Morgunblaðið - 14.02.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 23
Grikkir hafna
boði Tyrkja
um viðræður
Ankara. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Tyrklandi fóru í
fyrradag fram á viðræður við
grísku stjórnina um ágreinings-
mál ríkjanna í Eyjahafí en Grikkir
vísuðu því óðara á bug. I svari
þeirra sagði, að engar viðræður
yrðu teknar upp um grískt land-
svæði.
I yfirlýsingu tyrkneska utanrík-
isráðuneytisins var hvatt til þess,
að Tyrkir og Grikkir ræddust við
og skilgreindu betur ágreiningsefn-
in í Eyjahafi; hrintu í framkvæmd
reglum, sem Bandaríkjastjóm
beitti sér fyrir á síðasta ári, um
samskipti grannríkjanna og færu
fram á aukna aðstoð annarra
NATO-ríkja við að skapa traust á
milli ríkjanna. Var vonast til, að af
viðræðunum gæti orðið fyrir mars-
lok nk.
Dimitris Reppas, talsmaður
grísku stjómarinnar, sagði, að í til-
lögu Tyrkja væri ekkert nýtt að
finna og tilgangur hennar sá einn
að ginna Grikki til viðræðna um
grískt yfirráðasvæði.
„Tillagan er um eiginlega við-
ræður og á það follumst við ekki.
Ágreiningurinn í Eyjahafi snýst að-
eins um landgrunnið og við viljum,
að Alþjóðadómstóllinn skeri úr um
það,“ sagði ónefndur, grískur emb-
ættismaður.
Grikkir og Tyrkir deila um skipt-
ingu Kýpur og réttindi minnihluta-
hópa og um lögsögumörk í Eyja-
hafi. Grikkir krefjast 12 mílna lög-
sögu við grísku eyjamar þar en
Tyrkir viðurkexma ekki nema sex.
Lá við átökum milli ríkjanna 1996
vegna deilu um óbyggða smáeyju
en þá gengu Bandaríkjamenn á
milli.
Óánægðir
með ESB
Það hefur einnig farið fyrir
brjóstið á Tyrkjum, að tilraunir
þeirra til að fá aðild að Evrópu-
sambandinu, ESB, hafa engan
árangur borið og Grikkir, sem
eru ESB-ríki, hafa með neitunar-
valdi sínu komið í veg fyrir tug-
milljarða styrk frá ESB til Tyrk-
lands. Þá er tyrkneska stjórnin
óánægð með, að ESB ætlar að
taka upp aðildarviðræður við
Kýpurgrikki.
Suður-Kórea
Allsherj-
arverkfalli
aflýst
Seoul. Reuters.
STARFSMAÐUR skipasmíða-
stöðvar í Suður-Kóreu lét lífið í gær
eftir að hafa kveikt í sér til þess að
lýsa stuðningi við allsherjarverkfall
sem boðað hafði verið en var aflýst
í gær. Hvorki almenningur í land-
inu né stéttafélög höfðu sýnt verk-
fallsboðuninni mikinn stuðning.
Choi Dae-lim beið bana er hann
bar eld að sjálfum sér og hljóp síð-
an út af skipi í slipp Daewoo
þungaiðnaðarfyrirtækisins. I bréfi
sem hann ritaði stéttafélagi starfs-
manna Daewoo áður en hann svipti
sig lífi sagði hann m.a.: „Styðjum
baráttu Sambands kóreskra stétt-
arfélaga."
Sambandið aflýsti allsherjar-
verkfalli sem boðað hafði verið til í
gær á þeim forsendum að það vildi
ekki tefla í tvísýnu efnahagsbata í
landinu og hætta á gjaldeyris-
kreppu. Verkfallið var boðað til
þess að mótmæla samkomulagi sem
gert var í síðustu viku um að setja
lög er gerðu vinnuveitendum hæg-
ara um vik að segja starfsfólki upp.
Löggjöfin er talin mikilvægur
þáttur í endurskipulagningu sem
Kóreumenn vona að komi efnahag
landsins á réttan kjöl, í tengslum
við mikla fjárhagsaðstoð frá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum. Erlendir
fjárfestar telja að komi löggjöfin til
framkvæmda verði það til marks
um að Suður-Kórea ætli að standa
við fyrirheit um efnahagsumbætur.
-------------------
Færeyingar
vilja aukna
sjálfstjórn
Þórshöfn. Morgunblaðið.
STÓR meirihluti Færeyinga er nú
ýmist hlynntur aukinni sjálfstjórn
eða algeru sjálfstæði. Kemur það
fram í skoðanakönnun, sem gerð
var fyrir stærsta blaðið, Dimma-
lætting.
Könnunin sýnir, að 40% vilja
aukna sjálfstjóm en 29% vilja slíta
alveg sambandinu við Danmörku.
16% vilja óbreytt ástand en 10% eru
hlynnt enn nánara sambandi við
Danmörk. Núverandi heimastjórn-
arlög eru frá árinu 1948 og jafnað-
armenn hafa nú lagt fram á lögþing-
inu tillögu um, að þau verði tekin til
endurskoðunar og brautin rudd fyr-
ir algerri sjálfstjórn. Þar er talað
um, að það verði skilgreint hvað
felist í færeyskum ríkisborgara-
rétti, ekki bara dönskum, og enn-
fremur, að ýmsar stofnanir og
málaflokkar, til dæmis dómskerfið,
lögreglan og utanríkismál, hætti að
heyra undir Dani.
Flestir stjórnmálaflokkanna virð-
ast hlynntir aukinni sjálfstjóm.
Ól’ÓTU<©Úi'l.RO
—, »%£,
Stendur vikurn "
14.- 21. febrúar.
Ú i ^ AI, A
á raftækjum og el ■nBBn mmmm sál KTiriMM
Kælir — frystir
Mál: 141x55x60
Rétt verö kr. 48.400
Kælir — frystir
Mál: 154x55x60
Rétt verö kr. 51.900
Kælir — frystir
Mál: 160x60x60
Rétt verð kr. 64.600
Orbylgjuofn
19 lítra — 800 vött
Rétt verð 19.900
Ofn með helluborði
3 kerfa — hitablástur
Rétt verð 79.700
Brauðrist
Rétt verð 1.990
Brauðvél
Bakar 750 gr. brauð
Rétt verð 17.800
Fondue sett
800 watta
Rétt verð 7.400
Utvarpsklukka
Rétt verð 3.490
Vöfflujárn
Rétt verð 3.960
Geislaspilar
Rétt verð 13.900
LITIÐ UTLITSGALLAÐ
300 lítra hitakútur. Rétt verð 67.900. Nú 39.900,
6 manna uppþv.vél. Rétt verð 34.700. Nú 18.900,
Eldavél. Rétt verð 39.900. Nú 27.900.
Ennfremur vaskar — frystar — kæliskápar og m.fl,
Orbylgjuofnaáhöld
Einar
Farestveit&Co.hf.
Halogen vinnulampi
150 w rétt verð 1.990
500 w rétt verð 3.200
Ryksuga
Rétt verð 9.900
f • -
—
i- s
OPIÐ TIL KLUKKAN 17.00 LAUGARDAG
Borgartúni 28, sími 562 2900 / 562 2901