Morgunblaðið - 14.02.1998, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Tommi og Jenni
ZjSnQ '*' frdendi,
Sjaoa hl/aö er
fyrir atan,.
V
' Torp'
aféur i/erfó aZ /e
Horner
’esct
Ljóska
Smáfólk
5OME0NE AT 5CH00L TOPAT A5KEP ME IF I HAP AN OIPER 5K0THER WHO
DRA66EP A BLANKET AROUNP..‘‘NO," I REPLIED/1 l'M AN ONLY CHILPI"
THEN 50ME0NE 5AIP,"B0T DON'T TOU HAVE A WEIRPOLDER 5I5TER?"
"NO/'I IN5I5TEP,"I,MAN0NLT<:HILPÍ"ANP 50 I 60,PATAFTERPAT,
P0P6IN6 aOESTIONS FROM CURIOU5 OUT5IPER5..
Einhver í skólanum spurði mig hvort ég ætti eldri bróður sem væri með teppi í eftirdragi...
I „Nei, sagði ég, „ég er einkabarn!" Þá sagði einhver: „En áttu ekki skrítna eldri systur?“
„Nei,“ sagði ég, „ég er einkabarn!" Og svona gengur það dag eftir dag, að ég vík mér undan
spurningum frá forvitnum utanaðkomandi aðilum ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
STJÓRN Vinafélags Sjúkrahúss Reykjavíkur ásamt tuttugu og þriggja
manna trúnaðarráði.
Vinafélag Sjúkra-
húss Reykjavíkur
Frá Agli Skúla Ingibergssyni:
VINAFÉLAGIÐ er búið að starfa í
rétt 15 ár, lengst af undir nafninu
„Félag Velunnara Borgarspítalans“.
Félagar eru hátt á annað hundrað.
Stjóm er skipuð 7 mönnum og trún-
aðarmannaráð er skípað 12 mönn-
um.
Aðalfundur er haldinn í mars ár
hvert, með stjómarkjöri, trúnaðai'-
mannakjöri, yfirferð og samþykkt á
ársreikningum, og umræðum um
verkefni næstu mánuðina.
Á stofnfundi félagsins, sem hald-
inn var 10. febrúar 1983, vom sam-
þykktir félagsins einnig samþykktar:
Félagið beitir sér fyrir því að:
• Bæta hvers kyns aðstöðu sjúk-
linga.
• Bæta og efla allskyns þjónustu,
svo sem lækningar, endurhæfíngu
og vísindastarfsemi á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur.
• Éfla og styrkja hvers konar fyrir-
byggjandi starfsemi í heilbrigðis-
málum innan veggja sjúkrahúss
Reykjavíkur sem og utan.
• Stuðla að auknum skilningi al-
mennings og stjómvalda á starf-
semi Sjúkrahúss Reykjavíkur.
• Stuðla að því að Sjúkrahús
Reykjavíkur sé aðlaðandi og vinsæll
vinnustaðm- og að vinnuaðstaða þar
sé jafnan sem best.
Til þess að hægt sé að fylgja eftir
háleitum markmiðum er fjármagn
nauðsynlegt. Og oft kemur upp
spurningin um af hverju hið opin-
bera geri ekki hlutina.
Sjónarmið okkar hjá VSR er að
það muni alltaf verða svo að það
fjármagn sem hið opinbera getur
veitt til heilbrigðismála muni aldrei
duga fyrir öllum þörfum og að alltaf
verði að raða verkefnum til lausnar í
einhverja óskaröð.
Þau verkefni sem að jafnaði verða
aftast eru þau verkefni sem VSR
mun reyna að flnna lausn á.
Verkefni
Alls konar verkefni hafa komið
upp og alls konar lausna verið leit-
að. Við höfum unnið með Rauða
Krossinum, kvennadeildinni í
Reykjavík og Oddfellowum og við
höfum farið í sérstaka fjáröflunar-
leiðangra út af ákveðnum verkum,
við höfum selt bók, „Listin að lifa
með kransæðasjúkdóm", sem félag-
ið gaf út.
Félagið hefur líka fengið góðar
gjafir bæði til ákveðinna verkefna
og til frjálsra afnota. Þá hefur sam-
starfið við stjómendur spítalans
verið með ágætum og þeir kostað
vissa skrifstofuvinnu með sínu fólki.
En öll vinna félaganna í VSR hefur
verið unnin í sjálfboðavinnu.
Gegnumsneitt hefur félagið ekki
farið inn í verkefni sem eru endur-
tekin ár eftir ár, en þó eru tvö verk-
efni slík, það er skógrækt í kringum
spítalann, sem hefur verið árviss at-
burður undanfarin 6-8 ár, og hefur
VSR lagt til plönturnar. Árangur er
nú farinn að koma vel í ljós. Hitt ár-
vissa verkefnið er að koma með litl-
ar gjafir til þess fólks sem er við
störf aðfangadag jóla.
Félagið hefur komið því til Ieiðar
að innréttað var aðstandendaher-
bergi við slysadeild fyrir aðstand-
endur þeirra sem í slysum lenda, og
lagði til búnað, einnig tók félagið
þátt í að innrétta kapellu á fyi-stu
hæð spítalans, en Oddfellowar sáu
um mestan hluta þess verks.
Þá lagði félagið til lýsingu í þyi'lu-
pall spítalans.
Alls konar tæki hafa og verið gef-
in spítalanum, þau stærstu voru að-
gerðasmásjá og svo Kusa tæki, en
einnig mikið af minni tækjum.
Hljóðfæri og hljómflutningstæki
hafa verið gefín á margar deildir
einnig myndbönd bæði fyrir sjúk-
linga og þjálfun þeirra sem sjúkra-
þjálfun fá á Grensási svo og tölva í
sama tilgangi.
Félagið hefur einnig útvegað
listafólk við ýmis tækifæri, sem hef-
ur skemmt með söng og tónlistar-
flutningi.
Lokaorð
Stjórn VSR þakkar öllum þeim
sem hafa lagt þeim málum lið sem
fengist hefur verið við. Stjórnin von-
ar að þau mál sem upp verða borin á
næstunni fái hljómgrunn hjá al-
menningi eins og hingað til og mun
takast á við verkefni morgundagsins
af sama hug og hingað til.
EGILL SKÚLIINGIBERGSSON,
formaður Vinafélags Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.