Morgunblaðið - 14.02.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 21
ERLENT
Söguleg ákvörðun tekin á stjórnlagaþingi í Astralíu
Samþykkt að stefna
að lýðveldisstofnun
Canberra. Reuters.
SÉRSTAKT stjómlagaþing í
áströlsku höfuðborginni Canberra
samþykkti í gær áform um að
Ástralía verði lýðveldi og forsætis-
ráðherrann John Howard hét því að
á næsta ári yrði efnt til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um það hvort Ástralir
viiji halda Bretlandsdrottningu sem
þjóðhöfðingja sínum eða kjósa sér
forseta í hennar stað.
Með því að tilkynna um að bind-
andi þjóðaratkvæðagreiðsla færi
fram um lýðveldisstofnun tókst
Howard að jafna ágreining um þessa
sögulegu ákvörðun meðal hinna 152
fulltrúa á stjómiagaþinginu. Atkvæði
féllu þannig að 73 fullti*úar studdu
lýðveldisstofnun en 57 voru á móti. 22
sátu hjá. Lýðveldissinnar höfðu að
vísu deilt um hvemig ný lýðveldis-
stjómskipan skyldi útfærð en forsæt-
isráðherrann fékk menn til að leggja
ágreining á hilluna með því að heita
því að bera þá útfærslu sem naut
mests fylgis - með skipuðum forseta
- undir þjóðina.
Howard sagði það vera hræsni ef
tillagan yrði ekki borin undir þjóðar-
atkvæði. Ákvörðun hans gæti þýtt að
Ástralía yrði orðin lýðveldi í ársbyrj-
un 2001, á aldarafmæli sameiningar
hinna sex fyrrverandi nýlendna
brezka heimsveldisins í Ástralíu.
Stjórnarskrárbreytingar
þungar í vöfum
Vegna þess hve áströlsk stjómlög
era margslungin era stjórnarskrár-
breytingar þar þungar í vöfum. Frá
Reuters
JOHN Howard, forsætisráðherra Ástralíu (í miðju), situr með konungs-
sinnana Kerry Jones og Lloyd Waddy sinn til hvorrar handar á stjóm-
lagaþinginu í Canberra, sem lauk störfum í gær.
1901 hafa breytingatillögur aðeins í
átta tilvikum náð að ganga í gildi.
Hvers konar breytingar krefjast
jafnframt samþykkis þjóðhöfðingj-
ans, drottningarinnar.
Samkvæmt skoðanakönnunum er
meirihluti íbúa Ástralíu fylgjandi
lýðveldisstofnun. Mest hefur fylgið
mælzt við lýðveldisstjórnkerfi þar
sem forsetinn er þjóðkjörinn, en
samkvæmt niðurstöðum einnar
könnunar virtust flestir kjósa helzt
að þingið veldi forseta, en drottning-
in yrði áfram formlegur þjóðhöfð-
ingi.
Fulltrúarnir á stjómlagaþinginu
Thatcher hyggst
leggja áróðri
gegn EMU lið
Lundúnum. Reuters.
MARGARET Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, hyggst
beita sér opinberlega í gegn aðild
Bretlands að Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu, EMU. The Daily
Telegraph greindi frá þessu í gær og
talsmaður barónessunnar staðfesti
fréttina við Reuters.
í frétt blaðsins segir
að til standi að hrinda af
stað áróðursherferð und-
ir yfirskriftinni „Björg-
um pundinu". Tilkynnt
yrði um herferðina siðar
í þessum mánuði, en að
baki henni stæðu 20 hóp-
ar og samtök andstæð-
inga og efasemdarmanna
um Evrópusamrunann.
„Ég sé hana ekki endi-
lega í forystuhlutverki,
en hún mun leika mikil-
vægt hlutverk þegar þar Thatcher
að kemur,“ sagði talsmaður Thatcher. árs 2002.
Daily Telegraph nefndi Robert
Cranbome lávarð, leiðtoga íhalds-
manna í lávarðadeild þingsins, og
Peter Shore lávarð, fyrrverandi ráð-
herra í ríkisstjóm Verkamanna-
flokksins, sem væntanlega forystu-
menn í hinum verðandi þrýstihópi,
sem sagður er stefoa að því að safna
tíu milijónum punda (um 120 milljón-
ir króna) til að standa straum af
kostnaði áróðursherferðarinnar.
*★★★*
EVRÓPA^
greiðslu ef hún tekur
ákvörðun um að sækja
um aðild að EMU fyrir
Bretlands hönd, en bú-
izt er við því að allt að
ellefu af fimmtán aðild-
arlöndum Evrópusam-
bandsins verði stofnaðil-
ar að EMU um næstu
áramót. Ráðherrar í rík-
isstjórinni hafa sagt að
af aðildarumsókn verði
ekki fyrr en eftfr næstu
kosningar, sem gætu
dregizt fram til miðs
Áróður vegna væntanlegrar
þjóðaratkvæðagreiðslu
í fyrradag gaf David Owen lávarð-
ur, sem var utanríkisráðherra í síð-
ustu stjórn Verkamannaflokksins á
áttunda áratugnum, í skyn að hann
kynni að taka að sér að beita sér op-
inberlega gegn myntbandalaginu.
Ríkisstjóm Tony Blairs hefur
heitið því að efna til þjóðaratkvæða-
I ljósi þess að von er á því að gert
verði út um þetta mikla deilumál í
Bretlandi með þjóðaratkvæða-
greiðslu ætla andstæðingar aðildar
Bretlands að EMU að sameina
krafta sína með hinni væntanlegu
áróðursherferð í því skyni að reyna
að sannfæra sem flesta kjósendur
landsins um að affarasælast fyrir
þjóðina verði að greiða atkvæði gegn
EMU-aðild. Shore lávarður hefur
reynslu af slíkri baráttu, en hann fór
fyrir „nei“-hreyfingunni fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna um aðild Bret-
lands að Evrópubandalaginu á sínum
tíma árið 1975.
„Þeir sem styðja aðildina að mynt-
bandalaginu eru í mjög sterkri áróð-
ursaðstöðu og það er tími til kominn
að við [sem erum á móti] sameinum
krafta okkar,“ var haft eftir einum
skipuleggjenda hins nýja þrýstihóps.
vora að helmingi skipaðir og að
helmingi kjörnir - stjómmálamenn,
lýðveldissinnar, konungssinnar, fjöl-
miðlafólk, íþróttastjömur og for-
ystumenn úr athafnalífinu.
I fyrradag kom stjómlagaþingið
sér saman um að stefna að lýðveldis-
stjórnkerfi sem yrði að mestu
óbreytt frá þvi sem nú er - embætti
forsætisráðherra yrði áfram valda-
mesta embættið, en forseti yrði skip-
aður til fimm ára með því að forsæt-
isráðherrann og leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar á þingi veldi hann úr
hópi frambjóðenda og þingið stað-
festi skipunina.
borgarstjóra 9
Tóbaksaug-
lýsingabann
staðfest
Brussel. Reuters.
RÁÐHERRARÁÐ Evrópusam-
bandsins, ESB, staðfesti form-
lega á fimmtudag bann við tó-
baksauglýsingum, sem á að
komast til framkvæmda í skref-
um á næstu sjö árum í öllum að-
ildarlöndum sambandsins.
Málamiðlunarniðurstaða náð-
ist á fundi heilbrigðisráðherra
ESB fjórða desember sl. um að
tóbaksauglýsingar yrðu bannað-
ar, en tímabundnar undanþágur
veittar. Formúla-l-kappakstur-
inn fékk lengsta frestinn, en ár-
ið 2006 verða rekstraraðilar
hennar að vera búnir að losa sig
undan auglýsingasamningum
við tóbaksfyrirtæki.
Það voru rannsóknamálaráð-
herrar aðildarlandanna 15 sem
veittu formlegt samþykki við
banninu í fyrradag og af-
greiddu málið án umræðu. Evr-
ópuþingið á eftir að veita sitt
samþykki til að það geti gengið
í gildi.
i
/
BODDIHLUTIR
í flesta bfla
Verðdæmi:
Bretti á Corolla kr. 3.764
Bretti á Lancer kr. 4.524
Bretti á Charade kr. 3.464
Stuðari á Sunny kr. 5.605
Framljós á Corolla kr. 6.598
Bílavörubúðin
FJÖÐRIN
ífararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVlK SlMI 588 2550