Morgunblaðið - 14.02.1998, Page 24

Morgunblaðið - 14.02.1998, Page 24
24 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Hvað ber að gera - við leifar hins liðna? MIJMÍA Vladimírs Leníns í grafhýsinu á Rauða torginu í Moskvu, þar sem hún hefur legið í 74 ár. fór Gennadíj Tsjúganov, leiðtogi flokksins og fyrr- um forsetaframbjóðandi, og lofaði hann mjög fram- lag þessa „höfuðsnillings rússnesku þjóðarinnar." Sagði hann sérlega viðeig- andi að heiðra minningu Leníns því óbreyttur al- múginn hefði glatað „rétt- inum til vinnu, réttinum til launa, réttinum til félags- legrar aðstoðar og réttin- um til að fá lifað með reisn.“ A þennan veg lýsti Tsjúganov ástandinu í Rússlandi undir stjórn Jeltsíns og undirsáta hans. Ekki reyndust þó allir sammála þessu mati kommúnistaleiðtogans. Boris Nemtsov, aðstoðar- forsætisráðherra og einn helsti leiðtogi svonefndra „umbótasinna" í stjóm Jeltsíns, nýtti daginn til að ítreka kröfur um að múmí- an yrði jarðsett. „Bölvun mun hvfla yfir Rússlandi þar til Lenín verður jarð- settur með kristilegum hætti,“ sagði Nemtsov í út- varpsviðtali. Reuters PressLink HINN 30. janúar sl. skýrði rússneska ríkisstjúrnin frá því að hafið væri yfir all- an vafa að beinin sem fundust f skógi nærri Jekaterínborg árið 1979 og grafin voru upp árið 1991 tilheyrðu sfðasta keis- ara Rússlands og fjölskyldu hans. Austur í Rússlandi er nú ákaft deilt um hvar jarðsetja beri leifar síð- ustu keisarafjölskyld- unnar og hvort flytja eiffl múmíu Leníns úr grafhýsi hans við Rauða torg. Ásgeir Sverrisson gerir grein fyrir þeim sjónarmið- um sem uppi eru. HVAÐ ber að gera?“ spurði byltingarleiðtoginn rúss- neski, Vladímír Lenín í samnefndri bók og nú, 74 árum eftir að stofnandi Sovétríkj- anna kvaddi þennan heim, standa Rússar á ný frammi fyrir þessari sömu spurningu. I þetta sinn varð- ar spumingin þó ekki framtíð hinn- ar sósíalísku paradísar og sókn for- ystusveitar Kommúnistaflokksins til valda heldur fara nú fram miklar umræður um það eystra hvað gera beri við jarðneskar leifar valdaræn- ingjans og keisarafjölskyldunnar sem hann lét myrða árið 1918. Múmía Leníns liggur enn í graf- hýsi hans á Rauða torginu í Moskvu og enn koma Rússar þar saman á merkisdögum til að votta byltingarleiðtoganum virðingu sína. í tíð Sovétríkjanna tíðkaðist það mjög að sækja grafhýsið heim á merkisdögum á mannsævinni, t.a.m. þegar menn gengu í hjóna- band en á síðustu áram era það einkum leifar Kommúnistaflokksins sem þar hafa safnast saman til að halda á lofti minningu hans og for- dæma þau grimmilegu lífskjör sem núverandi ráðamenn hafa búið rússnesku þjóðinni. Heiðursvörður- inn sem stikaði keikur frammi fyrir innganginum að helgidóminum heyrir hins vegar sögunni til. Kommúnísk mótspyrna Umræður um hvað bæri að gera við múmíu Leníns hófust strax um það leyti sem Sovétrfldn liðuðust í sundur árið 1991. Það eru einkum leiðtogar hins endurstofnaða Kommúnistaflokks Rússlands sem lagst hafa gegn því að múmían verði fjarlægð úr grafhýsinu og lögð til hvflu með hefðbundnari hætti. Ráðamenn í Rússlandi hafa verið mjög hikandi í þessu efni og virðast óttast að ólga kunni að skapast fari fram svo djúpstætt uppgjör við söguna. Borís Jeltsín forseti lagði í fyrra til að fram færi þjóðaratkvæða- greiðsla í Rússlandi um hvað bæri að gera við þessar sögulegu en sér- stæðu minjar. Sjálfur hallaðist for- setinn einna helst að því að fjar- lægja ætti líkið og grafa það við hlið móður Leníns í Pétursborg. Kommúnistar reyndust þessu öld- ungis andvígir og svo virðist sem þessi róttæka hugmynd hafí verið kæfð í fæðingu. Þessi vandi hefur hins vegar orðið fyrirferðarmikill í þjóðmálaumræðunni á ný á undan- fórnum vikum eftir að óyggjandi sannanir voru lagðar fram um að beinaleifar sem fundust nærri Jekaterínborg f Úralfjöllum væru af rússnesku keisarafjölskyldunni sem tekin var af lífi þar í borg, sam- kvæmt skipun Leníns, árið 1918. „Höfuðsnillingur" Rússneskir kommúnistar komu saman við grafhýsið á Rauða torg- inu 21. janúar sl. en þá vora 74 ár liðin frá dauða Leníns. Fremstur Lenín verði „klónaður“ Óvenjulegasta hugmyndin kom hins vegar frá Igor nokkram Mali- arov, leiðtoga ungliðahreyfingar Kommúnistaflokksins. Hann lagði til að jarðneskar leifar Leníns yrðu notaðar til einræktunar, Rússland þyrfti á fleiri slíkum snillingum að halda á þessum erfiðleikatímum. Kvaðst hann telja að það myndi reynast mjög jákvætt fyrir rúss- nesku þjóðina yrði Lenín „klónað- ur.“ Hið sama bæri að gera við aðra borgara sem sýndu viðlíka hæfi- leika. Þessari hugmynd andmælti Tsjúganov kröfuglega og tók fram að hún væri ekki í samræmi við stefnu flokksins í málinu. Míkhaíl S. Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, hefur einnig séð ástæðu til að tjá sig um málið. Hann hefur lagt til að ákvörðun verði frestað til ótiltekins tíma. Greinilegt sé að djúpstæður ágrein- ingur sé ríkjandi og óheillavænlegt sé að raska ró þjóðarinnar á slíkum erfiðleikatímum. Ákvörðun á borði Jeltsíns Deilur, sem eru engu síður ákaf- ar en ágreiningurinn um múmíu Leníns, hafa nú blossað upp um hvað gera beri við beinaleifar keis- arafjölskyldunnar. I því tilfelli virð- ist ágreiningurinn þó einkum snú- ast um peninga; sýnt er talið að þær kunni að reynast drjúg tekju- lind verði ferðamönnum til Rúss- lands boðið að fara að gröf síðasta keisarans. Hinn 30. janúar sl. skýrði rúss- neska ríkisstjórnin frá því að hafið væri yfir allan vafa að beinin sem fundust í skógi nærri Jekaterín- borg árið 1979 og grafin vora upp árið 1991 tilheyrðu síðasta keisara Rússlands og fjölskyldu hans. Höfðu rannsóknir rússneskra, breskra og bandarískra vís- indamana á leifunum þá staðið yfir linnulítið í fimm ár. Sérstök nefnd hefur verið skipuð og henni falið að leggja fram tillög- ur um hvar og með hvaða hætti beri að koma beinunum fyrir. Jeltsín forseti mun taka lokaá- kvörðun í málinu og hefur almennt verið búist við því að hann úrskurði að gi-afa beri beinin í Dómkirkju Péturs og Páls í Pétursborg þar sem jaðneskar leifar keisara Roma- nov-ættarinnar hafa verið lagðar til hinstu hvflu allt frá dögum Péturs mikla. Rússneska réttrúnaðarkirkjan hyggst taka Nikulás II keisara í dýrlingatölu og talið hefur verið lík- legt að beinin verði jarðsett 17. júlí í sumar en þá verða 80 ár liðin frá því að fjölskyldan var tekin af lífi í Jekaterínborg. Húsið þar sem aftakan fór fram var rifið í tíð Le- oníds Brezhnevs Sovétleiðtoga og kom það í hlut leiðtoga kommún- istaflokksins í borginni að sjá um þá framkvæmd. Sá leiðtogi hét Bor- ís Jeltsín. Von um ferðamannagróða Nú er hins vegar hlaupin snurða á þráðinn.Yfirvöld í Jekaterínborg telja að beinin eigi heima þar og virðist sem ágóðavonin ráði þar mestu því víst er talið að ferða- mannastraumur til borgarinnar muni stóraukast verði keisarafjöl- skyldan jarðsett þar. Ráðamenn í borginni styðja mál sitt þeim rök- um að eðlilegt sé að fjölskyldan, Nikulás keisari, kona hans Alex- andra og dætur þeirra þrjár, Olga, Tatyana og Anastasia, verði lögð tU hinstu hvUu þar tU að halda miningu þeirra á lofti og þeim grimmilegu örlögum sem þau hlutu. Leifar sonarins, Alexei og fjórðu dótturinnar, Maríu, hafa ekki fundist en lík þeirra vora brennd og af einhverjum ástæðum skilin frá hinum. Auk þeirra vora tveir þjónar og matreiðslumeistari keisarans teknir af lífi í Jekaterín- borg þar sem fjölskyldan var í haldi mánuðum saman eftir byltingu kommúnista í Rússlandi 1917, sem batt enda á 300 ára valdaskeið keis- araættarinnar. í leit að sjálfsímynd Einhverjum kann að þykja sér- kennUegt að ákvörðun hvað gera beri við jarðneskar leifar löngu lát- ins fólks geti kveikt svo heitar til- finningar. Við nánari skoðun verður þó ljóst að þessar deilur era með öllu eðlilegar. I Rússlandi fer nú fram sársaukafullt uppgjör við sög- una og inn í það blandast geysilega erfitt ástand á flestum sviðum þjóð- lífsins. Fáar þjóðir hafa til að bera dýpri sögulega vitund en Rússar og nú krefst samfélagsþróunin þess að sagan verði gerð upp. I rúm 70 ár laut saga lands og þjóðar fölsunum Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Nú leitar þjóðin á vit sögunnar í leit að sjálfsímynd eftir að hafa horft upp á valdakerfi kommúnismans hrynja eins og spilaborg á undra- skömmum tíma. Spurningin um hvað gera beri við múmíu Leníns og leifar keisarafjöl- skyldunnar er í eðli sínu pólitísk og fallin til að auka enn frekar óróann á þessum miklu umbrotatímum. En undan henni verður tæpast vikist. Litháen Gjaldtaka vekur reiði Vilnius. Reuters. FIMM þúsund Litháar gengu um götur höfuðborgarinnar Vilnius í fyrradag til að mót- mæla gjaldtöku fyrir innan- bæjarsímtöl ásamt fyrirhug- aðri einkavæðingu símafyrir- tækisins og kröfðust afsagnar forsætisráðherrans Gediminas Vagnorius vegna málsins. Staðarsímtöl hafa til þessa verið ókeypis í Litháen. Mótmælin vora skipulögð af Lýðræðislega verkamanna- flokknum, helsta stjórnarand- stöðuflokki landsins, minni stjómarandstöðuhópum og verkalýðsfélögum. „Gjaldtak- an á sér hvorki efnahagslegar né lagalegar forsendur," sagði þingmaðurinn Stanislavas Bushkevicius. „Þeir hækkuðu verðið til að geta selt erlend- um kaupsýslumönnum síma- fyrirtækið og til að fá sporslur í eigin vasa,“ sagði hann. Rfldsstjóm landsins gaf fyr- ir skömmu út tilskipun um að staðarsímtök skyldu kosta 1,4 krónur fyrir hverja mínútu. Meðallaun í Litháen era um 15 þúsund krónur á mánuði og meðalellilífeyrir um fimm þús- und krónur. Bandaríkin Tillaga um bann við ein- ræktun felld Washington. Tlie Daily Telegraph. FRUMVARP sem repúblík- anar lögðu fram í öldunga- deild Bandaríkjaþings um al- gert bann við einræktun manna var fellt með miklum meirihluta á fimmtudag. Flestir stjómmálamenn, þ.á m. repúblíkanar sem era and- vígir fóstureyðingum, vilja ekki hefta einræktunartil- raunir vegna vísindalegs gild- is þeirra. Frumvarpið var lagt fram í kjölfar fregna um að banda- rískur eðlisfræðingur, Ric- hard Seed, hefði í hyggju að opna einræktunarstofu til þess að aðstoða ófrjótt fólk sem vildi eignast börn. Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefur sagt að hann vilji banna slíkt, en var andvígur þessu framvarpi því það gengi of langt. Vill Austur- ríki í NATO Vín. Reuters. ÆÐSTI yfinnaður herafla Atlantshafsbandalagsins í Evrópu, bandaríski hershöfð- inginn Wesley Clark, sagði í gær að eftirsóknarvert væri að Austurríki gengi í NATO, hefðu Austumkismenn áhuga á því. í ræðu sem Clark flutti í Vín sagði hann að vegna legu landsins væri aðild Austurrík- is eftirsóknarverð. Helstu ógnirnar við öryggi Evrópu- ríkja myndu að hans mati koma úr suðausturátt. „Það er ljóst að þetta mun hafa áhrif á Austurríki. Okkur sýn- ist sem Austurríki muni eiga eftii' að gegna mikilvægu hlut- verki í evrópskum öryggis- málum vegna sögu landsins og hefða og vegna hernaðar- lega mikilvægi*ar legu,“ sagði Clark.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.