Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 23
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Sigurgeir
^ GUÐMUNDUR VE kemur til hafnar í Eyjum nokkuð „ísaður“.
Ising til ama við
loðnuveiðarnar
Búið að frysta 12-13 þúsund tonn
af loðnu fyrir markaðinn í Japan
LOÐNUVEIÐAR gengu vel undan
Ingólfshöfða í gær og veiðist loðnan
allan sólarhringinn. Kuldi hefur
gert sjómönnum erfítt fyrir og safn-
ast mikil ísing á skipin. Frysting á
Japansmarkað er nú í fullum gangi
en loðnan þykir óvenju smá í ár og
því fer mun minna af henni í verð-
mætustu flokkana en áður.
Möstrin margföld að breidd
Loðnusjómenn hafa ekki farið
varhluta af kuldakastinu frekar en
aðrir landsmenn og hefur mikil ís-
ing safnast á skipin á miðunum. Sig-
urður Georgsson, skipstjóri á
Heimaey VE, var á útleið frá Vest-
mannaeyjum eftir að hafa landað
þar fullfermi þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. Sigurður seg-
ir skipverja á Heimaey hafa verið
tæpa fjóra tíma að berja ís af skip-
inu áður en þeir gátu hafið veiðar í
fyrradag. „Við vorum á útstími yfír
nóttina og þá fór frostið upp í 15
gráður. Það var komið um 20 senti-
metra íslag á rekkverkið og möstrin
voru margfóld á breidd. Skipið var
orðið mjög þungt og því ekki um
annað að ræða en að berja ísinn af.
Það hefði getað lagst á hliðina með
stórt kast á síðunni," sagði Sigurð-
ur.
Upp í 70 loðnur í kílói
Sigurður sagðist hafa fengið í
skipið í þremur köstum og gefið þar
að auki 300 tonn af síðasta kastinu.
Sigurður segir loðnuna lélega.
„Kerlingin er óvenju smá í ár. Við
fengum aðeins einu sinni prufu með
60 loðnum í kflói og síðan allt upp í
70 loðnum í kílói. Þegar best lætur
eru aðeins um 40 stykki í kflóinu.
Við vitum hins vegar ekkert hvern-
ig á þessu stendur en vera má að
aðstæður hafi leitt til þess að loðnan
hafi fengið minna að éta en venju-
lega.“
Vantar verðmætustu flokkana
Loðnufrysting á Japansmarkað
er nú í fullum gangi. Þegar hafa
verið fryst samtals á milli 12 og 13
þúsund tonn á Japan. Framleiðend-
ur íslenskra sjávarafurða hafa nú
þegar ftyst um 5.000 tonn en fram-
leiðsla þeirra var um 5.800 tonn á
allri síðustu vertíð. Munar þar mest
um framleiðendur á Austurlandi en
loðnufrysting á Japan fór að mestu
leyti forgörðum þar á síðasta ári.
Hjá framleiðendum Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hafa verið fryst á
milli 7 og 8 þúsund tonn á Japan en
heildarframleiðsla á síðustu vertíð
var um 14.000 tonn. Halldór Eyj-
ólfsson, deildarstjóri hjá SH, segir
að ekki hafi náðst að frysta eins
mikið af loðnu á Japansmarkað eins
og vonir stóðu til, einkum í verð-
mætustu flokkana. Loðnan sé
smærri en áður og því sé meira
fryst á Rússlandsmarkað en ella.
I gær var afli íslenskra loðnu-
skipa kominn í um 167 þúsund tonn
frá áramótum. Mest hefur verið
landað af loðnu hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar, alls um 26 þúsund
tonnum.
NAMMCO fundar í Reykjavik
Ekki reiknað með
beinum niðurstöðum
VÍSINDANEFND NAMMCO sem
eru samtök þjóða við Norður-Atl-
antshaf um nýtingu sjávarspendýra
fundar á Islandi þessa dagana og
hefur til umfjöllunar ýmis málefni
sem lögð voru á borð hennar á aðal-
fundi NAMMCO í nóvember á síð-
asta ári.
í fréttatilkynningu frá
NAMMCO kemur fram að á nóvem-
berfundinum hefði verið farið yfir
niðurstöður rannsókna á hlutdeild
þriggja stórtækra rándýra, hrefnu,
blöðrusels og vöðusels í lífríki Norð-
ur-Atlantshafsins. Ein af niðurstöð-
um fundarins var sú að þessar teg-
undir kunni að hafa veruleg bein og
óbein áhrif á stofnstærð ýmissa
nytjafiska.
Fundur vísindanefndarinnar nú
er til undirbúnings næsta aðalfundi
NAMMCO sem haldinn verður sið-
ar á árinu, en þá stendur til að líta
nánar á efnahagsþætti sem íylgja
nýtingu sjávarspendýra og fiski-
stofna og hvernig mismunandi fyr-
irkomulag leiðir af sér breytilegar
efnahagslegar niðurstöður.
Á fundi vísindanefndarinnar
verður m.a. fjallað um stofnstærð
hrefnu og ástand vöðu- og
blöðruselsstofna byggt á nýjum at-
hugunum frá Jan Mayen-svæðinu
og frá Grænlandshafi. Vísindamenn
frá Kanada, íslandi og Noregi flytja
fyrirlestra og munu niðurstöður
fundarins verða kynntar á aðalfundi
samtakanna sem fram fer í Ósló í
september.
Gunnar Stefánsson hjá Hafrann-
sóknastofnun veitir undimefnd vís-
indanefndarinnar, sem fjallar um
þessi mál, forstöðu. „Við erum að
fjalla um efnahagslega þætti sam-
spils sjávarspendýra og fiskveiða.
Þar sem þetta er fyrsti fundurinn
um slík mál er ekki reiknað með því
að fá neinar tölulegar niðurstöður á
þessu stigi málsins, heldur miklu
fremur ábendingar um hvernig
unnt sé að vinna þetta dæmi
áfram,“ sagði Gunnar.
GRUÍIDIG
Bestu
verMn!
erhjá
okkir!
■ Taktu áshoruninni
Sjðnvarpsmiðstöðin
VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Kaupfélag Borpfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði.VESTFIHDIR: Rafbúð Jónasar Þórs, Patreksfirði. Póllinn,
Isafirði. NORÐURLAND: KF Sleingrímsljarðar, Hðlmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. KF Hónvetninga, Blönduósí. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. KEA, Dalvík. Bókval, Akureyri. Ijósgjafinn,
Akureyri. KF Þingeyinga, Hósavik. Urð, Raufarhöfn. AUSTURLAND: KF Héraðsbúa, Egllsstöðum. Verslunin Vik, Neskaupsstað. Kauptún, Vopnafiröi. KF Vopnfirðinga, Vopnafirði. KF Héraðsbúa,
Seyöisfirði.Turnbræður, Seyðisliröi.KF Fáskrúösfjarðar, Fáskrúðsfiröi. KASK. Djúpavogi. KASK, Höfn Hornafiröi. SUDURLAND: Rafmagnsverkstæöi KU, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Heimstækni,
MlossiJÁJielfossUjáuiJjorlákJöfiUlriijin^^