Morgunblaðið - 14.02.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
I
UPPSKRIFTIN
iV
Kálfahryggvöðvi
Saltfisksþynnur
á tómatkremi
50 g þykk saltfiskshnqkkastykki
_______14 tómatar úr dós_________
5 hvítlauksrif
1 msk tómatpúrré
1 búnt basilikum
1 dl sérrí edik
2 dl olífuolía
1 tsk sykur_______________
_____________hvítur pipar________________
2 dl sýráur rjómi
Takið tómatana og maukið, ásamt
tómatpuré, basilíkum, hvítlauk, ediki og
sykri. Blandið vel saman í mjúka
blöndu, hellið ólífuolíunni í mjórri bunu í
á meðan, og blandið vel saman við.
Kryddið og setjið sýrða rjómann saman
við.
Framreitt á eftirfarandi hátt:
Berlín 1996
Morgunblaðið/Hilmar B. Jónsson
______________10 g tímjan_____________
________4 skammtar salt og pipar______
____________10 q sykur____________
40 ml qóð matarolía
Takið endana af kúrbítnum og
skerið í teninga, saxið laukinn
smátt. Kjamhreinsið paprik-
una og skerið í teninga.
Merjið hvítlaukinn og skerið
eggaldinið í teninga.
Hitið olíuna og ljósbrúnið
eggaldinið, bætið paprikunni,
tómötunum, lauknum, kúrbítnum og
að endingu hvítlauknum út í.
Kryddið með salti og pipar, tímjan og
sykri, sjóðið við vægan hita og að end-
ingu er ólífuolíunni bætt í. Gefið með
saltfiskþynnunum.
Komið köldu ratatouille fyrir á
miðjum disk og leggið jöklasalat
á og dreypið sósuni yfir og strá-
ið graslauk ofan á.
Skerið saltfiskinn hráan,
hálffrosinn.
RatatouiIIe
________300 q kúrbítur__________
________275 a laukur____________
400 g qraen pqprika__________
530 q tómatar í dós ____________
15 q hvítlaukur_____________
300 q eqgaldin
75 ml olía
öllu fram sem hefur komist upp í munninn á
mér. Bragðið mikið, þó fínlegt, þungt en svo
undarlega létt, villt en þó svo vel tamið; full-
komin, mótsagnakennd heild.
Mér leið svo vel að mér fannst ég geta dáið;
ég hefði þegar bragðað það sem er best í
heiminum. Einu sinni sá ég það sem mér
finnst fegurst alls í heiminum og einu sinni
heyrði ég það sem hljómar betur en nokkuð
annað í mennskum heimi. Hvað er þá eftir?
Jú, næsti réttur, gjörið svo vel. Agúrku- og
brennivínskrap.
Maukaðar agúrkur, brennivín, sykur og
eggjahvítur. Semsagt krap, framreitt í út-
skornum klakaskálum sem voru svo nákvæm-
lega eins og krapið að þegar ég var búin með
það, gerði ég tilraun til að bryðja skálina.
Þetta krap var furðuleg lífsreynsla. Það
hafði ekki bragð, heldur ilm. Ilm sem leið
eftir einhverjum leynigöngum frá munninum
og fyllti upp í þefskynið. Og einhvern veginn
allt inni í manni hrópaði: Meira! Meira!
Meira!
Eg hafði gleymt púrtvíninu.
En það var allt í lagi. Ég drakk ævi-
skammtinn af því eitt kvöld á unga aldri.
Dreif bara í að ídára hann - og hef ekki þurft
að hafa áhyggjur af púrtvíni síðan.
Tvö úr jarðdýraríkinu
Hellt í glösin. Beaume Marconnets Premier
Cru 1991. Nú er það rautt. Minn litur. Afar
gott rauðvín. Og alikálfurinn borinn í salinn:
Kálfahryggvöðvi með andalifur og
sveppamauki. Vafið í grísanetju og ofnbakað.
Borið fram með madeirasósu, ostrusveppum
og eplakompt (eplamauki).
Kálfakjöt er, eins og saltfiskur, nátengt erf-
iðum bemskuminningum. Ég var einu sinni í
sveit á stóru heimili þar sem kálfum var slátr-
að eftir „behag“ og svo var alltaf siginn fiskur
í hádeginu og kálfakjöt á kvöldin. Hef ekki
borðað það síðan - ekki einu sinni á Italíu.
Þetta var algert „ðvö“ í sveitinni.
En á hátíðarkvöldi matreiðslumeistaranna
hafði einhverjum allt öðrum kálfi verið slátr-
að. Það var góður kálfur. Mjúkur kálfur. Al-
ger eðalgripur. Svona eiga kálfar að vera. Það
var sælubragð af honum og madeirasósan var
ein af þessum sósum sem maður geymir uppi
í sér; leyfir henni að fjara hægt, svo hægt, út -
eftir hvem bita. Ég hafði hlotið bót meina
minna hvað varðar saltfisk og kálfakjöt. Það
eykur nú aldeilis möguleikana á fjölbreytni í
eldamennsku á meðan maður er að baxa við
að ljúka barnauppeldi.
Orðið heldur betur kátt í höllinni, borðin
hreinsuð eins og hendi væri veifað og næsta
rauðvíni hellt í glösin; Cape Mentelle Shiraz
1994 frá Ástralíu. Ég, sem þykist finna svaka
mun á frönskum og áströlskum vínum, fann
engan mun. Þetta var indælt rauðvín - og
hamingja mín til munns og maga orðin svo
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 27
mikil að mér hefði verið alveg sama þótt það
kæmi úr öðru sólkerfi.
Næst á dagskrá fjallarjúpa.
Ég hef aldrei borðað rjúpu og hélt ég ætti
það aldrei eftir...
Man alltaf „Ein er upp til fjalla, yli húsa
fjær ...“ Ég á mömmu sem er brjálæðislega
dramatísk og þegar ég var að læra skólaljóðin
í bamaskóla bað ég hana einu sinni að út-
skýra fyrir mig ljóð - sem var um rjúpu. Síðan
borða ég ekki rjúpu, því að í mínum huga er
rjúpan mennsk.
Én hér lá á disknum fyrir framan mig ofn-
steikt rjúpubringa borin fram á röstikartöflu
(sem em rifnar kartöflur steiktar í klatta) og
annað meðlæti var gulrætur, bygg, hirsigrjón,
villisveppir, spínat, blaðlaukur og rjómasósa.
Og af því að maður kann sig í góðum veisl-
um, bragðaði maður auðvitað á rjúpunni.
Bragðið var eins óskaplega fallegt og gott og
fuglinn sjálfur. Meðlætið var kynngimagnað
og það myndi ég gjarnan vilja borða aftur og
aftur. En það þarf eitthvað annað og meira en
gott bragð til að ég losni við rjúpukomplexinn.
Eftirleikir
Fyrri eftirréttur kvöldsins bar heitið Osta-
leikur. Samsettur úr parmesanlaufabrauði,
krydduðum fetaosti, stiltonosti og port salut
osti. Meðlæti var græn paprika með ristuðum
brauðteningum og furuhnetum.
Otrúlega fínlegur ostaréttur borinn fram
með meira af ástralska rauðvíninu. Hann var
svo fallegur á diski að maður ætlaði varla að
tíma að stinga í hann áhöldunum og gæða sér
á honum. En svo lét maður slag standa og
varð ekki fyrir vonbrigðum. Laufabrauðið
sem búið var til úr parmesanosti var feikigott
og hinar mildu furuhnetur héldu sínu, þótt all-
ir þessir ostar væru að slást við þær um pláss-
ið í bragðskyninu. Eins og hún amma mín
hefði sagt: Þetta var virkilega „elegant" rétt-
ur. Seinni eftirrétturinn var sætur. Ber nafnið
Berlín 1996 og var verðlaunadesert á ólymp-
íukeppni kokkalandsliðsins í Berlín 1996.
Hann er gerður úr Chartreause og súkkulaði-
mousse í jacondakex-þríhyrningi, kunkatá-
vöxtum í hvannasírópi og er borinn fram með
valhnetukremsósu og nougatvöfflu. Með
þessu var borið fram sérvín; Cockbum Speci-
al Réserve, og nú small allt saman. Kvöldið
var eins og flókin saga þar sem réttirnir voru
„klú“ og þegar seinni eftirrétturinn kom, svo
gómsætur en tempraður, var myndin heil,
kvöldið fullkomnað, sagan spennandi, vel
skrifuð og góð. Og svo hölluðum við okkur aft-
ur í stólunum og nutum þess að dreypa á kaffi
og sumir á Grand Marnier, aðrir á Renault
Carte Noire Extra koníaki á meðan við maul-
uðum fyllta konfektmola með ýmsum bragð-
tegundum og marsipanhjúpaða kökumola inn
í nóttina sem ennþá var ung og langt frá því
að vera tæmd til botns.
biður þig að gæta barnanna, þau
i leika að teningum sem er tákn
í nýiTa gilda, nýrrar hugsunar.
i Lerkitréð sem vex út úr brjósti
s þínu merkir „skrúða þöll“ eða
skarti prýdda konu og að þú rífir
tréð út er merki um að þú viljir
flýta þessari breytingu, runninn
er það sem var.
I seinni drauminum ertu
komin á skrið í þessu þroska-
ferli (að synda í höfninni, en
höfnin og hafið er ígildi sálar-
innar). Þú (konan með þér er
fylgja þín eða Animus) ert nú
; jafnoki þeirra karlmanna sem
þú gast ekki metið þig við áður
1 (karlarnir í bátnum og höfn-
inni). Þessi vitundarvakning
(hafið rís) gerir þig órólega en
þú ert óttalaus og heldur áfram.
Lok draumsins tala um sam-
band þitt við þína nánustu sem
skilja ekki umskiptin (móðir þín
er hnípin og Hulda merkir eitt-
hvað sem er hulið eða í fjar-
lægð, þær sjá þig ekki). Miðinn
merkir að þú þurfir að aðlaga
þig aðstæðum og líkt og í aug-
lýsingum, vera blátt áfram í fasi
og tala skýrt og skorinort.
Þeir lesendur sem vilja fá
drauma sfna birta og ráðna sendi
þá með fullu nafni, fæðingardegi
og ári ásamt heimilisfangi og dul-
nefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavík
SPURT ER
Hverjir voru levítar?
MENNING - LISTIR
1. Þjóðleikhúsið frumsýndi í vik-
unni leikritið Meiri gauragang
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Hverjir fara með hlutverk
söguheijanna í sýningunni,
Orms og Ranúrs?
2. Hléið á frumsýningu á Ástar-
drykknum eftir Donizetti í ís-
lensku óperunni á dögunum
dróst á langinn. Hvers vegna?
3. Á Listahátíð í Reykjavík í sum-
ar mun listamaður sem hér á
landi er betur þekktur sem
þjóðhöfðingi sýna verk sín,
meðal annars hökla og altaris-
klæði. Hver er listamaðurinn?
SAGA
4. I íslandssögunni er getið um
eina sjóorrustu, sem háð var
hér á landi. Hver var hún?
5. Hver var fyrsta konan sem
kjörin var forseti þjóðar í lýð-
ræðislegum kosningum?
6. Hvaða drykkur var bannaður í
Bandaríkjunum árið 1775?
LANDAFRÆDI
7. Innsveit Breiðdals í Suður-
Múlasýslu skiptist í tvo dali.
Ilvað heita þeir?
8. Hvaða ríki í Bandaríkjunum er
kallað „Sunshine State“?
9. Hvað heitir höfuðborg Brasilíu
og hver var höfúðborg landsins
áður en núverandi höfuðborg
var reist?
ÍÞRÓTTIR
10. Vala Flosadóttir setti glæsilegt
heimsmet í stangarstökki inn-
anhúss nú nýverið. Hve hátt
stökk hún?
11. Hvaða íslenski knattspyrnu-
maður lýsti því yfir í vikunni að
hann væri hættur að leika með
íslenska landsliðinu, í hvaða
landi leikur hann og hvað heitir
félagið sem hann leikur fyrir?
12. Hinn árlegi stjörnuleikur NBA
deildarinnar í bandaríska
körfuboltanum var haldinn nú
nýverið. Hver var valinn maður
leiksins?
ÝMISLEGT
13. Hvaða söngvarar hafa flutt lag-
ið „It Hurts Me Too“ og undir
hvaða tegund tónlistar flokkast
lagið?
14. Ilvað hcitir saksóknarinn sem
mest hefur haft sig í frammi í
málarekstrinum gegn Clinton
Bandaríkjaforseta?
15. Hverjir voru levítar?
16. BJÖRK Guðmundsdóttir tók við eftirsóttum tónlistarverðlaunum í
vikunni. Hvað heita verðlaunin og fyrir hvað var Björk verðlaunuð.
■!6ueA|)8AeQOfc(|e g uuungeuuejsnuo) suá>|U9a>| !)seq U!|Ba jba unq ua 'ejsjg une|pj8AJB)S!|uo) njsjæjs 60 n)sn))9SJ!))8 nje ujss 'ujnunune|QJ9AJB)S!|U9)-)!jg qw e>|e) ge ja euo>|6uos j|))9pspunuj
-gng >|jo[g '9) -jeun>|jAps9n6 go)sg!uj gjeA u!6joq ge jpje weiesruer j gusjsnw giA pojsnjsnupfcl s^wA n6uej 60 |eejsi 1 ewppiöieq nswA euiq g|A jbjssjcÍ wss ngnuolcj jjeg nuDuewejse) e|weo
)wæA>|wes sjAeq jnpu8wo>)je njOA jejjABq -g) ujejg qjeuue» 'H '|si|U9)-sen|q jjpun )se>|>(0|j g|6e| us 'uojdeio oug 60 sewer ejowg ■£) -uepjop |eeqo!|A| 'ZV 'löejoN 1 eppjAj 'uoss6ne|uung
!>|jefg ■) v 'BJ)6W zp'b '01 'Ojjsuep sp om gec| jba jnge ue ‘ejnsejg Jipeiq nmsejg 6joqgnjgq ipuejeAnjg '6 'epupy '8 'jniepjngng 60 jniepjngjON / 'ex -g ji))9pe6oquuy sjp6iy\ '9 |6epjeqe9U t>
'6uiu))Ojpeuea jnp||qj9g joj6jbiaj '£ jsieq j wniswAs juAj uuej wss 'ouenni ojjsqog 'wnuejBA6uos|ege wnuie ge e6nq ge jba gu9A Z 'uossj|96u| jgg jn6jeg 60 uossu.isjh lisneji jnppg • j:JOAg