Morgunblaðið - 03.03.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
PRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 13
FRÉTTIR
30 íbúar við Miklubraut
fengið styrki tii hljóðeinangrunar
Borgarstjóri
gagnrýnir
Vegagerðina
UM 30 íbúar við Miklabraut hafa
fengið vilyrði fyrir styrk hjá
Reykjavíkurborg í því skyni að efla
hljóðeinangrun húsnæðis síns,
samkvæmt því sem fram kom á
hverfafundi Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra á Kjar-
valsstöðum á fímmtudagskvöld.
Þar var farið yfir stöðu borgarmála
með íbúum sem búa austan
Snorrabrautar að Kringlumýrar-
braut.
Ingibjörg sagði að þegar væri
búið að hrinda af stað umbótum
hjá einum íbúðareiganda og fleiri
biðu afgreiðslu í vor. Gert væri ráð
fyrir 30 milljóna króna framlagi
vegna þessara aðgerða í ár en 20
milljónir hefðu verið ætlaðar til
þeirra í íyrra.
Þá hefði verið óskað eftir við-
ræðum við ríkið um að álíka fram-
lag verði lagt fram á vegaáætlun,
enda um stofnbraut að ræða. Hug-
myndir borgarinnar geri ráð íyrir
að borgin greiði þriðjung á móti
jafnháu framlagi ríkis og íbúðar-
eigenda. „Málinu var vel tekið í
samgönguráðuneytinu en við höf-
um ekki fengið nein svör. Vega-
gerðin hefur verið dálítið þversum
í þessu máli, staðið á bremsunni og
ekki viljað taka þetta inn á vegaá-
ætlun,“ sagði hún.
Við dyr Kjarvalsstaða hafði verið
komið fyrir borða með kröfu um að
Miklubraut væri sett í stokk á milli
Snorrabrautar og Skaftahlíðar, og
varð þess vart á fundinum að mál
Miklubrautar voru mörgum fund-
argestum hugleikin.
Stokkur kostar
800 milljónir
Ingibjörg Sólrún sagði að gert
væri ráð fyrir stokknum í aðal-
skipulagi Reykjavíkur en málið
væri enn í skoðun hjá ríkinu og
hefði Vegagerðin sett marga íyrir-
vara á þessari framkvæmd. Kostn-
aður við stokkinn sé áætlaður 800
milljónir króna.
Ingibjörg segir gert ráð fyrir að
aðalfjárveiting vegna stokksins
verði árið 2001 og þá munu 190
milljónir verða settar í verkefnið.
„Við gerum ráð fyrir að undirbún-
ingur hefjist á næsta ári og þá
verði boðaðar ýmsar útfærslur og
leiðir,“ segir Ingibjörg Sólrún og
minnti á að stokkurinn og færsla
Hringbrautar séu verkefni sem
haldast í hendur. „I tillögum okkur
vegna vegaáætlunar er gert ráð
fyrir að ráðist verði í færslu Hring-
brautar á næstu fimm árum, en af-
greiðsla Alþingis er enn óljós.“
Hún sagði að i tillögum Reykja-
víkurborgar vegna vegaáætlunar
til fimm ára sé í heild gert ráð fyrir
900 milljónum króna vegna að-
gerða í tengslum við Miklubraut.
Nýr vegur um Fossárvík í Berufírði
Fornleifafræðingur
skoði vegarstæði
SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins hefur
fallist á byggingu nýs vegar um
Fossárvík í Berufirði í Suður-Múla-
sýslu og byggingu 40 m langi'ar tví-
breiðrar brúar yfir Fossá.
Vegurinn mun leysa gamlan, burð-
arlítinn og hættulegan veg með ein-
breiðri brú af hólmi, bæta Hringveg-
inn og styrkja samgöngur í Djúpa-
vogshreppi.
Verði lokið í haust
Ráðgert er að framkvæmdir við
veginn, sem verður 2.9 km langur og
6.5 m breiður, hefjist næsta vor og
að hægt verði að taka hann í notkun,
með bundnu slitlagi, þá um haustið.
Þau skilyrði eru sett fyrir sam-
þykki skipulagsstjóra að haft verði
samráð við Náttúruvernd ríkisins
um efnistöku, að fornleifa- eða þjóð-
háttafræðingur skoði fyrirhugað
vegstæði á Selnesi áður en fram-
kvæmdir hefjast og að vatnsskipti á
leirum innan vegarins verði þannig
að munur flóðs og fjöru breytist sem
minnst.
Úrskurð skipulagsstjóra má kæra
til umhverfisráðherra og er kæru-
frestur til 3. apríl 1998.
Bolungarvíkurhöfn
Vilja láta dýpka
innsiglinguna
FYRIRHUGAÐ er að fjárfesta
fyrir 23 milljónir í Bolungarvíkur-
höfn á þessu ári, samkvæmt fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs Bolungar-
víkur. Heimamenn vilja leggja
fjármagnið í dýpkun innsiglingar-
innar.
Um tíma hefur staðið til að ráð-
ast í viðhald og styrkingu á Grund-
argai-ði og var komið samþykki yf-
irvalda hafnarmála fyrir því.
Síðastliðið haust varð vart við ótta
við að innsiglingin væri að grynn-
ast þegar skip tók þar niðri. Að
sögn Olafs Kristjánssonar bæjar-
stjóra breytti þetta atvik forgangs-
röðun í huga heimamanna, bæjar-
stjórn leggi nú áherslu á að dýpka
innsiglinguna til þess að stóru
loðnuskipin geti á fullkomlega ör-
uggan hátt siglt inn í höfnina.
Telur hann að vilyrði hafi fengist
frá yfirvöldum um að breyta um
röð framkvæmda og vonast til að
hægt verði að ráðast í dýpkunar-
framkvæmdir í sumar.
Morgunblaðið/Ásdís
HARALDUR A. Haraldsson, Guðrún Hannesdóttir, forstöðukona Hringsjár, Margrét Margeirsdóttir, deildar-
stjóri í Félagsmálaráðuneytinu, Haukur Þórðarson, formaður Oryrkjabandalags Islands, og Páll Pétursson
félagsmálaráðherra að lokinni undirritun samningsins.
Þjónustusamningur um
starfsþjálfun fatlaðra
GERÐIR hafa verið þjónustu-
samningar milli félagsmálaráðu-
neytisins og Tölvumiðstöðvar fatl-
aðra annars vegar og Öryrkja-
bandalags Islands um rekstur Hr-
ingsjár, starfsþjálfunar fatlaðra,
hins vegar. Samningar þar að lút-
andi voru undirritaðir í húsnæði
Hringsjár í Hátúni lOd.
Félagsmálaráðherra sagðist, að
undirritun lokinni, vonast til þess
að þetta skref yrði til þess að
styrkja bæði starfsemi Hringsjár
og Tölvumiðstöðvarinnar. Jón
Torfi Jónasson prófessor, sem
undirritaði samninginn fyrir hönd
Tölvumiðstöðvarinnar, sagði
samninginn mikla viðurkenningu
á starfsemi Tölvumiðstöðvarinnar
auk þess sem hann kæmi til með
að koma allri þjónustu hennar við
fatlaða í fastara form en verið
hefur. Guðrún Hannesdóttir, for-
stöðukona Hringsjár, tók í sama
streng og sagðist vonast til þess
að þetta skref yrði til þess að létta
ákveðinni óvissu af rekstri starf-
seminnar.
Hjá Hringsjá er boðið upp á
tveggja til fjögurra anna nám auk
styttri námskeiða og er meginá-
hersla lögð á greinar sem að
gagni koma á vinnumarkaði, svo
sem tölvunotkun, verslunarreikn-
ing, bókfærslu, íslensku, ensku og
samfélagsfræði. Einnig er þar
boðið upp á náms- og starfsráð-
gjöf.
Frumvarp um
minningarreit
í kirkjugarði
LAGT hefur verið fram á Alþingi
frumvaip til laga um að kirkjugarðs-
stjórn geti ákveðið sérstakan minn-
ingarreit í kirkjugarði vegna horfins
manns sem úrskurðaður hefur verið
látinn. Myndi sá reitur njóta sömu
friðhelgi og grafreitur.
Fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins er Kristinn H. Gunnarsson,
þingmaður Alþýðubandalags og
óháðra. í greinargerð frumvarpsins
segir að í gildandi lögum um kirkju-
garða, greftrun og líkbrennslu, sé
ekki að finna ákvæði er heimili
minningarreit í kirkjugarði vegna
látins manns þegar lík hans fmnst
ekki eða næst ekki. Er því með
frumvarpinu lagt til að úr þessu
verði bætt.
HONDA
4 d y r a
1...4 S i ______________________________
9 0 h e s t ö f t
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri
Innitalið í v.erði bílsins
1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun4
Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4
Rafdrifnar rúður og speglar4
ABS bremsukerfi 4
Samlæsingar 4
14" dekk4
Honda teppasett4
Ryðvörn og skráning4
Útvarp og kassettutæki4
E
Verð á qötuna: 1.455.000.-
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.550.000,-
115 hestöfl
Fjarstýrðar samlæsingar
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Sjálfskipting 100.000,-
[0
HONDA
Simi: 520 1100