Morgunblaðið - 14.02.1998, Side 31
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 31
______MARGMIÐLUN
Framúrskar-
andi leikur
LEIKUR
Myth: The Fallen Lords er leikur frá
Bungie og krefst Windows 95 eða
NT, 133 MHz Pentium örgjörva, 16
Mb innra minnis og fjögurra hraða
geisladrifs. Leikurinn styður 3Dfx
skjákort.
FJÖLDI leikja byggist á því
að stýra mönnum í stríði
og afbrigðin óteljandi. All-
ir þekkja þann frægasta,
Command & Conquer, sem rekur
ættir til Sega-leiksins Dune og jafn-
vel lengra aftur. Vissulega eru
margir leikir þeirrar gerðar leiðin-
legir og sumir með ofuráherslu á
allskyns smámunasemi, en inn á
milli eru frábærir leikir sem fara
nýjar leiðir og skapa um leið nýjan
stfl. Myth: The Fallen Lords er einn
slíkra leikja; framúrskarandi
skemmtilegur, með bráðgóða grafík
og áhugaverða sögu.
Leikurinn hefst þar sem leikand-
inn stýrir flokki manna sem gæta á
brúar fyrir ásrás óþokka og
ófreskja. Takist honum að verjast
því áhlaupi fær hann annað verk-
efni, heldur snúnara, og smám sam-
an verða orrusturnar magnaðri,
andstæðingarnir öflugir og liðssafn-
aðurinn fjölbreyttari. I liði þess sem
leikur eru hefðbundnir hermenn,
ýmist með höggvopn, boga og örvar
eða aðrar verjur, dvergar vopnaðh-
ansi öfluðum sprengjum, berserkir,
smiðir, risar, læknar og fleiri, en á
móti eru ógurlegir sverðabaldrar,
mannætuófreskjur, fljúgandi beina-
grindur og svo mætti telja. Orrustu-
völlurinn er þrívíddariandslag, sér-
staklega skemmtilegt í hefðbundinni
graflk og magnað sé 3Dfx-kort í
tölvunni, hæðótt og með trjám,
lækjum og gilskorningum. Því er
það tínt til að allt skiptir máli; ef
fljúgandi beinagrindur sem skjóta
eiturspjótum gera árás, er hægt að
forða sér inn undir trén sem skýla
fyrir spjótunum, bogmenn geta
komið sér fyrir efst í gili og skotið
örvun sínum á óvini í gilbotninum og
þar fram eftir götunum. Efth' því
sem orrustunni vindur fram bætist
við landslagið; líkamshlutar, blóð-
slettur og lík liggja eins og hráviði
um allt og haldast á sínum stað allan
leikinn. Vert er að geta þess að
vbeðurfar skiptir máli í leiknum; í
snjókomu fara hermenn hægar yfir
og óvinir geta komist á slóðina verði
spon-ækt.
Sjónarhornið er í nokkurri hæð
yfir borðinu og hægt að fara all ná-
lægt, auk þess sem velta má sjónar-
horninu fyiir sér í allar áttir, fara til
vinstri og hægri, renna sér fram og
aftur og snúast í hringi. Minna er
lagt í verurnar sem birtast á blóð-
vellinum, en skiptir ekki meginmáli.
A netinu er hægt að sækja sér end-
urbætta útgáfu á leiknum sem gerir
kleift að fara enn lengra frá vígvell-
inum og gefur góða yfirsýn.
Auðvelt er að stýra liðinu og hægt
að velja um fyrirfram ákveðnar upp-
stillingar; til að mynda er best að
láta liðssöfnuðinn tvístrast í
sprengjuregni, en síðan má láta það
mynda fleyg ef sækja á inn í óvina-
fjöld, eða slá skjaldborg um eitthvað
ef svo ber undir. í orrustu verður
liðið óneitanlega nokkuð blandað en
þá er hægt að velja á einfaldan hátt
alla liðsmenn ákveðinnar gerðar og
senda í annað verkefni eða láta þá
sækja úr annarri átt.
Netleikur
Bungie hefur sett upp eigin vef-
þjón fyrir leikinn sem kallast
Bungie.net og þar er jafnan mikið
um að vera. Leikendur geta tekið
þátt í ákveðnum þrautum, barist
hver við annan eða gengið í lið sem
best síðan við annað lið. Vefþjónarn-
ir eru átta og þegar búið er að tengj-
ast einum slíkum kemur upp listi yf-
ir þá leikendur sem ei'u tengdir,
hvar þeir standa í virðingarröðinni
og listi yfir þá leiki sem eru í gangi.
Vh'ðingarröðin ræðst af frammi-
stöðu manna í netleikjum og þeir
sem skara framúr vinna sig smám
saman upp. Þeir sem telja sig
góða og vilja komast hratt
upp virðingarstigann geta
skorað á þá sem eru lengra
komnir, því fleiri stig fást fyr-
ir að sigra einhverja fræga
hetjuna en byrjendur.
Bungie.net heldur utan um
skor hvers og eins og refsar
mönnum fyrir að hætta í
miðju kafi. Hægt er að
smella á nöfn og spjalla við
einhvern þeirra sem eru
tengdir, til að mynda tfl að
bindast samtökum um leik.
Fjölmörg atriði gera leik-
inn enn skemmtilegri, til að
mynda er hægt að gera
einskonar kvikmyndir af
leikjum og nota meðal ann-
ars til að velta fyrir sér hvað hafi
farið úrskeiðis eða til þess að monta
sig af frammistöðunni. Hægt er að
skiptast á slíkum myndum manna á
milli, ýmist til að gefa hugmynd um
besta framhaldið eða leita lausna
svo fátt eitt sé talið. Einnig geta
hermenn geta fylgt á milli borða og
þannig geta menn safnað að sér öfl-
ugum atvinnumannaher sem treyst-
ist og safnar reynslu eftir því sem
líður á leikinn.
Myth: The Fallen Lords er fram-
úrskarandi leikur fyi'ir grafík, og
hugmyndaauðgi. Hann verður ef-
laust á lista yfir helstu leiki ársins
þegar upp verður staðið, ekki síst
fyrir skemmtilega netleiksmögu-
leika, en fyrst og fremst er hann
leikur sem stakur notandi getur
skemmt sér í einn síns liðs.
Árni Matthíasson
Spurt:
Ég á tölvuleikinn Need for
Speed 2 SE sem fjallað var um í
Morgunblaðinu 7. febrúa sl., undir
Margmiðlun. Þar var talað um
ýmis „trix“ í Need For Speed 2
(„normal" og/eða SE). Þau svindl
sem gefin eru upp á slóðinni:
http://www.pcgamer.com/stra-
tegy/Need ... virka ekki fyrir SE
útgáfuna. Mér fannst hið gagn-
stæða koma fram í greininni og
fór því að prófa og ekkert gekk.
Það endaði með því að ég sendi
fyrirspurn um þetta til Nathans
Masons sem er einhver gúrú í
þessu samkvæmt framangreindri
vefsíðu og svarið var stutt og
laggott að þessi trix virki ekki í
SE útgáfunni. Ég á hinsvegar
erfitt með að skilja að sérútgáfan
innihaldi ekki meira en sú venju-
lega. Getið þið hjálpað mér eitt-
hvað áfram með þetta?
Með bestukveðju,
Eyþór H. Ólafsson.
Svar:
Ýmsar leiðir til að fá fram leyni-
brautir og bíla eru gefnar upp á
slóðinni
http://vs.chem.msu.Su/kostya/nfs/s
e.htm og þar er hægt að sækja
hugbúnað, se_cheat.zip, sem geir
kleift að spila leynibrautir, en þær
eru annars bónus fyrir þá sem ná
langt í leiknum. Þar er einnig for-
rit til að breyta Need For Speed
II brautum fyrir SE útgáfuna. A
slóðinni http://www2.vivid.net/—
bobcat/nfs.html er forrit til að búa
til brautir fyrir Need For Speed
sem síðan má breyta til að gangi í
SE-útgáfuna. Finnski tölvuþrjót-
urinn Ruslan Vassiljev hefur kom-
ið upp á slóðinni
http://www.netti.fi/— ruslan/klm-
no.htm, safni af svindlum við ríf-
lega 800 leiki, og þar kemur fram
að sé hollywood slegið inn í aðal-
skjámynd leiksins náist upp auka-
borð, tombstone og bomber gefi
aukabfla, slip geri brautir hálar og
fzr2000 gefi sérstakan aukabfl.
Spurt:
Mig langar til að spyrja um
nokkur leyni í Broken Sword 1 og
2, Worms 2 og Road Rash. Gæti
ég fengið að vita um gott leitar-
svæði á neýinu?
Þórður Ivar Björnsson
Svar:
Eitt leitasvæði er gefið upp að
framan, en einnig má leita á slóð-
unum http://www.gamecent-
er.com/, http://www.happy-
puppy.com/, ttp://www.gamesmani
a.com/ og http://www.ogr.com/, en
sú síðarnefnda státar af því að
vera vinsælasta leikjaslóð á net-
inu.
Ekki eru eiginleg „leyni“ í
Broken Sword 1 & 2, frekar að
hægt sé að finna á netinu heildar-
lausnir þar sem rakið er hvað á
gera á hverjum stað. Of langt mál
yrði að birta slíkt hér, en bent á
slóðirnar sem getið er að framan.
Til að svindla í Road Rash er
fyrst slegið inn XYZZY í leik og
síðan eitthvert eftirtalinna: Bribe,
sem ryður lögreglumönnum úr
veginum, k’thunk! gefur kylfu,
spoon! gefur sprengiefni og
thwack! keðju.
í Worms 2 eru á fimmta tug
leyniorða til að komast í borð og
þau segja sérkennilega sögu. í
þessari upptalningu eru leyniorðin
fyi-ir hvert borð aðgi'eind með
ONCEUPONA/ TIMETHERE-
WERE / SOMESMALLWORMS
/ WHOGOTVERYVERY / ANN-
OYEDAND / DECIDEDTO / GO-
TOARMSIN / ORDERTOWIPE /
OUTTHEIR / VICIOUSENEMY
/ COUNTERPARTS / THEY-
.. . ...
DEVELOPED / SOMEREALLY
/ COOLWEAPONSSUCH / AS-
BANANABOMBS/AND-
MAGICBULLETS / THEY-
TRAINED / ALLNIGHTSAND /
EVERYDAYSOTHEY /
WOULDBECOME / PROFICI-
ENT / INTHEIRWORMLY /
WAYSSOMETIMES / THEY-
WOULDSHOOT / GRANNIE-
SJUST / FORFUNANDLAUGH
/ ABOUTITINTHE / EVENING-
TIME / WEAPOLOGISEON /
BEHALFOFALLTHE / TERRI-
TORIESTHAT / WEWENTTO-
THE/TROUBLEOFTRANS-
LATING / W0RMS2INT0BUT-
WE / DIDNTHAVETIMETO /
TRANSLATETHESE / PASS-
WORDSN OTTHAT/THEY-
NEEDTOBEDONE / WESUPP-
OSETHAT/YOUAREREALLY
/ EXPECTINGTO / SEEA-
WONDERFUL/CHEATMODE-
WHEN / FINISHTHEMISS-
IONS / ANDYOUARERIGHT.
Spurt:
Hvar fær maður Glókoll, þann
sem talað er um í Morgunblaðinu
laugardaginn 7. febrúar sl.?
HG
Svar:
Glókoll má fá hjá höfundi hug-
búnaðarins, Hrafnkeli S. Gísla-
syni. Hann hefur síma 555 2076,
en einnig má senda honum tölvu-
póst á netfangið hrafgis@is-
mennt.is.
Spurt og svarað
Lesendum Morgunblaðsins
gefst kostur á að leita svara við
spurningum um margmiðlun og
tölvumál. Spurningar skal senda
með tölvupósti tíl spurt@mbl.is,
eða í hefðbundnum pósti til Marg-
miðlunarsíðu Morgunblaðsins, Kr-
inglunni 1,103 Reykjavík.
2 vikur á
Kanarí
3. mars
frá kr.
39.932
Við höfum nú fengið glæsilega viðbótargistingu á
Kanaríeyjum þann 3. mars á hreint frábærum kjörum.
Falleg nýleg smáhýsi í San Augustin , öll með svölum
eða verönd, baði, stofu, eldhúsi og einu svefnherbergi.
Fallegt sundlaugarsvæði.
Verð kr.
39.932
M.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, 2 vikur
Verð kr.
56.960
M.v. 2 í smáhýsi,
2 vikur, 3. mars.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600
Hefur þú prófað að tippa á netinu?