Morgunblaðið - 14.02.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 25
NEYTENDUR
OSTAPASTA með tómatsalati er Morgunblaðið/Ásdís
fljótlegur réttur. KAFFI Thomsen
Sérstakur matseð-
ill á sunnudögum
HUSNÆÐIÐ er fremur hrátt,
borðum er klambrað saman úr
grófum spýtum, það er hátt til
lofts og vítt til veggja. Gamalt tré-
gólfíð gefur staðnum eigi að síður
hlýlegan blæ og það er eins og
kristalsljósakrónan í einu horninu
hafi alltaf verið þarna.
Þetta er Kaffi Thomsen sem er í
því húsnæði í Hafnarstrætinu sem
áður hýsti Thomsens magasín. Það
má segja að Kaffi Thomsen sé
kaffi- og matsölustaður virka daga
en síðan færist líf yfir staðinn á
föstudags- og laugardagskvöldum.
„Húsnæðið hafði um skeið stað-
ið autt og við ásælst það um tíma,“
segir Gísli Gunnarsson annar eig-
enda Kaffi Thomsens en meðeig-
andi hans er Sigurður Róbertsson.
„Þegar við loks fengum húsnæðið
þurfti ósköp lítið að gera fyrir það
nema rífa af gólfum, smíða borð
og gera aðrar minniháttar breyt-
ingar. Við vildum hafa yfirbragðið
hrátt og stóðum sjálfír í því að
breyta, klömbruðum borðunum
saman og rifum af gólfum."
Gísli segir að á daginn sé Kaffi
Thomsen sígilt kaffihús með ijúk-
andi kaffi, brauði og tertum. Hann
segist líka bjóða upp á ýmsa smá-
rétti og stærri máltíðir ef því er
að skipta. „Við erum að bjóða upp
á súpu og brauð í hádeginu, fisk
dagsins, kjötrétti, heitar samlok-
ur, pastarétti og salöt svo eitthvað
sé nefnt. Undanfarin ár hef ég
komið nálægt veitingahúsarekstri
og hef valið það besta af matseðl-
unum frá þeim tíma og sett saman
í þennan sem ég býð á Kaffi
Thomsen. Mig langar líka að geta
þess að ég legg áherslu á að við-
skiptavinirnir fái stóra skammta
og fari ekki svangir frá mér.“
Gísli segir að á sunnudögum sé
venjulegi matseðillinn Ijarlægður
og sérstakur sunnudagsseðill sett-
ur fram. „Þá er ég með sfðbúinn
morgunverð fyrir viðskiptavini,
býð upp á egg og beikon, amerísk-
ar pönnukökur og fleira í þeim
dúr. Það má eiginlega segja að ég
leggi alla hollustu tíl hliðar á
sunnudögum."
Gísli segir að opið sé alla daga
frá klukkan ellefu, á virkum dög-
um er opið til klukkan eitt eftir
miðnætti og tíl þijú um helgar.
Gísli segist aldrei fara eftir upp-
skriftum en gefur lesendum hér
uppskrift að tómatsalati og
ostapasta sem fyrirhafnarlítið og
fTjótlegt er að elda.
Tómatsalat
______4 þroskaðir bufftómatar____
______125 q mozzarellaostur______
12 fersk basilblöð, söxuð í mjóar
_____________ræmur_______________
_________1 msk hvítvínsedik______
______1 tsk þurrkuð bergmynta____
salt og nýmalaður pipar eftir smekk
Skerið tómata í þykkar sneiðar og
raðið þeim á fat eða fjóra diska.
Skerið ost í þykkar sneiðar og raðið
sneiðunum á tómatana. Setjið tvo
þriðju af basilblöðum, ólífuolíu, vín-
ediki og bergmyntu, salti og pipar í
glas með þéttu loki og hristið sam-
an. Hellið sósunni á salatið og strá-
ið síðan afganginum af basilblöðun-
um ofan á salatið áður en það er
borið fram.
Ostapasta með
kjúklingi og
sveppum
_________2 kjúklingabringur______
___________150 q sveppir ________
_____________V2I rjómi___________
_________I msk rjómaostur________
___________salt og pipgr_________
_________basil eftir smekk_______
_________kjúklingakraftur________
___________hvítlauksolíg_________
Kjúklingur er skorinn í bita og
steiktur í hvítlauksoiíu. Sveppir eru
steiktir með og krafti og kryddi bætt
á pönnuna eftir smekk. Rjómi er
soðinn niður og rjómaosti bætt
saman við. Þessu er hellt yfir soðið
pastað.
Morgunblaðið/Ásdís
Lif og fjor a
götumarkaði
GÖTUMARKAÐI Kringlunnar lýk-
ur í dag, laugardag. Margt var um
manninn á göngum Kringlunnar
síðastliðinn fimmtudag þegar mark-
aðurinn hófst.
Einhverjir verslunareigendur
ætla að ná upp sannri markaðs-
stemmningu í dag og bjóða við-
skiptavinum sínum að prútta.
Handverks-
markaður
á Garðatorgi
í DAG, laugardag, klukkan 10 verð-
ur opnaður handverksmarkaður á
Garðatorgi. Milli 40 og 50 manns
sYna og selja handverk sitt, til
dæmis trévöru, postulínsmuni, gler-
vöru, prjónavöru og leirmuni.
Kvenfélagskonur eru með kaffi á
könnunni og nýbakaðar vöfflur.
Markaðnum lýkur klukkan 18.
NVBYLAVEGI 2
SIM1: 554 2600
OPIÐ LAUGARDAG
KL. 13-17
PEUGEOT
LJÓN Á VEGINUM!
Peugeot 406 -fágaðvillidýr
Glœsilegur og tignarlegur bíll, ríkulega útbúinn og með öfluga 1800cc vél
sem gefur 112 hestöfl. Sannkallaður eðalvagn. Slepptu dýrinu í þér lausu!
1800cc vél, 112 hestöfl, vökva- og veltlstýrl, snúningshraðamœllr, loftpúðar fyrlr ökumann og farþega, fjarstýrðar
samlœslngar, þjófavörn, rafdrlfnar rúður að framan, stiglaus hraðastllling á miðstðð, hœðarstilling á aðalljósuna
hœðarstillt bllbeltl, bilbeltastrekkjarar, þrjú þriggja punkta bdbelti í aftursœtum, nlðurfellanleg sœtlsbök að
aftan 40/60, armpúði í aftursœtl, lesljós fyrir farþega í aftursœtum, hemlaljós í afturglugga, hliðarspeglar
stlllanleglr Innan frá, bensínlok opnanlegt innan frá, útvarp og segulband, stafrœn klukka, aurhlífar o.fl.
Upplifðu Peugeot! reynsluakstri
og leystu prófið.
Ljónheppinn reynsiuökumaöur mun
hljóta helgarferð fyrir tvo tll Parisar.