsund bflar daglega um brúna.
breikkun brúarinnar og var veitt 5
milljóna króna lán til Vegagerðar-
innar til að kosta hönnunina.
, Sfl^ð.tvþfþldgGullinþrú,,
í bréfí samgönguráðuneytisins til
borgarráðs vegna framkvæmda við
Gullinbrú sem lagt var fram í borg-
,...,.grcáúUjl4lí.L9í!7 kom fram að.yænL
akreina brúar við hlið Gullinbrúar.
Heildarkostnaður við báða áfang-
ana er áætlaður um 170 milljónir kr.
í bréfí vegamálastjóra til borgar-
ráðs segir að breikkun Gullinbrúar
hafi í röðun sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu átt að fá aðalfjár-
veitingu árið 1998 en í vegaáætlun
til næstu tveggja ára sé hún ekki á
blaði. Ríldsendurskoðun hafi komist
að þeirri niðurstöðu að óeðlilegt sé
að taka lánstilboðum nema Alþingi
hafi áður samþykkt viðkomandi
framkvæmd í vegaáætlun. I fram-
haldi af því hafi samgönguráðuneyt-
ið ákveðið þá vinnureglu að ekki
yrði tekið lánstilboðum í vegafram-
kvæmdir nema þær væru í vega-
áætlun.
I grein í Morgunblaðinu 7. ágúst
sl. segir Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra að Reykjavíkurborg hafi
sýnt skilning á þeirri ákvörðun rík-
isstjómarinnar að draga úr opin-
berum framkvæmdum vegna stór-
iðju- og virkjunarframkvæmda á ár-
unum 1997 og 1998. Breikkun Gull-
inbrúar hafi ekki verið á dagskrá
milli sín og borgarinnar þegar
gengið hafi verið frá vegaáætlun í
maí 1997. Samgönguráðherra sagði
jafnframt að engu að síður væri
ljóst að nauðsynlegt væri orðið að
huga að því að breikka biúna og
vinna að úrbótum á gatnamótunum
norðan Grafarvogs.
Tveggja vikna frestur
Á fundi borgarráðs um miðjan
janúar sl. var samþykkt tillaga
borgarstjóra um að leitað yrði eftir
heimild Vegagerðarinnar til að
bjóða hið fyrsta út breikkun Gullin-
brúar frá Stórhöfða að ---------
Hallsvegi. í tillögu borg-
arstjóra er bent á að
framkvæmdin þoli ekki
meiri bið en orðin er.
Jafnframt samþykkti
borgarráð að ríkisstjórn-
inni yrði veitt lán fyrir
ummæli
Regla tekin
upp um að
taka ekki
lánstitboðum
fyrsta
áfanga framkvæmdarinnar ef þörf
krefði þar til fé fengist á vegaáætl-
un.
Guðrún Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar, sagði 5. febrúar
sl. að ljúka mætti hönnun verksins á
einni til tveimur vikum og fengi
hugmyndin ekki brautargengi á
næstu tveimur vikum .myndu borg-
>
t
i
>
i
i
aryfirvöld sjálf ráðast í fram-
kvæmdirnar upp á von og óvon.
Samgönguráðherra sagði þetta
gott tilboð og líklegast væri best að
doka við í hálfan mánuð og láta
borgaryfirvöld um málið. Færi svo
gæti hann lagt til á móti að fram-
kvæmdum við Víkurveg yrði flýtt
en þær myndu kosta á bilinu
150-200 milljónir kr. í Morgunblað-
inu 7. febrúar sl. segir samgöngu-
ráðherra að hann geti ekki tekið
borgarstjóra um hálfs
mánaðar frest alvarlega
þar sem útboðsgögnin
liggi ekki einu sinni fyrir.
„Eins og málin standa
nú er hönnun Gullinbrúar
ekki lokið og borgin
““““““ stefnir að því að brúin
verði tekin í notkun á næsta ári.
Hins vegar er undirbúningur út-
boðs á breytingum á gatnamótum
við hringtorgið í Grafarvogi og
breikkun götunnar við Gullinbrú á
lokastigi. Því verður jafnvel hægt
að bjóða verkin út í þessum mánuði
eða þeim næsta,“ sagði Halldór
Blöndal.